Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JLINÍ 1993 Hús fyrir fjölfatl- aða opnað í haust RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að hefja megi rekstur heimilis fyrir fjölfatlaða einstaklinga á Reykjalundi í haust og hefur jafnfamt verið samþykkt að fjárveiting til reksturs heimilisins verði í fjárlagatillögum heilbrigðisráðuneytisins fyrir næsta ár. Þetta var afgreitt á fundi ríkis- stjórnar á þriðjudag að tiliögu Guðmundar Arna Stefánssonar heilbrigð- isráðherra. Borgey fékk framlengingu HÉRAÐSDÓMUR Austurlands framlengdi í gær greiðslustöðv- un Borgeyjar á Höfn í Horna- firði um þrjá mánuði eða til 14. september. Forsvarsmenn fyrirtækisins ósk- uðu eftir því að greiðslustöðvun sem fyrirtækið hafði haft í þrjár vikur yrði framlengd um þann hámarks- tíma sem lög leyfa og var orðið við því. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að endurskipuleggja fjárhag fyrirtækisins. Hafíst var handa við byggingu hússins árið 1989 í kjölfar söfnun- arátaks sem Lionshreyfingin stóð fyrir til byggingar heimilis fyrir fjöl- fatlaða einstaklinga sem þurfa á mikilli aðhlynningu og þjónustu að halda og tók Framkvæmdasjóður fatlaðra einnig þátt í kostnaðinum. Var húsið fullbúið fyrir tæpum tveimur árum en staðið hefur á fjár- veitingum til að hefja mætti starf- semina og voru einstaklingarnir því vistaðir á ýmsum öðrum sjúkra- stofnunum. Fyrst í stað verða pláss fyrir sjö manns á heimilinu. Að sögn Guðmundar Árna Stef- ánssonar er gert ráð fyrir að heils- ársrekstur þessarar starfsemi kosti um 20 milljónir króna. Morgunblaðið/Kristinn Síðasti siglingadómur SIGLINGADÓMUR þingaði í síðasta skipti á þriðjudag þegar kveðinn var upp sýknudómur yfír stýrimanninum á Eldhamri GK. Fyrir nokkru voru samþykkt lög á Alþingi sem fólu í sér að Siglingadómur var lagður niður en dómurinn hélt áfram starfsemi meðan afgreidd voru mál sem höfðuð höfðu verið fyrir honum. Á myndinni sjást frá hægri Hafsteinn Hafsteins- son hrl. veijandi í síðasta málinu, dómendurnir Jóhannes Ingólfsson, Þórir H. Konráðsson, Friðgeir Bjömsson forseti Siglingadóms og dómstjóri Hér- aðsdóms Reykjavíkur, Hrafnkell Guðjónsson og Hörður Frímannsson og lengst til vinstri Jónatan Sveinsson hrl. sem fiutti málið fyrir hönd ákæru- valdsins. Hlutverk Siglingadóms var m.a. að fara með dómstörf í opinber- um málum út af sjóslysum en framvegis verða þau mál dæmd í hinum reglulegu héraðsdómum með tilkvöddum sérfróðum meðdómsmönnum. Isfold kaupir frysti- húsið á Eyrarbakka Selfossi. ÍSFOLD hf. í Reykjavík hefur keypt frystihús Bakkafisks af þrotabúi fyrirtækisins og áformar að flytja starfsemi sína á Eyrar- bakka og auka þar við hana. Aðaleigendur Isfoldar eru bræð- umir Kristinn og Sturla Erlendssyn- ir. Fyrirtækið hefur verið með 7-20 manns í vinnu á Fiskislóð í Reykja- vík. Kristinn sagði að strax yrði haf- ist handa við að undirbúa flutninginn austur og gerði ráð fyrir að þurfa viðbótarstarfsfólk strax. ísfold hefur starfað að hefðbund- inni fískvinnslu ásamt því að vinna hrogn úr bolfiski. Einnig vann fyri- tækið um tíma að vinnslu á laxi. Sig. Jóns. Opinber heimsókn forseta íslands í Gunnarsholt Afhending- landgræðsluverðlauna VERÐLAUNIN afhent. F.v. Einar Þorsteinsson, Guðmundur Ingi Magnússon, sem tók við verðlaunun- um fyrir hönd Guðrúnar Dagbjartsdóttur, frú Vigdís Finnbogadóttir, Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri, Ragnar Borg fyrir Lionsklúbbinn Baldur og Gunnar Kristinsson fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Jarðvegseyðing verði stöðvuð fyrir aldamót Gunnarsholti. FORSETI Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kom í opinbera heimsókn í Gunnarsholt á Rang- árvöllum í gær. Forsetinn minnti á að senn líður að 50 ára afmæli lýðveldisins og að þjóð- in yrði með samstilltu átaki að færa landinu aftur gróðurmöttul sinn. Markmiðið væri að ná varanlegum áfanga í að stöðva jarðvegseyð- ingu fyrir árið 2000 undir kjörorðinu „græðum ísland" og „Hvað get ég gert?“ Við hátíðlega athöfn í skrúðgarðinum í Gunnars- holti afhenti forseti landgræðsluverðlaun til fjög- urra aðila. Fjórir hlutu verðlaun: Guðrún Dag- bjartsdóttir, Brekku, Öxarfjarðarhreppi, N.-Þing., en henni hefur tekist að breyta sandauðn í gró- skumikið land skrýddu fjölbreyttum gróðri. Guðrún er annáluð áhugakona um gróðurvemd og ber skrúðgarður hennar á Brekku henni fagurt vitni; Einar Þorsteinsson ráðunautur, Sólheimahjáleigu, V.-Skaft., sem hefur starfað sem ráðunautur Bún- aðarsambands Suðurlands í rúm 30 ár og verið óþreytandi við að hvetja bændur til ræktunar land- ins og leitt fjölda sjálfboðaliða til dáða við upp- græðslu rofabarða og annarra jarðvegSsára og hefur þar að auki unnið ötullega að ræktun skjól- belta á heimajörð sinni. Þá hefur hann unnið sam- fellt með félögum sínum í Lionshreyfingunni að uppgræðslustörfum í 25 ár; Hitaveita Reykjavíkur fékk verðlaun fyrir uppgræðslustarf það sem Hita- veitan hefur staðið fyrir ásamt Vinnuskóla Reykja- víkur á jörðum veitunnar í Grafningshreppi, Nesja- völlum og Ölfusvatni; og loks hlaut verðlaun Lions- klúbburinn Baldur í Reykjavík sem hóf upp- græðslu við Hvítárvatn árið 1965. Hafa félagar Gróðursetning FRÚ Vigdís gróðursetti birkiplöntu sem fengin var úr fyrsta landgræðsluskógi íslendinga, Gunnlaugsskógi á Rangárvöllum. hans handdreift miklu magni af áburði og fræi í rofsár og örfoka svæði innan landgræðslugirðingár og hefur landið breyst úr nöktum jökulmelum í gróskumikið blómum prýtt land sem stingur í stúf við þá miklu jarðvegseyðingu sem geisar utan girð- ingar. Að athöfninni lokinni var gestum boðið til kaffi- drykkju í nýju húsi Landgræðslunnar, „Litlu- Heklu“, en byggingarlag hússins á að minna á samnefnt fjall. Húsið var formlega tekið í notkun með því að forsetinn klippti á borða við inngang- inn. I Litlu-Heklu verða skrifstofur Landgræðsl- unnar og kynningarstarfsemi, en árlega sækir fyrirtækið fjöldi gesta heim. * i I i i I i l ísland féll í 5. sætíð á brídsmótínu > Kvennaliðið vann fyrsta leik sinn gegn ólympíumeisturum Austurríkis Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ÍSLENSKA karlaliðið náði sér ekki á strik í fyrstu tveimur leikjum gærdagsins á Evrópumótinu í brids, gerði jafntefli við Spán og vann Mónakó aðeins 17-13. Kvennaliðið vann hins vegar austurrísku ólympíu- og Evrópumeistarana 19-9 í sínum fyrsta leik. Spánveijar voru í 8. sæti þegar íslendingar mættu þeim í 7. umferð mótsins í gærmorgun. 1 fyrri hálf- leiknum féllu öll spilin nema fíögur en Spánverjar græddu á þremur þeirra og staðan var 1-19 í hálf- leik fyrir þá. í síðari hálfleik tóku íslendingar á og voru komnir 24 stigum yfír þegar tveimur spilum var ólokið. Þá fóru Spánverjarnir í tvær þunnar slemmur sem unnust og náðu að jafna leikinn aftur þeg- ar íslendingar slepptu báðum slem- munum. Fyrri hálfleikurinn gegn Mónakó var einnig tíðindalítill og í hléi voru Mónakóbúar 8 stigum yfir. Islend- ingar unnu síðari hálfleikinn með 20 stigum og leikinn 17-13 en þessi úrslit ollu nokkrum vonbrigð- ' um þar sem Mónakó er í hópi neðstu liðanna. Eftir 8 umferðir voru ís- lendingar í 5. sæti með 149 stig. Frakkar leiddu með 166 stig, Dan- ir voru komnir í annað sætið mdð 161 stig eftir stórsigur á Norð- mönnum, Hollendingar voru í 3. sæti með 153 stig og Pólveijar í 4. sæti með 152 stig. Á eftiríslend- ingum komu Svíar með 144 stig og Bretar með 140 stig. 9. umferð- in var spiluð í gærkvöldi og þá spil- uðu íslendingar við Tyrki, en í dag spila þeir við Slóvena og Svisslend- inga. Góð byrjun kvennaliðsins íslenska kvennaliðið byijaði sitt mót vel með sigri á Austurríki sem er bæði núverandi Ólympíumeistari og Evrópumeistari í kvennaflokki og varð í 2. sæti á síðasta heims- meistaramóti. ísland leiddi með 13 stigum í hálfleik og bætti 7 við í þeim síðari og vann leikinn 19-9; þær austurrísku fengu 2 vinnings- stiga sekt fyrir að mæta of seint í síðari hálfleikinn. í annarri umferð í gærkvöldi sat ísland yfír en spilar í dag við Breta og ísrael. Erfiðar alslemmur Sagntækni íslenska karlaliðsins hefur að venju skilað því mörgum stigum. í 6. umferð gegn ísrael voru Jón Baldursson og Sævar Þorbjömsson eitt af fáum pörum sem fann þessa alslemmu: N/Enginn Norður ♦ D6 ¥ KG10962 ♦ 9742 48 Vestur Austur ♦ K ♦ Á104 ¥ Á ¥ 874 ♦ ÁG10653 ♦ KD ♦ ÁD632 ♦ KG975 Suður ♦ G987532 ¥ D53 ♦ 8 ♦ 104 Opinn salur Vestur Norður Austur Suður Sævar Birman Jón Seligm. - 2 tíglar Dobl 4 tíglar 4 grönd 7 lauf// +1440 pass 5 lauf pass Lokaður salur Vestur Norður Austur Suður Porat Þorl. Fohrer Guðm. 2 tíglar dobl 4 hjörtu 4 grönd pass 5 tíglar pass 6 tíglar +940 í báðum sölum opnaði norður á sagnvenju sem sýnir veik spil og annanhvorn hálitinn og austur do: blaði til að sýna opnunarstyrk. í opna salnum báðu 4 tíglar norður um að segja litinn sinn; í lokaða salnum báðu 4 hjörtu Guðmundar Þorlák um að passa eða breyta í 4 spaða eftir atvikum. Vestur sagði 4 grönd til úttektar í lágliti og eft- ir að Jón valdi laufíð sagði Sævar einfaldlega alslemmuna. Við hitt j borðið hélt austur að 4 grönd spyrðu um ása og svaraði einum með 5 tíglum en vestur hélt að hann væri að velja tígullitinn og lét hálfslemmuna nægja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.