Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 55 Náttröll í nútímanum - vegna matarboðs og hluthafafundar Frá Þór Sigfússyni: Öldruð frænka mín hringdi í mig og spurði hvort ég þyrfti að flytja úr landi fyrst ég væri búinn að reyta ríkisbankastjóra, Halldór Guðbjarn- arson, til reiði vegna greinarinnar: „Hluthafafundur eða matarboð“. Slíkt var vald ráðamanna hér í eina tíð að þéir gátu sent andstæðinga sína í hálfgerða útlegð. Nú verða þeir hins vegar að þola gagnrýni eins og aðrir. Það er samt von að gamla konan hafi áhyggjur þegar jafn stór orð falla í jninn garð frá bankastjóra gamla Útvegsbankans og nú Landsbankans. Halldór svarar grein minni í Morgunblaðinu miðvikudaginn 9. júní sl. Hann gagnrýnir hana með ýmsum hætti en kemur þó lítið inn á rök mín. Halldór telur ósmekklegt að fullyrða að almennir banka- starfsmenn hafi verið kallaðir til ábyrgðar vegna slæmrar stöðu bankans en ekki yfirmenn. Smekkleysan liggur ekki í þess- um orðum heldur í því að banka- stjórnin reynir að varpa ábyrgð á uppsögnum yfir á ríkisvaldið og í því að viðleitni til hagræðingar eða skipulagsbreytinga í rekstri yfir- stjórnar bankans er nær engin, þrátt fyrir að þar sé verulegt og bersýnilegt svigrúm. Staðreyndirn- ar tala sínu máli og um þær hefur verið fjallað á opinberum vettvangi. Halldór telur að hluthafafundir þar sem menn „rífist og skammist" hafi litla þýðingu. Það er af og frá og móðgun við til að mynda þá 500 hluthafa íslandsbanka sem mættu á síðasta hluthafafund hans^ ís- landsbanki hefúr einn bankastjóra i dag í stað þriggja. Þetta er gert til að einfalda stjórnun bankans. Eg fullyrði að fækka mun í yfir- stjórn bankans á næstu árum. Af hverju? Hluthafar vilja það þar sem reksturinn verður skilvirkari og sparnaður næst. Ég fullyrði einnig að samtaða um þetta náist aldrei í Landsbankanum við óbreytt kerfi jafnvel þótt ljóst sé að verulegt skipulags- og rekstrarhagræði væri af slíku. Það verður alltaf einn bankastjóri frá Framsókn, einn frá Sjálfstæðisflokki og einn frá Al- þýðuflokki. Hlutafélagsbankar eru ijarri því að vera fullkomnir. Hinsvegar eru Göng undir Hval- fjörö nútímaskekkja Frá Jóni Ármanni Héðinssyni: í Morgunblaðinu 11. júní sl. er frétt frá Spalarmönnum að ekkert sé því til fyrirstöðu að ráðast í göng undir Hvalfjörð nú í haust, að lokn- um rannsóknum í sumar. Verkið muni taka 2'h til 3 ár. Ríkið muni svo eignast göngin eftir 18 ár. Verkið verði fjármagnað að mestu með lánsfé. Ég hefi áður bent á þá staðreynd að ekkert mælir með að ráðast í þessa framkvæmd nú og taka um þijá milljarða eða meir að láni til þess. Það kunna að verða rök fyrir göngum eða brú yfir Hvalfjörð snemma á næstu öld; en í dag er þörf fyrir fjölda verka víða um land- ið miklu meiri. Félagið Spölur hf. var stofnað fyrir liðlega tveimur árum með hlutafjárloforðum upp á kr. 72.900.000. Nú biðja Spalarmenn um kr. 50 milljónir úr ríkissjóði og segja að ekki þurfi þeir meira. Ekki kemur fram að unnið sé að öflun hlutafjár. Verkið mun kosta, ef taka má mark á fyrri fréttum, um þrjá og hálfan milljarð, það er göngin sjálf. En þar með er ekki sagan öll. Tengivegir og nýlagning til Akraness kunna að kostá ríkissjóð (vegasjóð) um einn og hálfan millj- VELVAKANDI TAPAÐ/FUNDIÐ Gullúr týndist við Bónus GULLÚR tapaðist, líklega í eða við Bónus í Faxafeni, fyrir u.þ.b. tveimur vikum. Finnandi vinsamlega hafi samband við Rögnu í vinnusíma 688930 eða heimasíma 31435. Jakki og gleraugu töpuðust LJÓSBLÁR gallajakki með gulu barmmerki og gleraugu með grárri umgjörð töpuðust í grennd við tjaldstæðið í Þjórs- árdal um hvítasunnuhelgina. Finnandi vinsamlega hafi sam- band við Inga í síma 27272. Týnt hjól DÓKKGRÆNT 20“ fjallahjól, af gerðinni Trek Antelope, hvarf frá Lokastíg aðfaranótt sl. sunnudags. Hafi einhver orð- ið hjólsins var er hann vinsam- lega beðinn að hringja Dýrleifu í síma 19624. GÆLUDÝR Kettlingar TVEIR kettlingar fást gefins. Kassavanir. Upplýsingar í síma 28747. Stökkmús vantar heimili STÖKKMÚS óskar eftir góðu heimili. Búr fylgir. Upplýsingar í síma 45304 eftir kl. 19. arð. Þetta þýðir að verkið verður alls ekki undir fimm milljörðum króna. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að ljá máls á svona framkvæmd nú. Margsinnis hefur það komið fram frá ríkisstjórninni, að lántaka væri alls ekki á dagskrá nema mjög sérstakar aðstæður væra fyrir hendi og verkefnið hið brýnasta. Þær forsendur eru alls ekki hér. Verkið má bíða. Önnur verkefni í samgöngum eru miklu, miklu brýnni. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri en nú, en mun fjalla síðar um málið, komi til þess að sú furðulega ákvörðun verði ofan á hjá sam- gönguráðherra og ríkisstjórn að lána eða styrkja Spöl hf. með fram- lagi nú að upphæð kr. fimmtíu millj- ónir. Lán eða styrkur leiðir af sér samkvæmt þeirra fréttum lántöku yfir þrjá milljarða mjög fljótlega. Munu þá margir gerast órólegir, þar sem ekki hefur verið fallist á lán í mjög gagnleg atvinnuskapandi verkefni vegna fyrri yfirlýsinga ráð- herranna. Fróðlegt verður að sjá hvort eitt- Iivað er að marka orð þeirra. JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON, Birkigrund 59, Kópavogi. bankasérfræðingar um allan heim sammála því að þetta sé heppileg- asta.rekstrarformið á bönkum eins og öðrum fyrirtækjum. Ég hvet Landsbankarm til að standa fyrir ráðstefnu um hlutafélagaformið og núverandi fyrirkomulag. Auðvitað veit ég að hlutafélagsbankar og rík- isbankar eru ekki svart og hvítt. En ég veit líka að það fást fáir ef nokkrir innlendir eða erlendir bankasérfræðingar til að birtast í gervi nátttrölla nútímans og mæla með flokkareknu ríkisbankakerfi. Auðvitað getur breyting á ríkis- bönkunum í hlutafélög þýtt að mannaráðningar í bankastjórastöð- ur fari einungis eftir hæfni en ekki því hvaða stjórnmálafiokk umsækj- endur styðji. Það má þó ekki þýða að órói nái tökum á bankastjóra Framsóknarflokksins í Landsbank- anum þegar núverandi rekstrarfyr- irkomulag ríkisbankanna er gagn- rýnt. ÞÓR SIGFÚSSON, hagfræðingur, Austurstræti 17, Reykjavík. Pennavinir Sautján ára japönsk stúlka mec áhuga á íþróttum: Sayaka Takeda, 3-9-5 myojin oji-cho, Kitakatsuragi-gun, Nara, 636 Japan. Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka með áhuga á dansi, ferðalögum, bókalestri o.fl.: Theres Jones, 'c/o Mr. Yaw Atta, P.O. Box 1183 Cape Coast, Ghana. Sautján ára Gambíupiltur, tækni- skólanemi, með margavísleg áhuga- mál: Samba Tambura, Brikana Secondary School, Kombo Centra Disctrict, Western Division, Gambia. LEIÐRETTINGAR Tillögu um SVR frestað í frétt Morgunblaðsins á bls. 18 í gær var ranglega sagt að tillögu um hlutafélagsbreytingu SVR hafi verið vísað til meðferðar lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavíkur- borgar og til umsagnar stjórnar SVR. Hið rétta er að þetta kom fram í tillögu meirihlutans á borgar- ráðsfundi_en afgreiðslu hennar var frestað. Á fundinum komu einnig fram bókanir frá Kristínu Á. Ólafs- dóttur, Nýjum vettvangi, Guðrúnu Ögmundsdóttur, Kvennalista, og fulltrúum Sjálfstæðisflokks í Borg- arráði. Vinningstölur 12. iúní 1993. : (21 eTÍ (23) Ipí^ 2) (Vl) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆD Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af5 1 10.406,789 2. 43.1« ff4 210.138 3. 4af5 185 7.837 ? 4. 3af5 6.965 485 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 16.075.211 kr. í & upplysingar:SImsvari91 -681511 lukkulIna991002 Besta ameríska dýnan á markaðnum er frá SERTA verksmíðjunum sem auglýsa um allan heim undir slagorðinu " We make the world's best mattress". í Húsgagnahöllinni færðu fullkomna þjónustu og eru dýnurnar til í öllum stærðum og mýktarflokkum með allt að 25 ára ábyrgð. Láttu þér líða vel á SERTA dýnu næstu árin. SERTA er besta ameríska dýnan. Pað skulum víð sýna þér þegar þú kemur að prófa. Verðið mun koma þér skemmtílega á óvart. Mikið úrval af fallegum höfðagöflum, náttborðum, kommóðum og speglum í mismunandi gerðum. Húspgnahöllin BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199 ntw w _tí_[_L/_L/ Amsins miðað við efnaliagshorfur! LADA • LADA SKUTBILL Verð 597.000,- kr. 150.000,- kr. út og 15,172- kr. í 36 mánuði. Einnig fáanlegnr sem vaskbíll á 497.000,- kr. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.