Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
Runólfur Stefnir
Stefnisson — Minning
Fæddur 23. maí 1956
Dáinn 5. júní 1993
Ef til vill var yorið 1956 bara
venjulegt vor á íslandi, kalt og
hryssingslegt eins og vorið í ár
hefur verið. En fyrir okkur systrun-
um sjö var það fallegt vor og í
minningunni var alltaf sól þetta
sumar. Við höfðum eignast bróður.
Rúnólfur bróðir okkar, eða Dengi
eins og hann var alltaf kallaður hér
heima, var fæddur í Reykjavík 23.
maí 1956 og lést í New York Hosp-
ital N.Y.C. 5. júní sl.
Hann var næstyngstur tíu bama
foreldra okkar, Jóhönnu Methúsal-
emsdóttur og Stefnis Runólfssonar,
sem nú eru bæði látin og hann er
fyrstur uppkominna barna þeirra
til að kveðja þennan heim. Áður
höfðu þau misst son skömmu eftir
fæðingu 1936. Fjölskyldan bjó í
Kópavogi á þessum tíma, en áður
en við fluttumst búferlum til Ólafs-
víkur árið 1959 bættist okkur ann-
ar bróðir í hópinn, en elstu systurn-
ar þrjár voru farnar að heiman.
Dengi sleit barnsskónum í
Ólafsvík, en dvaldist langdvölum
hjá Regínu systur sinni og Elíasi
eiginmanni hennar. Hann fluttist
meðal annars með þeim til Alsír
þegar hann var sjö ára og bjó þar
um tíma. í Ólafsvík stundaði hann
alla almenna vinnu sem unglingur
með skólanum. Dengi fór í mennta-
skóla en fann sig ekki í því námi
og það var ekki fyrr en hann komst
að í The School of the Art Institute
í Chicago í Bandan'kjunum að hann
fann það sem hann hafði leitað að.
t
Faðir minn, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR MAGNÚSSON
skipasmiður,
Krókatúni 4,
Akranesi,
sem lést 11. þ.m. í Sjúkrahúsi Akraness, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00.
Guðbjörg Sigríður Sigurðardóttir, Erik Jeppesen,
Per Sigurður Jeppesen, Christian Runi Jeppesen.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA M. STEFÁNSDÓTTIR,
Álftamýri 22,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 18. júní
kl. 13.30.
Kristm Egilsdóttir, Margrét Egilsdóttir,
Ástbjörn Egilsson, Elín Sæmundsdóttir,
Stefán Egilsson,
Gunnar Egilsson, Sigrún Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Kveðjuathöfn um móður okkar,
SIGRÚNU JÓSEFSDÓTTUR
frá Svarfhóli,
Suðurdalahreppi, Dalasýslu,
siðasttil heimilis
í Álfheimum 31, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 18. júní kl. 10.30.
Jarðsett verður frá Kvennabrekkukirkju laugardaginn 19. júní
kl. 14.00.
Hanna og Hafdi's Baldvinsdætur.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURGEIR KRISTJÁNSSON,
Boðaslóð 24,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 19. júni'kl. 14.00.
Björg Ágústsdóttir,
Eli'n Á. Sigurgeirsdóttir, Gunnar Briem,
Kristján Sigurgeirsson, Kristi'n Guðmundsdóttir,
Ingvi Sigurgeirsson, Oddný Garðarsdóttir,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Pétur Steingrímsson
og barnabörn.
+
Konan mín og móðir okkar,
MAGDALENA SCHRAM
blaðakona,
Grenimel 2,
verðurjarðsunginfrá Dómkirkjunni laugardaginn 19. júníkl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er bent á Krabbameinsfélagið eða minningarsjóð til styrktar
Samtökum um kvennaathvarf.
Hörður Erlingsson,
Halla Harðardóttir,
Katrin Harðardóttir,
Guðrún Harðardóttir.
Þar lærði hann fatahönnun og sýndi
hvað í honum bjó, því að hann fékk
ótal viðurkenningar fyrir verk sín
og var m.a. útnefndur efnilegasti
fatahönnuðurinn við útskrift úr
skólanum árið 1983.
Dengi kom heim að námi loknu
og dvaldi hér sumarlangt, en flutt-
ist aftur til Bandaríkjanna og þá
fyrir fullt og allt. Hann hefur búið
í New York síðustu tíu árin og þar
átti hann sitt heimili. Hann starfaði
sem fatahönnuður í New York borg
og vegnaði sífellt betur í harðri
samkeppni stórborgarinnar þegar
ljóst varð að hann var með sjúkdóm
sem engu eirir.
Dengi var litríkur karakter, skap-
mikill og hreinskilinn, en blíður og
elskulegur og honum stóð aldrei á
sama um neitt. Að sitja með honum
kvöldstund var eins og að fá öfiuga
vítamínsprautu því hann hafði svo
miklu að miðla í mannlegum sam-
skiptum. Hann hvatti fólk til að
takast á við lífið, hann hafði orðið
að gera það sjálfur og oft haft bet-
ur. Hann kunni við sig í New York
og þar átti hann sínar bestu stund-
ir. Við systkinin höfum nú seinni
árin heimsótt hann og Gerald vin
Clara Lambert-
sen — Minnmg
Fædd 15. desember 1909
Dáin 6. júní 1993
Ástkær tengdamóðir mín er látin
og vil ég minnast hennar hér með
örfáum orðum. Minningarnar
streyma fram. Þær eru allar á einn
veg — góðar — eins og samband
okkar var frá fyrstu kynnum og
því er mér þakklæti efst i huga.
Clara Lambertsen var fædd í
Reykjavík 15. desember 1909, dótt-
ir Jakobs Jóhanns Lambertsens og
Jennýjar Lambertsen, sem bæði
áttu ættir sínar að rekja til dönsku
eyjarinnar Römö undan ströndum
Suður-Jótlands. Jakob Jóhann var
athafnamikill verslunarmaður og
rak hér heildsölu ásamt versluninni
J.J. Lambertsen sem var til húsa í
gamla „Fjalakettinum" í Aðal-
stræti. Þau hjónin Jakob og Jenný
bjuggu lengst af í Lækjargötu 12b
í Reykjavík og eignuðust þau átta
börn. Þar ólst Clara upp í þessum
stóra, samhenta systkinahópi og
átti hún góðar og skemmtilegar
æskuminningar úr Lækjargötunni.
En sorgin barði að dyrum og árið
1922 lést Jakob Jóhann aðeins 45
ára að aldri. Skömmu síðar fluttist
Jenný með barnahópinn sinn til
Römö og þar bjó hún og dó í hárri
elli.
Öll börnin ílentust í Danmörku
nema Clara og Jens bróðir hennar
sem fluttust aftur til íslands. Nú
er aðeins ein systir, Agnes, eftir á
lífí af þeim systkinum og býr hún
í Römö. Clara var aðeins 17 ára
+
Móöursystir okkar,
SVANHILDUR Ó. GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Réttarholti í Garði,
Furugerði 1,
Reykjavík,
andaðist í Landakotsspi'tala þriðjudaginn 15. júní.
Eiður Guðnason,
Guðmundur Guðnason.
+
Móðir okkar,
BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Grundarhóli 1,
Bolungarvfk,
verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík föstudaginn
18. júní kl. 14.00.
Guðmundur Guðfinnsson
og systkini.
+
Faðir minn og bróðir,
GUÐMANN ÓSKAR HARALDSSON,
Staðarhrauni 7,
Grindavík,
er andaðist á heimili sínu þann 14. júní, verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Haraldur Guðmundsson,
Einar Kristinn Haraldsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR DANÍELSSONAR,
Syðri-Ey.
Filippía Helgadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
hans og það hefur verið tekið stór-
kostlega vel á móti okkur öllum
hvort sem var í borgarysnum á
Manhattan eða í sveitasælunni í
Amagansett á Long Island þar sem
þeir eyddu öllum sínum frístundum
á yndislegu heimili þeirra þar.
Dengi hefur verið veikur lengi,
en bar sig vel og kvartaði aldrei,
það var ekki hans háttur. Gerald
vinur hans hefur annast hann í
veikindunum af stakri umhyggju
og hlýju sem við fáum aldrei endur-
goldið, en viljum þakka og biðjum
guð að vera með honum í sorginni.
Yfír haf sem heima skilur
héðan leitar sálin þín.
Alvaldshðndin upp þig leiðir
inn í dýrðarríki sín.
Vertu sæll! Við sjáumst aftur
saman ðll, er lifið þver.
Far vel vinur! Frjáls úr heimi.
Friður Drottins sé með þér.
(Sálmur)
Guð geymi þig.
Með kveðju frá systkinum.
er hún kom aftur til íslands og bjó
þá hjá æskuvinkonu sinni Magneu
Söbeck og hennar góðu foreldrum
sem hún minntist oft með þakklæti
í huga. I Vestmannaeyjum kynntist
Clara Guðmundi Ingvarssyni frá
Minna-Hofi á Rangárvöllum, mikl-
um sómamanni. Þau giftu sig 20.
júní 1931 og bjuggu tvö fyrstu
búskaparár sín á Minna-Hofí, en
síðan fluttust þau til Vestmanna-
eyja og bjuggu þar alla tíð, lengst
af á Kirkjuvegi 28. Þau eignuðust
tvo syni, þá Jóhann I. Guðmundsson
flugvallarstjóra í Vestmannaeyjum,
kvæntan Guðbjörgu Kristjánsdótt-
ur, og Stein Guðmundsson bifreiða-
smið, kvæntan Guðbjörgu S. Pet-
ersen. Afkomendur Clöru og Guð-
mundar eru orðnir 16.
Clara var elskuleg kona, hógvær,
heiðarleg og jákvæð. Ekki man ég
til að hún hafi hallmælt nokkurri
manneskju, aftur á móti enduðu
setningar hennar oft á því hve góð-
ir allir væru við sig. En hvernig var
annað hægt en að vera góður við
hana Clöru? Gjaldmild var hún með
afbrigðum og matti ekkert aumt
sjá, öllum vildi hún rétta eitthvað,
að gleðja aðra, það var hennar
mesta yndi. Ég man fyrst eftir að
ég kynntist Clöru hversu mikil
„lady“ mér fannst þessi lágvaxna,
laglega kona vera. Hún vildi helst
ekki fara út úr húsi öðruvísi en vel
klædd og með hatt og ilmvatnið
sitt notaði hún daglega.
Hún hélt alla tíð góðu sambandi
við móður sína og fjölskyldu í Dan-
mörku, fór þangað annað hvert ár
meðan móðir hennar var á lífi.
Guðmund mann sinn missti hún í
mars 1986, og eftir það bjó hún ein
í húsinu á Kirkjuveginum. Hún var
svo lánsöm að eldri sonur hennar,
tengdadóttir og fjölskylda eru bú-
sett í Vestmannaeyjum, og þau öli
gerðu henni kleift með sinni hjálp-
semi að vera á sínu eigin heimili á
Kirkjuveginum fram á síðasta ár
að hún fluttist á Dvalarheimilið að
Hraunbúðum, þá þrotin að kröftum.
Hún lést á sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 6. júní sl., sátt við guð og
menn. Blessuð sé minning hennar.
Guðbjörg S. Petersen.