Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
25
Morgunblaðið/Þorkell
Hver hreppir aðalhlutverkið?
UNDIRBÚNINGUR að töku kvikmyndarinnar Bíódagar eftir Friðrik Þór
*■— Friðriksson stendur nú sem hæst og er verið að velja strák til þess að
leika aðalhlutverkið. Þegar er búið að velja 11 stráka úr um 200 drengja
hópi og komu þeir allir saman í gær. Á myndinni eru níu þeirra, taldir
frá vinstri: Guðmundur Pétursson, Ýmir Vigfússon, Örvar Jens Arnarson,
Valdimar Hannesson, Höskuldur Eiríksson, Jón Þorri Jónsson og Hans
Þór Hilmarsson. Þeir þykja koma til greina í aðalhlutverkið, sem er tíu
ára dregngur. Standandi fyrir aftan eru svo Ivar Öm Sverrisson og Orri
Helgason, sem koma til greina í hlutverk bróður hans, fimmtán ára pilts.
Á næstunni skýrist hver verður valinn í aðalhlutverkið.
Jarðfræðiferð,
staðarskoðun
og hestaleiga
FARIÐ verður í jarðfræðiskoðun
um Viðey laugardaginn 19. júní.
Farið verður kl. 14.15 af Viðeyj-
arhlaði. Bergtegundir og nátt-
úrumyndir eru fjölbreyttar í Við-
ey og verða skoðaðar undir leið-
sögn Hauks Jóhannessonar jarð-
fræðings. Ferðin tekur tæpa tvo
tíma.
Sunnudaginn 20. júní verður
staðarskoðun. Hún hefst að venju
kl. 15.15 í kirkjunni. Síðan verður
næsta umhverfi skoðað, fornleifa-
uppgröfturinn og útsýnið af Helj-
arkinn. Að lokum verður skoðuð
forngripasýningin í kjallara Viðeyj-
arstofu.
Kaffisala verður í Viðeyjarstofu
báða dagana kl. 14-16.30. Báts-
ferðir verða á klst. fresti frá kl.
13-17, á heila tímanum úr landi
en á hálfa tímanum úr eynni.
Hestaleiga tekur til starfa um
þessa helgi, að öllu forfallalausu.
Hún verður því væntanlega opin
b'áða dagana og áfram eftir það.
TÖLVUSKÓLI FYRIR BÖRN
OG UNGLINGA, 10-16 ÁRA
í sumar heldur Tölvuskóli Reykjavíkur 24 klst.
2 vikna tölvunámskeið. Námið miðar að því að
veita almenna tölvuþekkingu og að koma nemend-
um af stað við að nýta tölvuna sér til gagns og
gamans.
Farið er í eftitalin atriði:
- Fingrasetning og vélritunaræfingar
- Windows og stýrikerfi tölvunnar
- Ritvinnsla
- Teikning
- Almenn tölvufræði
- Töflureiknir
- Leikjaforrit
Áhersla er lögð á hagnýt verkefni sem nýtast við
nám. Hóflegt verð.
Innritun í síma 616699.
Arleg há-
tíð Odda-
félagsins
Hellu.
ODDAFÉLAGIÐ gengst fyrir
sinni árlegu Oddahátíð sem
hefst með messu í Oddakirkju á
Rangárvöllum sunnudaginn 20.
júní kl. 11 árdegis. Sóknarprest-
urinn sr. Sigurður Jónsson pred-
ikar og þjónar fyrir altari. Kór
kirkjunnar syngur en organisti
verður Halldór Óskarsson.
Að lokinni messu verða gróður-
sett tré sem gefin hafa verið til
staðarins, en að því loknu hefst
dagskrá hátíðarinnar með skoðun
nokkurra eyðibýla höfuðbólsins
foma, s.s. For, Strympu, Kraga
og Kumla undir leiðsögn Valgeirs
Sigurðssonar á Þingskálum. Að því
loknu mun rúta flytja þátttakendur
um Rangárvelli þar sem komið
verður við á Geldingalæk, Víkings-
læk, Þingskálum og Koti. Þaðan
verður haldið að Steinkrossi þar
sem Einar Pálsson mun m.a. fjalla
um stöðu og hlutverk þess staðar
í ljósi kenninga sinna. Komið verð-
ur að Odda um kl. 17, en þátttak-
endur þurfa að greiða rútufarið
sjálfir. NauðsyaJegt 'er að útbúa
sig eftir veðri, með góða skó, hlífð-
arföt og nesti. Tekið er við skrán-
ingu til hádegis á föstudag á prest-
setrinu í Odda.
- A.H.
♦ ♦ ♦
Sólstöðuganga
verður farin
um land allt
SÚ BREYTING verður á Sól-
stöðugöngunni sem farin verður
í níunda sinn nk. mánudag, 21.
júní, á sumarsólstöðum að í
þetta skipti verður gangan farin
víða um land.
Frá 1986 hefur gangan skipst
í fjóra hluta: Næturgöngu kl.
24-8, morgungöngu kl. 8—12,
dagsgöngu kl. 12-20 og kvöld-
göngu kl. 20-24. Gangna verður
í flestum tilfellum kvöldganga utan
höfuðborgarsvæðisins, þar sem
hún verður sólarhringsganga.
Næturgangan hefst á sunnudags-
kvöld kl. 24 en kvöldgangan á
mánudagskvöld kl. 20. Sólstöðu-
göngunni lýkur svo alls staðar á
mánudagskvöld á miðnætti kl. 24.
GÖÐ NÝTING
með Danfoss
við stjórnvölinn
frá inntaki
til frárennslis
Skynsamleg nýting á dýrmætum orkulindum
okkar er nauðsyn. Þær eru ekki ótæmandi.
Sjálfvirkir ofnhitastillar og þrýstijafnarar frá
Danfoss standa vörð um nýtingu heita
vatnsins í hitakerfum htisa. Með rétt upp-
settum og rétt stilltum Danfoss búnaði, eykst
ending orkulindanna. Jafnframt njóta
notendur hámarks þæginda og ómældar
fjárhæðir sparast í upphitunarkostnað.
Leitið upplýsinga um Danfoss búnaðinn
hjá okkur.
OKKAR LYKILORÐ ERU GÆÐI, ÖRYGGI OG ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260