Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993 59 KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM Tvöföld ánægja Morgunblaðið/Bjami Sigurgleði í Laugardalnum ÍSLENSKA landsliðið vann glæsilegan sigur á Ungveijum, 2:0. Eyjólfur Sverris- son og Amór Guðjohnsen skorðu mörkin. Á minni myndinni er Eyjólfi þakkað fyrir markið af samheijum sínum. Hin myndin sýnir Amór Guðjohnsen einbeitt- an á svip. ÍSLENDINGAR náðu í gær mikilvægum áfanga íbaráttunni um að færast upp um styrkleikaflokk í röðun knattspyrnulandsliða f heiminum. Islenska liðið sigraði það ungverska 2:0 í ágætlega leiknum leik. Margir hefðu kosið að sjá fleiri mörk þvítækifærin voru til staðar. En tvö dugðu og nú er markatalan jöfn í riðlin- um, 6:6, og stigin orðin sex ogeinn leikur eftir, gegn Lúxem- borg hér heima í september. Ánægjan var tvöföld, við lögðum Ungverja tvívegis og lékum sóknarknattspyrnu í gærkvöldi. Skúli Unnar Sveinsson skrífar Islenska liðið byijaði af miklu meiri ákefð en það ungverska og það hélst allan tímann. Ungveijar náðu sér aldrei á strik enda gáfu íslensku strákarnir þeim aldr- ei tækifæri til að byggja upp spil. Ungveijarnir hafa nokkra netta leik- menn sem eru auk þess mjög fljótir en með mikilli baráttu og samheldni gáfu strákarnir þeim aldrei tækifæri. Þrátt fyrir að íslenska liðið mætti því ungverska framarlega á vellinum og væri meira með boltann allt frá upphafi voru það Ungveijar sem fengu fyrsta færið. Þeir áttu fast skot af vítateig sem lenti í vamar- manni íslands. Framheijaþrennan sýndi hvers hún er megnug á 13. mínútu þegar hún pijónaði sig í gegn og lauk þeirri skemmtilegu sókn með því að Eyjólf- ur sendi knöttinn í netið. Eftir mark- ið jafnaðist leikurinn heldur og óttr aðist maður að nú ætlaði íslenska liðið að bakka og halda fengnum hlut. En sem betur fer var þessi afturkippur aðeins lítilsháttar bak- slag. Strákamir náðu undirtökunum aftur og Eyjólfur fékk tvö færi fyrir leikhlé sem nýttust ekki. Síðari hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri. íslenska liðið byijaði með látum og það verður að segjast eins og er að það var lítið að gerast hjá ungverska liðinu. Þeir virtust vera búnir að játa sig sigraða þrátt fyrir að staðan væri aðeins 1:0 og langt til leiksloka. Á 61. mínútu var Gá- bor Márton (nr. 6) rekinn af leik- velli fyrir að sparka í Hlyn Stefáns- son. Eftir það jukust yfirburðir íslands og eftir að liðið hafði fengið nokkur færi skoraði Arnór Guðjohnsen stórglæsilegt mark sem lengi verður í minnum haft. íslensku strákarnir léku vel, mis- vel eins og gengur, en liðsheildin var sterk. Ekki mæddi mikið á Birki í markinu og hafði hann það nærri því eins náðugt og Friðrik varamark- vörður. Vömin virkaði óömgg fyrstu mínútumar en síðan var hún í góðu lagi. Kristján eins og klettur sem allt strandaði á, Guðni öruggur en hefði mátt skila boltanum oftar til næsta manns í stað þess að senda „ensku" sendingarnar langt fram. Hlynur Birgisson var besti leikmaður íslands ásamt Arnóri. Hlynur var hvað eftir annað fremsti maður í sókn og skömmu síðar mættur á sinn stað í vörnina. Izudin Daði geystist einnig oft upp kantinn en átti það til að „selja“ sig dálítið en hann er það fljótur að hann náði oftast að vinna það upp. Hlynur Stefánsson var sterkur á miðjunni, vann vel og skilaði knettin- um vel frá sér. Rúnar átti mjög góðan fyrri hálfleik en í þeim síðari átti hann ansi margar misheppnaðar sendingar. Hann skilaði þó varnar- hlutverki sínu mjög vel. Sömu sögu er að segja um Olaf. Hann var dug- legur að vinna boltann en gekk frek- ar illa að skila honum til samheija. Hann átti þó tvær mjög góðar send- ingar sem sköpuðu hættu við mark Ungveija og önnur þeirra gaf mark. Amar Grétarsson lék ágætlega eftir að hann kom inná. Framheijamir þrír voru hættuleg- ir. Amór átti mjög góðan leik, sér- staklega í síðari hálfleik. Alltaf á ferðinni og útsjónasamur. Arnar átti dálítið köflóttan leik. Mjög góðir sprettir en hvarf þess á milli. Eyjólf- ur var hins vegar alltaf ógnandi og Ungveijarnir vissu greinilega hversu góður skallamaður hann er því einn varnarmanna þeirra keyrði alltaf utan í hann þegar sendingar komu inn á teiginn. Liðsheildin var sterk og vamar- hlutverkinu skiluðu allir vel og það sem var einkennandi fyrir leik liðsins var hversu vel menn hreyfðu sig án bolta. Oftast fannst einhver sem hægt var að gefa á og þegar liðið varðist lokuðu leikmenn svæðum vel. Góður leikur og skemmtilegur. IlAÁ 13. mínútu fékk Amór Guðjohnsen sendingu upp hægri ■ %#kantinn. Hann lék upp undir endamörk, snéri þar á einn Ungverja og reyndi skot með vinstri fæti. Skotið lenti í vamarmanni og boitinn barst til Amars Gunnlaugssonar við ijærstöngina. Hann var í ákjósaniegu færi en af óeigingimi sendi hann fyrir mitt markið á Eyjólf Sverrisson sem skoraði af öryggi. 2B^%Ólafur Þórðarson átti góða sendingu á Arnór Guðjohnsen ■ \#á 77. mínútu. Arnór fékk boltann inn fyrir vítateiginn hægra megin og lét boltann hoppa einu sinni á meðan hann skoðaði hvar markvörðurinn var. Hann sá að hann var framarlega og i stað þess að skjóta fast vippaði hann glæsilega yfir hann í hornið fjær. Glæsi- legt mark. Island - Ungverjal. 2:0 Laugardalsvöllur, undankeppnin HM, 5. riðill, miðvikudaginn 16. júní 1993. Aðstæður: Mjög gott veður til að leika knattspymu, gola og sólarlaust. Völlur- inn hins vegar ósléttur og harður. Mörk íslands: Eyjólfur Sverrisson (13.), Amór Guðjohnsen (77.). Gult spjald: Rúnar Kristinsson (40.) og Eyjólfur Sverrisson (56), báðir fyrir brot. Flórián Urbán (23.), András Telek (33.) báðir fyrir brot. Rautt spjald: Gábor Márton (61.) fyrir að sparka i Hlyn Stefánsson. Áhorfendur: 2.755 greiddu aðgangs- eyri. Dómari: Harrel frá Frakklandi. Dómar hans vöktu oft furðu og hann var of hlið- hollur íslendingum. Línuverðir: Monnier og Lesage frá Frakklandi. ísland: Birkir Kristinsson - Hlynur Birgisson, Guðni Bergsson, Kristján Jónsson, Izudin Daði Dervic - Hlynur Stefánsson (Arnar Grétarsson vm. 64.), Ólafur Þórðarson, Rúnar Kristinsson - Amór Guðjohnsen, Eyjólfur Sverrisson, Arnar Gunnlaugsson. llngverjalíuid: Petry - Simon, Telek, Keresztúri, Lörincz - Márton, Balog, Urbán, Orosz (Hámori vm. 64.) - Pisont, Hamar (Sallói vm. 81.). Við stjónuðum leiknum ■ g er að sjálfsögðu ánægður með ■ sigurinn og leikinn að mörgu fti. Það var góð vinnsla og barátt- i var fyrir hendi. Við getum gert tur en við sýndum í fyrri hálfleik i síðari hálfleikur var mjög góður. ið stjórnuðum leiknum og fengum örg færi og hefðum átt að geta nýtt þau enn betur,“ sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari. Ásgeir sagðist hafa átt von á að Ungveijar myndu pressa þá framar á vellinum. „Þeir bökkuðu mjög mikið og það myndaðist of mikið bil milli varnar og miðju hjá þeim og við nýttum okkur það. Strákam- ir börðust allan leikinn og einbeit- ingin var í lagi. Þessi leikur og eins leikurinn á móti Rússum kennir okkur það, að ef baráttan er í lagi er ýmislegt hægt. Við erum með fullt af góðum knattspyrnumönnum sem geta klárað svona leiki og það sýndi sig í kvöld.“ Ásgeir sagði að allir leikmennirn- ir hefðu staðið sig vel. „Nú er einn leikur eftir, gegn Lúxemborg í haust, og við ætlum okkur sigur í honum og ná átta stigum og tryggja okkur þriðja sætið í riðlinum og þá er takmarkinu náð,“ sagði þjálfar- inn. Gaman að sjá hann í netinu - sagði Arnór Guð- johnsen um ellefta landsliðsmark sitt Amór Guðjohnsen lék rpjög vel í gær og gkoraði gullfallegt mark á 77. mínútu. „Það var reglu- Jega gaman að sjá hann inni,“ sagði hann um 11. landsliðsmark sitt. Hann sagðist hafa verið að horfa á myndband með æfingaleik sænska landsliðsins fyrir leikinn og þá hafi einn skorað svipað mark. „Þetta kom upp í hugann þegar ég fékk sending- una frá Óla. Það var greinilegt að markvörðurinn bjóst við fyrirgjöf og var því kominn aðeins útúr markinu svo ég tók áhættuna og vippaði yfir hann,“ sagði Arnór. „Ungverska liðið var ekki gott. Þeir voru mjög óskipulagðir og eng- inn leikstjómandi. Ég var frekar seinn í gang í þessum leik en er ánægður með seinni hálfleikinn hjá mér. Ég ákvað í hálfleik að gefa meira í þetta og þá fóru hlutimirtkÞ— ganga upp. Nú er bara að klára leik- inn gegn Lúxemborg með sama bar- áttuvilja," sagði Arnór. Góö úrsltt Ólafur Þórðarson lék 50. landsleik sinn í gær og hann var ánægður með sigurinn. Hann var hins vegar ekki ánægður með sjálfan sig í fyrri hálfleik. „Þetta em mjög góð úrslit og maður getur ekki verið annað en ánægður. Ég átti margar sendingar sem rötuðu ekki rétta leið í fyrri hálfleik en ánægður með seinni hálf- leikinn og vona að ég hafí bætt þann fyrri upp,“ sagði Ólafur. Hann sagði að Ungveijar hafi verið slakari en hann hefði búist við. „Þeir em með netta leikmenn og við máttum ekki gefa neitt eftir þá náðu þeir upp spili.“ Góð ráð í leikhléi „Þetta var góður sigur. Fyrri hálf- leikur var erfiður en Ásgeir gaf okk- ur góð ráð í leikhléi. Eftir að þeir misstu leikmann útaf stjómuðum við leiknum. Baráttan í liðinu var góð og hún þarf líka að vera það. Við eigum einn leik eftir og þó að við höfum unnið Ungveija getum við ekki leyft okkur að slappa af á mðtf- - Lúxemborg. Við verðum að beijast í hveijum leik,“ sagði Rúnar Kristins- son. Höfðum alltaf tök á leiknum Ég var ekkert sérstaklega ánægð- ur með leik okkar í fyrri hálfleik, við náðum okkur ekki fyllilega í gang. En við höfðum alltaf tök á leiknum og lékum vel i síðari hálfleik," sagði Guðni Bergsson fyrirliði íslenska landsliðsins eftir leikinn. Aðspurður um dómarann sagði Guðni að alltaf væri hægt að deila um einstök tilvik, en brottvísunin hefði verið réttmæt. „Ég held að hann hafi ekki sett mark sitt á leikinn," sagði Guðni. Ekki mlkil ógnun „Það var mjög gaman að þessu. Mér fannst ekki mikil ógnun frá sóknarmönnum þeirra,“ sagði Hlyn- ur Birgisson varnarrhaður sem átti skínandi leik. „Þetta var tvímæla- laust sanngjarn sigur. Dómarinn var kannski aðeins með heimaliðinu, en það skipti engu máli um úrslit leiks- ins,“ sagði Hlynur. Vorum hættulegri „Þetta var sanngjamt, þeir fengu varla færi og við hefðum getað skor- að fleiri mörk. Við vorum að ska]!a mun meira en þeir og vorum hættu- legri,“ sagði Eyjólfur Sverrisson sem gerði sitt fjórða mark fyrir íslenska landsliðið í leiknum. Aðspurður um ungverska liðið sagði Eyjólfur að þeir væru snjallir spilarar. „Þeir em snillingar að láta boltann ganga, en vantar hættulegan sóknarmann. Þeir era að spila þennan dæmigerða reitS^’" bolta, en vantar markaskorara."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.