Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGÚR 17. JÚNÍ 1993
Fjölbreytt dagskrá
á þjóöhátíðardeg’i
Morgunblaðið/KGA
ÍSLENDINGAR fagna með
margvíslegnm hætti á þjóðhátíð-
ardaginn, 17. júní. Auk hefð-
bundinna viðburða verður
brugðið út af vananum að ýmsu
leyti. I Reykjavík ferðast fjall-
kona t.d. um Tjörnina. Lands-
menn geta líka reynt við ýmsar
íþróttir fornar og nýjar.
Reykjavík
í höfuðborginni hefst þjóðhátíð-
ardagskráin kl. 9.55 með sam-
hljómi kirkjuklukkna. kl. 10.00
leggur Magnús L. Sveinsson for-
seti borgarstjórnar blómsveig frá
Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðs-
sonar í kirkjugarðinum við Suður-
götu. Hátíðardagskrá hefst við
Austurvöll kl. 10.40 með ávarpi
Júlíusar Hafsteins borgarfulltrúa.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, leggur blómsveig frá ís-
lensku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar. Davíð Oddsson
forsætisráðherra flytur ávarp.
Karlakór Reykjavíkur syngur þjóð-
sönginn og tvö önnur ættjarðarlög.
Eftir hádegi, laust fyrir 13.30,
verður safnast saman á tveimur
stöðum í borginni; við Hlemmtorg
og við Hagatorg. Frá Hagatorgi
verður gengið í skrúðgöngu í
Hljómskálagarðinn. Frá Hlemmi
fer skrúðganga niður Laugaveg að
Lækjartorgi. Skátar ganga undir
fánum og stjórna báðum göngun-
um.
í miðbænum verður boðið upp á
ýmis atrið. Að sögn Gísla Arna
Eggertssonar, dagskrárstjóra 17.
júní hjá íþrótta- og tómstundaráði,
ber mikið á tónlistaratriðum sem
verða við allra hæfi, t.d. mun
Kvennakór Reykjavíkur syngja í
Ráðhúsinu. Þar verða einnig
Óperusmiðjan og Ríó tríó. Bubbi
Morthens verður í Lækjargötu kl.
16.30. Harmonikufélág Reykjavík-
ur leikur og gömlu góðu dansarnir
verða stignir á Þórshamarsplaninu
við Tryggvagarð, þ.e. garð Al-
þingishússins. Þess má einnig geta
að í Arbæjarsafni ætla eldri borgar-
ar að stíga dansinn ki. 13.30 undir
stjóm Sigvalda Þorgilssonar og kl.
14.30 sýna félagar í glímufélaginu
Ármannj glímu að fornum sið.
Gísli Árni Eggertsson greindi frá
því að Götuleikhúsið myndi starfa
víðs vegar um miðbæinn, þarna
yrðu á ferðinni tröll, álfar og „stór-
kostleg í]allkona“ myndi ferðast
um Tjörnina. I Hljómskálagarðin-
um verða m.a. Mikki refur og Lilli
klifurmús.
Tónleikar hefjast kl. 17.00 á
Lækjartorgi en á þeim verður gert
hlé kl. 18.30. Kl. 20.20 hefst hljóm-
sveitarflutningur á nýjan leik og
verður leikið til kl. 00.15.
Strætisvagnar Reykjavíkur
fylgja helgidagaáætlun, þ.e. aka á
30 mín. fresti, en aukavögnum
verður bætt á leiðir þar sem mestu
flutningarnir verða. Vegna hátíðar-
haldanna í Lækjargötu breytast
viðkomustaðir og akstursleiðir
nokkurra vagna. Miðbæjarstöðvar
SVR í Hafnarstræti og í Tryggva-
götu verða við Bakkastæði og Toll-
stöðina. Síðustu ferðir frá miðbæn-
um verða um kl. 1.00 eftir mið-
nætti.
Kópavogur
I Kópavogi eru hátíðarhöldin í
umsjá íþróttafélagsins Gerplu,
skátafélagsins Kópa og Leikfélags
Kópavogs. Einar Sigurðsson hjá
íþróttafélaginu Gerplu sagði að
hátíðarhöldin byijuðu kl. 10.00. Þá
myndi skólahljómsveit Kópavogs
leika við Kópavogshælið. Á sama
tíma hæfist víðavangshlaup fyrir
16 ára og yngri við Vallagerðisvöll.
Töframaður mun sýna listir sínar
kl. 13.00 við Menntaskólanum í
Kópavogi og síðan verður skrúð-
ganga að Rútstúni við nýju sund-
laugina. Einar sagði að göngumenn
mættu vænta ýmissa viðburða á
leiðinni, t.d. vildu hjálparsveitar-
menn síga niður Hamraborgina. Á
Rútstúni ávarpar Sigurður Geirdal
bæjarstjóri viðstadda en einnig
halda ræður nýstúdent og fjallkon-
an.
Einar Sigurðsson vildi koma því
skýrt á framfæri að hátíðarhöldin
á Rútstúni yrðu með léttu yfir-
bragði. Frá kl. 11.00 fram til 19.00
yrði tívolí og „karneval-stemmn-
ing“ á Rútstúni og margt í gangi
í einu svo eitthvað ætti að verða
við allra hæfi. Fimleikar og glíma,
brúðuleikhús o.fl. Hátíðarhöldun-
um lýkur kl. 19.00.
Hafnarfjörður
Hafnfirðingar hefja sína þjóðhá-
tíð kl. 8.00 en þá draga skátar
fána að húni. Kl. 10.00 verður
hátíðarmót íþrótta- og leikjanám-
skeiða og knattspyrnumót yngri
flokka Hauka og FH verður á Víði-
staðatúni.
Eftir hádegi, kl. 13.30, hefst
dagskrá í Hellisgerði. Þar leikur
Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karla-
kórinn Þrestir syngur. Séra Einar
Eyjólfsson verður með helgistund.
Frá Hellisgerði verður farið í skrúð-
göngu að Víðistaðatúni klukkan
14.15. Þar flytur Þórir Jónsson
formaður þjóðhátíðarnefndar setn-
ingarræðu og Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri og ráðherra
ávarpar viðstadda. Fjallkonan mun
einnig tala til Hafnfirðinga. Svo
verða skemmtiatriði, t.d. Bjössi
bolla og vinir hans. Kl. 17.15 hefst
keppni Hauka og FH í handknatt-
leik í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Um kvöldið verður dagskrá á
Víðistaðatúni, þá munu m.a. Flens-
borgarkórinn og norrænn vinabæj-
arkór flytja söngleikjasyrpu og
Lúðrasveit Hafnarfjarðar spila.
Síðar um kvöldið leika hljómsveit-
irnar List og Nýdönsk fyrir dansi
til kl. 00.30. Einnig má geta þess
að Hljómsveit Þórðar Marteinsson-
ar leikur fyrir gömlu dönsunum í
félagsmiðstöðinni Vitanum frá kl.
21.00 til 00.30.
Seltjarnarnes
Á Seltjarnarnesi verða hátíðar-
höld með hefðbundnum hætti. Kl.
13.30 verður farið í skrúðgöngu frá
dælustöðinni við Lindarbraut að
Eiðistorgi þar sem hátíðarhöldin
fara fram. Á Eiðistorgi spilar lúðra-
sveit Tónlistarskólans og fjallkonan
flytur ávarp. Hátíðarræðuna flytur
Guðjón Halldórsson fyrrum aðstoð-
arforstjóri Fiskveiðasjóðs. Á Eiðis-
torgi dansa dansarar úr Dansstúdí-
ói Sóleyjar jazzballett og félagar
úr Lúðrasveitinni flytja leikþátt.
Bossanova-bandið mun einnig
spila.
Mosfellsbær
Sunddeild UMFA (Ungmennafé-
lagsins Aftureldingar) byijar hátíð-
arhöldin í Mosfellsbæ með innanfé-
lagsmóti yngri félaga sem hefst
kl. 9.30 i Varmárlaug. Við þetta
tækifæri fara tveir læknar á
Reykjalundi í koddaslag og „furðu-
boðsund" verður milli starfsmanna
nokkurra fyrirtækja í bænum. Kl.
11.30 verður hið árlega víðavangs-
hlaup UMFA og verður keppt í öll-
um aldursflokkum.
Eftir hádegi, kl. 13.30, verður
safnast saman við verslunina Nóa-
tún og gengið að íþróttahúsinu.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leið-
ir gönguna. Við íþróttahúsið hefst
fjölskylduskemmtun kl. 14.00. Þar
verður blönduð dagskrá, t.d. flytur
Söngsmiðjan atriði úr söngleiknum
Cats, hjólaskautatrúðurinn Jóki
sýnir listir sínar og Karlakórinn
Stefnir syngur.
Fleira verður gert til hátíðar-
brigða víðs vegar í Mosfellsbæ: Á
Malarvelli verður hestasýning og
hestamannafélagið Hörður býður
börnunum á bak að sýningu lok-
inni. Á Varmárvelli bjóða íþrótta-
deildir UMFA í margs konar leiki
og þrautir. Kaffiveitingar verða í
Hlégarði. Flugklúbbur Mosfells-
bæjar verður með opið hús á
Tungubökkum og Björgunarsveitin
Kyndill sýnir tæki sín og útbúnað
við Varmárvöll. Á Hafravatni býður
tómstundaráð uppá seglbrettasýn-
ingu kl 17.15 og geta áhugasamir
fengið að spreyta sig að sýningu
lokinni.
. Um kvöldið hefst við íþróttahús-
ið kvöldskemmtun fyrir unga fólk-
ið. Þar koma fram ungar hljóm-
sveitir í Mosfellsbæ. kl. 21.15
skemmtir fjöllistamaður, „The Mig-
hty Garet“, og Gysbræður
skemmta um kl. 22.00. Eftir
skemmtiatriðin mun hljómsveitin
Sirkus Babalú spila til kl. 00.30. í
Hlégarði verður eftir kl. 21.30 opið
hús með kráarstemmningu fyrir
20 ára og eldri.
Hveragerði
Hátíðarhöldin hefjast í Hvera-
gerði kl. 10.00 með fánahyllingu á
íþróttavellinum, en svo verður öll-
um boðið í hjólaþrautir.
Til skrúðgöngu verður safnast á
tveimur stöðum kl. 13.30. Lagt
verður af stað frá horni Grænu-
markar og Heiðmarkar og frá horni
Laufskóga og Heiðmarkar. Göngur
sameinast á Breiðmörk og halda í
Laugaskarð þar sem hátíðardag-
skrá hefst kl. 14.00. Þar messar
séra Tómas Guðmundsson. Ingi-
björg Sigmundsdóttir forseti bæjar-
stjórnar flytur setningarræðu og
áyörp ijallkonu og nýstúdents
verða flutt. Síðdegis mun Kvenfé-
lag Hveragerðis selja kaffi við
grunnskólann og á sama stað býð-
ur Hestamannafélagið Ljúfur
börnunum á hestbak. Við íþrótta-
húsið verður skemmtidagskrá þar
sem fjölskyldan getur brugðið á
leik, t.d. í blöðruslag. Um kvöldið
verður dansleikur fyrir alla við
Shellskálann en diskótekið Ó Dolly
mun sjá um tónlistina fram til
24.00, en þá lýkur skemmtana-
haldi.
Blönduós
Skátafélagið Bjarmi sér um há-
tíðarhöldin á Blönduósi. Kl. 8.00
árdegis verður fáni íslands hylltur.
Um morguninn verður boðið upp á
ýmislegt til upplyftingar, t.d. mun
Flugklúbburinn Haukar bjóða út-
sýnisflug fyrir 100 krónur og
Hestamannafélagið Neisti bjóða
fólki á hestbak. Milli kl. 13.00 og
13.30 verður safnast saman við
leikskólann. Þat verða öll börn leik-
skólans máluð og fá fána sem fyrir-
tæki á staðnum gefa. Leikskóla-
börn frá Skagaströnd koma og fá
fána frá sinni heimabyggð.
Kl. 13.30 verður skrúðganga frá
leikskólanum til Fagrahvamms þar
sem fulltrúi bæjarstjórnar setur
hátíðina og fjallkonan kemur fram.
Gunnar Eyjólfsson skátaforingi
mun flytja hátíðarræðu.
Síðdegis geta íbúar Blönduóss
og aðrir viðstaddir margt gert til
gamans og fyrir börnin verður reið-
hjóla- og þrautakeppni við grunn-
skólann. Um kvöldið, 20.30-22.00
verður fjölskylduskemmtun í
Fagrahvammi með varðeldasniði.
Verður blandað saman söng og leik.
Morgunblaðið/Þorkell
Unnið hörðum höndum
FULLTRÚAR allra kynslóða komu saman á fjölskyldudegi Borgar-
spítalans um síðustu helgi. Þar gafst fólki meðal annars kostur á
að gróðursetja tré á lóð spítalans. Sumir létu ekki þar við sitja
heldur hristu af sér slenið og tóku þátt í Borgarspítalahlaupinu.
Þá var Röntgendeild Borgarspítalans opin í tilefni dagsins og gátu
fjölskyldurnar kynnt sér starfsemi hennar. Dagskráin bauð upp á
fjölmargt fleira en að loknum erfiðum degi mátti líta afrakstur
erfiðisins; fjölda nýrra trjáa á lóð spítalans.
LAMBAKJ ÖT E R BEST Á GRILLIÐ
Grillkótilettur beint
ágrilUð með a.m.k.
15% grillafslætti
I næstu verslun færðu nú lambakjöt á albragðstilboði, - tilbúið beint á grillið.