Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
Viðskiptavinir athugið!
Lokað verður 18. júní
vegna sumarleyfa
Vatnagörðum 24.
REIKINÁMSKEIÐ
Akranes:
Fyrsta og annað stig 26. og 27. júní.
Austurland:
í sumar verða námskeið á Hornafirði,
Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Eskifirði,
Egilsstöðum, Neskaupstað, Seyðisfirði
og Vopnafirði.
Upplýsingar og skráning í síma 91-623677.
FAGOR
FAGOR FE54
Magn af þvotti 4,5kg
Þvottakerfi 17
Hitastillir *-90 C
Rúmmál tromlu 42 1
Hraðþvottur •
Áfangaþeytivinda •
Sjálfvirkt vatnsmagn •
Hæg vatnskæling •
Barnavernd •
Sjálfhreinsandi dæla •
Hljóðlát •
SUMARTILBOÐ
GERÐFE54-STAÐGRF.1TTKR.
37900
KR. 39900 -MEÐAFBORGUNUM
RÖNNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
MEXX JUNIOR-MARKAÐUR
I SUAAAR - I VETUR - I SKOLANN
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við opnað aftur með enn
meira vöruúrval og enn betra verð í nýju og glæsilegu
húsnæði á Laugavegi 95, 2. hæð (áður verslunin SER)
Ungbarnapeysur kr. 500
Ungbarnasumarkjólar kr. 950
Ungbarnaútigallar kr. 1.500
MEXX krakkabolir kr. 950
Gallastuttbuxur kr. 1.500
Allar úlpur kr. 3.500
- og margt, margt fleira af sumar- og vetrarfatnaði á frábæru verði.
EINNIG HIÐ FRÁBÆRA ÞÝZKA VÖRUMERKI
hauck
sem býSur upp á
REGNHLÍFAKERRUR - VERÐ FRÁ 4.900
KERRUVAGNA, VÖGGUR, fERÐARÚM, BARNASTÓLA O.FL.
* OPIO LAUGARDAGA
FRÁ KL. 10-14
MEXX JUNIOR-MARKAÐUR
ISUMAR -1VEIUR -1SKOLANN
Laugavegi 95, 2. hæð
(áður versl. SÉR), sími 25260.
Eru SÞ að verða nýtt Þjóðabandalag?
Friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna hafa að undanförnu þurft
að taka að sér umfangsmikil og vandasöm verkefni, t.d. í fyrrver-
andi Júgóslavíu og Sómalíu, og lent í hálfgerðum ógöngum varð-
andi framkvæmdina. Breska tímaritið Econonriist gerir þennan
vanda Sameinuðu þjóðanna að umræðuefni í forystugrein í nýjasta
hefti sínu.
Tvíræðni og
undanbrögð
í forystugrein Econ-
omist segir: „Eru Samein-
uðu þjóðirnar að kalda
stríðinu loknu Þjóða-
bandalagið endurborið?
Samtök sem sýna jafn litla
festu og ásetningur þeirra
er virðingarverður.
Oheiðarlegar ákvarðanir
gætu beint samtökunum í
þá átt: Nýlegar samþykkt-
ir öryggisráðsins varð-
andi Bosníu hafa verið
gruggug blanda af tvi-
ræðni og undanbrögðum.
Ef SÞ ætla áfram að gefa
sig út fyrir að vera ein
helsta forsenda þess að
minni óreiða riki í heimin-
um þurfa aðildarríkin að
spyija sig þriggja erfiðra
spurninga áður en þau
byija að samþykkja álykt-
anir út og suður um Bos-
níur og Sómalíur heims-
ins: Hvað er hægt að gera,
hver ætlar að gera það
og hver ætlar að borga
það?
Oryggisráðið hefur
vanið sig á þann ósið að
telja sér trú um að eitt-
hvað verði gert í málum
bara vegna þess að það
segi að eitthvað beri að
gera. Það samþykkir í at-
kvæðagreiðslu að betr-
umbæta heiminn en send-
ir síðan á vettvang of lít-
inn liðsstyrk, illa vopnum
búinn, án nægrar fjár-
mögnunar og með vafa-
samt umboð til athafna.
Það kemur því ekki á
óvart þegar hlutimir fara
verulega úrskeiðis, líkt og
þeir hafa nýlega gert í
fyrrverandi Júgóslavíu,
Angóla og Sómalíu. Ein-
ungis í Kambódíu gerðu
aðildarríkin sér grein fyr-
ir jafnt umfangi verkefn-
isins og þeim takmörkun-
um sem það væri háð:
Niðurstaðan er glæst
frammistaða miðað við
þann mælikvarða sem
stuðst er við.“
Hver gerir
hvað?
Áfram segir: „Rætt var
um ákveðin timamót
vegna ályktunar sem sam-
þykkt var 4. júni sl. þar
sem í henni var ákveðið
að vemda „griðasvæðin“
[í Bosníu] og í fyrsta skipti
samþykkt að leyfa loftá-
rásir í refsingarskyni.
Samt var þetta skóla-
bókardæmi um huglítinn
mglandahátt. Til að byija
með var ákvörðunin
kynnt sem veigamikið
skref í átt til þess að hægt
yrði að ná aftur her-
numdu landi og leyfa því
fólki sem hrakið hefur
verið í burtu að snúa til
baka. Þetta myndi á
grimmilegan hátt kynda
undii' falskar vonir ef ein-
hver á annað borð trúir
því enn sem SÞ segja.
Orðalag ályktunarimiar
er mjög óþ'óst og ekki er
Vjóst hvort flugsveitir
NATO eigi að hefja árásir
ef ráðist er á sjálf griða-
svæðin eða einungis ef
ráðist er á friðargæslu-
sveitirnar. Og verst af öllu
er að hvergi kemur fram
hvaðan hinar nýju her-
sveitir eigi að koma.
Bandaríiqamenn, Bretar
og Frakkar, sem vom
helstu stuðningsmenn
ályktunarinnar, hafa allir
lýst því yfír að þeir muni
ekki leggja til frekari her-
afla. Hvaða ríki ætlar þá
að gera það?“
Skýr markmið
Síðan segir: „Rökleysa
af þessu tagi kemur óorði
á SÞ og það réttilega. Sú
hugmynd að gripið yrði til
hörkulegra hemaðarað-
gerða í mannúðarskyni
átti mikinn hljómgruim í
kjölfar Persaflóastríðsins.
Þetta virtist líka vera
skraddarasaumað hlut-
verk fyrir samtök sem
gefa sig út fyrir að stjórn-
ast af hugsjónum. SÞ hafa
hins vegar síðan gripið til
ómerkilegra aðgerða án
þess að sýna mikið hug-
rekki og dregið sig til baka
þegar einhver stendur upp
gegn þeim eða þegar
áhættan er talin of mikil
. . . Ef SÞ ætla að endur-
heimta virðingu sína verða
aðildarríkin að vera
reiðubúin, á þami hátt sem
flest hafa hingað til ekki
verið, að sætta sig við að
friðargæsluliðar þeirra
séu drepnir og &ð þeir
drepi aðra. Það er hins
vegar einungis hægt að
búast við því af ríkisstjóm-
um, að þær stofni lífum
þegna sinna í hættu, ef
friðargæsluliðamir em
sendir nægilega fjölmcnn-
ir á vettvang, ef þeir em
vel vopnum búnir og hafa
fyrirmæli sem leyfa þeim
að skjóta fyrst telji þeir
líkur á launsátri. Markmið
þeirra verða líka að vera
hernaðarlega skýr og hafa
pólitískan eða mannúðar-
legan tilgang: Þeir verða
að vita hvað þeir eigi að
gera og hvers vegna.“
s
SUMIR HAFA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ. EN ÞU?
Ef A beygir til liliðar,
hvort sem það er til þess að
skipta um akrein eða að aka
frant úr, getur liann lent í
órétti gagnvart B sem er að
aka frain úr A.
í 2. mgr. 17. gr. umferðar-
laga segir meðal annars:
„Ökumaður skal, áður en
hann ekur af stað frá brún
akbrautar, skiptir um akrein
eða ekur á annan liátt til hlið-
ar, ganga úr skugga um að
það sé unnt án liættu eða
óþarfa óþæginda fyrir aðra.“
Sýndu aðgæslu þegar þú
skiptir um akrein eða ekur
fram úr.
TILLITSSEMI í UMFERÐINNI
ER ALLRA MÁL.
SJÓVÁOdALMENNAR
AUKhtSÍAk116d1M13