Morgunblaðið - 17.06.1993, Side 31
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
„Gef heill, sem er
sterkari en Hel“
Heimastjómarárið 1904 var
fyrsta stóra sigurárið í
íslenzkri sjálfstaeðisbaráttu.
Það ár fengu íslendingar
heimastjórn; það ár vannst sig-
ur í baráttunni fyrir innlendu
framkvæmdavaldi; það ár var
efnt til íslenzks ráðuneytis í
Reykjavík. Flutningur fram-
kvæmdavaldsins inn í landið
með heimastjórn var mikill
áfangasigur og lyftistöng örra
framfara í landinu.
Baráttan fyrir innlendu
framkvæmdavaldi stóð linnu-
laust frá 1881 til 1902-1904.
Þingræðið var endurreist í land-
inu með stjórnarskrárbreytingu
1902 og 1903. Frumvarpið um
heimastjórn var staðfest af kon-
ungi 1903 og gekk í gildi 1904.
Það ár voru embætti íslands-
ráðgjafa og ráðuneyti fyrir ís-
land í Kaupmannahöfn lögð nið-
ur. Stofnað var fyrsta íslenzka
ráðuneytið í Reykjavík í þremur
deildum með jafnmörgum skrif-
stofustjórum undir yfirstjórn
ráðherra og landritara, sem var
nánasti aðstoðarmaður ráð-
herrans. Fyrsti íslenzki ráðherr-
ann var góðskáldið og stjórn-
málamaðurinn Hannes Haf-
stein. Á næsta ári verða 90 ár
liðin frá því ísland fékk heima-
stjórn.
Fullveldisárið 1918 var ann-
að stóra sigurárið í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Það ár
öðluðust sambandslögin gildi.
Með þeim var ísland viðurkennt
fijálst og fullvalda ríki. Kon-
ungur Danmerkur var sameig-
inlegur konungur íslands og
Danmerkur og Danir fóru með
utanríkismál landsins í umboði
íslenzku þjóðarinnar. Stórsigur
var í höfn. Þáttaskil orðin í
báráttu Islendinga fyrir stjórn-
frelsi; stöðulögin endanlega
felld úr gildi, sjálfstætt ríki við-
urkennt og greiður vegur lagð-
ur til sambandsslita og lýðveld-
isstofnunar að aldarfjórðungi
liðnum. Á þessu ári eru því 75
ár liðin frá því ísland varð
fijálst og fullvalda ríki.
Lýðveldisárið 1944 var þriðja
og stærsta sigurárið í sjálfstæð-
isbaráttunni. Sigurinn sá var
innsiglaður við kjörborðið. Þjóð-
aratkvæði fór fram um uppsögn
sambandslaganna og stofnun
Iýðveldis 20.-23. mai það ár.
98,61% landsmanna greiddu
atkvæði með uppsögn sam-
bandslaganna og 95,04% með
lýðveldisstofnun. Samkvæmt
þessum sögulegu úrslitum lýsti
Alþingi einróma yfir gildistöku
stjórnarskrár lýðveldisins ís-
lands. Það var gert á Þingvöll-
um við Öxará 17. júní 1944.
Kjörinn var fyrsti forseti lýð-
veldisins, Sveinn Björnsson,
ríkisstjóri og fyrrverandi sendi-
herra. Síðan hefur 17. júní,
fæðingardagur Jóns Sigurðs-
sonar forseta, frelsishetjunnar
góðu, verið __ þjóðhátíðardagur
Islendinga. Á næsta ári verða
50 ár liðin frá stofnun lýðveldis-
ins íslands, 90 ár frá heima-
stjórn og 120 ár frá því að Al-
þingi var endurreist sem lög-
gjafarþing 1874.
Útfærslur fiskveiðilögsög-
unnar 1952,1958,1972 og loks
1975 í 200 mílur voru mikil-
vægir viðbótarsigrar í sjálf-
stæðisbaráttunni. Og sú varn-
arbarátta sem þjóðin stendur í
þessi misserin, í atvinnu- og
efnahagsmálum, við erfið ytri
skilyrði, er áframhaldandi bar-
átta fyrir efnahagslegu- og
stjórnmálalegu fullveldi. Með
samátaki, eins og þjóðin sýndi
við kjörborðið 20.-23. maí lýð-
veldisárið 1944, getur hún unn-
ið sig út úr vandanum. Máski
hefur aldrei verið mikilvægara
né nauðsynlegra í þjóðarsög-
unni að stíga á sameiginlegan
þjóðmálastokk og strengja
samstöðuheit. _
Lýðveldið ísland fól í sér
fullnaðarsigur í sjálfstæðisbar-
áttu landsmanna, að því marki
sem slíkt er hægt, en ekki lykt-
ir baráttunar. Sjálfstæðisbar-
átta þjóðar, ekki sízt smáþjóð-
ar, er viðvarandi. Og það er
sízt auðveldara að gæta en afla
efnalegs og stjórnmálalegs full-
veldis þjóðarinnar.
Ólafur Thors, sem var for-
maður Sjálfstæðisflokksins lýð-
veldisárið 1944, vitnaði í þjóð-
hátíðarræðu það ár í góðskáldið
og stjórnmálamanninn Hannes
Hafstein, sem varð fyrsti ráð-
herra landsins, heimastjórnar-
árið 1904. Morgunblaðið óskar
landsmönnum öllum gleðilegrar
þjóðhátíðar með lokaorðunum í
þjóðhátíðarræðu Ólafs Thors
1944:
„Kjörorð hins íslenzka lýð-
veldis er: Mannhelgi. Hugsjón
þess, að hér búi um alla fram-
tíð frjáls og öllum óháð menn-
ingarþjóð, andlega og efnalega
fijálsir og hamingjusamir
menn. Þeirri hugsjón viljum við
allir þjóna.
Drottinn, lát strauma af lífssólar ljósi
læsast í farveg um hjartnanna þel.
Vama þú byljum frá ólánsis ósi.
Unn oss að vitkast og þroskast.
Gef heill, sem er sterkari en Hel.“
Aðhaldsaðgerðir á Landakoti
Rúmlega 96 millj.
tap á síðasta ári
RÚMLEGA 96 milljóna króna tap varð á rekstri Landakotsspít-
ala á síðasta ári en árið 1991 varð 22 milljóna króna rekstraraf-
gangur hjá spítalanum. Yfirlit um fyrstu fjóra mánuði þessa árs
sýnir að 21,5 milljóna króna tap hefur orðið á tímabilinu og þar
af eru vaxtagjöld vegna eldri skulda um tíu milljónir. I frétt frá
stjórnendum Landakots segir að óumflýjanlegt sé að grípa til
aðgerða til að draga úr rekstrarhalla. Meðal annars muni þurfa
að fækka starfsmönnum um tíu.
Fyrirhugað er að fækka aðgerð-
um lækna nokkuð og hefur þeim
verið úthlutað ákveðnum fjölda að-
gerðaeininga á ári. Útboð verða
aukin á aðkeyptri vöru og þjónustu
og er þar meðal annars um að ræða
þætti eins og viðhald, akstur og
kaup á rekstrarvörum. Eldhúsi í
Hafnarbúðum verður lokað og tekið
upp bakkakerfi í dreifingu matar á
spítalanum.
Aukið samstarf við
Borgarspítala
Á undanförnum tveimur árum
hafa fjárveitingar til Landakotsspít-
ala verið skornar niður um 420
millj. kr. og unnið hefur verið að
endurskipulagningu rekstrarins í
ljósi lækkandi fjárframlaga. M.a.
var einni af legudeildum spítalans
breytt í fimm daga deild, bráðavakt-
ir voru lagðar niður á lyflækninga-
og handlækningadeildum og hjúkr-
unardeild var innréttuð fyrir aldr-
aða.
Fyrir skömmu var undirrituð
viljayfirlýsing milli sjóma Sjúkra-
stofnana Reykjavíkur og Landakots
Biliuiin
í síma-
kerfínu
fiuidin
BILUN í aðalsímstöð Reykjavík-
inga, sem olli miklum trufiunum
og sambandsleysi í símkerfinu, er
fundin. Bilunin varð þegar nýju
stýrikerfi var komið upp í Múlastöð
og mestan hluta mánudags og
þriðjudags sl. var nær ómögulegt
að hringja í og úr rúmlega tuttugu
þúsund númerum. Ragnar Bene-
diktsson, yfirdeildarsljóri hjá Pósti
og síma, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að frá og með deginum í
dag ættu símnotendur ekki að
verða varir við neinar truflanir.
Bilunin fannst skömmu eftir hádegi
í gær. Hún olli því að í stað þess að
símstöðin gæfi til kynna hvað væri
að þegar of mikið álag varð á ákveðn-
um einingum hennar hætti hún að
afgreiða símtöl. Málið hefur verið
leyst þannig að viðkomandi einingar
hafa verið stækkaðar og nú er leitað
leiða til að breyta hugbúnaðinum svo
að það sem gerðist endurtaki sig ekki.
Forsetinn
til Noregs
FORSETI íslands fer í opinbera
heimsókn til Noregs í október.
í fréttatilkynningu frá skrifstofu
forseta segir að forseti íslands fari
í opinbera heimsókn 26.-28. október
í boði Haraldar V. Noregskonungs
og Sonju drottningar.
um nána samvinnu um rekstur
Borgarspítala og St. Jósefsspítala.
Er nú m.a. stefnt að flutningi barna-
deildar frá Landakoti til Borgarspít-
ala og aukinni áherslu á þjónustu
við biðlista- og ferlisjúklinga á
Landakoti. Tekin verður upp sam-
vinna í rekstri birgðastöðva og
tölvudeilda spítalanna. Þá er ætlun-
in að auka sértekjur Landakots með
breytingu á þjónustu göngudeildar
og tekin verður í notkun 17 rúma
deild fyrir hvíldarinnlagnir í fjórar
vikur í júlí en til þess hefur fengist
sérstök fjárveiting.
Gróðursett í Vinaskógi
Morgunblaðið/Þorkell
SENDIHERRAR erlendra ríkja sem hér eru búsettir, ásamt fjölskyldum þeirra og starfsfólki sendiráðanna,
gróðursettu um 1.000 birkiplöntur í Vinaskógi í landi Kárastaða í Þingvallasveit í gær. Gróðursetningin fór fram
í blíðviðri og létu sendiherrarnir og fylgdarlið þeirra hendur standa fram úr ermum.
Þrír íslendingar vald-
ir í embætti hiá EFTA
ÁKVEÐIÐ var á ráðherrafundi EFTA sem haldinn var
í gær að Kjartan Jóhannsson sendiherra, núverandi
fastafulltrúi í Genf, taki við af Georg Reisch sem aðal-
framkvæmdasljóri EFTA 1. september 1994. Þá var
Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari skipaður í sæti
dómara við EFTA-dómstólinn, og Björn Friðfinnsson
ráðuneytisstjóri var skipaður í stjórn Eftirlitsstofnunar.
í fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu kemur fram að EES-
samningsaðilar innan EFTA muni
skila fullgildingarskjölum vegna Evr-
ópska efnahagssvæðisins fyrir mán-
aðamót, og hvöttu ráðherrarnir EB-
ríkin til að fylgja því fordæmi. EBTA-
ríkin hafa nú gert fríverslunarsamn-
inga við átta ríki í A-Evrópu og við
Miðjarðarhaf og gefíð yfirlýsingar um
aukið efnahags- og viðskiptasamstarf
við eliefu ríki.
Hvöttu ráðherr-
arnir til samstarfs
við Evrópubanda-
lagið um myndun
Kjartan
Jóhannsson
fríverslunarsvæðis um alla Evrópu.
Mikilvægi alþjóðasamstarfs
Ráðherrarnir lögðu áherslu á mikil-
vægi alþjóðasamstarfs í umhverfis-
málum og viðskiptum og nauðsyn
Þór Björn
Vilhjálmsson Friðfinnsson
þess að forðast einhliða viðskiptaað-
gerðir. Loks skuldbundu ráðherrarnir
sig til að gera sitt ýtrasta til að ljúka
Úrúgvæviðræðunum innan GATT
fyrir áramót.
Verktakar ósáttir við að vörubílstjórar bjóði í verklegar framkvæmdir
Kæra til samgöngnráð-
herra og Samkeppnisráðs
VERKTAKASAMBAND íslands hefur sent erindi til samgönguráðherra
og Samkeppnisráðs þar sem kvartað er yfir því að vörubílsljórafélög
bjóði í verklegar framkvæmdir. Telur Verktakasambandið að þetta sam-
rýmist ekki ákvæðum samkeppnislaga og laga um leigubifreiðar. Þar
komi skýrt fram sá vilji löggjafans, að bifreiðastöðvar skuli vera þjón-
ustuaðili við almenning og stunda leiguakstur, en ekki vera verktakar og
vinnuveitendur.
Verktakasambandið hefur sent
samgönguráðherra stjórnsýslukæru
vegna þessa máls og fer fram á að
hann úrskurði um lögmæti þess að
vörubifreiðastjórafélög starfi sem
verktakar. í erindinu kemur meðal
annars fram, að undanfarin ár hafi
félög vörubílstjóra boðið í ýmis verk,
ýmist í eigin nafni eða nafni félaga,
sem sérstaklega séu stofnuð í þeim
tilgangi. Er sérstaklega nefnt sem
dæmi, að nýlega hafi Vörubílstjóra-
félagið Mjölnir átt lægsta boð í út-
boði Vegagerðarinnar á Villingaholts-
vegi.
Þjónustuaðilar en ekki
verktakar
í erindinu er nefnt, að það sjónar-
mið kunni að koma fram,.að lög um
Sfrjórn Búnaðarfélags íslands
Andstaða við álit
sj ömannanefndar
STJÓRN Búnaðarfélags íslands hefur lýst yfir andstöðu við þá meginn-
iðurstöðu í áliti sjömannanefndar sem kynnt var fyrir skömmu um að
hverfa að mestu frá niðurgreiðslum vaxtakostnaðar af lánum bænda
hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins. í ályktun stjórnar BÍ um þetta mál
segir að ekki séu nú fyrir hendi aðstæður til verulegrar breytingar á
vöxtum af lánum Stofnlánadeildar eða tekjustofnum deildarinnar.
I ályktuninni segir að ljóst sé að
samdráttur í framleiðslu valdi bændum
vaxandi erfiðleikum að standa undir
fjármagnskostnaði og þar af leiðandi
sé hætta á tapi af útlánum í ýmsum
búgreinum. Hins vegar sé þýðingar-
mikið fyrir landbúnaðinn að hafa að-
gang að traustum lánasjóði þar sem
örar breytingar á búskaparháttum og
nýjungar kalli á endurskipulagningu
búrekstrar.
leigubifreiðar eigi ekki að gilda um
þá þætti í starfsemi bifreiðastöðv-
anna, sem ekki teljist til leiguaksturs,
og stöðvunum sé því heimilt að keppa
á markaðnum sem verktakar. Slíkum
skýringum mótmælir sambandið á
þeirri forsendu að orðalag laganna
bendi til annars, auk þess sem slík
starfsemi myndi eftir sem áður bijóta
í bága við samkeppnislög.
Hætta á misnotkun
Að þessum atriðum er nánar vikið
í kvörtun Verktakasambandsins til
Samkeppnisráðs. Þar segir meðal
annars, að lögum samkvæmt hafi
félög vörubifreiðastjóra einokunar-
aðstöðu á félagssvæði sínu að því er
tekur til leiguaksturs. Þá aðstöðu
geti þau misnotað til undirboða á
sviði verktakaiðnaðar. Félögin geti til
dæmis tekið fullt gjald fyrir leiguakst-
ur og notað arðinn af þeirri starfsemi
til undirboða í samkeppni við verk-
taka. Þá verði að líta til þess, að þeg-
ar vörubifreiðastjórafélögin séu að
bjóða í verk, þá séu þau orðin hags-
munaaðilar. Áfleiðing þess kunni að
vera sú, að erfiðara geti reynst fyrir
verktaka að fá leigðar bifreiðar í
framtíðinni, auk þess sem sú staða
geti skapast, að félögin láti sín eigin
verkefni ganga fyrir verkum annarra
aðila og þannig seinkað verklokum
þeirra.
Þá er í erindum Verktakasam-
bandsins til samgönguráðherra og
Samkeppnisráðs sagt, að óeðlilegt sé,
að vörubifreiðastjórafélögin séu i senn
bifreiðastöðvar og stéttarfélög, þar
sem þessir aðilar eigi lögum sam-
kvæmt að hafa sitt verksviðið hvor.
Þannig eigi stéttarfélögin að gera til-
lögu til viðkomandi sveitarstjórnar
um það, hvaða bifreiðastöðvar skuli
fá einkaleyfi til reksturs á svæðinu,
en þá sé stéttarfélagið í flestum tilvik-
um að gera tillögu um sjálft sig.
Fiskvinnslan biður hafnar-
sljórnir um gjaldalækkun
SAMTÖK fiskvinnslustöðva hafa farið þess á leit við hafnasljórnir á land-
inu að vörugjald af sjávarafurðum verði lækkað um a.m.k. fjórðung,
vörugjald af lýsi og fiskimjöli verði lækkað og að vörugjald til útflutnings-
hafnar af vöru sem flutt er frá annarri höfn verði lækkað um helming.
í bréfi sem samtökin hafa sent öll-
um hafnastjórnum á landinu segir að
með hliðsjón af 6. grein yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð
kjarasamninga í maí sl. og útgáfu
bráðabirgðalaga sem tóku gildi 1.
júní sl. og varða heimildir hafna-
stjórna til lækkunar á gjaldskrám,
fari samtökin þess á leit að hafna-
stjórnir taki til endurskoðunar vöru-
gjald sem fiskvinnslufyrirtækjum er
gert að greiða á þann hátt sem eftir-
farandi tillögur beri með sér og taki
þannig þátt í aðgerðum til að lækka
rekstrarkostnað þeirra.
Einfalt vörugjald
Vörugjald verði lækkað um a.m.k.
25%. Vörugjald af lýsi og fiskimjöli,
þar með töldu síldar- og loðnumjöli,
verði tekið samkvæmt 1. flokki á
sama hátt og af korni og olíum. Ekki
fáist séð að eðlismunur þessara vöru-
tegunda gefi tilefni til mismununar í
gjaldtöku. Með því að færa fiskimjöl
og lýsi úr 1. flokki í 2. flokk hafi í
raun mjöl- og lýsisiðnaðurinn verið
skattlagður sérstaklega. Af sjávaraf-
urðum sem fluttar hafa verið með
skipi frá einni höfn til útflutnings frá
annarri höfn greiðist hálft vörugjald
til útflutningshafnar. Farið er fram á
að samanlögð vörugjöld af sjávaraf-
urðum sem fluttar eru með skipum á
milli hafna innanlands og síðan til
útflutnings frá annarri höfn verði í
heild aldrei meiri en sem nemur ein-
földu vörugjaldi. Nú er greitt hálft
gjald af sjávarafurðum sem fluttar
eru innanlands á milli hafna og síðan
fullt gjald tii útflutningshafnar.
Auk þessa ætla Samtök fisk-
vinnslustöðva að fara þess á leit við .
viðkomandi ráðuneyti að fellt verði
niður af sjávarafurðum sérstakt vöru-
gjald sem nemur 25% álagi á hafna-
gjöld og skal samkvæmt lögum renna
í sérstaka deild við Hafnabótasjóð,
en það var tekið upp á sl. ári.
Staða bankasfrjóra Seðlabanka íslands augflýst
Sjö umsóknír bárust
SJÖ umsóknir bárust _um stöðu
bankastjóra Seðlabanka íslands, en
umsóknarfrestur rann út 15. júní.
Bankaráð fjallaði um uinsóknirnar
í gær, og að sögn Ágústs Einarsson-
ar, formanns bankaráðsins, er gert
ráð fyrir að gengið verði frá tilliigu
til viðskiptaráðherra um ráðningu
nýs bankastjóra á fundi ráðsins
næstkomandi mánudag, en staðan
er laus frá 1. júlí.
Umsækjendur um stöðu Seðla-
bankastjóra eru þeir Bjarni Einarsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Byggða-
stofnunar, Eiríkur Guðnason, aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans, Ingi-
mundur Friðriksson, forstöðumaður í
alþjóðadeild Seðlabankans, Jón Sig-
urðsson, fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra, Kristján Sig. Kristjánsson,
rafvirkjameistari, Már Guðmundsson,
forstöðumaður í hagfræðideild Seðla-
bankans og Ingvi Orn Kristinsson,
forstöðumaður tölfræðisviðs Seðla-
bankans.
„Okkur finnst að vel hafi tekist til
nú í fyrsta skipti sem staða banka-
stjóra Seðlabankans er auglýst laus
til umsóknar, en þarna bárust margar
vandaðar umsóknir _og það er mjög
ánægjulegt,“ sagði Ágúst Einarsson.
Juan Martabit nýr sendiherra Chile segir samstarf við íslendinga gott
Míklír mögiileikar eru í ört
vaxandi sjávarútvegi Chile
JUAN Martabit, nýr sendiherra Chile á íslandi, afhenti trúnaðar-
bréf sitt nú í vikunni. Martabit, sem hefur aðsetur í Osló, segist
hafa trú á að möguleikar séu fyrir stórauknu samstarfi íslendinga
og Chilebúa á sviði viðskipta jafnt sem menningar. Martabit hóf
störf í sendiráði Chile í Noregi fyrir um þremur mánuðum en hann
var áður sendiherra í Bóliviu.
„Það hefur þróast mjög gott
samband milli íslendinga og
Chilebúa á undanförnum árum og
ég held að það bjóði upp á mögu-
leika fyrir bæði löndin,“ segir
Martabit í samtali við Morgunblað-
ið. „Hagkerfi Chile einkennist af
miklum hagvexti og var hann á
síðasta ári 10,4%. Við teljum okkur
hafa vissu fyrir því að á næstu
árum verði meðalhagvöxtur ekki
undir 6% á ári. í nokkrum greinum
er vöxturinn sérlega mikill og er
sjávarútvegur ein þeirra greina.“
Námuvinnsla gegnir mikilvægu
hlutverki í efnahagslífi landsins og
er útflutningur á ýmsum málmum
stærsta útflutningsgrein Chile.
Þær greinar sem næstar koma að
mikilvægi eru sjávarútvegur, land-
búnaður og skógarhögg. Alls fluttu
Chilebúar út vörur fyrir tíu millj-
arða Bandaríkjadala á síðasta ári.
Mikill áhugi á fjárfestingu í
sjávarútvegi
Martabit sagði að nú þegar væru
nokkur íslensk sjávarútvegsfyrir-
tæki með starfsemi í Chile og végn-
aði þeim mjög vel. Vonaðist hann
til að þetta samstarf myndi enn
aukast á næstu árum. Nefndi hann
að á síðasta ári var haldinn stór
alþjóðleg sjávarútvegssýning, Expo
Pesca, í Chile og voru nokkur ís-
lensk fyrirtæki meðal þeirra sem
tóku þátt í henni. „Aðstæður til
fyrirtækjarekstrar eru mjög góðar
í Chile og við fögnum allri erlendri
fjárfestingu. Sjávarútvegur er líka
ein þeirra greina sem við höfum
mestan áhuga á að sjá aukna fjár-
festingu í.“
Miklar framfarir hafa orðið í
chileskum sjávarútvegi á undan-
förnum árum, ekki síst í laxeldi.
Er nú svo komið að einungis Norð-
menn selja meiri lax á heimsmark-
aði en Chilebúar.
Hann tók þó fram að vel mætti
hugsa sér viðskiptaleg tengsl á
öðrum sviðum en í sjávarútvegi
einvörðungu. Það væru til aðilar í
Chile sem hefðu mikinn áhuga á
þekkingu á sviðum þar sem íslend-
ingar stæðu framarlega. „íslend-
ingar hafa til að mynda mikla
reynslu af því að nýta jarðvarma.
I norðurhluta Chile er að finna tölu-
verðan jarðhita en til þessa hefur
hann einungis verið nýttur að mjög
takmörkuðu leyti. Við höfum mik-
inn áhuga á því að nýta þessa orku-
lind frekar í framtíðinni.“
Nýr sendiherra
JUAN Martabit, nýr sendiherra
Chile.
Sendiherrann sagði að á íslandi
væri líka töluverður áhugi á ýmsum
chileskum framleiðsluafurðum.
Þegar væri flutt inn eitthvað af
ávöxtum og grænmeti frá Chile og
áhugi væri til staðar að auka veg
chileskra vina, en þau nytu mikilla
vinsælda annars staðar á Norður-
löndunum.
„Það er líka mikilvægt að ríkin
taki upp nánara pólitískt samstarf.
Hagsmunir okkar og afstaða eru
mjög svipuð á ýmsum sviðum, s.s.
í sjávarútvegsmálum,“ sagði
Martabit.
Ríkisstjórn Chile hefur nýlega
gert fríverslunarsamning við hin
Norðurlöndin og sagði sendiherr-
ann að kanna yrði hvort mögulegt
væri að gera áþekkan samning við
íslendinga. Það mál hefði hins veg-
ar einungis verið rætt mjög al-
mennt við íslensk stjórnvöld til
þessa.
Samstarf í menningarmálum
„Ég held líka ekki síst að við
ættum að geta komið á góðu og
miklu samstarfi í menningarmál-
um. Reykjavík hentar vel til að
koma list á framfæri hvort sem um
er að ræða klassíska tónlist, mynd-
list eða bókmenntir. Það má líka
nefna að Isabelle Allende hefur
komið hingað til lands og nýtur
mikilla vinsælda. Þá tók chileskur
tenór þátt í óperuuppfærslu hér
síðastliðinn vetur og leikrit frá
Chile var sýnt í leikhúsi. Við
Chilebúar hefðum líka mikinn
áhuga á að kynna okkur betur það
menningarframboð sem íslending-
ar hafa upp á að bjóða. Slík menn-
ingarsamskipti gætu byggt brú
milli landanna og hjálpað okkar að
' kynnast hvort öðru betur.“