Morgunblaðið - 17.06.1993, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
34
*--
Löngu liðin tíð að
grænmeti sé keyrt á
haugana til að halda háu vöruverði
„Það er löngu liðin tíð að það
sé verið að keyra tómata, gúrkur
og annað grænmeti á haugana
svo hægt sé að halda háu verði
þegar offramboð er á þessum
vörutegundum. Það gerðist að-
eins á gamla einokunartímanum
sem nú er löngu lokið. Sam-
keppnin er orðin svo mikil í
þessu að nú fá neytendur að
njóta góðs árferðis í lægra vöru-
verði,“ segir Kolbeinn Ágústs-
son, sölusljóri hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna.
„Það má reikna með því að kíló-
verð á gúrkum og tómötum geti
farið allt niður í tæpar 100 krónur
út úr búð þegar mikið framboð er.
En síðan getur verðið farið yfir 500
krónur kg. þegar lítið framboð er.
Þetta er bara spuming um framboð
og eftirspurn eins og annars staðar
í heiminum. Verð er hæst á vorin,
en lækkar síðan þegar líður á sum-
arið og svo má búast við einhverjum
"fhækkunum aftur á haustin þegar
framboð minnkár aftur,“ segir Kol-
beinn.
íslenska útiræktin er ekki ennþá
komin í verslanir hérlendis, en bú-. ■
Hvítari tennur
eftir sjálfsmeðhöndlun
LÝSINGAR á tönnum hafa tíðk-
ast í gegnum árin, en þó með
misjöfnum árangri. Nú er komið
á markaðinn því sem næst
óbrigðult ráð, sem er að ryðja
sér töluvert til rúms hér á landi,
og felst það að verulegu Ieyti í
sjálfsmeðhöndlun, að sögn Jóns
Ásgeirs Eyjólfssonar, tannlækn-
is og formanns Tannlæknafélags
íslands.
Sú meðferð, sem hér um ræðir,
tekur eina til tvær vikur. Að þeim
tíma liðnum ættu tennurnar að
Vera orðnar skjannahvítar. Með-
ferðin gengur út á það að tann-
læknir tekur afsteypu af gómum
viðkomandi „sjúklings" og búið er
til gifsmódel eða eftirlíking af gó-
munum. Á afsteypurnar er síðan
smíðuð skinna, sem sjúklingurinn
fær með sér heim auk efnis, sem
er á litlum túpum. Á kvöldin áður
en sjúklingurinn gengur til hvílu
og eftir að hafa burstað tennumar
vel, er efni úr einni túpu sprautað
inn á skinnuna, sem síðan er kom-
ið fyrir uppi í munninum. „Viðkom-
andi sefur með þetta í eina til tvær
yikur. Á morgnana tekur hann út
úr sér skinnuna, þvær hana vand-
lega og burstar tennurnar eðlilega.
Síðan endurtekur hann þetta næsta
kvöld. Þetta hefur gefist mjög vel
og virðist laga ails kyns litanir,
hvort sem er áf völdum kaffis, tób-
aks, lyfja, kalkúrfellinga eða ann-
arra orsaka,“ segir Jón Ásgeir.
Hann segir að aðferðin sé ekki
heppileg fyrir þá, sem séu með
mikið af framtannafyllingum. „Oft
vill brenna við að framtannafylling-
arnar taka í sig lit af kaffi, te og
Lukkuferðir Farklúbbsins
DREGNIR hafa verið út fimmtán farkorthafar hjá Farklúbbi VISA
sem hver um sig fékk að kaupa tvær utanlandsferðir með Flugleið-
um, hvora á 100 þús. kr. Flestir ákváðu að fara til Parísar en nokkr-
ir til London eða Lúxemborgar.
í haust verða dregnar út 30 ferð- kætast. Ekki hefur verið ákveðið
ir í lukkupottinum og munu þá 15 hvert þær ferðir verða. ■
aðrir korthafar hafa ástæðu til að
Nauðsynlegt er að tennur séu vel
burstaðar og hreinar áður en
skinnunni er komið fyrir í munn-
inum. Efni úr einni túpu er
sprautað á hverju kvöldi inn í
skinnuna, sem viðkomandi sefur
síðan með á næturna, í eina til
tvær vikur.
tóbaki og aflitast því með tímanum.
En þessi nýja aðferð litar ekki fyll-
ingar og því er hætta á að skipta
þurfi um fyllingarnar eftir meðferð-
ina þar sem hróplegur litamunur
getur myndast á framtannafylling-
unum og glerungi eigin tanna.
„Hvítar tennur eru hluti af
hraustlegu útliti og fegurð. Kröfur
sjúklinganna ,eru sífellt að aukast.
Tækninni fleygir fram og framþró-
unin stefnir ekki bara í að bæta
endingu fyllinga, heldur í átt að
útlitsbætandi þáttum líka,“ segir
Jón Ásgeir að lokum. ■
Á innlenda grænmetismarkaðn-
um gildir nú lögmálið um fram-
boð og eftirspurn. Kílóverð á
gúrkum og tómötum getur verið
frá tæplega 100 krónum og rokið
síðan í rúmar 500 krónur á stutt-
um tíma.
ast má við kínakáli, á markaðinn,
fljótlega upp úr mánaðamótum ef
veður helst svipað og verið hefur.
48 sölubásar
í miðbænum í dag
MARGIR eiga eflaust eftir að leggja leið sína í miðborg Reykjavíkur
í dag þar sem ávallt er mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn. Fullorðn-
sér kaffi eða ís í mannhafinu og
börnum sínum til hæfis.
Hluti af ánægju barnanna felst
vafalítið í því hve gjafmild mamma
og pabbi eru á fé þennan dag, enda
má ætla að fjölmargar freistingar
verði á vegi yngstu kynslóðanna í
öllum þeim aragrúa sölutjalda, sem
reist verða á torgum og strætum í
dag „enda er 17. júní bara einu sinni
á ári,“ segir viðmælandi.
Samkvæmt upplýsingum íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur hefur
verið veitt leyfi fyrir 48 sölutjöidum
í miðborginni í dag og eru íþróttafé-
‘1 ***** *“'-*' *** *******> ***
siðast en ekki síst til þess að gera
lögin í miklum meirihluta þeirra, sem
sótt hafa um leyfi. Sum félögin koma
með eigin tjöld, önnur fá leigð tjöld
hjá borginni á 11 þús. kr. Söluaðil-
arnir hafa ekki með sér samræmda
gjaldskrá á þeim vörum, sem seldar
eru, heldur er álagning fijáls. Hörð
samkeppni ríkir hinsvegar á milli
söluaðila neytendum til góða „og
þegar líða tekur á daginn og menn
búnir að athuga prísinn í næstu tjöld-
um, fer verðið gjarnan lækkandi
þegar líða tekur á daginn“.
Hvað kostar A að fara með . i börnin í w- bæinn?
Gos 100'
Pylsur 150 ^
Helíum blöðrur 300-400
Fánar 200
Körfuboltamyndir 150pakkinn
NBA-derhúfur 1.300
Vindrellur 150
Sleikipinnar 100-200
Sleikipinnasnuð 100-150
Frostpinnar og pinnaís 100
Gosduft í pökkum 50
Kúlutyggjó 10-15
Bland í poka 100
En hvað skyldi það kosta að fara
með börnin í bæinn í dag? Til að
svala þeirri forvitni okkar höfðum
við samband við nokkur íþróttafélög
og þau innt eftir verðum á því sem
í dag má kalla 17. júní-dót. Rétt er
að taka fram að hér er ekki um
tæmandi könnun að ræða þar sem
verð var aðeins kannað hjá hluta
þeirra söluaðila, sem verða á kreiki
í miðbænum í dag. ■
Humar á
HUMAR þykir mikið lostæti enda
með dýrustu réttum, sem fyrir-
finnast á matseðlum fínna veit-
ingahúsa. Humar er ekki daglega
á borðum almennings hér á Iandi,
heldur er hann gjarnan notaður
til hátíðarbrigða eða við sérstök
tækifæri.
Þeir félagar, Jens Arason
mma og Magnús Karlsson, stofnuðu
fyrir nokkrum mánuðum fyrir-
Sn tækið Bakkarétti, sem selur
OC rækjur, ýsu, kjúklinga og síð-
!■£ ast en ekki síst humar á 1.290
M kr. kg. Sölustarfsemin fer ein-
CLt göngu fram í gegnum síma
An og sjá Bakkaréttir um heim-
S3 keyrslu til viðskiptavinanna.
„Viðtökur hafa verið mjög
góðar," segja þeir Magnús og Jens.
„Við höfum verið að þróa þetta í
heilt ár og munum bæta við úrvalið
í sumar. Til dæmis er meiningin
að bjóða sérstaka grillpakka, sem
munu innihalda kryddlegna kjúkl-
inga, kryddlegið lambakjöt og hum-
ar.“
Sælkerar geta nú spreytt sig á
humaruppskrift, sem þeir félagar
létu Daglegu lífi í té, en þar er um
að ræða tvær eldunaraðferðir, bæði
pönnusteikingu og grillsteikingu.
HUMAR
1 kg humar
2 rauðlaukar
grillið og pönnuna
Kryddsmjör
180 g smjör
'k hvítlaukur
'h tsk. pipar
‘Atsk. aromat
1 knippi steinselja eða ‘A bolli
þurrkuð steinselja
Takið hvítlaukinn og saxið hann
smátt, helst í moulinex eða sam
bærilegu tæki. Bætið smjöri, stein-
selju, pipar og aromat út í og mix-
ið saman. Best er að gera krydd-
smjörið deginum áður.
Pönnusfeiking
Takið humarinn hálfþiðinn og
skerið hann með stórum beittum
hníf eftir endilöngu. Bræðið krydd-
smjörið við miðlungs hita. Saxið
rauðlaukinn út á pönnuna. Leggið
humarinn á sárið og steikið þar til
að humarinn fer að kreppast eða í
u.þ.b. 2-3 mínútur. Gott er að dreifa
paxo ofan á humarinn ef vill. Borið
fram með nýju snittubrauði.
Grillsteiking
Takið humarinn hálfþiðinn og
skerið hann eftir endilöngu. Bræðið
kryddsmjör og penslið á humarinn.
Leggið humarinn á sárið á grillið
við miðlungshita þar til hann fer
að kreppast eða í 2-3 mín. Penslið
tvisvar til þrisvar á meðan. Steikið
rauðlauk og berið nýtt snittubrauð
með. ■
JI
Lifandi mjólkursýrugerlar
MJÓLKURSÝRUGERLAR frá
Futurebiotics verða brátt fáan-
legir í verslunum hér á landi.
Gerlarnir eru frostþurrkaðir, en
slík meðhöndlun er sögð hafa
þau áhrif að gerlarnir lifi I eitt
ár utan kælis.
Gerlarnir eru í hylkjum eins og
vítamín, en í fréttatilkynningu frá
innflytjanda segir að þrjár tegundir
verði á boðstólnum hér á landi.
Kraftmesta tegundin sé langlífur
AcidGphilus + sem inniheldur 6 teg-
undir af lifandi gerlum. „Þetta eru
fjölvirkir gerlar, sem sérstaklega
er mælt með til að koma þarma-
flóru í lag eftir fúkalyfjakúra og til
að komast hjá matareitrun er fólk
fer til fjarlægra landa, t.d. Asíu og
Afríku." í fréttatilkynningunni er
einnig sagt frá sérstakri tegund
gerla sem ætluð er fólki með mjólk-
uróþol og annari sem hefur það
hlutverk að bæta meltingu, veija
slímhimnu þarma og skapa óæski-
leg lífsskilyrði fyrir óæskilega sýkla
og sveppi. n