Morgunblaðið - 17.06.1993, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTBR FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
IÞROTTIR UNGLINGA / NAMSKEIÐ
Að leika sér
í sundlauginni
Litið inn á sundnámskeið í Garðabæ
SUNDNÁMSKEIÐ fyrir börn
hafa alltaf notið mikilla vin-
sælda á sumrin og þrátt fyrir
að framboð á alls kyns sum-
arnámskeiðum hafi aukist þá
er sundið alltaf vinsælt. Með
árunum eru yngri börn farin að
mæta á námskeiðin og
kennsluaðferðirnareru mikið
breyttar frá því sem tíðkaðist
fyrir nokkrum árum. Nú er lögð
mun meiri áhersla á leiki til að
vekja áhuga barnanna.
Morgunblaðið leit við í sund-
laug Garðabæjar á þriðju-
daginn en þar eru starfrækt nám-
skeið á vegum
Sunddeildar Stjön-
FB6sson unnar' S'&uÚón El-
Skrifar íasson og Elín Birna
Guðmundsdóttir
íþróttakennarar sjá um kennsluna
og hámarksfjöldi nemenda á hveiju
námskeiði er 24, eða tólf nemendur
á hvorn kennara og nemendurnir
eru allflestir á aldrinum fimm til
átta ára.
„Hópunum er skipt í stig, hvítt,
rautt, gult og blátt eftir færni þátt-
takanda. Börnin reyna síðan að ná
markmiðum sem sett eru fyrir
hvern hóp. Þessi aðferð var fyrst
beitt í Kanada og markmiðið er að
hver og einn hópur fái viðeigandi
verkefni til að glíma við. í lok hvers
námskeiðs fá nemendur vitnisburð,
skjal sem greinir frá því hvað böm-
in hafa lært og þá vita foreldrarnir
hvar börnin standa, næst þegar fjöl-
skyldan fer í sund,“ segir Siguijón.
Foreldrar eru ekki leyfðir á bakk-
anum vegna þoss að það hefur sýnt
sig að það truflar einbeitingu barn-
anna. Sú leið hefur verið farin að
leyfa foreldrum að mæta í tvo tíma
á hveiju námskeiði til að fylgjast
með börnunum. Þeir tímar eru þá
reyndar hugsað meira sem leikja-
tímar. Undantekningin er reyndar
með þau allra yngstu. Þau sem eru
á aldrinum þriggja til fimm ára eru
á ljósbláa stiginu og koma í fylgd
með fullorðnum sem eru með þeim
í lauginni allan tímann.
Mikið um leiki
„Það eru alltaf yngri krakkar
sem mæta á námskeiðin og því er
nauðsynlegt að vera með leiki sem
höfða ti! þeirra. Það þýðir ekkert
að sýna yngstu börnunum fóta og
handatökin og ætlast til að læri að
synda eftir þeim leiðbeiningum.
Leikir skipa því veglegan sess við
kennsluna. Krakkarnir fara í stór-
fiskaleik, Sel og síld [köttur og
mús] og „síðasti" en sá leikur geng-
ur út á það að nemendur reyna að
ná að „klukka" aðra með því að
snerta þá með korki. Ekki má
klukka þá sem eru í kafi og leikur-
inn fær því nemendurna til þess að
fara í kaf auk þess sem leikurinn
fær nemendur til að hreyfa sig í
vatninu. Hjá börnum sem eru á
gula stiginu, byggir hluti kennsl-
unnar á söng og reynt er að flétta
það léttum æfingum eins og til
dæmis „Höfuð, herðar, hné og tær“
en það lag er vinsælt hjá börnum
á leikskólaaldri.
Morgunblaðið / Frosti
í sundi
Leikir eru mikið notaðir við sund-
kennslu bama og efri myndin sýnir
börn að leik á byrjendanámskeiði í
Garðabæ. Á neðri myndinni útskýrir
Siguijón Elíasson íþróttakennari fyrir
nemendum nýjan leik og ekki ber á
öðru en hann hafi áhugasama hlust-
endur.
Lært að þekkja laugina
„Helsta markmiðið með kennslu
yngstu krakkana er að fyrstu kynn-
in af sundlaugum sé ánægjuleg og
að þau hræðist ekki vatnið,“ segir
Elín sem kennir yngri börnunum.
„Þeim er sýnt svæði í laugunum
og þeim sagt hvar t.d. djúpa og
grunna laugin séu, tröppur og
hvernig eigi að fara í rennibrautina
svo eitthvað sé nefnt.“
Yngstu krakkarnir sem koma án
foreldra á námskeiðin eru fimm ára
og þá hafa kennararnir pilt og
stúlku úr. vinnuskóla bæjarins sér
til aðstoðar í búningsklefum.
Námskeiðin í Garðabænum
standa yfir frá 8:45 á morgnana
allt til kl. 13:30 á daginn og hver
kennslustund stendur í 35 mínútur.
Þess má reyndar geta að Stjarnan
er ekki eingöngu með kennslu fyrir
börnin. Á kvöldin er fullorðins-
kennsla í bringu- og skriðsundi og
einnig er boðið er upp á vatnsleik-
fimi fyrir eldri borgara.
GOLF
Morgunblaðið/Frosti
Verðlaunahafar í Mitsushiba-golfmótinu. Efri röð frá vinstri: Gunnlaugur Kárason GR, Friðbjöm Oddsson GK og
Brynjar Geirsson GK. í neðri röð frá vinstri: Tómas Peter Salmon GR, Sæmundur Óskarsson GR og Pétur Óskar Sig-
urðsson GR. Verslunin Útilíf gaf verðlaunin.
Pétur og Friðbjöm
á besta skorinu
PÉTUR Sigurðsson úr GR og
Friðbjörn Oddsson úr Keili
urðu hiutskarpastir á Mitsus-
hiba golfmótinu sem fram fór
á velli Keilis f Hvaleyrarholti á
laugardaginn.
eppt var í tveimur flokkum,
fjórtán ára og yngri og 15 -
17 ára. Kylfingarnir sýndu mikla
snilli og ljóst er að framtíðin er
björt í þessari íþrótt. Sérstaka at-
hygli vekur lágt skor Péturs Sig-
urðssonar í yngri flokknum þar sem
hann hafði nokkra yfirburði í leik
án forgjafar. Á mótinu voru leiknar
átján holur og verðlaun veitt fyrir
besta skor með og án forgjafar.
Úrslit urðu þessi, tölurnar tákna
höggafjölda á fyrri og síðari níu
holum, þá heildarskor og loks skor
þegar forgjöfin hefur verið dregin
frá.
Yngri flokkur:
Pétur Sigurðsson, GR.. 39 39 78 (64)
Tómas P. Salmon, GR .. 40 44 84 (60)
SæmundurÓskarss.., GR ... 44 42 86 (62)
Guðjón Emilsson, GR 40 9 79 (67)
Hlynur G. Ólason, GK ... 42 42 84 (71)
Ingvar Ingvarsson, GS ... 43 44. 87 (67)
Davíð Viðarsson, GS ... 44 44 88 (65)
SvanþórLaxdal, GR ... 43 46 89 (70)
Guðm. F. Jónasson, GR ... ... 47 44 91 (67)
Gunnar Jóhanness., GR .... ... 47 44 91 (67)
HaraldurHeimiss.,GR .... ...50 50 100 (76)
Eysteinn Garðarss., GS ... ...51 51 102 (78)
Jón Jóhannsson GS ... 52 51 103 (80)
Hannes Sigurðsson GR ... ... 48 57 105 (81)
Bjöm Kr. Bjömss., GK .... ...61 54 115 (91)
IngólfurD. Þóriss., GR .... ... 55 61 116 (92)
Ingibergur Gíslas., GK .... ... 64 61 125 (101)
Ólafur B. Ágústss., GR .... ...69 56 125 (101)
Eldri flokkur:
Friðbjörn Oddsson GK ... 36 39 75 (64)
Brynjar Geirsson GK ... 39 37 76 (63)
Gunnar Logason GS ...38 41 79 (68)
Ari Magnússon GK ... 39 41 80 (68)
Páli A. Sveinbj. GK ... 38 42 80 (68)
Egill Sigurjðnsson GK ... 39 42 81 (68)
Steinar Þ. Stefánss. GS ... ... 41 40 81 (69)
GunnLKárason GSS ... 38 46 84 (67)
Hannes M. Ellert. GMS ... ... 43 43 86 (75)
Ólafur M. Sigurðss. GK ... ... 45 42 87 (73)
Einar Lars Jónsson GS .... ...45 44 89 (75)
Ágúst Jensson GMS ...40 50 90 (76)
Jóhann K. Hjaltason GK .. ... 44 49 93 (77)
BirgirV. Bjömss.,GK ... 49 45 94 (79)
Guðjón E. Guðj. GK ...47 50 97 (76)
Lárus H. Láruss., GKG .... ... 49 49 98 (75)
Björn Halldórss., GKG .... ... 53 50 103 (92)
FRJALSIÞROTTIR
Goggi galvaski
á Varmárvelli
Stórmót Gogga galvaski, sem er fijálsíþróttamót 14 ára og yngri,
verður á Varmárvelli í Mosfellsbæ um helgina. Mótið hefst með
keppni í 60 metra hlaupi kl. 9.30 á laugardag og verður þá keppt í 11
greinum og reiknað með að keppni ljúki um kl. 16.00. Á sunnudag hefst
keppni á sama tíma og verður þá keppt í sex greinum og mótslok áætluð
um kl. 15. Keppendur eru um 300 talsins.