Morgunblaðið - 04.07.1993, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JULI 1993
Upplióstrari
FBI kom
upp um
sprengju-
áform
múhameós-
trúarmanna i
New York
eftir Guðmund Halldórsson
HÖFUÐPAUR átta múha-
meðskra bókstafstrúar-
manna, sem hafa verið
handteknir í New York og
ákærðir fyrir áform um
sprengjuherferð og fjölda-
morð í milljónaborginni,
var 32 ára leigubílstjóri,
Ibrahim Siddig Ali. Fjórir
vinir hans höfðu verið
handteknir eftir sprengju-
árásina á World Trade
Center f febrúar og hann
vildi koma fram hefndum,
en átti ekki byssur eða
sprengiefni og var ekki
nógu vel að sér til þess
að skipuleggja sprengjutil-
ræði.
Svo vildi til að Siddig
kynntist egypzkum
sprengjusérfræðingi og
fyrrverandi liðsfor-
ingja, Emad Salem, og
í maí lögðu þeir á ráðin um ein-
hveija umfangsmestu sprengjuher-
ferð, sem um getur í Bandaríkjun-
um. Samkvæmt ráðagerðinni átti
að myrða Boutros Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóra SÞ, og fleiri
ráðamenn og sprengja aðalstöðvar
SÞ í New York, skýjakljúf, þar sem
alríkislögreglan FBI hefur skrifstof-
ur og 10.000 manns starfa, og Linc-
oln og Holland-göngin milli Man-
hattaneyju og New Jersey, sem
þúsundir bíla aka um á hveijum
degi. Hundruð og jafnvel þúsundir
hefðu látið lífið ef áætlunin hefði
orðið að veruleika og meira öng-
þveiti hefði orðið en eftir sprenging-
una í World Trade Center í febrúar
þegar sex létu lífið og 1.000 slösuð-
ust.
Handtökurnar eftir árásina á
World Trade Center virtust engin
áhrif hafa á hryðjuverkamennina.
Þær virtust þvert á móti hafa orðið
þeim hvatning um að hefjast handa,
en þeir vissu ekki að alríkislögregl-
an FBI fylgdist nákvæmlega með
undirbúningi samsærisins allt frá
byijun, hljóðritaði öll samtöl átt-
menninganna, sem komu við sögu,
og kvikmyndaði alla fundi þeirra
með földum myndavélum.
Góð frammistaða lögreglunnar
stafaði meðal annars af því að einn
þeirra manna sem voru sakaðir um
árásina á World Trade Center var
framseldur frá Kaíró, þar sem hann
virðist hafa verið pyntaður í yfir-
heyrslum og sagt egypzku lögregl-
unni og bandarískum yfirvöldum
allt sem þau vildu fá að vita. Meira
máli skipti að sprengjusérfræðingur
samsærismannanna, Egyptinn Sal-
em, var í raun og veru uppljóstrari
FBI - einn nokkurra útsendara lög-
reglunnar, sem laumuðu sér inn í
samtök múhameðstrúarmanna í
New York eftir árásina á World
Trade Center. Nú mun honum hafa
verið komið fyrir á öruggum stað,
þar sem hann þarf ekki að óttast
hefndarárásir múhameðskra hryðju-
verkamanna..
Salem, eða „ofurstinn" eins og
FBI kallaði hann, var í innsta hring
blinds, egypzks ofsatrúarklerks,
Omars Abdels Rahmans, sem var
andlegur leiðtogi hryðjuverkamann-
anna sem réðust á World Trade
Center, og einnig hinna sem voru
handteknir vegna sprengjuáform-
anna í New York. Þótt Rahman sé
bendlaður við bæði þessi mál eiga
bandarísk yfirvöld erfitt með að vísa
honum úr landi, þar sem ekki var
vitað að hann hafði byltingarferil
að baki þegar hann fluttist til
Bandaríkjanna 1990 ogfékk búsetu-
rétt ári síðar. Rahman hefur beðið
um hæli sem pólitískur flóttamaður
í Bandaríkjunum á þeirri forsendu
að hann mundi sæta ofsóknum ef
hann yrði sendur aftur til Egypta-
lands, þar sem múhameðskir hryðju-
verkamenn eru teknir af lífi.
Að vísu hefur enginn haldið því
fram að Abdel Rahman hafí sagt
öðrum hvorum sprengjuhópnum fyr-
ir verkum eða þeim báðum. Æðstu
menn dómskerfísins í Bandaríkjun-
um komust að þeirri niðurstöðu að
ekki lægju fyrir nægar sannanir
gegn honum. Kröfur um að látið
verði til skarar skríða gegn Rahman
verða háværari, þar sem hann hafí
ráðið útsmoginn lögfræðing til að
leika á stjórnvöld.
Auk Boutros-Ghaiis hugðust
sprengjumennimir i New York
myrða Mubarak Egyptalandsfor-
seta, öldungadeildarmanninn Al-
fonse D’Amato úr flokki repúblikana
Adalstöóvar SÞ
HRYÐJUVERK
„Ofurstinn": Emad Salem