Morgunblaðið - 04.07.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1993
21
Norræna húsið
Stadstrio með tónleika
TÓNLEIKAR verða í Norræna húsinu á morgun, mánudaginn 5.
júlí kl. 20.30 þar sem Herning Stadstrio frá Danmörku leikur verk
eftir Vagn Holmboe, W.A. Mozart, Alberto Ginastera og Ludwig van
Beethoven. Tónlistarmennirnir heita Henrik Bo Hansen, sem leikur
á píanó, Jens Astrup fiðluleikari og Hanne Hay Houengaard, sem
leikur á selló. Þau eru stödd hér á landi í tilefni af vinabæjamóti
sem haldið verður á Siglufirði um helgina.
Þau koma öll frá Herning á Jót-
landi, en þar hafa bæjaryfirvöld
stutt mjög við bakið á tónlistarlíf-
inu, m.a. með „Herning Stadsmus-
ik“ sem er sjálfseignarstofnun sem
hefur starfað frá 1971 og hefur að
leiðarljósi að halda tónleika í háum
gæðaflokki með velmenntuðu tón-
listarfólki. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn og kosta 500
kr.
Henrik Bo Hansen píanóleikari
er fæddur 1958. Hann lauk tónlist-
arnámi frá Fjónska tónlistarháskól-
anum 1983. Framhaldsnám stund-
aði hann við Liszt-akademíuna í
Búdapest, París og í New York hjá
þekktum kennurum. 1988 lauk
hann prófi sem tónlistarkennari við
Fjónska tónlistarháskólann. Henrik
Bo Hansen hefur tekið þátt í fjölda
námskeiða (masterclass) með
þekktum einleikurum, m.a.
Rostropovich, Tatiana Nikolaevu og
György Pauk. Hann hefur haldið
tónleika víða í Danmörku og leikið
m.a. í tónleikasalnum í Tívolí í
Kaupmannahöfn, þá hefur hann
leikið í útvarpi og sjónvarpi. Einnig
hefur hann spilað í Frakklandi,
Þýskalandi, Englandi og í Banda-
ríkjunum og í Kanada. Henrik Bo
Hansen hefur verið bæjarpíanóleik-
ari Herning-bæjarfélagsins frá
1986. Henrik Bo Hansen heldur
einleikstónleika í Norræna húsinu
sunnudaginn 11. júlí kl. 18.
Jens Astrup fiðluleikari er fædd-
ur 1963. Hann lauk námi frá Norð-
ur-jóska tónlistarskólanum 1986 og
stundaði framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn og í Freiburg í Þýska-
landi. Hann var konsertmeistari í
Sinfóníuhljómsveit Árósa 1986-89
og hefur einnig komið fram sem
einleikari. 1989-1991 hefur hann
verið lausamaður í tónlistinni og
leikið ýmist sem einleikari eða með
kammersveitum og einnig lék hann
með sinfóníuhljómsveitunum í Ála-
borg og Árósum. Jens Astrup hefur
komið fram á tónlistarhátíðum og
frumflutt einleiks- og kammerverk
eftir dönsk tónskáld. Að auki hefur
hann spilað við mörg tækifæri í
danska útvarpinu. Hann hefur leik-
ið með Herning Stadstrio frá 1991.
Hanne Hoy Houengaard selló-
leikari er fædd 1965. Hún lauk
námi frá Jóska tónlistarháskólanum
1989 og var kennari hennar þar
Asger Lund Christiansen og Niels
Ullner. Hún fór í framhaldsnám við
Liszt-akademíuna í Búdapest hjá
Laszlo Mesö. Síðan lék hún með
Sinfóníuhljómsveitinni í Álaborg
þar til hún hóf að leika með Hern-
ing Stadstrio 1991. Hanne Hoy
Houengaard hefur komið fram sem
einleikari og leikið með kammer-
sveitum á öllum Norðurlöndum,
m.a. á Tónlistarhátíð ungra tónlist-
armanna (Ung Nordisk Musikfesti-
val) og oft leikið í danska útvarp-
inu. Hún hefur tekið þátt í meistara-
hópi (masterclass) m.a. hjá Frans
Helmerson og Raphael Wallfish.
Bjarne Reuter
verðlaunaður
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, afhenti danska
barnabókarithöfundinum
Bjarne Reuter Norrænu barna-
bókaverðlaunin á ráðstefnu
Norræna skólasafnvarðafé-
lagsins sl. miðvikudag. Á
hveiju ári tilnefna aðildarlönd
félagsins tvö verk frá hveiju
landi til verðlauna, en þriggja
manna dómnefnd ákveður síð-
an hver hreppir verðlaunin.
Bækur Reuters um strákinn
Buster, sem hafa komið út í
íslenskri þýðingu, voru hafðar
til hliðsjónar við verðlaunaveit-
inguna.
HJÓNIN Martin Bell, leikstjóri, og Mary Ellen Mark, ljósmyndari.
Kjarvalsstaðir
Mary Ellen Mark
heldur fyrirlestur
BANDARÍSKI ljósmyndarinn Mary Ellen Mark heldur fyrirlestur
um Ijósmyndir sínar á Kjarvalsstöðum á morgun, mánudaginn 5.
júlí kl. 20.30, en sýning á verkum hennar hefur staðið yfir þar siðan
22. maí sl.
Mary Ellen Mark er um þessar
mundir einn þekktasti heimildaljós-
myndari heims og spannar sýning
þessi fyrstu 25 árin af ferli hennar.
Hún hefur að geyma 125 myndir,
allt frá blindum börnum í Úkraínu
til ijölleikahúsalistamanna á Ind-
landi.
Mary Ellen Mark útskrifaðist
sem fréttaljósmyndari 1964 eftir
nám í listasögu og listmálun. Hún
fékk strax Fullbright-styrk til að
ljósmynda í Tyrklandi þar sem hún
dvaldist um tíma, en sneri heim til
Bandaríkjanna eftir árs dvöl og hóf
að skrásetja með myndavél sinni
hvaðeina sem vakti áhuga hennar;
mannlíf í Central Park, mótmæ-
lendafundi, Kvennahreyfinguna og
líkamsræktarmenn. Hún hlaut fljót-
lega alþjóðlega frægð fyrir ljós-
myndir sínar og myndraðir en með-
al þeirra eru: „Deild 81“, „Eitur-
lyfjaneytendur í London", „Heimil-
islaus fjölskylda", „Góðgerðarstofn-
anir móður Theresu" og „Indversk
fjölleikahús".
Nú nýlega vann hún að kvik-
myndinni „American Heart“ ásamt
manni, Martin Bell, leikstjóra, og
hefur hún hlotið góða dóma í
Bandaríkjunum.
Að sögn Kjarvalsstaða hefur sýn-
ing Mary Ellen Mark verið fjölsótt
og hlotið góða dóma. Vegna óviðr-
áðanlegra ástæðna lýkur henni fyrr
en áður var auglýst, eða miðviku-
daginn 7. júlí.
Aðgangur að fyrirlestrinum á
mánudagskvöldið er ókeypis og
hefst hann kl. 20.30.
Verðfrá 25.415 kr!
á mann miðað við 4 í bíl og
32.200 kr. á mann miðað við tvo í bíl.
Innifalið í verði: Flug, bíll í A flokki í eina viku, ótakmarkaður kílómetrafjöldi,
kaskótrygging, flugvallaskattur, forfallagjald og innritunargjald í Keflavík.
Barnaafsláttur 2-11 ára 4000 kr.
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandslerðir S. 91 - 6910 70 • Sfmbréf 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
Keflavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Slmbréf 92 -13 490 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 -1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Símbréf 98 -1 27 92 OATLAS/*
Samviiwiiíerúir
Lanúsýn