Morgunblaðið - 04.07.1993, Síða 37
f>Pí> r
MORGUNBLAÐkíStfSK’0í)S«Sk AMUItWA
37w
Morgunblaðið/Theodór
Slökkviliðsbíllinn afhentur
FRÁ afhendingu nýja slökkvibilsins í Borgarnesi. Frá vinstri: Páll
Guðbjartsson forstjóri Vírnets hf., Hermann Jóhannsson slökkviliðs-
stjóri, Óli Jón Gunnarsson bæjarsljóri og Hjörtur Jónsson sölu-
sljóri hjá Ræsi hf.
Útskriftfrá Ljósmæðraskóla íslands
NÍU nemendur frá Ljósmæðraskóla íslands útskrifuðust í vor og
er myndin tekin við það tækifæri. Á myndinni eru frá vinstri:
Matthildur Róbertsdóttir, Guðrún Björg Sigurbjömsdóttir, yfirljós-
móðir, Jón Þ. Hallgrímsson, yfirlæknir, Gunnlaugur Snædal, pró-
fessor og skólasijóri, Eva S. Einarsdóttir, kennslustjóri og Herborg
Pálsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sólveig Jóhannsdóttir, Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, Sigríður Ólöf Ingvarsdóttir, Helga Bjarnadóttir,
Björg Ragnheiður Ingimundardóttir, Ólöf Leifsdóttir og Guðlaug
Pálsdóttir.
Nýiðnaður í Borgamesi
Vírnet byggir yfir slökkvibíla
Borgarnesi.
NÝLEGA afhenti Vírnet hf. í Borgarnesi Brunavörnum Borgar-
ness og nágrennis nýja og fullkomna Benz-slökkvibifreið sem var
til yfirbyggingar hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Vírnets hf. eru nú
á ferð um landið til að kynna slökkvibílinn fyrir sveitarstjórnum
og slökkviliðum.
Yfirbygging slökkvibílsins er
gerð í samvinnu Vímets hf. og
þýska fyrirtækisins Albert Ziegler.
Þetta er alhliða slökkvibíll með
vatns- og froðutanki og dælu,
ásamt þeim handverkfæram sem
almennt era í slíkum bílum. Helsta
nýjungin við þennan bíl er sú að
yfirbygging hans er að öllu leyti
unnin á íslandi eftir teikningum
frá Ziegler og undir eftirliti frá
þeim. Geta kaupendur því verið í
mun nánari tengslum við framleið-
andann og haft meiri áhrif á smíði
bflsins en ef hann væri smíðaður
erlendis. Yfírbyggingin er gerð úr
nokkurs konar einingum sem velja
má nokkrar gerðir af.
Að sögn Páls Guðbjartssonar
forstjóra hóf Vírnet hf. samstarf
við þýska fýrirtækið Albert Ziegler
haustið 1991 og þessi nýi slökkvi-
bíll væri fyrsti ávöxtur þeirrar
samvinnu. Fyrirtækið Albert Zie-
gler væri meira en aldar gamalt
fyrirtæki og meðal þeirra fremstu
á þessu sviði í heiminum í dag.
Það væri þekkt fyrir framleiðslu
á hágæðavöram og það mætti
geta þess að allar branadælurnar
hjá þeim væra gerðar úr íslensku
áli. - TKÞ.
120 konur fögnuðu
kvenréttindadeginum
Ólafsvík.
UM 120 konur úr kvenfélögunum á Snæfellsnesi komu saman á
Hellissandi þann 19. júní til þess að halda kvenréttindadaginn
hátíðlegan og efla um leið innri kyimi sín.
Konurnar af sunnanverðu Nesinu
fóru í leiðinni í skemmtiferð fyrir
Jökul. Fjölmargar kvennanna hlupu
kvennahlaupið. Um kvöldið var svo
borðhald og skemmtun í Röst. Kon-
ur á Hellissandi sáu um matinn af
myndarskap. Á skemmtidagskrá
voru ræður, sögur og kveðskapur,
upplestur og fleira gaman sem kon-
urnar önnuðust sjálfar.
Fjölmargar kvennanna voru
klæddar þjóðbúningi. Setti það há-
tíðlegan svip á skemmtunina sem
tókst með miklum ágætum. For-
maður kvenfélagssamband Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu er
Kristín Viggósdóttir, Ólafsvík.
- Helgi.
Hlutu verðlauu fyrir
íslenskukunnáttu
KIWANISMENN í Garðabæ af-
hentu nýlega nemendum í
Flataskóla og Garðaskóla verð-
laun vegna góðs árangurs í ís-
lenskunámi.
Að þessu sinni hlutu 5 nemend-
ur í Flataskóla og 4 nemendur í
Garðaskóla verðlaun. Þetta hefur
verið árviss viðburður undanfarin
ár. Þá veittu Kiwanismenn verð-
laun vegna mestu framfara hjá
fimleikadeild Stjömunnar.
Iþróttamaður
Stjörnunnar
GUNNAR Thoroddsen, Garðar
Sverrisson og Ólafur Hannes-
son.
Flataskóli
GARÐAR Sverrisson, Baldur Ólafsson, Kristín
Eiríksdóttir, Þórdís Anna Gylfadóttir, Indriði
Einarsson, Gunnar Thorarensen, Þórdís Rafns-
dóttir, Matthías G. Pétursson og Þorbjörg Þór-
oddsdóttir aðstoðarskólasijóri.
Ljósmynd/Jóhanncs Friðrik Matthíasson
Garðaskóli
MATTHÍAS G. Pétursson, Hugi Guðmundsson,
Bryndís Sveinsdóttir, Vala Hjörleifsdóttir, Ríkey
Sævarsdóttir, Steinþór Eyþórsson og Garðar
Sverrisson.
?
i
LÍU vill að heimildarmyndin „Verstöðin Island“ verði sýnd í skólum
Menntamálaráðuneytið
kostar ekki skólasýningar
Menntamálaráðuneytið telur sig ekki hafa fjárhagslegt bolmagn
til að greiða leigu á sýningarsölum og ferðir til og frá þeim vegna
skólasýninga á heimildarmynd Landssambands íslenskra útvegs-
manna Verstöðinni íslandi. Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri LIU,
segir skjóta skökku við að á sama tíma og ráðuneytið hafi ekki
tugi eða í mesta lagi hundruði þúsunda til að láta í verkefnið hafi
það fest kaup á nokkrum víkingamyndum Hrafns Gunnlaugssonar
á miHjónir króna og hafi þær hvorki sagnfræðilegt eða uppeldis-
legt gildi. Hann segir að samningaviðræður við sjónvarpið gangi
treglega.
Jónas sagði að kvikmyndin, sem
fengið hefði afar góða dóma, hefði
verið sýnd víða á landsbyggðinni
og á almennum sýningum á höfuð-
borgarsvæðinu. Að auki hefði hún
svo verið lánuð til sýninga við ýmis
tækifæri. Nú fyndist sambandinu
hins vegar tími til kominn að gefa
þeim sem sjaldan færa í kvik-
myndahús tækifæri til að sjá mynd-
ina í sjónvarpi og nota síðan fílm-
una til skólasýninga um ókomin ár.
„Við erum að tala um að þegar
skólunum henti hafi þeir aðgang
að myndinni og sýni hana hvenær
og hvemig sem þeim sýnist. Við
leggjum allt til. Það eina sem þeir
þurfa að gera er að keyra krakkana
til og frá bíóhúsunum og svo kostar
auðvitað eitthvað að leigja salina,“
sagði Jónas.
Ráðuneytið hafnar
Hann segir að ráðuneytið hafí
hafnað erindinu á þeim forsendum
að ekki sé hægt að sýna myndina
í kvikmyndahúsum alls staðar á
landsbyggðinni og það hafí ekki
Morgunblaðið/Alfons
Kvennaskemmtun í Ólafsvík
FRÁ skemmtun kvenfélaganna á Snæfellsnesi í tilefni kvenréttinda-
dagsins.
ijárhagslegt bolmagn til á kosta
skólasýningarnar.
Jónas segir að sér hafí hins veg-
ar þótt skjóta skökku við þegar upp 4
hafí komist að á sama tíma og er-
indinu hafí verið hafnað hafí ráðu-
neytið keypt víkingamyndir af
Hrafni Gunnlaugssyni á milljónir
króna. „Þetta era bara víkingafant-
asíur sem hafa ekkert sagnfræði-
legt eða uppeldislegt gildi, þvert á
móti. Þær eru aðeins skemmtiefni
að mínu mati,“ sagði hann. „Fyrst
eyddu þeir öllum þessum milljónum
í þær. Svo tíma þeir ekki að eyða
nokkrum tugum þúsunda í að sýna
þessa mynd um helstu atvinnugrein
okkar og nánast þjóðlífssögu ís-
lendinga," bætti hann við og sagði
að ekki bætti úr skák að einhveijar
af víkingamyndunum væru bannað- ,
ar bömum vegna ofbeldisatriða.
Ekki LÍÚ að borga sýningar
Þegar Jónas var spurður að því
hvort til greina kæmi að LÍÚ greiddi
alla kostnað við skólasýningar á
Verstöðinni Islandi sagðist hann
vera þeirrar skoðunar að sýning
myndarinnar væri eðlilegur þáttur
í uppeldi og menntun skólabama.
„Þessar myndir, eins og dýralífs-
myndir og aðrar myndir sem sýndar
era í skólum, geta verið tilefni til
ritgerða og umræðna' í skólunum
svo ég tel ekki vera okkar að borga $
reikninginn.“
Hann sagði að samningaviðræð-
ur við sjónvarpið sem hefðu verið
komnar vel á skrið í tíð Sveins Ein-
arssonar gengju nú treglega enda
hefði Hrafn Gunnlaugsson aðrar
áherslur en Sveinn. Hins vegar
væri verið að gera lokatilraun til
samningafundar með bréfi til sjón-
varpsins.