Morgunblaðið - 17.07.1993, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.07.1993, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 í hlekkjum hugarfarsins eftir Kristin Pétursson Við færðum út í 50 mílur 1972, og 200 mílur 1975. 1973 var veiði- stofn þorsksins um 830 þúsund tonn, eða um 200 þúsund tonnum stærri en í dag. Ókynþroska hluti þorskstofnsins var álíka stór og í dag. Þetta ár (1973) veiddum við 383 þúsund tonn, eða 46% af stofn- stærð sem er mesti „glannaskapur" í þorskveiðum fyrr og síðar. Ár- gangurinn sem klaktist út þetta ár varð íslandsmet nr. 1 í nýliðun þorsksins og gaf af sér mikla veiði mörg ár á eftir og veidd voru sam- tals um 900 þúsund tonn úr þessum árgangi (1973). I „svörtu skýrslunni" (15. okt. 1975) sagði þá: „Til þess að ná fram þessu mark- miði (uppbyggingu þorskstofnsins innsk. höf) þarf að friða algjörlega 3ja ára þorsk og yngri og draga verulega úr sókn í eldri hluta stofns- ins á næstu árum, þannig að þorsk- aflinn 1976 fari ekki yfir 230 þús- und tonn. Ef þorskveiðum verður framhaldið með núverandi sókn mun aflinn næstu 2-3 árin haldast í um 340-350 þúsund tonnum, en fara síðan ört fallandi." Þarna var hruni stofnsins hótað (eins og í dag) nema Hafró fengi að ráða. Rannsóknarráð ríkisins gaf út skýrslu um svipað leyti (Þjóð- hagsstofnun og co. nú) og þar var sami boðskapur. Línurit voru teiknuð „til helvítis" nema farið væri eftir tillögum Hafró. Lítum svo á hvað gerðist. Árin 1975-1979 (bæði meðtalin) var einmitt gert það sem Hafró ráð- lagði að ekki yrði gert. Haldið var áfram að veiða og meðalafli nefndra fimm ára var 351 þúsund tonn á ári, eða um hundraðogtuttuguþús- und tonn umfram veiðiráðgjöf ár- lega! Samt hafði þorskstofninn stækkað í lok þessa „rányrkjutíma- bils“ í um 1,6 milljónir tonna sem var stækkun um 800 þúsund tonn eftir „ofveiði“ um 600 þúsund tonn! Þarna munar aðeins 1.400 þúsund tonnum (1,4 millj. tonna) í reikni- skekkju veiðiráðgjafa og raunveru- leikanum, og er þá „hrun“ stofnsins ekki reiknað með! í útflutningsverðmætum, miðað við fullunnar afurðir er reiknings- skekkja Hafró um 182 milljarðar króna sem í þjóðartekjum næmi verðmætum upp á um 400 milljarða (!) eða fjórföldum fjárlögum ís- lenska ríkisins í dag. (Fimm ára reikningsskekkja án ,,hruns“.) 1980 fer aflinn í 434 þúsund tonn og 468 þúsund tonn 1981. Á þessum árum fer meðalþyngd þorsksins að falla (vantar fæðu?) og árið 1982 ráðleggur Hafró 450 þúsund tonna veiði en ekki veiddust nema 370 þúsund tonn. Árið eftir 1983 ráðlagði Hafró 350 þúsund tonna veiði en ekki veiddust nema 300 þúsund tonn. Nú voru reiknimódelin predikuð miskunnarlaust, hruni stofnsins hótað aftur og með aðstoð fjölmiðla (misnotkun?) voru stjómmálamenn og „hagsmunaaðilar" sannfærðir um að nú yrði að „stjórna" og friða og vemda, „byggja upp“ þorsk- stofninn. Þetta tókst og í ársbyijun 1984 var hrollvekjunni startað - kvótakerfinu. Aftur hundsaði þorskurinn reiknilíkanið og lítill þorskstofn (sögulegt lágmark) gaf af sér /s- landsmet nr. 2 (veiðistofn í lág- marki og hrygningarstofn líka). Reikniskekkja Hafró frá 1984- 1987 nam svo 830 þúsund tonnum (370 þúsund tonna „ofveiði" og stækkun stofnsins um 460 þúsund tonn). í dag þegar þetta er skrifað, 10. júlí, er forsíðufrétt í Morgunblaðinu um „svarta skýrslu" frá Kanada. Ráðgjafar þar á bæ ráðlögðu alfrið- un þorskstofnsins í fyrra og fengu sínu framgengt með hótunum um hrun og stuðningi alþjóðahafrann- sóknaráðsins _ í kóngsins Kaup- mannahöfn. í frétt Mbl. 10. júlí segir að þorskstofninn við Ný- fundnaland hafi minnkað frá því í fyrra - alfriðaður? í niðurlagi frétt- arinnar er gamalkunn tugga um að „nú verði að draga úr sókn til langframa" til að „byggja upp stofninn". Þá er bara eftir að reikna út hvemig „draga á úr sókn“ í þorsk- stofn sem var alfriðaður fyrir ári! Á íslandi var í dag - einnig í fréttum - nýjasta hugdettan í of- stjórnunarmálum. Friða Halamiðin, - fengsælustu fiskimið við ísland! Hverskonar mgl er þetta? Fyrir hvaða málstað er LÍÚ að berjast? 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjori KRISTINN SIGURJONSSON, HRL. loggilturfasteignasau Til sýnis og sölu - eignir sem vekja athygli. Einbýlishús í Smáíbúðahverfi Steinhús, tvær hæðir, með 5 herb. íb. 113 fm nettó. Mikið endur- bætt. Svalir. Sólverönd. 40 ára húsnæðislán kr. 2,3 millj. Verð kr. 10,5 millj. Einkasala. Vinsæll staður - gott verð Rishæð við Nökkvavog 4ra herb. Samþykkt. Sólrfk. Vel með farin. Trjá- garður. Verö aðeins kr. 5,8 millj. Einbýli - gott verð - eignaskipti Á vinsæium stað í Hafnarfirði, steinhús ein hæð, 130 fm. Ný endur- byggt og stækkað með 5 herb. glæsil. íb. Góður bílsk. 36 fm. Ræktuð lóð, 630 fm. Skipti mögul. á góðri eign í Kóp. eða borginni. Sérhæð - Hvassaleiti - frábært útsýni Efri hæð 6 herb. Sólsvalir. Mikið geymslurými í kj. Góður bílskúr. Skipti möguleg á nýlegri 4ra herb. íb. Einkasala. í lyftuhúsi við Þangbakka á 7. hæð, 2ja herb. íb. 62 fm. Stórar svalir á suðurhlið. Húsið ný sprunguþétt og málað. 40 ára húsnlán kr. 2,5 millj. Vinsæll staður - gott lán - útsýni Endaíb. við Súluhóla, 3ja herb. á 2. hæð. Sameign öll eins og ný. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Gott verð. Einkasala. í Smáíbúðahverfi óskast 2ja herb. íb. á 1. hæð í skiptum fyrir raðh. skammt frá Réttarholts- skóla. Einstakt tækifæri. Daglega leita til okkar fjársterkir kaupendur. Margskonar eignaskipti möguleg. Sérstaklega óskast sérhæð eða einbýli í Vesturborginni eða Skerjafirði, 4ra-5 herb. Rétt eign getur verið staðgreidd. • • • Opið í dag kl. 10-16. í Hlíðum óskast 3ja herb. íb. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. ALMENNA FASTEIGNASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Á að efna til borgarastyijaldar í landinu um þessa dellu? Sannleikur- inn er sá að það sem ræður mestu um afrakstur hafsins er fæðufram- boð og lífsskilyrði, en þetta tvennt er hvergi með í reiknilíkani Hafró sem breytileg stærð! Veiði mannsins eykur fæðuframboð fyrir þá fiska sem eftir eru og því getur fram- leiðsla hafsins á fiski einungis vax- ið - sé fiskurinn veiddur. (Sbr. Nýfundnaland nú.) „Uppbygging" fiskistofna með friðun er bara fal- legt kjaftæði (tískuvísindi). Fiski- fræðingar Hafró hafa að öllum lík- indum - flestir hvetjir - verið menntaðir í háskólum erlendis í þekkingu sem er ekki til og hefur aldrei verið sönnuð. Hafið er ekki Kjörbók í Landsbankanum hjá Sverri. Séu gögn Hafró skoðuð vandlega kemur í ljós, að flestir fiskistofnar gefa langtum betri af- komu litlir en stórir. (1983-1985). Núverandi fiskveiðistjórnun á þann- ig hvorki faglegan, - eða sögulegan - tilverugrundvöll. Halamiðin hafa verið undir ein- hveiju mesta veiðiálagi í Norður- Atlantshafi í áratugi og gefið lang- mesta aflann! Sem sagt: þar sem veiðiálagið er mest, þar er mesti aflinn! Væru kenningar Hafró rétt- ar, þá væri fyrir löngu þorsklaust á Halamiðum! Kenning Hafró um „uppbyggingu" fiskistofna er þann- , ig álíka skynsamleg (í ýktri mynd) og ætla að safna grasi í túnið í nokkur ár til þess að fá mikla upp- skeru síðar. Eða safna kindum í Kristinn Pétursson „Fiskifræðingar Hafró hafa að öllum líkindum - flestir hverjir - verið menntaðir í Háskólum erlendis í þekkingu sem er ekki til og hefur aldrei verið sönnuð. “ fjárhúsið með því að hætta að leggja lömbin inn í sláturhúsið og troða öllu í fjárhúsið (byggja upp stofn- inn), en huga hvorki að fóðri né plássi. Svo þegar afraksturinn minnkaði þá væri ráðið að draga enn frekar úr innleggi í sláturhúsið! í upphafi sagði ég að ókynþroska hluti þorskstofnsins væri álíka stór nú og 1973. Þetta er staðreynd. Þá veiddum við nánast „stjórnlaust" (með 67% smærri möskva í botn- vörpu, engum svæðalokunum og fijálsum veiðum) og afraksturinn varð íslandsmet í nýliðun þorsksins og mikil veiði í kjölfarið. Áhættan nú er varla meiri en þá. Efnislegar röksemdir - faglegar eða söguleg- ar, - fyrir núverandi_ veiðistjórn fiskveiða eru ekki til! Áhættan við fiskveiðistjórnun í dag stafar ekki af þorskinum eða afrakstursmögu- leikum hans. Áhættan í dag stafar frá rangri veiðiráðgjöf, kjarklitlum stjórnmálamönnum og nánast ábyrgðalausum fjölmiðlum sem virðast - hugsunarlaust - dingla með fullyrðingum Hafró án yfirveg- aðar athugunar. Hótanir Hafró um „hrun“ mikilvægasta fiskistofns okkar eru nú teknar góðar og gild- ar, þrátt fyrir þær staðreyndir sem hér hafa verið raktar! í öllu þessu stórfurðulega ofríki örfárra ráð- gjafa í fiskveiðistjórnun er lögð undir aleiga þúsunda fjölskyldna, hundruða fyrirtækja og fjárhags- legt sjálfstæði landsins! Það er kom- inn tími til að fijáls fjölmiðlun nái líka til umræðu og fijálsra skoðana- skipta um þessi mikilvægu mál. I kjölfar fijálsrar umræðu og nánari skoðun þessara og fleiri staðreynda getur ekkert annaðgerst en að fisk- veiðistjórninni verði gjörbreytt. Sjálfstæði þjóðarinnar þolir ekki þessa heimskulegu tilraunastarf- semi lengur. Slítum okkur úr hlekkjum hugarfarsins! Höfundur er fiskverkandi. Umsjónarmaður Gísli Jónsson 701.þáttur „Sex eru nauðsynlegir hlutir heilagri kristninni: Siðsemi, og allra helst á þessum dögum, játning, skriftarganga með iðr- un, vökur, föstur, bænir og ölm- usugæði. Játning er gjörandi af syndum, þær er fremjast í hug- renningu eða í máli eða í verki. Átta eru höfuðlestir, þeir er eigi má auðveldlega alla forðast. Fyrst er talin matvísi að fylli kviðarins, annar löstur er hór- dómur, þriðji torveldi hugar, fjórði er ágirni, fimmti hégómleg dýrð, sétti öfund, sjöundi reiði, átti skeitun og dramblæti. Sú er drottning allra illra hluta. Fyr hennar sakar féll af himni dá- samleg_skepna englanna.“ (íslensk hómilíubók, 12. aldar texti. Skeitun = spott, blaður.) Leika landmunir lýða sonum, hveim er fúss er fara; römm er sú taug er rekka dregur fdðurtúna til. (Publius Ovidius Naso, 43 f.Kr. - 17 e.Kr. Sveinbjörn Egilsson þýddi.) Ráðumk þér, Loddfáfnir, en þú ráð nemir, - njóta muntu, ef þú nemur, þér munu góð, ef þú getur -: orðum skipta þú skalt aldregi við ósvinna apa. (Hávamál, 122.) „Skalla-Grímr bjósk til ferðar þeirar, er fyrr var frá sagt; hann valði sér menn af heimampnnum sínum ok nábúum, þá er váru sterkastir at afli ok hraustastir, þeira er til váru. Maðr hét Áni, bóndi einn auðigr; annarr hét Grani, þriði Grímólfr ok Grímr bróðir hans, heimamenn Skalla- Gríms, ok þeir bræðr, Þorbjprn krumr ok Þórðr beigaldi; þeir váru kallaðir Þórprnusynir; hon bjó skammt frá Skalla-Grími ok var fjolkunnig; Beigaldi var kol- bítr. Einn hét Þórir þurs ok bróð- ir hans, Þorgeirr jarðlangr. Oddr hét maðr einbúi, Gríss lausingi. Tólf váru þeir til fararinnar, ok allir inir sterkustu menn ok margir hamrammir. Þeir hpfðu róðrarfeiju, er Skalla-Grímr átti, fóru suðr með landi, lpgðu inn í Ostrarfjprðu, fóru þá landveg upp á Vors til vatns þess, er þar verðr, en leið þeira bar svá til, at þeir skyldu þar yfir fara. Fengu þeir sér róðrarskip, þat er við þeira hæfí var; reru síðan yfír vatnit." (Egils saga Skalla-Gríms- sonar, upphaf 25. kafla.) Ei með orðaflaumi mun eyðast heimsins nauð. Kyrrt og rótt í jörðu vex kom í brauð. (Jón úr Vör, f. 1917.) Sannleikur skal vinna sigur fyrr en lýkur. Góðvild rýma hatri og grimmdarhug. Feprðin er guð minn. Frelsið er hans boðorð. Bræðralagsins fána ég ber. (Kristján frá Djúpalæk, f. 1916.) Mattheus 7-14: „Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér munuð fínna; kný- ið á, og fyrir yður mun upp lok- ið verða; því að sérhver sá er biður, öðlast, og sá er leitar, finnur, og fyrir þeim er á knýr, mun upp lokið verða. Eða hver er sá maður meðal yðar, sem mundi gefa syni sínum stein, er hann bæði um brauð? Og hvort mundi hann gefa hon- um höggorm, er hann bæði um físk? Ef nú þér, sem vondir er- uð, hafið vit á að gefa börnunum yðar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir yðar, sem er á himnum, gefa þeim góðar gjafír, sem biðja hann? Alt, sem þér því viljið að mennirnir gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra; því að þetta er lögmálið og spámennirnir. Gangið inn um þrönga hliðið; því að vítt er hliðið og breiður vegurinn, er liggur til glötunar- innar, og margir eru þeir, sem fara þar inn; því að þröngt er hliðið og mjór vegurinn, er ligg- ur til lífsins, og fáir eru þeir, sem finna hann.“ (Biblía, Reykjavík 1908.) „Hann er brjósklaus og bein- laus, heilalaus og hjartalaus, augnalaus og Iitarlaus, hann er í sandi á sjávarbotni." (Benedikt Gröndal (1826- 1907) um kvikindið amphioxus í Dýrafræði.) Óstyrkar, aumar hendur mínar af óunnum verkum gætnar, gjöfular hendur þínar gerðu að sterkum. Heitar, nærfæmar hendur þínar svo hlýjuðu mínum að nú eru heilar hendur mínar og heitar af þínum. (Marie Tokvam. Bragi Siguijónsson þýddi úr norsku.) Það er ferlegur kynæðisfaraldur hjá flestum í dag, mælti Haraldur. Fólk iðkar það gaman að eðla sig saman sem ekki er komið á paraldur. (Jóhann S. Hannesson, 1919-1983.) Nóttin svarta svefns í arma seiðir mig. Leiðir mig um ljúfra heima leynistig. Byrgi ég mig að barmi nætur, blunda rótt. Svefninn gefur sæla drauma um svala nótt. I nijúkum öldum myrkrið yfír mannheim fer með alla gleði og alla sorg í örmum sér. (Margrét Einarsdóttir, 1913-1987, dverghenda.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.