Morgunblaðið - 17.07.1993, Page 14

Morgunblaðið - 17.07.1993, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 Tillaga að fyrstu fjögurra ára byggðaáætluninni kynnt Megináherzla á eflingu vaxtarsvæða og sam- ræmingu aðgerða FORSVARSMENN Byggðastofnunar, Guðmundur Malmquist for- stjóri og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunardeildar, kynntu í gær tillögu að nýrri byggðaáætlun fyrir árin 1994 til 1997. í byggðaáætluninni er megináherzla lögð á samræmingu aðgerða hins opinbera til þess að styrkja byggð í landinu og á uppbyggingu vaxtarsvæða, sem byggjast á góðum samgöngum við þjónustu- kjarna. Stjórn Byggðastofnunar hefur fjallað um tillöguna og sam- þykkt hana samhljóða. Ný lög um Byggðastofnun voru samþykkt á Alþingi árið 1991. Þar er kveðið á um að draga skuli úr hlutverki hennar sem lánastofnun- ar, en leggja aukna áherzlu á at- vinnu- og þróunarráðgjöf, meðal annars í formi áætlanagerðar. Byggðaáætlunin, sem nú lítur dagsins ljós, er sú fyrsta sinnar tegundar, en samkvæmt hinum nýju lögum ber stofnuninni að leggja fram tillögu að slíkri áætlun á fjögurra ára fresti. Það er síðan hlutverk forsætisráðherra að leggja tillöguna fyrir Alþingi til afgreiðslu og mun Davíð Oddsson væntanlega flytja tillögu Byggða- stofnunar á þingi í haust. Helztu stefnumál sem lögð er áherzla á í áætlun Byggðastofnun- ar eru fjögur: Efling samfelldra atvinnu- og þróunarsvæða, sam- ræming á starfsemi og fram- kvæmdum ríkisins, valddreifíng frá ríki til sveitarfélaga og nýsköp- un og fjölbreytni í atvinnulífí. Efling atvinnu- og þjónustusvæða í fyrsta lagi er stefnt að því að tengja þéttbýlisstaði og sveitir með öruggum samgöngum og efla sam- felld atvinnu- og þjónustusvæði. „Svæðin verða að vera nægilega fjölmenn til þess að hægt sé að reka þar fjölbreytta þjónustu og atvinnulíf á hagkvæman hátt,“ segir í áætluninni. Þar er lögð áherzla á samgönguframkvæmdir, meðal annars gerð heilsársvega. Rætt er um að ný opinber þjón- usta, sem almenningur þurfí að leita til og þjóni heilum landshlut- um verði fyrst og fremst staðsett í stærstu þéttbýlisstöðunum, eða þar sem hagkvæmt þykir. Stefnt er að því að draga ekki úr þeirri opinberu þjónustu á vegum ríkis- ins, sem nú er veitt á landsbyggð- inni. Þá er gert ráð fyrir að í að- gerðum ríkisins á jaðarsvæðum verði einkum horft til nýtingar náttúruauðlinda og ferðaþjónustu. í afskekktustu byggðunum verði þeim bændum sem hætta vilja búskap boðin aðstoð við það. Samræming framkvæmda í öðru lagi er í áætlun Byggða- stofnunar lögð áherzla á að starf- semi og framkvæmdir ríkisins verði samræmdar og með því reynt að forðast tilviljanakenndar ákvarðan- ir. Opinbera þjónustu eigi að veita á sem hagkvæmastan hátt og laga hana að íbúafjölda, samgöngum og tækni. í þessu skyni verði meðal annars tekin upp samræmd vinnu- brögð við ákvarðanir um opinberar framkvæmdir og fyrirkomlag þjón- ustu og langtímamarkmið ráðu- neyta og stofnana samræmd. Gerð- ar verði fjögurra ára áætlanir um hvern þjónustumálaflokk, líkt og vegaáætlanir nú, sem verði grund- völlur fjárlagagerðar til lengri tíma. Þá er gert ráð fyrir svæðisbundnum byggðaáætlunum, sem litið verði á sem samstarfssamning milli ríkis- ins og viðkomandi sveitarfélaga. Þær verði unnar í samstarfi við sveitarfélög og ráðuneyti, en Byggðastofnun samræmi gerð þeirra fyrir hönd forsætisráðuneyt- isins. Valddreifing og tilfærsla verkefna í þriðja lagi er lögð áherzla á valddreifingu frá ríki til sveitarfé- laga með því að færa verkefni til sveitarfélaganna. Forsenda fyrir því er hins vegar sameining sveitar- félaga eða samningsbundið sam- starf þeirra, að því er fram kemur í áætluninni. Byggðastofnun legg- ur til að tillögur um tilflutning verkefna verði lagðar fyrir Alþingi sem fyrst, og að opinber þjónusta og starfsemi opinberra stofnana verði aukin á landsbyggðinni en Bjöm Steffensen látínn BJÖRN Steffensen, löggiltur endurskoðandi, lést á 92. aldurs- ári síðastliðinn fimmtudag. For- eldrar hans voru Valdimar Steffensen og Theódóra Sveins- dóttir. Björn fæddist í Kaupmannahöfn 12. apríl 1902 en ólst upp í Hafnar- fírði og Reykjavík. Hann útskrifað- ist frá Verslunarskóla íslands 1919 og var við nám í Pitmans School og Polytechnic School í London 1924-27. Með framhaldsnámi sínu starf- aði Bjöm við endurskoðunarskrif- stofu Davies Dunn og Co. Hann varð löggiltur endurskoðandi árið 1934 og rak sína eigin endurskoð- endaskrifstofu í Reykjavík frá 1927. Björn var formaður Félags end- urskoðenda 1941-44 og 1949-55 og var útnefndur heiðursfélagi þar. Hann var mikill áhugamaður um landvemd og skrifaði fjölda greina um ýmis málefni í Lesbók Morgunblaðsins. Björn kvæntist Sigríði Ámadótt- ur 28. júní 1928. Hún lést 26. mars 1985. Böm þeirra em Theó- dóra, Sigþrúður, Helga og Bjöm. dregin saman í höfuðborginni að sama skaþi. Efling atvinnulífs Fjórða áherzlan í áætluninni er sú að atvinnulífínu verði búin þau skilyrði að fyrirtæki geti skilað arði. Aukin áherzla verði lögð á atvinnuþróunarstarf á vegum Byggðastofnunar og heimamanna, sem beinist að nýsköpun og auk- inni fíölbreytni í atvinnulífinu. Lagt er til að Byggðastofnun hafi frum- kvæði að því að samræma nýtingu fjárveitinga úr ríkissjóði til at- vinnumála á landsbyggðinni og styrki fyritæki á landsbyggðinni til að bæta og efla vöruþróun, markaðsmál, hæfni starfsmanna og nýsköpun. Stuðningi við al- menna fjárfestingu verður hins vegar að mestu leyti hætt. Þá er rætt um að Byggðastofnun styrki atvinnuþróunarstarf heimamanna með hlutafé í atvinnuþróunarfélög- um, allt að þriðjungs hlut, og taki einnig þátt í rekstrarkostnaði og einstökum verkefnum á vegum félaganna. Kannað verði hvaða hlutverki Byggðastofnun geti gegnt í samræmdum aðgerðum á vegum hins opinbera til að glæða áhuga erlendra aðila á að fjárfesta hér á landi. Kannað verði hvort hægt sé að kaupa fyrirtæki til landsins, t.d. eins og þegar Alpan á Eyrarbakka var keypt frá Dan- mörku. Mismunandi þjónusta Drög að áætlun Byggðastofnun- ar voru send um 70 aðilum til umsagnar. Að sögn Sigurðar Guð- mundssonar, forstöðumanns þró- unarsviðs stofnunarinnar, bárust flestar athugasemdir við þann kafla draganna, sem fjallaði um atvinnu- og þjónustusvæði og var honum breytt nokkuð. Mál þessi eru að sögn Sigurðar viðkvæm, vegna þess að uppbygging þjón- ustusvæða þýðir óhjákvæmilega að áherzia verður lögð á þjónustu á einum stað umfram annan. í áætlun Byggðastofnunar er þjón- ustusvæði skilgreint sem „land- svæði þar sem íbúar sækja þjón- ustu á einn stað“. Þar segir jafn- framt að tegundir þjónustu séu mismunandi, eftir því hversu Iangt hún sé sótt. Menn sætti sig við að lengra sé í þá þjónustu, sem þeir þurfí sjaldan á að halda, en síður ef því sé öfugt farið. „Sem dæmi má taka að fólk sættir sig við að þurfa að sækja lengra í húsgagna- verzlun en dagvöruverzlun. Sömu- leiðis að fara lengra á sjúkrahús en í heilsugæzlustöð," segir í áætl- uninni. „Sumar tegundir opinberr- ar þjónustu eru þannig að þær verða að vera fyrir hendi hvar sem fólk býr. Þannig eru til dæmis reknir grunnskólar allvíða þrátt fyrir lítinn nemendafjölda og póst- inn fá menn til sín hvar sem er á landinu. Þá er heilsugæzla rekin víðar en rekstrargrundvöllur er fyrir.“ Samgöngnbætur og fækkun þjónustustaða í áætluninni segir jafnframt: „Með batnandi samgöngum stækka þjónustusvæði. Hægt er að komast hjá því að byggja upp nýjar þjónustustofnanir jafnvíða og áður var gert. Þá er í ýmsum tilvikum mögulegt að laga þjón- ustuna og skipulag stofnana að búsetunni.“ Sigurður sagði að þetta þýddi meðal annars að fyrir- heitið, sem gefíð væri í áætluninni um að draga ekki úr opinberri þjón- ustu á landsbyggðinni, þýddi ekki endilega að hún yrði áfram veitt á jafnmörgum stöðum. Samgöngu- bætur gerðu það að verkum að þjónustan yrði aðgengilegri. í áætlun Byggðastofnunar er ekki farin sú leið að velja ákveðna staði sem miðstöðvar þjónustu. Þar segir: „Allt fram á síðustu ár hefur verið erfítt að veita þjónustu sem þarf fleiri íbúa en eru í viðkom- andi þéttbýlisstað og næsta ná- grenni hans vegna samgönguerfið- leika. Nú eru hins vegar gerðar kröfur um þjónustu sem þarf svo marga notendur að hana er ein- ungis hægt að veita á fáum stöð- um. Bættar samgöngur hafa aftur á móti gert þetta mögulegt sums staðar. Þá kemur hins vegar upp vandamál um staðarval fyrir þessa þjónustu: á að velja henni stað í einum kjama fyrir hvem lands- hluta eða á að skipta henni milli staða? Um það eru skiptar skoðan- ir. Það liggur í hlutarins eðli að þjónustusvæði grunnþjónustu eru smærri en þegar fjallað er um þjón- ustu sem þarf stærri markað. Spumingin er hvort það sé ásætt- anlegt að skilgreina einhverja staði sem þjónustumiðstöðvar fyrir fleiri en eitt hérað og jafnvel heila lands- hluta." Nýrri þjónustu ekki dreift frekar Byggðastofnun telur að þeir staðir, sem hafa svokallaða kjör- dæmisþjónustu, til dæmis héraðs- dóm, sjúkrahús og skattstofu, séu ekki margir og að sú tilhneiging hafí ríkt að nýrri þjónustu hafí verið valinn staður í þéttbýlisstöð- um sem jafnframt séu þjón- ustumiðstöðvar við landbúnaðar- héruð. „Hér er lagt til að þeim stöðum sem hafa slíka þjónustu verði ekki fjölgað en að öðm leyti fylgt þeim hagkvæmnissjónarmið- um sem þegar hafa verið gerð að umtalsefni," segir í áætluninni. Um vaxtarsvæðin segir: „Þessi svæði eiga frekar en önnur að njóta fyrirgreiðslu opinberra aðila til að efla atvinnulíf. Hugmyndin er sú að sameina kraftana á ákveðnum svæðum sem talið er að hafí betri vaxtarskilyrði en önnur svæði. Þannig era meiri líkur til þess að hægt verði að snúa vöm í sókn á landsbyggðinni. Þó að það sé æski- legt út frá mörgum sjónarmiðum að efla vöxt á öllum þéttbýlisstöð- um landsbyggðarinnar er það markmið einfaldlega utan þess sem hægt er að ná.“ Skilyrði fyrir vexti Byggðastofnun telur að eftirfar- andi kostir þurfi að vera fyrir hendi til þess að vaxtarsvæði sé vænlegt: • Góð lega gagnvart fiskimiðum og hagkvæmir möguleikar á út- gerð og fiskvinnslu. • Nægilegur mannfjöldi á þétt- býlisstað og fjölmenn landbúnaðar- héruð á þjónustusvæði hans. • Góðar samgöngur, bæði innan svæðis og við höfuðborgarsvæðið. • Hagkvæmur jarðhiti, eða önn- ur náttúraleg skilyrði s.s. til úti- vistar eða ferðaþjónustu. Mismunandi áherzlur í samgöngumálum eftir svæðum í þeim kafla byggðaáætlunar- innar sem fjallar um samgöngumál segir að mikilvægustu markmiðin séu samgöngubætur, sem stækki þjónustusvæði þéttbýlisstaða, bæti samgöngur þessara svæða við höf- uðborgarsvæðið og greiði fyrir samskiptum milli einstakra lands- hluta. Byggðastofnun segir að sá hluti landsins, sem sést á meðfylgj- andi mynd, þ.e. Suður- og Vestur- land og Húnavatnssýslur, verði að teljast þjónustusvæði höfuðborgar- innar. Á þessu svæði verði lögð áherzla á samgöngur á vegum, og þar af leiðandi minni áherzla á flugvelli og vöruhafnir. Þar með sé ekki sagt að ekki sé réttlætan- legt að reka þær vörahafnir, sem fyrir séu, en huga þurfí vel að málum ef standi til að stækka þær. Sama eigi við um flugvelli. Utan þjónustusvæðis höfuðborgar- innar, þ.e. á Vestfjörðum, Norð- austur- og Austurlandi, þurfí hins vegar að leggja áherzlu á bæði flugsamgöngur og hafnir auk vegasamgangna. Þó sé þar um að ræða fáar hafnir og flugvelli, en bættar landsamgöngur að og frá þeim. Þeim fækkar sem þykir kjöt of dýrt KÖNNUN á viðhorfi fólks til verðlags á kjöti hefur leitt í Ijós að 62% aðspurðra þykir nautakjöt dýrt, 58% lambakjöt og 46% þykja kjúklingar of dýrir. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Hagvang- ur framkvæmdi fyrir Samstarfshóp um sölu á lambakjöti. Sam- kvæmt sambærilegri könnun frá sama tíma í fyrra hefur þeim fækkað nokkuð sem þykja tveir fyrrnefndu vöniflokkarnir of dýrir. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá Upplýsingaþjón- ustunni era ástæður breytts við- horfs almennings til verðlags á nauta- og lambakjöti raktar til söluátaks á vöraflokkunum að undanförnu. í sömu könnun kom einnig fram að 81% kaupenda lík- aði vel við lambakjöt sem selt var undir kjörorðunum Bestu kaupin. Könnunin var framkvæmd gegnum síma og náði til 1.000 manns um allt land. Svarhlutfall var 72%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.