Morgunblaðið - 17.07.1993, Síða 15

Morgunblaðið - 17.07.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 15 AF INNLENDUM VETTVANGI ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR Kaldhæðnislegt sáttauppgjör ÁKVÖRÐUN Rannveigar Guðmundsdóttur þingflokksformanns Al- þýðuflokksins um að gefa kost á sér í embætti varaformanns mun eflaust draga nokkurn dilk á eftir sér og ekki er útséð um að deilurn- ar innan flokksins séu leystar. Til efs er að nokkrar deilur innan stjórnmálaflokks á íslandi hafi einkennst af jafn miklu tilgangsieysi og taugaveiklun. Liðnar eru þrjár vikur frá því Jóhanna Sigurðar- dóttir sagði af sér varaformennskunni og hefur atburðarásin frá þeim tíma sannarlega ekki verið henni hliðholl. Hún hefur endan- lega sagt skilið við Jón Baldvin Hannibalsson, formann flokksins, og svo virðist sem hennar helstu samstarfsfélagar fram til þessa séu nú í nánara sambandi við formanninn en hana sjálfa. Konur hafa ekki stutt við bakið á henni í þeim mæli sem búist var við en þess í stað hafa nokkrar konur, undir forystu Margrétar Björnsdóttur for- manns Fijálslyndra jafnaðarmanna, tekið völdin í sínar hendur og gert allt til að fá Rannveigu, nánustu samstarfskonu Jóhönnu, til að taka við varaformannsembættinu þvert á vilja Jóhönnu. Það er hins vegar gert í nafni sátta og samlyndis. Hverjar afleiðingar þess- ara deilna verða er óljóst en innan Alþýðuflokksins velta menn jafn- vel vöngum yfir hvort Jóhanna fari ekki i enn harðari andstöðu við Jón Baldvin og sjái þá lausn eina að bjóða sig gegn honum á næsta flokksþingi. Einnig er talað um að hún hugsi sér jafnvel að spreyta sig á öðrum pólitiskum vettvangi en innan Alþýðuflokksins en alþýðu- flokksmenn sjálfir draga það í efa vegna þess .hve djúpt rætur henn- ar liggja innan flokksins. þreytt á því hvemig Jóhanna hafí alltaf beitt Rannveigu fyrir sig og verulega misboðið henni í gegnum árin. Af þessu fer þó tvennum sögum og á móti er sagt að það að Össur Skarphéðinsson hafí verið tekinn fram yfír Rannveigu í umhverfis- ráðuneytið hafí verið dropinn sem fyllti mæli fyrir uppsögn Jóhönnu, þ.e. Jóhanna sagði af sér vegna þess að illa hafi verið farið með Rannveigu. Þó má ekki gleyma því að með því að Rannveig tók að sér að vera þingflokksformaður fyrir- gaf hún flokknum opinberlega fyr- ir að taka Össur fram yfir hana í leynilegu atkvæðagreiðslunni. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvernig Rannveig vinnur úr því nú að kynna ákvörðun sína. Þeir sem hafa trúað því að hún og Jóhanna hafi verið bestu vinkonur fram til þessa geta alltaf túlkað hennar orð sem svo: Ég veit að ég Morgunblaðið/Sverrir Stefnubreyting- FUNDURINN sem haldinn var af Sambandi Alþýðuflokkskvenna síðastliðið mánudagskvöld markaði þáttaskil í þeirri deilu sem staðið hefur innan flokksins. Fundurinn snerist gegn Jóhönnu og í kjölfarið fór af stað sá hópur sem hvað mest hefur stutt Rann- veigu í varaformannsembættið. Ekki hefur farið fram hjá neinum að lengi vel hefur mikil togstreita verið á milli þeirra Jóns Baldvins og Jóhönnu en afsögn hennar kom þó á óvart innan flokksins. Alþýðu- flokksfólk er margt á þeirri skoðun að afsögn Jóhönnu hafi verið hin einkennilegasta. Engin almennileg rök væru fyrir henni og tímasetn- ingin fráleit. Þá hafi deilan ein- kennst af miklum mótsögnun Jó- hönnu og stuðningskvenna hennar. Allt til þessa hefur verið spurt; hvert var eiginlega markmið Jó- hönnu með afsögninni? Hvað vildi hún fá út úr þessu pólitískt? Jóhanna gaf þá skýringu að um persónulegan ágreining væri að ræða milli sín og Jóns Baldvins og með afsögninni vildi hún lýsa van- þóknun á vinnubrögðum og starfs- háttum hans. Jóhanna hefur verið ásökuð um tvískinnung í afsögn sinni. Hún hafi sagt af sér sem varaformaður Alþýðuflokksins, en því embætti hafí hún aldrei sinnt almennilega. Mörgum hafí fundist nauðsynlegt að varaformaður beitti sér fyrir öflugra innanflokksstarfi en á því hafi hún ekki sýnt áhuga. Hún hafí hins vegar ekki sagt af sér sem félagsmálaráðherra, starfí sem hún hefur haft meiri áhuga á, en á þeim vettvangi hefur samstarf þeirra Jóns Baldvins að mestu leyti farið fram. Menn spyija því hvern- ig Jóhanna ætli að vinna áfram með Jóni Baldvini í ríkisstjórn ef hún getur það ekki í flokksforyst- unni. Tafir á flokksstj órnarf undinum Eftir afsögnina stóð til að halda flokksstjórnarfund strax til að ganga frá kjöri varaformanns líkt og Jón Baldvin hefur greint frá. Vegna sumarleyfa var hins vegar tekin sú ákvörðun að fresta fund- inum fram á haustið. Það hlýtur jafnframt að hafa verið skynsam- legt fyrir Jón Baldvin að reyna að fresta fundinum, annars vegar til að draga úr samúðinni með Jó- hönnu og hins vegar til að sýna fram á að það hafi ekki skipt flokk- inn neinu máli þótt Jóhanna hafí sagt af sér og þar með gera lítið úr starfi hennar á þessum vett- vangi. Eftir kröfur bæði ungra jafnað- armanna og kvenna í flokknum, sem sögðust vilja gefa Jóhönnu tækifæri til að tjá sig um afsögn- ina, var frá þessu horfið og ákveð- ið að fundurinn yrði haldinn á tnorgun,' sunnudag. Titringnr meðal kvenna Til að undirbúa sig fyrir flokks- stjórnarfund funduðu um 30 konur í Sambandi Alþýðuflokkskvenna sl. mánudag. Fundurinn varð eitt alls- heijarklúður fyrir stuðningskonur Jóhönnu, sem greinilega höfðu ekki stjórn á atburðarásinni og höfðu fyrirfram alls ekki haft nægilegt samráð við aðrar konur innan flokksins. Stefnt var að samstöðu um að lýsa vanþóknun á forystu flokksins og að fá konur til að sitja hjá í kjöri um varaformann, þannig vildi Jóhanna fá konur til að standa með sér í andstöðunni gegn Jóni Baldvini. í upphafi fundar var búist við að sú tillaga næði fram að ganga möglunarlaust en upp kom hörð andstaða við tillöguna. Meðal þeirra sem lýstu yfir andstöðu sinni voru Margrét Björnsdóttir, formað- ur Fijálslyndra jafnaðarmanna, sem Jón Baldvin er sagður hafa miklar mætur á og Bryndís Schram, sem mun hafa sagt að ef tillagan yrði samþykkt færi hún heim með þau skilaboð til Jóns Baldvins að eðlilegast væri að hann segði af sér formennskunni. Vera Bryndísar á fundinum féll ekki vel í kramið hjá þeim sem vildu fá að gagnrýna forystuna mótmæla- laust. í kjöifarið fluttu Ragnheið- ur Björk Guðmundsdóttif og Mar- grét Björnsdóttir tillögu um að hvetja ætti Rannveigu i varaform- anninn og var tillagan kynnt með þeim formerkjum að best væri fyr- ir flokkinn að Rannveig tæki við embættinu, ekki síst í ljósi þess hve mikinn stuðning hún fékk meðal Alþýðuflokksmanna í síðustu Gall- up-könnun. Með Rannveigu sem varaformann yrði auðveldara að ná sáttum í flokknum. Góð mótrök eru vandfundin 'og talið er að á þessum tímapunkti hafi margir fundargesta ákveðið að styðja Rannveigu. Rannveig í klemmu Aðrar skýringar hafa þó einnig verið gefnar á tillögunni um stuðn- ing við Rannveigu, ekki síst þegar athugað var hvaða konur mæltu með henni. Til að koma í veg fyrir enn alvarlegri deilur innan flokks- ins og jafnvel klofning hafí þótt nauðsynlegt að fá varaformann, sem væri úr vinstri armi flokksins. Best væri ef það yrði Rannveig. Því þar með yrði klúður Jóhönnu fullkomnað og jafnvel hægt að ýta Jóhönnu út úr flokknum án þess að stórskaði hlytist af. Ekki væri nóg með að hún hefði glatað vara- formannsembættinu heldur hefði nánasta samstarfskona hennar, Rannveig, sest í stólinn áður en hann náði að kólna. Einnig var Valgerður Guð- mundsdóttir, formaður Sambands Alþýðuflokkskvenna, nefnd sem hugsanlegt varaformannsefni ef Rannveig tæki ekki áskorun. Hún hefði fylgi kvenna og traust þeirra sem væru til vinstri í flokknum. Með tillögunni var Rannveigu stillt upp við vegg, en hún hafði fyrir fundinn sagt við Jóhönnu og fleiri, að hún hygðist ekki gefa kost á sér í varaformanns- embættið við þessar aðstæð- ur. Rannveig þreytt á Jóhönnu? Það er hins vegar vitað mál að Rannveigu hefur langað í varaformanns- stóiinn og ýmsir þeirra sem hafa viljað hana þar hafa reynt að sannfæra hana um að Jóhanna hafi alls ekki borið hag henn- ar fyrir bijósti að undanförnu og m.a. sagt að Jóhanna hafi klúðrað ráðher- rastóinum fyrir Rannveigu með því að leggja ekki nægilega áherslu á að Rannveig fengi stólinn. Einnig fara sögur af því að Rannveig hafi verið orðin lang- er að svíkja Jóhönnu, sem sem sagði upp varaformannsembættinu mín vegna. Mig iangar hins vegar svo rosalega að verða varaformaður sjálf og tryggja stöðu mína innan flokksins, að ég ákvað samt að slá tii. Verulega erfítt hefur verið fyrir Rannveigu að meta stöðuna en hún hefur rætt bæði vel og lengi við Jón Baldvin og Jóhönnu og margir telja að allan tímann hafi hún verið að bíða eftir því að Jó- hanna segði henni að slá til og taka embættinu. Hún hafi í raun löngu verið búin að gera upp hug sinn um að taka við embættinu en lang- ur aðdragandi hefði verið nauðsyn- legur til að virka meira sannfær- andi gagnvart Jóhönnu. Þar hafí undirskriftasöfnunin hjálpað tii en eftir hana hafi engin önnur leið verið fær en að taka árskoruninni. Hætta á klofningi? Ýmsum fínnst sem þau átök sem átt hafa sér stað innan Aiþýðu- flokksins minni á deilurnar sem upp komu innan fiokksins þegar Vil- mundur Gylfason ákvað að draga sig út úr flokknum og stofna Bandalag jafnaðarmanna, en hann hafði þá m.a. tapað varaformanns- siag gegm Magnúsi Magnússyni á flokksþingi Alþýðuflokksins árið 1982. Aðrir segja að þótt svo ólíklega verði að Jóhanna yfírgefi flokkinn verði aldrei hægt að líta á það sem klofning, vegna þess hve einangruð hún sé orðin. Þó að Lára V. Júlíus- dóttir og Ólína Þorvarðardóttir sigli með henni þá geti það ekki skaðað flokkinn verulega. Aðrir helstu baráttumenn vinstri aflanna í flokknum séu orðnir handgengnir Jóni Baldvin og búnir að koma ár sinni vel fyrir borð. Uppreisnarseg- girnir, þeir Guðmundur Árni Stef- ánsson og Össur Skarphéðinsson, séu orðnir virðulegir ráðherrar og helsta samstarfskona Jóhönnu sé tilvonandi varaformaður. Þau hafi því ekki hug á að fylgja Jóhönnu í hennar heilaga stríði. Útspil Jóhönnu Jóhanna hefur aldrei gefist upp án þess að því fylgi nokkur storm- sveipur og ekki er búist við að hún ljúki þessu máli þegjandi og hljóða- laust. Verulega hefur dregið úr fylgi flokksins frá kosningum og hefur mörgun þótt flokkurinn í rík- isstjórnarsamstarfínu of langt til hægri. í þeirri stöðu sem komin er núna þykir ekki órökrétt að álykta að Jóhanna reyni að not- færa sér þetta, umbreyti persónu- legum ágreiningi við Jón Baldvin í hugmyndafræðilegan ágreining á milli hægri afla og félagslegra afla innan flokksins. Fyrstu skref hennar gætu verið hörð mótmæli við þann mikla niður- skurð sem fyrirhugaður er innan ríkisstjórnarinnar og fullyrðingar um að slíkur niðurskurður gæti aldrei samrýmst þeim gildum sem Alþýðuflokkurinn hafi staðið fyrir. Á þeim forsendum gæti uppgjörið hafíst. Uppgjör sem hugsanlega kemur til með að eiga sér stað í formannsslag þeirra tveggja á næsta flokksþingi, en allir eru á einu máli um að Jóhanna sé ekki á leið úr pólitík. En hver sem niður- staðan verður þarf Alþýðuflokkur- inn að gæta vel að framhaldinu og alls ekki vanmeta þann stuðning sem Jóhanna hefur hjá almennum flokksmönnum. Búist er við að á flokksstjórnar- fundinn mæti á annað hundrað manns. Bíða flokksmenn spenntir eftir því að Jóhanna kveði sér hljóðs og fylgjast með hvemig forystu- fólkið skipast í flokka. Ekki má gleyma því að Ránn- veig hefur verið ritari flokksins og sú staða losnar væntanlega á flokksstjómarfundinum. Nokkur nöfn hafa verið nefnd í því sam- bandi og þ.á.m. nafn Ragnheiðar Bjarkar Guðmundsdóttur, sem af- henti Rannveigu undirskriftalist- ann í gær, og Kristjáns Möllers, en talið er að þau ættu að geta höfðað til landsbyggðarfólks í flokknum. Einnig hefur nafn Mar- grétar Bjömsdóttur verið ofarlega. Bandalög rofin Aðrir forystumenn flokksins hafa ekki verið jafn áberandi í þess- um deilum og Jóhanna og Rann- veig, en niðurstaðan er án efa Jóni Baldvini í hag. Vinstri armur flokksins hefur klofnað og þau bandalög sem talað hefur verið um fram að þessu eru rofin. Stirt er á milli Rannveigar og Jóhönnu á sama tíma og samskipti Rannveig- ar og Jóns Baldvins færast í vöxt. Erfiðara er að kortleggja Guðmund Árna og Össur eftir ráðherraskip- anina og þær deilur sen nú hafa staðið yfir. Fróðlegt g^tur því orðið að sjá hvernig bandalög myndast á næstunni. Þegar á allt og allt er litið er niðurstaðan þessi; eftir þá slæmu stöðu sem upp var kominn er sú sáttalausn, sem nú blasir við, eflaust sú farsælasta fyrir Alþýðu- flokkinn í heild sinni. Með Jón Baldvin sem formann og Rann- veigu sem varaformann geta flestir - en alls ekki allir - verið sæmilega sáttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.