Morgunblaðið - 17.07.1993, Side 19

Morgunblaðið - 17.07.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 19 Gagnrýnin skýrsla endurskoðenda um starfsemi Evrópubankans birt Attali fær slaka einkunn og lætur strax af störfum London. Reuter. JACQUES Attali, bankastjóri Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, Evrópubankans, lét af störfum í gær aðeins nokkrum stundum eftir að skýrsla endur- skoðenda um starfsemi bankans var birt. I skýrslunni er stjórnun Attali á bankanum harðlega gagnrýnd og hann sakaður um að hafa brotið siðareglur bank- ans. Attali hafði áður sagt upp störf- um en samkomulag var um að hann gegndi störfum þar til valinn hefði verið nýr bankastjóri. Frestur til að tilnefna nýjan bankastjóra renn- ur út nk. miðvikudag en helst eru Jacques de Larosiere seðlabanka- stjóri í Frakklandi og Henning Chri- stophersen fulltrúi Dana í fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) taldir til greina koma. Endurskoðendumir segja í skýrslu sinni að kostnaðareftirlit í Evrópubankanum hafí verið ákaf- lega slakt. Sömuleiðis hafi ákvarð- anatöku og eftirliti vegna fram- kvæmda við íburðarmiklar höfuð- stöðvar bankans verið afar ábóta- vant og eigi sinn þátt i því að kostn- aður fór langt fram úr áætlun. Hún hljóðaði upp á 53 milljónir punda, 5,7 milljarða króna, en fullgerð kostaði byggingin 66 milljónir punda eða 7,1 milljarð. í skýrslunni er gagnrýnt að Att- ali skuli sjálfur hafa ráðið mestu um val arkitekta sem fengið hafi það hlutverk að fylla bankabygg- inguna af sérpöntuðum marmara og dýrum plussteppum. Þá er fundið að ferðamáta Attal- is og notkun einkaþotna í stað áætlunarflugs átalin. Fór Attali allra sinna ferða í einkaþotum og nam kostnaður bankans af því 1,4 milljónum punda eða 151 milljón króna. „Með fyrirhyggju og hagsýni og nánara kostnaðareftirliti hefði mátt spara mikla fjármuni," segir í skýrslu endurskoðendanna. Er Mafían sankar að sér vopnum Róm. Reuter. ÍTALSKA mafían hefur staðið fyrir stórfelldu vopnasmygli frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu og austanljaldsríkjum. Talið er að í uppsiglingu sé vopnuð valda- barátta innan mafíunnar. Bruno Siclari ríkissaksóknari sagði í gær að nær útilokað væri að stöðva vopnasmyglið og áhyggj- ur vekti hvers kyns vopn væri um að ræða en þar á meðal væru skot- pallar fyrir flugskeyti og sprengju- vörpur. Siclari staðfesti að á undanförn- um mánuðum hefði lögregla kom- ist yfir 5.000 vopn, 200 tonn af sprengjum og 600.000 skotfæra- hleðslur hjá glæpamönnum. „Vopn streyma í stríðum straumi til mafíunnar. Magn þeirra er ógnvekjandi. Spurningin er hvaða þörf mafían telji sig hafa fyrir öll þessi vopn,“ sagði Siclari. Siclari sagði að enn sem komið væri virtust mafíufjölskyldur á Sik- iley líta á Salvatore „Toto“ Riina sem leiðtoga mafíunnar, en hann var handtekinn í janúar eftir 23 ár á flótta undan réttvísinni. „Enn er litið á hann sem leiðtoga þó hann sitji bak við lás og slá en stríð um eftirmann hans getur hafist þá og þegar,“ sagði Siclari. Attali Attali sagður hafa sjálfur séð um að skipuleggja ferða- lög sín og panta einkaþotur og fundið er að því að hann skyldi skipta við einn aðila í stað þess að leita eftir til- boðum. Segja end- urskoðendurnir það ennfremur óviðunandi að erfitt hafi reynst að fá upplýsingar um ferðalög sem virtust farin í einkaerindum. Braut siðareglur Loks er að því fundið hversu seint Attali endurgreiddi einkaneyslu sem hann borgaði fyrir með greiðslukorti bankans. Sömuleiðis er hann sagður hafa brotið siðaregl- ur bankans með því að hafa aðrar tekjur en bankastjóralaunin en þar er átt við greiðslur sem hann fékk fyrir fyrirlestrahald. Leggja endurskoðendurnir tii að tekið verði upp strangt og mark- visst kostnaðareftirlit innan Evr- ópubankans og sérstök nefnd á vegum framkvæmdastjórnar bank- ans gerð ábyrg fyrir því að ekki sé farið fram úr kostnaðaráætlunum. Ekkja Willy Brandts lætur að sér kveða BRIGITTE Seebacher-Brandt, hin unga ekkja Willy Brandts, er í sviðsljósinu í Þýskalandi þessa dagana þar sem hún tjáir sig um líf, störf og arfleifð þessa fyrrum kanslara V-Þýskalands og leiðtoga Jafnaðarmanna- flokks Þýskalands (SPD) um margra ára skeið. Einnig hefur hún reynt að breyta ímynd þeirri sem skapast hefur um Brandt og reynt að skilgreina hver staða hans hafi verið innan Þýskalands fyrir dauða hans fyrir um ári síðan. í staðin hefur hún verið gagnrýnd af fyrrum flokksfélög- um Brandts sem ekki eru sam- mála túlkun hennar á persónu stjórnmálamannsins. Þýska vikuritið Der Spiegel segir að ekkjan sé að reyna að breyta ímynd Willy Brandts og láta hann líta út fyrir að hafa verið þjóðernis- sinna á meðan aðrir haldi því fram að hann hafí verið vinstrisinnaður alþjóðahyggjumaður. Vegna þessa hefur hún kallað yfir sig reiði margra jafnaðarmanna í SPD sem hún nefnir flokk kerfískalla. Eftir fráfall Brandts hefur See- bacher-Brandt haslað sér völl sem virtur sagnfræðingur og þykir hún þjóðernissinnuð og íhaldssöm í skoðunum. Æ oftar tekur hún þátt í umræðuþáttum í sjónvarpi og skrifar greinar í blöð þar sem hún gagnrýnir hugmyndafræðilegar skýjaborgir vinstrimanna. Hún seg- ir að leiðtogar SPD hafi fengið stór- an hluta flokksins til að vanmeta gildi frelsisins þegar járntjaldið hrundi árin 1989-1990. Hún segir flokkinn hafa minni sannfæringarkraft en áður og það hái ekki bara jafnaðarmönnum heldur líka borgaralegu flokkunum. í samtali við þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine þar sem hún er einnig dálkahöfundur, segir Seebacher-Brandt að enginn stjórnmálaflokkur hafi iengur raun- verulegar forsendur til þess að tak- ast á við það sem nú er að gerast, þ.e. þróunina yfir í þjóðfélagsgerð sem tekur við eftir iðnvæðingu. Áður fyrr hafi vinnuhugsjónin verið lagt til grundvallar í þjóðfélaginu, en nú væri svo komið að það þætti ekki lengur sjálfsagt. Eldklár og pólitísk Seebacher-Brandt er menntaður blaðamaður, varð talsmaður SPD í Vestur-Berlín og síðar ræðuskrifari Brandts i höfuðstöðvum flokksins í Bonn, þar sem hún vann að doktors- ritgerð um Erich OUenhauer, fyrr- verandi formann SPD. Það vakti mikla athygli á sínum tíma þegar hún giftist Brandt, sem var 34 árum eldri en hún. Góður vinur Wiily Brandts lýsti henni þá sem vinstri- sinnaðri, pólitískri og eldklárri konu sem veitti eiginmanni sínum innsýn í veröld yngra fólks. Upp á síðkastið hefur ekkjan svo Ihaldssamur þjóðernissinni Brigitte Seebacher-Brandt, ekkja Willy Brandts, segir hann hafa verið mikinn þjóðernissinna. verið að útskýra í fjölmiðlum per- sónu Willy Brandt fyrir Þjóðveijum. í opinskáu viðtali við Der Spiegei 'upplýsir Seebacher-Brandt að undir það síðasta hafi komið til ósættis milli Willy Brandts og Oskars La- fontaine, fyrrum kanslaraefnis jafn- aðarmanna, vegna sameiningar þýsku ríkjanna tveggja. Einnig hafi lundarfar þeirra verið ólíkt og sem dæmi tekur hún að Brandt hafi ekki líkað þegar Lafontaine eitt sinn sendi þjón þrisvar sinnum til baka með vínflösku því mjöðurinn lyktaði af korki. Þetta hafi Brandt ekki fundist við hæfi. Hún segir að einnig hafi komið upp skoðanaágreiningur milli Brandts og SPD út af sameining- unni og það hafi orðið kaflaskipti í lífi hans árið 1989. Auðvitað væri ekki hægt að hugsa sér Willy Brandt án SPD, en Þýskaland hefði orðið mikilvægara í huga hans en flokkurinn, sérstaklega undir það síðasta. Þegar Willy Brandt lést var La- fontaine, fánaberi vinstrimanna, sá eini af 16 leiðtogum þýsku ríkjanna 16 sem lét ekkert heyra í sér. Síð- ustu mánuðina þegar krabbameinið, sem dró Brandt til dauða, ágerðist, voru bara gamlir vinir til staðar svo og Helmut Schmidt, fyrrum leiðtogi flokksins. Ýmsir yngri flokksfélag- ar, sem oft voru nefndir „barnaböm Wiily Brandts" létu ekki sjá sig með einni undantekningu þó en það var Rudolf Scharping, sem nýlega var valinn formaður flokksins og teíst miðjumaður. Útför Brandts umdeild Undir það síðasta átti Willy Brandt meira sameiginlegt með Helmut Schmidt en með öllum „barnabörnunum" til samans, segir Brigitte. Og bætir við að Helmut Kohl, kanslari hafi veitt ■ honum mikinn stuðning Ef til vill var það hún sem skynj- aði þjóðerniskenndina meðal Þjóð- veija við sameininguna og hafði þau áhrif á mann sinn að bilið milli Brandts og hugmyndafræð- inga SPD breikkaði; undir það síð- asta voru skoðanir hans farnar að færast nær skoðunum hins íhalds- sama Helmuts Kohls kanslara. En það er fleira sem fyrrum flokksfélagar eru ósáttir við. Við- höfnin og tilstandið í kringum jarð- arför Brandts í Berlín þar sem hermenn báru kistu hans sveipaða þýska fánanum vakti athygli og voru uppi raddir flokksfélaga Brandts hvort allt þetta tilstand hefði verið nauðsynlegt. Ekkjan svarar því til að tilstandið hafí alls ekki verið of mikið, hermennsku- hefðir hafi skipt máli við útförina, og sá sem skilji ekki tilganginn með þessu hafi ekki skilið kjarnann í persónu Brandts. Þetta hefði ver- ið í samræmi við óskir hans sjálfs. Einnig var eftir því tekið að Rut Brandt, fyrri kona Brandts, var ekki viðstödd útförina og var sú skýring gefin að Brigitte hefði ekki viljað að hún væri viðtödd. „Willy Brandt stóð fast á því að hann ætti aðeins eina eiginkonu,“ segir Brigitte Seebacher-Brandt. Brandt var giftur hinnu norsku Rut í 33 ár og átti með henni þijá syni. í dag er það yngri konan og opinbera ekkjan sem breiðir út boðskap hins látna eiginmanns. Hún vill að ríkið setji á stofn minn- ingarsjóð um Willy Brandt, einn þýðingarmesta stjórnmálamann í Þýskalandi á þessari öld, og er það skoðun hennar að það hefði verið í anda Brandts að eftirláta flokkn- um ekki skjalasafn hans, en sá vilji hennar hefur valdið úlfúð innan raða SPD. Heimild: Aftenposten Bankamenn biðja Jeltsín ásjár HELSTU bankamenn í Rúss- landi hafa beðið Boris Jeltsín, forseta, um vernd fyrir morð- og mannránsherferð sem glæpasamtök standa að. Segja bankamennirnir að mafían vilji seilast til valda innan banka- kerfisins með því að hóta morði og meiðingum verði ekki farið að vilja þeirra. Hárið klippt SÖNGLEIKURINN Hárið, sem hneykslaði marga á sjö- unda áratugnum, verður nú settur upp aftur í London, og hefur ýmislegt verið klippt til. Það eru sérstaklega tilvísanir í fijálslega notkun á eiturlyfj- um, um, sem hafa verið klippt- ar burt, enda eru þær við- kvæmt mál vegna útbreiðslu á AIDS nú á dögum. Ekeus fundar með Aziz ROLF Ekeus, erindreki Sam- einuðu þjóðanna í málefnum íraks, átti í gær fund með íraska varaforsetanum, Tareq Aziz, til þess að reyna að létta á spennunni vegna vopnabún- aðar íraka. Ekeus sagði eftir þriggja klukkustunda langan fund að þeir hefðu „byrjað upp á nýtt“ og yrðu að halda frek- ari fundi. Aætlað var að þeir hittust aftur í gærkvöldi. Aziz sagði of snemmt að segja nokkuð um árangurinn af fundunum. Atti að myrða Alijev STARFANDI þjóðarleiðtogi í Azerbajdzan, Geidar Alijev, sagðist í gær hafa komist á snoðir um samsæri um að myrða hann. Sagði hann að stjómarandstaðan hefði staðið á bakvið samsærið og þetta væri ekki í fyrsta skipti sem honum bærust upplýsingar um áætlanir eins og þessa. „Þeir vilja losna við mig hvað sem það kostar,“ sagði Alijev. Arangnr væntanlegur BANDARÍKJAMENN sögðu í gær að vænta mætti „inni- haldsríkrar“ tilkynningar í næstu viku um viðræður þeirra við Norður-Kóreumenn um meintar kjarnorkutilraunir þeirra síðarnefndu. Embættis- menn Norður-Kóreu sögðu að samningaviðræðurnar hefðu verið mjög árangursríkar. Þjófar fá raflost ÞJÓFAR sem reyna að komast óboðnir inn í sýningarsal bíla sölu einnar í Englandi mega búast við raflosti. Eigandi söl- unnar sagði í gær að hann væri búinn að fá sig fullsaddan af þjófnuðum og hefði því sett raflögn í dyr og peningaskáp til þess að fæla burt þjófa. Varðhundur eigandans var nýlega barinn illa í annað sinn á árinu þegar hann reyndi að veija eigur húsbónda sins fyrir fingralöngum. Lögregla hefur varað sölumanninn við því að ef þjófar verða fyrir meiðslum af raflosti megi hann eiga von á lögsókn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.