Morgunblaðið - 17.07.1993, Síða 23

Morgunblaðið - 17.07.1993, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993 Vertíðarstemming- ríkir í laxeldi Silfurlax í Hraunsfirði á Snæfellsnesi Mjór vonandi mikils vísir VERTIÐARSTEMMNING er trú- lega rétta orðið yfir andrúmsloftið í hafbeitarstöðvunum þessa dag- ana, a.m.k. í hafbeitarstöð Silfur- lax í Hraunsfirði á norðanverðu Snæfellsnesi. Starfsmennimir standa vaktir allan sólarhringinn til þess að hleypa laxinum inn í nót í botni fjarðarins og staðið er við slátmn frá klukkan fimm til sex á morgnana fram yfir hádegi. Hafa um 3.500 eins og tveggja ára laxar, allt upp í 20 pund, farið undir hnífinn síðustu daga. Þrátt fyrir að laxagöngur hafi aldrei verið kröftugri varar Júlíus B. Kristinsson, framkvæmdastjóri, við óhóflegri bjartsýni enda sé ekki hægt að áætla ferðir laxins. Engu að síður vonast hann til þess að smám saman og með hjálp rannsókna verði hægt að auka heimtur. Þannig bendir hann á að þó að vandamálin séu mörg séu möguleikar á að leysa þau mý- margir og vonandi sé mjór mikils vísir. Júlíus segir að laxinn komi frá þremur seiðaeldisstöðvum á Suður- landi en þaðan eru laxaseiðin flutt vestur á nes. Vorið eftir flutninginn sjóþroskast seiðin og við það læra þau að sleppistaðurinn er þeirra heimaslóð. Þar með hafa þau numið þá náttúrulegu tilhneigingu að snúa í stöðina að lokinni hafbeit. Þetta tekur aðeins einn mánuð að vori en seiðunum er engu að síður haldið mun lengur, allt upp í heilt ár i Hraunsfírði. Hluti af þeim tíma fer í að venja fiskinn við saltvatnið í sjón- um. Seiðaslepping fer fram um hásum- arið og snúa laxarnir ekki til baka fyrr en ári eða jafnvel tveimur árum síðar. Þeir vaða þá að jafnaði inn fjörðinn í stórum torfum og gera vart við sig með því að stökkva upp úr sjónum. Eins árs laxarnir fara þá hæst og eru oft heilir upp úr sjónum en þeir eldri og þyngri láta sér oft nægja að lyfta kviðnum upp úr vatn- inu. Á heimaslóð Laxagöngur er yfirleitt mestar í júlí og koma flestir laxarnir inn í fjarðarbotninn rétt fyrir og eftir flóð en eins og áður segir standa starfs- menn stöðvarinnar vaktir allan sólar- hringinn til að hleypa löxunum inn í þar til gerða nót í botni fjarðarins. Þegar laxinn er einu sinni kominn inn í nótina er enginn leið út því með annarri nót er þrengt að honum og hann rekinn inn í laxakví. Úr kvínni er laxinn síðan háfaður upp á vinnslulínu þar sem byrjað er á því að deyfa hann og blóðga. Því næst er þurrkuð af honum laxalús Hraunsfjörður MorfíunblaðKVEinarFall,r HAFBEITARSTÖÐ Silfurlax stendur á fallegum stað í Hraunsfirði. Starfsmenn eru að jafnaði um 15 á sumrin en 2-4 á veturna. og hugað að merkingum vegna tilrauna en að því loknu fer allur fiskur í gegnum fullkom- ið flokkunartæki sem Marel hf. hefur nýlega hannað. Gegnir flokkunartækið þeim tilgangi að telja laxinn og segja fyrir um lengd og þykkt. Með skipunum frá því er fiskin- um svo hrint af áframhaldandi færibandi niður í viðeigandi laxak- ar. Framkvæmdaslj órinn JÚLÍUS B. Kristinsson doktor í fiskilífeðlisfræði er framkvæmdasljóri Silfurlax. Upp í 20 pund Júlíus sagði að laxinn gæti farið upp í 20 pund en algeng þyngd á eins árs laxi væri 2,6 til 2,8 kg en á tveggja ára laxi um 6 kg. Hann sagði að laxinn væri keyrður í Þórsnes hf. í Stykkis- hólmi til frágangs og pökkunar en megnið færi síðan fryst eða ferskt til útflutnings, mest til Þýskalands, Frakklands og Sviss. Ekki kvartaði Júlíus yfír verðinu og sagði að verð hefði haldist nokkuð stöðugt að und- anförnu. Hins vegar játaði hann því að erfiðara væri að skipuleggja reksturinn þar sem heimtur væru rokkandi og ekki væri hægt að segja til um afrakstur hvers árs fyrirfram. vinnugrein og ég vænti þess að mjór sé í þessu tilfelli mikils vísir,“ sagði hann og minnti jafnframt á að ein- hvem tíma tæki að rannsóknimar skiluðu sér í framleiðslunni þar sem framleiðsluferillinn tæki á bilinu 3-4 ár. Of snemmt að spá um heimtur Júlíus þarf þó ekki að kvarta um þessar mundir því laxagöngur hafa aldrei verið jafn kröftugar í Hrauns- firði og síðustu daga þegar 3-4.000 laxar hafa að jafnaði komið í stöðina á hveijum degi. Flestir komu laxarn- ir inn 4-6.000 á mánudag og telur Júlíus ástæðu til að ætla að aldrei hafí fleiri Atlantshafslaxar komið í sömu stöð á jafn stuttu tímabili. Hann varar engu að síður við bjart- sýni og segir að aldrei sé hægt að . reikna út ferðir laxins. Göngur geti dottið niður hvenær sem er. Hvað heimtur varðaði sagði Júlíus að þær hefðu aðeins verið 2% í fyrra. Of snemmt sagði hann hins vegar að spá um hlutfallið í ár. Hvað fram- tíðina varðaði minntist hann á að heimtur væru á bilinu 6-7% í Kolla- fírði og væri stefnt á viðlíka ef ekki hærra hlutfall í framtíðinni. Um tveimur milljónum seiða var sleppt úr stöðinni í fyrra og sama fjölda verður sleppt í ár. Upp á land LAXINN er háfaður upp úr kvíunum, deyfður og blóðgaður. Með rannsóknum, sem Hafrann- sóknastofnun er m.a. að gera, ætti þó smám saman að vera hægt að rannsaka hvaða þættir í sjónum ráði mestu um hafbeitina en sjávarhiti og annars konar skilyrði í hafinu eru oftast nefnd. Júlíus leggur mikla áherslu á gildi rannsókna. „Þær hjálpa okkur að leysa vandamálin sem eru mörg en möguleikarnir til að Ieysa þau eru líka mjög margir. Þannig er hafbeitin spennandi at- auglýsingor Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Við höldum áfram með raðsam- komurnar í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Mike Fitzgerald. Lifandi tónlist og vitnisburðir. Allir hjartanlega velkomnir með- an húsrúm leyfir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Brauðsbrotning kl. 11.00. Síð- asta raðsamkoman kl. 20. Ræðumaður: Hafliði Kristins- son. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. UTIVIST Hallveigarstig 1 ♦ slmi 614330 Dagsferðir sunnud. 18. júlí Kl. 8.00 Básar við Þórsmörk. Stansað í um 3 klst. Verð kr. 2.300/2.500. Kl. 10.30 Síldarmannagötur. Gömul þjóðleið úr Hvalfirði yfir í Skorradal. Áætlaður göngutími 5-6 tímar. Verð kr. 1.700/1.900. Brottför í ferðirnar frá BSÍ bens- ínsölu, miðar við rútu. Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Útivist. Nýja . > |i I postulakirkjan, \MW/ Islandi, ^ 11 Armúla 23, 108 Reykjavík Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.00. Remy Petri prestur mess- ar. Hópur frá Nýju postulakirkj- unni í Bremen í heimsókn. Ritn- ingarorð: „...en hver sem varð- veitir orð hans, í honum er sann- arlega kærleikur til Guðs orðinn fullkominn. (Opb., 2.5.). Verið velkomin f hús Drottinsl Þjóðgarðurinn á Þingvöllum Gönguferðir og barna- stundir um helgina Laugardagur 17. júlí Kl. 13: Gönguferð: Ævintýra- ferð um suðurgjár. Farið frá bílastæöi austan við Nikulás- argjá (Peningagjá) og gengið um suðurhluta Þinghelgar. Tekur tvaer til þrjár klukkustundir. Kl. 14: Eru Þingvellir þjóðar- helgidómur? Sr. Heimir Steins- son, útvarpsstjóri og frv. þjóð- garðsvörður. Gönguferð hefst við útsýnisskífuna á Haki (við efri hluta þ.e. suðurenda Al- mannagjár). Tekur eina til tvær klst. Kl. 14:, Barnastund og brúðu- leikur: ( Hvannagjá. Um klukku- stund. Hittumst við bílastæði við Hrútagilslæk. Sunnudagur 18. júlí Kl. 13: Gönguferð í Skógarkot og Vatnskot. Þrjár og hálf klukkustund. Kl. 14: Guðsþjónusta í Þing- vallakirkju. Sr. Hanna María Pét- ursdóttir. Kl. 14: Barnastund. Tekur um klukkustund. Á tjaldstæðinu við Vatnskot. Athugið að gönguferðir og barnastundir verða aðeins ef veður verður skaplegt. Þátttaka í gönguferðum og barnastund- um er ókeypis. Allar upplýsingar og staðsetningarfást í Þjónustu- miðstöð. Tjald- og veiðileyfi fást keypt í Þjónustumiðstöð. Þjóðgarðsvörður. Vafamál hvort skipan Félagsdóms stenst í þeim tilvikum lagt bann við hvers konar samskiptum foreldra og barns.“ Mælir Guðrún með varkárni við beitingu þessa ákvæðis í ljósi niðurstaðna mannréttindadómstóls- ins. Guðrún er afdráttarlausari þegar kemur að 16. gr. læknalaga nr. 53/1988 en þar segir að lækni sé skylt að afhenda sjúklingi eða um- boðsmanni hans afrit sjúkraskrár en það eigi þó ekki við um skrár sem færðar eru fyrir gildistöku þeirra laga. Telur Guðrún með hlið- sjón af dómum mannréttindadóm- stólsins að þessi skipan kunni að stangast á við 8. gr. mannréttinda- sáttmálans enda sé í lögunum ekki mælt fyrir um heimild til málskots til aðila er gæti metið hvaða hags- munir væru í húfi og veitt aðgang að sjúkraskránum ef ástæða þætti til. Tilkall einkaskóla til styrkja í 2. gr. 1. samningsviðauka mannréttindasáttmálans er kveðið á um rétt til menntunar. Guðrún telur með hliðsjón af túlkun mann- réttindadómstólsins og 14. gr. sátt- málans að styrki ríkið skóla á ann- að borð sé því ekki heimilt að synja einkaskólum um styrk nema gildar ástæður liggi fyrir. í því sambandi má nefna að mannréttindanefndin hefur talið að ekki væri um mis- munun að ræða þótt menntun í opinberum skólum væri styrkt að fullu en menntun í einkaskólum aðeins 85%. Rök nefndarinnar fyr- ir þeirri niðurstöðu voru þau að ekki væri óeðlilegt þegar um væri að ræða stofnanir sem æskja eignarréttar og stjórnunar í einka- skólum að ríkið krefðist einhvers fjárframlags af þeirra hálfu. í 73. gr. 1. 49/1991 um grunn- skóla segir berum orðum að einka- skólar eigi ekki kröfu til styrks af almannafé. „Með hliðsjón af því, sem sagt hefur verið um túlkun mannréttindadómstólsins og mannréttindanefndarinnar um þetta atriði, yrði ríkið að gefa full- nægjandi ástæður fyrir neitun sinni til einkaskóla um styrk ef það styrkir aðra skóla með fjárfram- lögum. Annars væri hætta um mismunun væri að ræða á grund- velli 2. gr. 1. samningsviðauka, sbr. 14. gr. sáttmálans,“ segir Guðrún. En er þá þörf á að breyta ofan- greindum lagaákvæðum? Ekki endilega. í greinargerðinni með frumvarpinu um lögfestingu mannréttindasáttmálans er minnt á þá meginreglu að eldri lög víki fyrir yngri. Það myndi þýða að fyrirmæli eldri laga sem kynnu að reynast ósamþýðanleg ákvæðum sáttmálans vikju þegar á reyndi. Ragnhildur Helgadóttir segir um þetta efni: „Auðvitað væri það ennþá betra ef lögunum væri breytt um leið en svo vel þekki ég þingstörfin að mér er það ljóst að ef við hefðum lagt fram mörg slík frumvörp um leið þá hefði það getað orðið til að frumvarpið um lögfestingu sáttmálans hefði strandað. Mér fannst mjög mikils virði fyrir þingmenn og aðra að fá þetta álit Guðrúnar en ráðherra verður svo að taka afstöðu til þess hvort hann vill Iáta vinna frumvörp um þetta efni.“ Hafa íslenskir dómstólar frjálsar hendur? Loks hlýtur að rísa sú spuming hvort íslenskir dómstólar verði bundnir af skýringu mannréttinda- dómstólsins á ákvæðum mannrétt- indasáttmálans. Sem dæmi um raunhæfa þýðingu þessa atriðis má nefna dóminn í leigubílstjóramálinu. Hafi mannréttindadómstóllinn þar víkkað út .skýringu sína á 11. gr. sáttmálans um félagafrelsi þá skipt- ir auðvitað miklu máli hvort við íslendingar erfum þá skýringu verði sáttmálinn lögfestur hér. Eða hafa íslenskir dómarar fijálsar hendur við útleggingu sáttmálans? Sam- kvæmt 2. gr. frumvarps til laga um Mannréttindasáttmála Evrópu eru úrlausnir mannréttindanefndarinn- ar, mannréttindadómstólsins og ráðherranefndar Evrópuráðsins ekki bindandi að íslenskum lands- rétti. Um þetta segir nánar í í grein- argerð með frumvarpinu: „Ef frum- varpið yrði að lögum væru það ein- göngu orð þessara samninga [þ.e. samninganna sem ganga undir nafninu Mannréttindasáttmáli Evr- ópu] sem væru orðinn hluti af ís- lenskum landsrétti. Fordæmi frá Mannréttindanefnd og Mannrétt- indadómstóli Evrópu um skýringu þessara orða væru ekki þar með orðin landslög. Á hinn bóginn má telja sjálfsagt að reikna með að ís- lenskir dómstólar og stjórnvöld hefðu slík fordæmi til leiðsagnar þegar reyna kynni á skýringu ein- staka ákvæða laganna. Um skerð- ingu á sjálfstæði dómstóla og stjórnvalda hér á landi verður engan veginn að ræða af þessum sökum, enda væru þau óbundin af fordæm- um og staða þeirra í raun ekki önn- ur en á ýmsum öðrum sviðum við beitingu íslenskra laga sem eiga sér samhljóða erlendar hliðstæður, en i slíkum tilvikum er alvanalegt að huga að erlendri réttarframkvæmd til leiðsagnar um vafaatriði.“ Telja má þrátt fyrir allt ósenni- legt að íslenskir dómstólar muni víkja frá skilningi mannréttinda- dómstólsins og nefndarinnar á sátt- málanum nema í algerum undan- tekningartilvikum eða svo vitnað sé orð Magnúsar Thoroddsens: „Ég tel að túlkun þeirra muni hafa mjög afgerandi áhrif á íslenska dóm- stóla.“ SAMANTEKT: PÁLL ÞÓRHALLSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.