Morgunblaðið - 22.07.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C
162. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ1998
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reyklaus
rífásstjóm
í Litháen
Vilnius. Reuter.
JURGIS Bredekis, heilbrigðisráð-
herra í ríkisstjórn Litháens, hefur
með fortölum tekist að fá samráð-
herra sína til að hætta reykingum
og mun stjórnin fyrsta og eina
reyklausa ríkisstjórnin í heimin-
um.
„Það var ekki auðvelt að sann-
færa ráðherrana og fá þá til að
undirrita samkomulag um að hætta
reykingum. Þess vegna er ég alsæll
núna og reyndar himinlifandi þar
sem við státum líklega af fyrstu
reyklausu ríkisstjórn heimsins,"
sagði hinn 64 ára gamli ráðherra
sem er fyrrum hjartaskurðlæknir og
stórreykingamaður. Hann tók við
starfi heilbrigðisráðherra fyrir þrem-
ur mánuðum.
Litháar eru miklir reykingamenn
en hið sama má segja um marga
íbúa fyrrum Sovétríkjanna. Að sögn
Bredekis hafa einungis tveir af ráð-
herrunum 17 aldrei neytt tóbaks.
Rússneska fréttastofan Itar-Tass
sagði frá reykbanni ríkisstjómarinn-
ar í Vilnius og lét fylgja með eigin
efasemdir um að bannið stæði lengi
þar sem engin viðurlög væru við
brotum á því.
Reuter
Þýskirhermenn tilSómalíu
ÞJÓÐVERJAR sendu 250 hermenn til liðs við hersveitir Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Sómalíu í
gær. Eru þeir fyrstu þýsku hermennirnir sem sendir eru út fyrir yfirráðasvæði NATO eftir síðari
heimsstyrjöldina. Alls verða 1.700 þýskir hermenn sendir til Sómalíu og var myndin tekin á flug-
vellinum í Köln er þeir fyrstu héldu áleiðis þangað. Jafnaðarmannaflokkur Þýskalands, sem er í
stjórnarandstöðu, hefur ákaft beitt sér gegn því að hermennirnir yrðu sendir en Helmut Kohl
kanslari sagði um helgina að það væri skylda Þjóðveija að axla ábyrgð sem fylgdi aðild samein-
aðs Þýskalands að SÞ.
Flugvélar NATO munu verja Sarajevo ráðist Serbar á borgina
Izetbegovic mætir til
maraþ onfunda í Genf
Olíusala
aukin frá
Rússlandi
Moskvu. Reuter.
BÚAST má við að framboð Rússa
á olíu muni enn aukast á þessu
ári, en offramboð er nú þegar
yfirvofandi á heimsmörkuðum.
Aðstoðarorkuráðherra Rússa,
Anatolí Fomín, segir aukið fram-
boð stafa af greiðsluerfiðleikum
fyrrverandi lýðvelda Sovétríkj-
anna.
„Lýðveldin eiga í erfiðleikum að
greiða fyrir olíu,“ segir Fomín.
„Hluti þeirra birgða sem þau venju-
lega fengu verður boðinn á heims-
markaði.“ Það sem af er árinu hef-
ur orðið um 40% samdráttur á olíu-
sölu Rússa til fyrrum sovétlýðvelda.
Fomín sagði Rússa áhyggjufulla
vegna lágs heimsmarkaðsverðs á
olíu. Rússneskir embættismenn
hafa hins vegar sagt að Rússar
muni ekki hlaupa undir bagga með
Samtökum olíuframleiðsluríkja
(OPEC), með því að draga úr út-
flutningi á síðari hluta þessa árs.
Opinberar tölur um olíuútflutn-
ing Rússa á fyrri hluta ársins hljóða
upp á eina og hálfa milljón tunna
á dag, eða alls um 38 milljónir
tonna. Það er 32 af hundraði meira
en á fyrri hluta síðasta árs. Orku-
málaráðherra Rússlands fullyrti að
ekkert væri því til fyrirstöðu að
halda í horfinu. Fomín tók í sama
streng og benti á að framleiðslan
væri nú orðin mun stöðugri en á
undanfömum árum.
Embættismenn búast við því að
olíuframleiðsla Rússa nemi rúmlega
340 milljónir tonna á þessu ári, sem
er um 15% minna en á síðasta ári.
Fomín sagði að ef fyrrum Sovét-
lýðveldi gætu greitt skuldir sínar
við Rússa myndi sala á olíu til þeirra
aukast á ný. „Ríkisstjómir og seðla-
bankar lýðveldanna verða að leysa
úr þessum vanda,“ sagði Fomín.
Genf, Belgrad, London. The Daily Telegraph, Reuter.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um að binda enda á stríðið í Bosníu,
með þátttöku leiðtoga múslima, Serba og Króata, ásamt forseta
Júgóslavíu, munu hefjast í Genf á morgun, að boði sáttasemjar-
anna Owens lávarðar og Thorvalds Stoltenbergs. Alija Izet-
begovic, múslimskur forseti Bosníu, segist verða í forsæti viðræðu-
nefndar stjórnarinnar. Sáttasemjararnir segja að viðræðurnar
muni standa sleitulaust uns samkomulag náist. Búist er við að
Atlantshafsbandalagið (NATO) muni í dag bjóða Sameinuðu þjóð-
unum (SÞ) afnot af herflugvélum bandalagsins til að veija
Sarajevo, ef Serbar ráðast á borgina.
Talsmaður sáttasemjaranna
sagði í gær að Radovan Karadzic,
leiðtogi Bosníu-Serba, hefði gefíð
vilyrði fyrir því að serbneskar her-
sveitir myndu láta af sókn sinni við
Sarajevo. Izetbegovic hafði áður
sett það sem skilyrði fyrir frekari
þátttöku sinni í friðarviðræðum.
Hann mun hafa gefíð hliðstætt lof-
orð um að hersveitir stjómarhersins
létu af sókn sinni gegn Króötum í
Mið-Bosníu. Þá hefur Mate Boban,
leiðtogi Króata, sagt að hersveitir
hans hætti átökum við múslima í
suðurhluta landsins.
Izetbegovic samþykkti að mæta
til viðræðnanna eftir að hafa átt
fund með Willy Claes, utanríkisráð-
herra Belgíu. í fundarboði sátta-
semjaranna til Izetbegovic,
Karadzic og Boban, sagði að þeir
séu „boðaðir til Genfar nú um helg-
ina til samningaviðræðna sem
áætlað er að standi sleitulaust uns
samkomulag hefur náðst.“
NATO-vélar tiltækar
Fyrmm yfírmaður gæslusveita
SÞ í Bosníu, Philippe Morillion,
sagði að árás Serba á Igmanfjall,
fyrir ofan Sárajevo „olli miklum
áhyggjum". Sagði hann loftárásir
af hálfu SÞ nauðsynlegar ef Serbar
réðust á borgina sjálfa. „Árás á
Sarajevo væri árás á gæslusveitir
SÞ og allan heiminn," sagði Morilli-
on. Serbneski herinn hefur vísað
því á bug að hann hyggist hertaka
borgina. Embættismenn SÞ og
NATO hafa tekið fram, að Öryggis-
ráðið yrði að koma til sérstaks fund-
ar áður en flugvélum NATO yrði
beitt til árása.
Slær í g’egfn
KENGÚRA hefur lengi verið þjóðartákn Ástrala
en telst nú til meindýra og hafin er herferð til
þess að fækka henni. Kjötið hefur reynst eftirsótt-
ara til neyslu en við var búist. Myndin var tekin
í kjötborði stórmarkaðar í Sydney í gær.
Kengúrukjöt vin-
sælt í Astralíu
Sidney. Reuter.
EFTIRSPURN eftir kengúrukjöti reyndist
miklu meiri en framboð þegar það var í
fyrsta sinn á boðstólum í áströlskum stór-
mörkuðum. í stórverslun í Sydney seldist
áætlaður vikuskammtur upp á nokkrum
klukkutímum.
Kengúruveiðar voru lögleiddar í þremur
stærstu fylkjum Ástralíu þar sem dýrin hafa
valdið miklum spjöllum á ræktarlandi. Þykir
brýnt að fækka þeim og hefur meindýraeyðum
verið heimilt að fella 5,2 milljónir dýra. Því er
spáð að mikil eftirspurn eftir kjöti hvetji veiði-
mennina til dáða en hingað til hafa þeir fengið
frekar lítið fyrir veiðina sem farið hefur aðallega
í gæludýrafóður.
Talið var að eftirspurn eftir kengúrukjöti yrði
dræm; að Ástralir yrðu ekki mjög spenntir fyrir
þvi að borða þjóðartákn sitt. En reyndin hefur
orðið önnur og er vel látið af kjötinu sem er
bragðmikið, magurt, próteinríkt og kólesteról-
snautt. Verðið er svipað og á öðru kjöti; kílóið
af lendarvöðva kostar jafnvirði 540 króna út úr
búð og hakkið 285 krónur.