Morgunblaðið - 22.07.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
17
Reiðnámskeið fyrir börn í Reiðhöllinni
Stjömur í kringum augun
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur heldur
um þessar mundir reiðnámskeið í Reiðhöllinni í
Víðidal, í samvinnu við Hestamannafélagið Fák.
Um 80 börn eru á námskeiðinu, en hvert nám-
skeið stendur í tvær vikur.
Námskeiðið, sem er fyrir böm á aldrinum 8 til 14
ára, stendur yfir frá kl. 9 til kl. 16 og hluta dagsins
eru börnin í almennri fræðslu um hestinn og fará í
reiðtúra. Hinn hluta dagsins er t.d. farið í leiki, sund
og Húsdýragarðurinn jafnvel heimsóttur. Börnin eru
sótt í rútu, sem ekur um borgina og nær í þau á ákveðna
staði um allan bæ.
Hest í fermingargjöf
Una Björk Jóhannsdóttir, sem er að verða 13 ára,
Kristófer Svansson, sem er 8 ára, og Ámi Þór Hös-
kuldsson, sem er 10 ára, em á námskeiðinu, sem lýk-
ur nú í vikunni. Þau em öll sammála um hversu
skemmtilegt námskeiðið sé. „Mér finnst þetta svo gam-
an að mig langar í hest í fermingargjöf. Hann á að
vera kolsvartur með stjömur í kringum augun. Ef
hann verður ekki með stjömur þá teikna ég þær bara
á hann,“ segir Una Björk, en hún fermist á næsta vori.
Kristófer segist sjálfur eiga hest sem heiti Smyrill,
en hann sé í sveitinni í sumar. „Það er mjög gaman
á námskeiðinu og ég hef lært mjög margt,“ segir hann.
Ofsalega gaman
Ámi Þór segir að þetta sé í þriðja skiptið sem hann
er á þessu reiðnámskeiði. „Þetta er ofsalega gaman.
Við læmm hvað líkamshlutar hestsins heita og læmm
að leggja á og svona,“ segir Ámi Þór og bætir því við
að hann hafi kunnað þetta allt áður þar sem hann
hafí fæðst ýsveit og flölskyldan hans sé mikið í hesta-
mennsku. „Eg á sjálfur hest sem heitir Glæsir og hann
er rauður. Bróðir minn, sem er 4 ára, hefur líka mik-
inn áhuga á hestum og líka systir mín, en hún er 13
ára,“ segir hann. Aðspurður segist hann vilja vinna
við eitthvað í sambandi við hesta þegar hann verður
stór og langi líka til að læra að temja hesta.
Grundvallaratriði kennd
Ama Kristmundsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson
em reiðkennarar á námskeiðinu. Þetta er fjórða sumar-
ið, sem Ama kennir á reiðnámskeiði, en fyrsta sumar
Reiðkennarar
REIÐKENNARARNIR Arna Kristmundsdóttir og
Gunnar Már Gunnarsson hafa gaman af því að
kenna börnunum.
Gunnars. „Þetta er eitt af því alskemmtilegasta sem
ég hef gert. Við kennum krökkunum m.a. gmndvallar-
atriði í stjómun hesta og einnig umhirðu og umgengni
við þá,“ segir Gunnar.
Þau segja að börnunum sé skipt í hópa eftir getu
og því séu hestar valdir fyrir þau eftir því. Auk þess
fái þau lang mest út úr þvi að vera í réttum hópi.
Bömunum sé m.a. kennt að smala hestum, teyma þá,
leggja á og kemba.
Sumir koma aftur og aftur
Ama segir að síðasta dag námskeiðsins fái bömin
svo að ríða berbakt og þá sé einnig farið yfir hvað
þaú hafí lært á námskeiðinu. Hún segir að í lok nám-
skeiðsins sé greinilegt hversu mikið bömin hafí lært
og þau þori miklu meiru og séu ekki lengur hrædd í
kringum hesta.
Bæði Ama og Gunnar eru sammála því að þetta
sé skemmtilegt námskeið enda komi sumir aftur og
aftur á námskeiðið.
Enn eru tvö námskeið eftir í sumar og byijar það
fyrra mánudaginn, 26. júlí. Frekari upplýsingar er
hægt að fá hjá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavík-
ur, en að sögn aðstandenda er enn hægt að skrá böm
á námskeiðið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gaman á námskeiðinu
UNA Björk Jóhannsdóttir, Kristófer Svansson og Árni Þór Hös-
kuldsson með hestinn Þyril. Þeim þykir öllum mjög gaman á nám-
skeiðinu.
Komið úr reiðtúr
BORNIN voru ánægð þegar þau komu úr reiðtúrnum þó að þau
hefðu jafnvel viljað vera lengur í sól og blíðu.
Þetta er hörkuafsláttur - verð sem nær engri átt. Kjötið finnur þú í pokum í
frystiborðinu í Hagkaup. Hægt er að velja milli hefðbundinnar sögunar og grillsögunar
. . . meðan birgðir endast!
HAGKAUP
gœöi úrval þjónusta