Morgunblaðið - 22.07.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
Sumarleyfum bormanna í Vestfjarðagöngnm aflýst og vakt bætt við
Sprengt á ný
í göngunum
ísafirS““^
Vinna við jarðgangagerðina er nú að komast í fullan gang
aftur. Gerðar hafa verið tilraunir með bergþéttingu í Botnsdals-
göngunum, en ekki er gert ráð fyrir að unnið verði aftur í Breið-
dalsleggnum fyrr en seint í haust. Líklegt er talið að nægjanlegt
neysluvatn fáist úr göngunum fyrir ísfirðinga, þótt ekki sé talið
líklegt að hægt verði að sinna þeim málum fyrr en síðar. Nú
hefur verið ákveðið að bæta við mönnum svo hægt verði að vinna
viðstöðulaust í göngunum.
Undanfarið hefur verið unnið
við bergþéttingar í þeim hluta
ganganna sem unnin eru frá
Botnsdal í Súgandafirði. Þar voru
boraðar þijár 24 metra holur með
15 gráðu fráviksstefnu frá ganga-
stefnunni. Ef vatn kom úr þeim,
var steypu dælt inn í holumar
með miRlum þrýstingi (25 kíló á
fersentimetra) og þannig reynt
að fóðra hugsanlegar vatnsleiðir
í nágrenni borholunnar. Síðan
voru boraðar tvær holur í viðbót
á sama hátt og ef þar var enn
vatn var sprautað áfram. Að því
loknu voru boraðar og sprengdar
fjórar 4,5 metra færur í öngunum.
Nú í vikunni verður væntanlega
lokið við þessar prófanir og verður
þá tekin ákvörðun um framhaldið.
Einhver skoðanamunur er milli
Vegagerðarinar og verktakanna
um þörf á bergþéttingu. Að sögn
Bjöms Harðarsonar verkfræðings
Vegagerðarinnar yrði umtalsverð-
ur aukakostnaður af því að þétta
allan leka, en þétting gæti sparað
vinnu við lokaþéttingu eftirá við
vissar aðstæður.
Tafir verða unnar upp
Framkvæmdaaðilar virðast
vera ákveðnir í að ná upp þeim
töfum sem orðið hafa. Jóhann
Krauer hjá Vesturís segir að í
stað tveggja vinnuflokka, sem
tekið hafa frí með ákveðnu milli-
bili, verði bætt við þriðja flokknum
vinni viðstöðulaust í göngunum.
Öllum sumarleyfum sem áttu að
vera seinnipartinn í júlí hefur ver-
ið aflýst, en í staðinn vinna menn
daglega í hálfan mánuð, en eiga
svo frí í viku. Ef allt gengur eftir
áætlun ættu þeir að vera komnir
að hæsta punkti ganganna í nóv-
ember, en Jóhann vildi þó ekkert
um það segja hvort áætlun stæð-
ist. Þeir gera þó ráð fyrir að flytja
búnaðinn aftur yfír til ísafjarðar
þegar ófærðar fer að gæta á
Botnsheiði.
__ _ , _ __ Morgunblaðið/Úlfar
Vegagerð 1 Botnsdal
UNNIÐ við vegagerð í Botnsdal í Súgandafirði. Verið er að flytja
efni frá núverandi vegarstæði yfir í nýjan veg að jarðgangamunn-
anum sem sést i baksýn á myndinni.
Sérfræðingar em nú að meta
aðstæður í Breiðadalsgöngum þar
sem stóra vatnsæðin opnaðist, en
hún er í stærsta kortlagða mis-
genginu á svæðinu. Ekki er talið
líklegt að ámóta vatnsmagn komi
annars staðar á leiðinni, þótt ekk-
ert sé hægt um það að fullyrða,
en þama skiptast á misgengi og
berggangar, sem leiða vel vatn.
Ekkert lát á vatni
Ekkert lát virðist vera á vatns-
magninu í aðalæðinni, en holur á
næstu 50-100 metmm hafa að
mestu þomað. Að sögn Bjöms
Harðarsonar þarf að fara með
mikilli gát á svæðinu, því mögu-
leiki er á að þunnur bergveggur
skilji að göngin og vatnsæðina.
Þegar niðurstöður rannsóknanna
sem gerðar hafa verið liggja fyrir
verður tekist á við það, en nauð-
synlegt er að göngin verði tilbúin
til áframhaldandi vinnslu í nóvem-
ber. Hann telur líklegra að úr
göngunum fáist nægjanlegt
neysluvatn fýrir ísfirðinga um
fýrirsjáanlega framtíð. Þegar út
úr fjöllunum kemur gengur allt
vel. Unnið er að krafti við vega-
gerð í Botnsdal og vegskálagerð
í Breiðdal er á undan áætlun.
Úlfar
Mál Eðvalds
tekið upp
við Laar
SHIMON Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, tók upp ásakanir
á hendur Eðvald Hinrikssyni um
stríðsglæpi á fundi með Mart
Laar, forsætísráðherra Eist-
lands, í síðustu viku. Laar var þá
í opinberri heimsókn í ísrael.
í tilkynningu frá Simon Wiesen-
thal-stofnuninni í Jerúsalem segir
að Peres hafi farið fram á að um-
fangsmikil rannsókn á meintum
stríðglæpum Eðvalds gegn gyðing-
um yrði gerð í Eistlandi, með það
að markmiði að fá hann framseldan
og rétta yfir honum í Eistlandi.
í tilkynningunni kemur fram að
Laar hafí sagt að stjóm hans hafí
þegar sett af stað rannsókn á máli
Eðvalds. Fram hefur komið, að hún
hafí ekki staðfest ásakanir á hendur
honum. Laar er sagður hafa bætt
því við, að hann væri í sambandi
við Wiesenthal-stofnunina og hygð-
ist halda áfram samstarfí við hana.
Farið fram á framsal
Efraim Zuroff, forstöðumaður
Wiesenthal-stofnunarinnar, fór
fram á það við eistneska forsætis-
ráðherrann að hann ætti frumkvæði
að umfangsmikilli leit að fólkinu,
sem bar vitni gegn Eðvald í yfír-
heyrslum á sjöunda áratugnum.
Zuroff krafðist þess einnig í bréfi
að reynt yrði að fá Eðvald framseld-
an til Eistlands. „Það yrði táknrænt
með einstökum hætti; ef hann yrði
leiddur fyrir rétt í fæðingarlandi
sínu, landinu þar sem hann framdi
glæpi sína,“ segir í bréfí Zuroffs.
Fyrsta loðnan
til Grindavíkiu'
Grindavfk.
SUNNUBERG GK kom með 800 tonn af loðnu til Grindavíkur í
gærdag og hefur loðna ekki komið áður svo snemma á sumarvertíð.
Verðbreytingar
v. gengislaekkunarinnar
Gerber Verðið Verðið haskkar
bamamatur varkr. ernúkr. um
í 128 g
krukkum 46 50 8,7%
Barnamatur
hækkar um 8,7%
SEM dæmi um hækkun vegna ný-
legrar gengisfellingar má nefna að
Gerber bamamatur í 128 g krukkum,
sem áður kostaði 46 krónur, kostar
nú 50 krónur. Þetta er um 8,7%
hækkun.
Að sögn Jóns Péturssonar hjá
Fiskimjöl og lýsi hefur loðna ekki
borist til Grindavíkur í júlí áður.
Það tók Sunnuberg um 40 tíma að
sigla af loðnumiðunum út af Norð-
urlandi. „Við keyptum þessi skip
Sunnuberg og Háberg á sínum tíma
til þess að sigla með loðnu hingað
í þeim tilgangi að skapa vinnu við
verksmiðjuna hér í Grindavík. Við
emm með stóran kvóta og ætlum
okkur að vinna úr honum hér.
Sunnuberg stoppar í 4 sólarhringa
og við eigum von á Hábergi um
helgina. Skipin halda síðan bæði á
veiðar um næstu helgi og verða að
veiðum," sagði Jón við Morgunblað-
ið.
Loðnan var nokkuð góð þrátt
fyrir átu í henni og góð til vinnslu.
Rjómablíða var á heimsiglingunni
sem minnkar velting og fer betur
með hráefnið. „,
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Með sumarloðnu
ÍVAR Þórarinsson skipveiji á
Sunnubergi GK með sumarloðnu
sem kom tíl Grindavíkur í gær-
dag en loðna hefur ekki komið
svo snemma þanngað áður.
Veiöa, íd“&
Jónatan Sigtryggsson í Stykkis-
hólmi datt í lukkupottinn þegar
hann veiddi tvær risalúður á þrem-
ur tímum 16
Reiðnámskeið___________________
Börnin á reiðnámskeiði ÍTR fá
bæði aimenna fræðslu um hesta
og fara í reiðtúra 17
Jöfnunargjald__________________
120 króna jöfnunargjald á kíló af
dönsku smjörlíki sem kostar 60
krónur komið til landsins 26
Leiðarí
Fiskvernd eða rányrkja við Sval-
barða 22
ViÖskipti/A tvinnulíf
► Útflutningur á eggjabökkum -
Þróun á hlutabréfamarkaðnum -
Fjármál á fimmtudegi - Lækkar
Verð á fasteignum? - Breytingar
í tölvuheiminum - Fólk
Dagskrá
► Tólf ára sjónvarpsfréttakona
- Kaupir Bill Cosby NBC? - Risa-
eðlufár - Bandarískir framleið-
endur og kanadískt sjónvarpsefni
- Bíóin í borginni - Myndbönd
Meint kynferðisafbrot gegn bömum
Héraðsdómur
vísar frá ákæru
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur visað frá ákæru rikissaksókn-
ara á hendur fötluðum manni fyrir kynferðisafbrot gegn ungum
börnum. Ákæran var gefin út í síðustu viku í kjölfar blaðaskrifa
um málið, en áður hafði rikissaksóknari ákveðið að fresta ákæru á
hendur umræddum manni skilorðsbundið í þijú ár. Ríkissaksóknari
hefur kært úrskurð héraðsdóms tíl Hæstaréttar, sem nú hefur mál-
ið tíl meðferðar.
Þann 17. mars sl. ákvað embætti
ríkissaksóknara að fresta ákæru
skilorðsbundið í 3 ár á hendur mann-
inum fyrir kynferðisafbrot. Var það
mat ákæruvalds eins og málsatvik-
um og högum mannsins væri háttað
að lagaskilyrði væru til slíkrar frest-
unar, en maðurinn er öryrki, mikið
fatlaður og bundinn hjólastól. í kjöl-
far blaðaskrifa um málið varð það
að ráði að embætti ríkissaksóknara
tók málið upp aftur og gaf út ákæru
á hendur manninum og var það gert
14. júlí sl. Hagsmunir sakbomings
standi til þess að málið fái meðferð
og dómur gangi um ætlaðar sakir
hans.
Fram kom í tilkynningu frá ríkis-
saksóknara, sem birt var í heild í
Morgunblaðinu 15. júlí sl., að eftir
að málið væri komið í svo almenna
umfjöllun eigi hvorki ákæruvald né
sakbomingur þess kost á vettvangi
opinberrar umræðu að koma fram
viðhlítandi leiðréttingum á málsat-
vikum og staðreyndum málsins
nema það verði rekið fyrir dómstól-
um. Það kom ennfremur fram í til-
kynningu ríkissaksóknara að í um-
fjöllun um málið í blöðum hafí máls-
atvik verið afflutt og í verulegum
atriðum ekki verið í samræmi við
það sem fyrir liggur í skjölum máls-
ins.
Ekki brotið skilorð
í úrskurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur, sem kveðinn var upp 19. júlí sl.,
er ákæru ríkissaksóknara frá 14.
júlí vísað frá. Er það ggrt á grund-
velli þess að ákæru á hendur sak-
borningi hafi verið frestað skilorðs-
bundið í 3 ár hinn 17 mars sl. og
til ákæru komi ekki nema sá sem í
hlut eigi standist ekki þau skilyrði
sem honum eru sett eða út af nýju
broti. Svo sé ekki í þessu máli.
Akærufrestun úr gildi fallin
Ríkissaksóknari hefur kært þenn-
an úrskurð til Hæstaréttar. Eru
dómkröfur ákæruvaldsins þær að
hinn kærði úrskurður verði úr gildi
felldur og héraðsdómara verði skylt
að gefa út fyrirkall á hendur ákærða
á grundvelli ákærunnar frá 14. júlí
enda hafí með henni ákærufrestunin
frá 17. mars verið felld úr gildi.
-----»■ ♦ ♦--- .
Akraneskaupstaður
Vilja skerf af
milljarðinum
INGVAR Ingvarsson, bæjarfull-
trúi á Akranesi, segir bæjaryfir-
völd á staðnum óánægð með að
fá ekki skerf af þeim milljarði
króna sem ríkisstjórnin ætlar til
atvinnuuppbyggingar víða um
land. Hann segir að atvinnuleysi
á Akranesi sé nú 6,6%.
„Akureyrarbær hefur kvartað
undan því að fá ekki nægilega stór-
an skerf af þessum milljarði sem
nú er verið að deila út til atvinnu-
uppbyggingar. Okkur er hins vegar
ekki ætluð króna,“ segir Ingvar.
Ipgvar segir að bæjarráð muni
óska eftir fundi með þingmönnum
kjördæmisins vegna málsins.