Morgunblaðið - 22.07.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
Gjaldtaka hefst í Fjölskyldugarðinum í Laugardal næstkomandi sunnudag
100.000 manns
komið í garðana
MIKIL aðsókn hefur verið að Fjölskyldugarðinum og Húsdýragarð-
inurn í Laugardal og að sögn Tómasar Guðjónssonar forstöðumanns
garðanna hafa tæplega 100 þúsund manns heimsótt þá í sumar.
Frá og með sunnudeginum 25.
júlí hefst gjaldtaka í Fjölskyldu-
garðinum. Börn undir fimm ára
aldri fá ókeypis aðgang, böm yngri
en 13 ára þurfa að greiða 250 kr.
og aðgangur fyrir 13 ára og eldri
er 450 kr. Tómas Guðjónsson for-
stöðumaður telur að ekki muni
draga úr aðsókn að garðinum
vegna gjaldtökunnar heldur komi
annar blær á starfsemina.
Aðgöngumiðinn að Fjölskyldu-
garðinum gildir einnig að Húsdýra-
garðinum. Ókeypis er í öll leiktæki
og öll þjónusta, nema veitingar, er
ókeypis.
Annar blær
Tómas telur að ekki muni draga
mikið úr aðsókninni við gjaldtök-
una en annar blær verði á starf-
seminni á eftir og muni fjölskyldu-
fólk njóta sín betur þar. Hann seg-
ir að Fjölskyldugarðurinn sé ákjós-
anlegur útivistarstaður fyrir fólk
með börn og þar sé boðið uppá
ýmsa afþreyingu sem hafí fræðslu-
gildi. í því sambandi má nefna
umferðarfræðslubraut með raf-
magnsbílum, torfærubílabraut
með bensínknúnum bílum, hjóla-
braut og gröfur. Einnig fjarstýrða
báta, minigolf o.fl. Húsdýragarð-
urinn er opinn á sama tíma og þar
má hlýða á fyrirlestra um dýrin
og sögu þeirra.
Fjölskyldugarðurinn í Laugardal
er opinn alla daga frá kl. 10 til 21
í júní, júlí og ágúst en Húsdýra-
garðurinn er opinn allt árið.
Fjör í Fjölskyldugarði
MIKIL aðsókn hefur verið að Fjölskyldugarðinum í Laugardal í sumar, einkum um helgar.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 22.
YFIRLIT: Um 600 km suðsuðvestur af landinu er heldur vaxandi 1.006
mb lægð sem hreyfist lítið. Skammt austur af Færeyjum er 1.009 mb
læað á austurleið. Yfir Grænlandi er 1.023 mb hæð.
8PA: Austan- og norðaustanátt, gola eða kaldi víðast hvar. Búast má
við súld eða rigningu með köflum suðaustan- og austanlands. Á Vest-
fjörðum verður líklega skýjað með köflum og að mestu þurrt. í öðrum
landshlutum verður skýjað að mestu og skúrir, einkum síðdegis. Hiti
veröur á bilinu 6-14 stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustlæg
eða norðlæg átt, víðast fremur hæg á föstudag en heldur vaxandi vindur
á laugardag. Skýjað, dálítil rigning eða súld öðru hverju og 5-9 stiga
hiti norðanlands og austan en nokkuö bjart veður og 11-16 stiga hiti
sunnanlands og vestan.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Hægviðri en víðast skýjað. Hiti 8 til 12 stig.
Nýir veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Q
Heiðskírt
/ / /
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
&
Skýjað
V Ý
Alskýjað
*
V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörimar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.(
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
5«g-,
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 tgær)
Greiðfært er um þjóðvegi landsins og flestir hálendisvegir orðnir færir
fjallabílum. Þó er enn ófært um Syðra-Fjallabak og um Nyrðra-Fjallabak
milli Landmannalauga og Eldgjár, Gæsavatnaleið og leiðirnar frá Sprengi-
sandi til Skagafjarðar og Eyjafjarðar eru ófærar. Einnig er leiðin lokuð
um Stórasand og um línuveginn við Hlöðufell. Víða er unnið við vega-
gerö og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir aö virða þær merkingar
sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR 1/ÍÐA UM HEIM
kt. 12.00 í gær að ísl. tfma
hiti veóur
Akureyri 10 alskýjað
Reykjavfk 13 skýjað
Bergen 13 alskýjað
Helsinki 21 skýjað
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Narssarssuaq 12 skýjað
Nuuk 9 léttskýjað
Osló 19 rigning
Stokkhólmur 16 rígning
Þórahðfn 10 alskýjað
Algarve 28 helðekfrt
Amsterdam 16 þrumuveður
Barcelona 24 hálfskýjað
Berlín 16 skýjað
Chicago 19 skýjað
Feneyjar 27 hálfskýjað
Frankfurt 18 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 15 skúrásfð. klst.
London 17 skýjað
LosAngeles 20 alskýjað
Lúxemborg 15 skúrásíð. klst.
Madrid 25 heiðskírt
Malaga skýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork 22 hálfskýjað
Orlando vantar
Parfs 17 skýjað
Madelra 22 skýjað
Róm 24 léttskýjað
Vín 22 hálfskýjað
Washlngton vantar
Winnípeg 14 skýjað
I DAG kl. 12.00
Heimítd: Veðurstofa Islaods
(Byggt á veöurapé kl. 16.181 gœr)
Dauðir kettir fundust í töskum
Lögreglan mun
rannsaka málið
SAMBAND dýraverndarfélaga íslands hefur sent lögreglustjóra bréf
þar sem þess er farið á leit að kattahræ sem fundust í töskum við
Nesjavallaveg um helgina verði tafarlaust grafin upp og krufin og
þannig komist að dánarorsök kattanna. Jórunn Sörensen, formaður
Sambands dýraverndarfélaga íslands, segir að hún vilji komast að
því hvort lög um dýravernd hafi verið brotin.
í bréfínu er því beint til lögreglu
að töskunum, sem dauðu kettirnir
fundust í, verði haldið til haga og
birtar af þeim myndir og nákvæmar
lýsingar svo hægt sé að hafa upp
á eigendum þeirra. Þá segir að ef
það komi í ljós að dýrin hafi drep-
ist með voveiflegum hætti verði að
finna þann, sem hlut eigi að máli,
og kæra og dæma fyrir brot á lög-
um um dýravernd.
Slæm meðferð á köttum
Jórunn segir að almennt séu kett-
ir meðhöndlaðir eins og þeir séu
lítils virði. „Margir kattaeigendur
hringja í okkur og kvarta yfir því
að nágrannar hafí misþyrmt eða
jafnvel drepið kettina þeirra. Til
dæmis hefur sjóðandi vatni verið
hellt yfír kött þannig að hann
stórskaðaðist," segir Jórunn.
Hún segir að alltof margir kettl-
ingar fæðist árlega hér á landi og
á Norðurlöndunum hafí rannsóknir
sýnt að níu af hveijum tíu kettling-
um nái ekki að verða fullorðnir.
Ástandið sé alls ekki betra hérlend-
is og íslendingar eigi langt í land
með að sjá vel um kettina sína.
Jórunn segir að ef krufning leiði
í ljós ólöglega meðferð á dýrunum,
vonist hún til þess að þeir, sem
beri ábyrgð á þessu, fínnist og verði
dæmdir fyrir brot sín.
Málið verður rannsakað
Friðrik Gunnarsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn, segir að lögreglan
ætli að gera allt sem hægt sé til
að komast til botns í þessu máli.
„Það er engin spurning að málið
verður rannsakað eins og við höfum
tök á.“
Tilmæli vegna tyrkneska forræðismálsins
Svars að vænta frá
Tyrkjum eftír mánuð
TILMÆLUM íslenskra yfírvalda til tyrkneskra yfirvalda vegna tafa
á málarekstri í forræðismáli Sophiu Hansen í Tyrklandi verður svar-
að eftir u.þ.b. mánuð að sögn Mete Inanc deildarstjóra í tyrkneska
utanrikisráðuneytinu í Ankara.
„Við tókum á móti tilmælum frá
íslenska sendiráðinu í Kaupmanna-
höfn vegna málsins í síðustu viku.
Þeim höfum við komið til dóms-
málaráðuneytisins og bíðum eftir
svari þaðan,“ sagði Inanc þegar
rætt var við hann í gær.
Ekki langur tími
Þegar hann var spurður hvenær
svars væri að vænta sagði hann að
gera þyrfti ráð fyrir bréfaskriftum
dómsmálaráðuneytisins til yfírvalda
í Istanbúl og því væri vart hægt
að búast við svari fyrr en eftir u.þ.b.
einn mánuð. Hann sagði að eins
mánaðar bið væri ekki langur tími
þegar tekið væri tillit til þess að
aðalsumarleyfistíminn væri nú í
Tyrklandi.
Inanc sagðist aðeins hafa orðið
var við ein tilmæli frá íslenskum
yfirvöldum en þau átti að ítreka í
byrjun þessarar viku.
-----» ♦ ♦--
F-15þotaíað-
flugsæfingu
EIN af F-15 þotum Varnarliðsins
æfði aðflug yfir Reykjavíkur-
flugvelli í gærmorgun. Um var
að ræða hefðbundna æfíngu sem
tekin er nokkrum sinnum á ári.
Margir borgarbúar urðu þotunn-
ar varir enda sýndi flugmaður henn-
ar ýmsar Iistir eins og að fljúga
þotunni á hvolfi. Samkvæmt upp-
lýsingum frá flugstjóm tók þotan
tvö aðflug að vellinum en hélt síðan
aftur til Keflavíkur.