Morgunblaðið - 22.07.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JULI 1993
Morgunblaðið/Einar Falur
Ludvig Gosevitz
• •
Onnur hæð
Sýning Lud-
vigs Gosec-
itz opnuð
SÝNING á verkum þýska mynd-
listarmannsins Ludvigs Gosevitz
hefur verið opnuð í sýningarsaln-
um Annarri hæð. Sýninguna kall-
ar listamaðurinn „Þrjár konur,
þijú börn, þrjá handskrifaða
texta og röð af rauðu gleri“.
Ludvig Gosevitz fæddist í
Naumburg árið 1936. Hann nam
tónlist í Darmstadt og síðar sagn-
fræði, tónlistarsögu og heimspeki í
Frankfurt. Síðustu tvo áratugi hef-
ur hann sýnt myndverk sín víðs
vegar um Evrópu, iðulega ásamt
meðlimum Fluxus-hreyfingarinnar.
í dag er Gosevitz prófesor við gler-
listadeild Listaakademíunnar í
Miinchen.
Sýningarsalurinn Önnur hæð er
á Laugarvegi 37 og er opinn á
miðvikudögum frá 14 til 18, eða
eftir samkomulagi.
Gallerí Úmbra
Myndir af
íslensk-
um hestum
í dag, fimmtudaginn 22. júlí,
opnar sænski ljósmyndarinn Tor-
leif Svensson sýningu sína í Gall-
erí Úmbru á Bernhöftstorfu sem
hann kaliar Ljósmyndun/Plexi-
gler.
Torleif starfar sem ljósmyndari
og listamaður í Stokkhólmi og hef-
ur haldið fjölda sýninga frá 1986 í
Svíþjóð, Hollandi og Bandaríkjun-
um. Síðast sýndi hann fyrr á þessu
ári í Gallery L’Atalier í New York.
Myndimar á sýningunni eru ný-
legar ljósmyndir að grunni til, en
unnar með ýmiss konar tækni á
mismunandi efni. Myndefnið er að
uppistöðu til íslenskir hestar. Sýn-
ingin stendur til 8. ágúst. Galleríið
er opið þriðjudaga til laugardaga
klukkan 13-18 og sunnudaga kl.
14-18, en lokað á mánudögum.
-----♦ ♦ ♦----
Borgarnes
Jórunn Sturlu-
dóttir sýnir
DAGANA 18.-26. júlí, að 24. júlí
frátöldum, sýnir myndlistarkonan
Hanna Jórunn Sturludóttir blý-
ants- og tússteikningar í Fé-
lagsbæ, Borgarnesi, á milli kl. 15
og 19.
Hanna Jórunn hefur áður haldið
einkasýningar í Borgarnesi, í Fær-
eyjum, á Isafirði, í Keflavík og
Reykjavík.
Hanna Jórunn fæddist 17. sept-
ember 1955 og er að mestu sjálf-
menntuð, að undanskildum nám-
skeiðum í Myndlista- og handíðaskó-
lanum.
Reykjavík
í fortíð
og nútíð
FIMMTUDAGINN 22. júlí kl. 20.00
heldur Kristín Bjarnadóttir sagn-
fræðingur fyrirlestur á sænsku í
Norræna húsinu og nefnir hann
„Reykjavik förr och nu“.
Þar rekur hún sögu Reykjavíkur,
þróun hennar úr bæ í borg og sýnir
litskyggnur.
Eftir kaffihlé verður sýnd kvik-
mynd um Reykjavík og er hún með
norsku tali.
Bókasafn og Kaffistofa Norræna
hússins em opin tii kl. 22.00. í kaffi-
stofu verður íslensk kjötsúpa á boð-
stólum.
Allir em hjartanlega velkomnir á
Ein ljósmynda Torleifs Svenssons. íslandskvöldið.
Sumartónleikar á Norðurlandi 1993
Leikur á flautu o g sembal
FJÓRÐA tónleikaröð Sumartónleika á Norðurlandi verður í Húsavík-
urkirkju 23. júlí kl. 20.30, Reykjahlíðarkirkju 24. júlí kl. 21.00 og
Akureyrarkirkju 25. júlí kl. 17.00.
Flytjendur eru Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Guðrún Óskars-
dóttir semballeikari og leika þau verk eftir J.S. Bach, L. Couperin
og K. Lechner.
Guðrún Óskarsdóttir lærði á
píanó í Tónlistarskóla Hafnarfjarð-
ar og síðar í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og lauk þaðan píanó-
kennaraprófi vorið 1986. Guðrún
hóf sembalnám hjá Helgu Ingólfs-
dóttur árið 1987 en í ársbyijun
1988 lá leiðin til Amsterdam þar
sem hún nam semballeik. Guðrún
bjó í tvö ár í Basel í Sviss og stund-
aði nám í kammermúsík hjá Jesper
Böge Christensen og sótti jafnframt
tíma hjá Francoise Lengellé í París.
Guðrún hefur tekið þátt í tón-
leikahaldi á íslandi, m.a. á Sumar-
tónleikum í Skálholti, Sumartón-
leikum á Norðurlandi og nýlokinni
Alþjóðlegri Listahátíð í Hafnarfirði.
Kolbeinn Bjarnason lærði á
flautu í Tónlistarskólanum í Reykja-
vík og lauk þaðan burtfararprófi
árið 1979. Síðan var hann hjá
Manuelu Wiesler í nokkur ár en
lærði líka hjá ýmsum kennurum
austan hafs og vestan.
Hann hefur haldið fjölda tónleika
á íslandi, m.a. á Myrkum Músíkdög-
um, Listahátíð í Reykjavík, Sumar-
tónleikum í Skálholti, Sumartón-
leikum á Norðurlandi, Alþjóðlegri
Listahátíð í Hafnarfirði og einnig í
N-Ameríku og mörgum Evrópu-
löndum.
Kolbeinn hefur einbeitt sér að
flutningi samtímatónlistar og frum-
flutt fjölda tónverka, en hefur jafn-
framt fengist talsvert við barokk-
flautuleik. Hann er einn stofnenda
Caput-hópsins.
Kolbeinnog Guðrún héldu sína
fyrstu sameiginlegu tónleika í des-
ember 1989 og hafa síðan leikið
saman á fjölda tónleika á íslandi,
Hollandi, Sviss og Þýskalandi.
Ókeypis aðgangur er að Sumar-
tónleikunum en tekið er við ftjálsum
framlögum til styrktar tónleikunum
við kirkjudyr.
Vantar ykkur notaðan bfl
á góðu verði fyrir sumarið?
RENAULT 19 TXE
1991, ek. 20 þús., toppeintak.
Kr. 960.000.
BMW318Í
1989, vökvastýri,
ek. aðeins 54 þús. Kr. 1.080.000.
Þessir bílar eru á tilboðsverði!
SUBARU JUSTY 1987,
sóllúga, ek. 93 þús. Kr. 370.000,
TILBOÐ kr. 330.000.
stgrverð
970.000,
270.000,
280.000,
580.000,
750.000,
370.000,
890.000,
370.000,
300.000,
980.000,
620.000,
tilboðsverð
590.000,-
195.000,-
220.000,-
530.000,-
690.000,-
330.000.-
585.000.-
270.000,-
190.000.-
790.000,-
470.000,-
Tilboðslisti
MMC GALANT
LANCIA Y-10
LADA SAMARA
BMW316
NISSAN PRAIRIE
PEUGEOT 309
BMW 520ÍA
HONDA CIVIC SJÁLFSK.
FORD SIERRA
MMC PAJERO DIESEL
BMW 318ÍA
WÆ
SUZUKI CARRY
1986, ek. 60 þús. Kr. 180.000.
Bflaumboðið hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633
Beinn símí í söludeild notaðra bíla er 676833. Opíð: Vírka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 13-17.
Engin útboröun - Visa og Euro raðgreiðslur
Skuldabréf til allt að 36 mánaða