Morgunblaðið - 22.07.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
Samningur borgar við verkalýðsfélög
1.000 fleiri nemum
tryggð simiarvimia
MEÐ samningum sem Reykjavíkurborg gerði við verkalýðsfélögin
Dagsbrún og Framsókn í vor hefur tekist að útvega hátt í 1.000 nem-
endum vinnu í sumar umfram það sem ella hefði tekist. í heild hefur
Reykjavíkurborg ráðið 5.000 nemendur til vinnu í sumar. Að sögn
Péturs Kr. Péturssonar, starfsmannastjóra hjá Borgarverkfræðingi,
gekk borgin til samninga við Dagsbrún og Framsókn um að skera
niður ýmsa kostnaðarliði og beina fjármagninu heldur í að skapa sem
flestum vinnu. Stærstu liðirnir voru, að hans sögn, matarkostnaður og
yfirvinna.
Að sögn Péturs var kostnaður
Reykjavíkurborgar af hverri máltíð
starfsmanna 360 krónur. „Þegar við
sáum að við yrðum hér með þúsund-
ir atvinnulausra unglinga í sumar
sömdum við um það við Dagsbrún
og Framsókn að skera þennan kostn-
að niður og skerða jafnframt vinnu-
tíma hvers og eins til að koma sem
flestum að,“ segir Pétur.
Reykjavíkurborgar. Auk þess hefur
borgin ráðið á þriðja hundrað ófag-
lærðs verkafólks af atvinnuleysis-
skrá.
Guðmundur J. Guðmundsson lýsti
í samtali við Morgunblaðið í gær
jrfír mikilli ánægju með samstarfíð
milli Dagsbrúnar og Reykjavíkur-
borgar.
Veiddi tvær risalúður á þremur tímum við Bjarneyjar
Gapandi
af undrun
80 þúsund
tonn kom-
in á land
UM ÁTTATÍU þúsund tonn af
loðnu hafa borist á land á vertíð-
inni. Löndunarbið er á öllum
höfnum norð-austanlands og
sigla skipin nú á hafnir á Suður-
landi og Vestfjörðum. Töluverð
áta er enn í loðnunni og gæta
verksmiðjurnar þess að safna
ekki birgðum, þar sem loðna með
mikilli átu rýrnar fljótt.
Kap VE4 landaði 700 tonnum
af loðnu á Siglufirði í gær. Að sögn
Ólafs Einarssonar skipstjóra er
löndunarbið þar. Bátarnir verða svo
að bíða um sólarhring eftir löndun
því verksmiðjurnar safna ekki
birgðum vegna átunnar. Ólafur
sagðist hafa frétt af sæmilegriveiði
af miðunum.
Landað víðar
Höfrungur sigldi með 800 tonn
af loðnu til Bolungavíkur í gær og
er það fyrsta loðnan sem þangað
berst. Sunnuberg og Háberg sigldu
til Grindavíkur og verða það fyrstu
loðnulandanir þar á vertíðinni. Þá
er bátur væntanlegur til Hafnar í
Homafirði með loðnu. Ráðgert er
að hefja loðnumóttöku á Reyðar-
firði eftir mánaðamót og í Vest-
mannaeyjum um miðjan ágúst.
Heildarloðnukvótinn á vertíðinni
er 702.000 tonn og á því eftir að
veiða um 622.000 tonn. Sjómenn
eru sæmilega bjartsýnir á að vertíð-
in muni ganga vel þegar átan
minnkar í loðnunni.
JÓNATAN Sigtryggsson trillu-
karl í Stykkishólmi datt heldur
betur í lukkupottinn á mánudag-
inn var er hann var við veiðar
norðan Bjameyja. Hann tók þá
inn tvær risalúður á aðeins
þremur tímum, sem hvor um sig
reyndist vega yfír hundrað kíló.
„Það kom mér í sjálfu sér ekk-
ert á óvart þegar ég veiddi fyrri
lúðuna en þegar sú seinni tók á
stóð ég gapandi af undrun,“ sagði
Jónatan sem neyddist til að kalla
eftir aðstoð til að innbyrða stór-
fískana. „Ég barðist við hvora um
sig í yfír klukkutíma áður en þær
gáfust loks upp.“ Jónatan fékk
stórlúðumar með mjög stuttu
millibilí og hafði honum aðeins
gefíst tími til að skipta um slóða
og renna fyrir, þegar sú seinni
gleypti krókinn.
Besta skemmtun
Að sögn Jónatans var mikið um
stóra lúðu á svæðinu í kringum
eyjamar en að sögn hans haldi
þær sig í mikium fjölda á Breiða-
firðinum. Hann segir stórstreymi
hafa verið á þeim tíma er hann
var við veiðar en þær aðstæður
séu ákaflega heppilegar við lúðu-
veiðar. Jónatan sagði þessar veið-
ar ekki gefa mikið af sér því jafn-
an fáist lítið fyrir stórar lúður.
„Þetta var aftur á móti hin besta
skemmtun," sagði hann að end-
ingu.
Gengið ótrúlega vel
Hann segir að unglingamir vinni
6 stundir og fái vaktaálag á þann
tíma sem falli utan venjulegs dagvin-
nutíma. „Síðan fá þau kaupauka sem
nægir til að hífa byijunarlaun upp í
lágmarkslaun. Takmarkið með þessu
var að tryggja þeim lágmarkslaunin
en haga vinnutímanum þannig að
við kæmum sem flestum í vinnu,“
segir Pétur. „Þetta hefur gengið
ótrúlega vel. Félögin mátu það eins
og við að peningunum yrði betur
varið með þessum hætti og bæði
böm og foreldrar hafa sýnt því skiln-
ing að það þurfi að skerða ákveðna
hluti til að koma sem flestum að.“
Af þeim 5.000 nemendum sem
borgin hefur ráðið í sumarstörf starfa
um 2.000 manns hjá Vinnuskóla
Hitaveita Reykjavíkur kaupir eignarhlut Kópavogs í veitunni
Yeitur Mosfellsbæjar og Sel-
tjamamess enn sjálfstæðar
MEÐ kaupum Hitaveitu Reykjavíkur á eign-
arhlut Kópavogs í veitunni hafa Reykvíking-
ar eignast allar hitaveitur nágrannasveitar-
félaganna ef undan eru skildar Hitaveita
Mosfellsbæjar og Hitaveita Seltjarnarness.
Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri á ekki von
á fleiri veitur verði keyptar.
Um síðustu áramót keypti Hitaveita Reykja-
víkur Bessastaðaveitu og Kjalamesveitu í fyira
og sagði Gunnar að þær veitur hafí verið lengra
á veg komnar miðað við Hitaveitu Kópavogs
þegar samið var um kaup á þeim. í Hafnarfírði
og Garðabæ hafi verið búið að koma upp nokkr-
um fjarvarmaveitum sem kyntar vom með olíu
þar til Hitaveita Reylq'avíkur keypti veitumar
og tók við rekstrinum fyrir nokkrum árum.
Smáveitur
í Kópavogi voru litlar smáveitur sem reknar
höfðu verið í nokkur ár með vatni frá Hitaveitu
Reykjavíkur þar til samið var sameiningu árið
1973.
„Þá var þeirra veita gerð upp sem framlag
og eignarhluti í Hitaveitu Reykjavíkur sem síðan
hefur vaxið,“ sagði Gunnar. Upphaflega var um
0,29% eignarhlut að ræða sem varð að rúmlega
1,9% 20 árum síðar. Sagði Gunnar að samning-
ur um sölu hefði verið flókinn og tekið langan
tíma að komast að niðurstöðu. í fyrstu hafí
ekki verið áhugi á kaupunum, hann hafí vaknað
síðar.
„Með þessum kaupum á Hitaveita Reykjavík-
ur allar veitur í nágrannasveitarfélögunum,
nema í Mosfellsbæ og á Seltjamamesi og ég
reikna ekki með að þær séu til sölu,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Mikíll fengnr
ÞESSAR myndarlegu lúður fékk Jónatan Sigtryggsson trillukarl
á krók rétt norðan við Bjarneyjar á Breiðafirði.
Uppboð
tUstyrktar
Sophiu
KVENNAKLÚBBUR Hafnar-
fjarðar ætlar að styrkja mála-
rekstur Sophiu Hansen í Tyrk-
landi með því að efna til uppboðs
á óséðum vinningum á veitinga-
húsinu A. Hansen í Hafnarfírði á
föstudag. Fjölbreytt dagskrá
verður í húsinu frá kl. 21 en sjálft
uppboðið hefst kl. 23.
Sigríður Ævarsdóttir, formaður
klúbbsins, sagði að hugmyndin fæl-
ist í því að áhorfendur, karlar og
konur, byðu í númer sem nokkrar
konur og karlar héldu á. Að baki
númeranna væri svo óséður vinning-
ur. Nefndi hún sem dæmi þriggja
daga utanlandsferð til Edinborgar,
hótelgistingu á Hótel Borg, flugferð
innanlands, fata- og ferðaúttektir.
Rósa Ingólfsdóttir verður kynnir
á uppboðinu en á því verður einnig
tekið á móti beinum fjárframlögum
til málareksturs Sophiu. Tilboðum
er hægt að koma á framfæri í gegn-
um síma.
Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogs
Skuldastaða bæjar-
ins batnar verulega
MEÐ SÖLU Kópavogsbæjar á tæplega 2% eignarhlut í Hitaveitu
Réykjavíkur fyrir 300 milljónir króna, verða nettóskuldir bæjarins
komnar í rúma 1,2 miRjarða og brúttóskuldir verða 2,4 milfjarðar.
Skatttekjur bæjarfélagsins eru 1,6 miHjarðar þannig að skuldastaða
bæjarins batnar verulega með þessari aðgerð, að sögn Gunnars
Birgissonar formanns bæjarráðs Kópavogs. Að auki lækka vaxta-
greiðslur bæjarins um 30 milljónir miðað við 10% raunvexti. Salan
hefur engin áhrif á neytendur því þeir fá áfram heitt vatn á sama
verði og aðrir viðskiptavinir Hitaveitu Reykjavíkur.
Fjarvarmaveita
Árið 1972 var gerður samningur
milli Hitaveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Kópavogs um yfírtöku
Hitaveitu Reykjavíkur á fjarvarma-
veitu sem var til staðar í Kópa-
vogi. Samningurinn var gerður í
framhaldi af stækkun á dreifíkerfí
Hitaveitu Reykjavíkur yfir í Kópa-
vog, Garðabæ og til Hafnaríjarðar.
Sagði Gunnar að mismunur á mati
fl'arvarmaveitunnar og skuldum
hennar hafi þá verið breytt í eignar-
hluta Hitaveitu Kópavogs í Hita-
veitu Reykjavíkur auk þess sem
samningurinn gerði ráð fyrir að ef
hreinn hagnaður veitunnar yrði
meiri en 7% á ári, þá bar Hitaveitu
Reykjavíkur annaðhvort að greiða
út hlut Kópavogs eða auka eignar-
hlutann.
„Þannig að því meir sem hagnað-
urinn varð þeim mun meiri hlut-
deild,“ sagði Gunnar. „Við áttum
því láni að fagna að það var vinstri
stjóm í Reykjavík frá árinu 1978
til 1982, sem píndi orkuverð niður
úr öllu valdi. Það varð svo að
hækka verðið þegar aftur kom rétt
stjórn til valda í Reykjavík. Eignar-
hluti Kópavogs myndaðist því mest
á árunum 1983, 1984 og 1987.“
Gunnar segir, að það hafí verið
ákvörðun meirihluta bæjarstjómar
Kópavogs að selja eignarhlut Kópa-
vogs. „Við teljum þetta ekki vera
fjárfestingu sem skilar miklum
arði,“ sagði hann. „Arður á síðasta
ári var 5,6 milljónir króna og við
teljum að þetta sé fjárfesting sem
ómögulegt er að liggi inni í banka
á lágum vöxtum.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gunnar Birgisson.
Velvild
Kópavogur óskaði eftir að kaup-
in færu fram og sagði Gunnar að
Reykvíkingar hefðu sýnt mikla vel-
vild þar sem samningurinn skyldaði
Hitaveitu Reykjavíkur ekki til að
kaupa eignarhlutann. Öll samskipti
einkenndust af trausti og heiðar-
leika og sagði hann að orð hefðu
alltaf staðið.