Morgunblaðið - 22.07.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JULI 1993
Larosiere
líklegur arf-
taki Attali
VESTRÆNIR stjórnarerindrek-
ar sögðu í gær líklegast að
Jacques de Larosiere, seðla-
bankastjóri Frakklands, yrði
valinn nýr bankastjóri Evrópu-
bankans í stað Jacques Attali
sem fór úr starfi með skömm.
Henning Christophersen, full-
trúi Dana í framkvæmdastjórn
EB, og Leszek Balcerowicz,
fyrrum fjármálaráðherra Pól-
lands, höfðu einnig verið til-
nefndir í gær.
Ráðgjafi
Clintons stytt-
ir sér aldur
VINCENT Foster yngri, aðstoð-
ar lögfræðiráðgjafi Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta og náinn
vinur forsetahjónanna um ára-
tuga skeið, fannst látinn í garði
skammt frá Fairfax í Virginíu-
ríki í fyrrakvöld og var talið að
hann hefði framið sjálfsmorð.
Engin ástæða fyrir sjálfsvíginu
hefur komið fram. Foster var
48 ára, fæddur og uppalinn í
bænum Hope í Arkansas, fæð-
ingarstað Clintons.
Thatcher
heiðruð í
Moskvu
MARGARET Thatcher fyrrum
forsætisráðherra Bretlands
verður sæmd heiðursdoktors-
nafnbót við Mendelejev-háskól-
ann í Moskvu í dag. Skólinn er
kunnur fyrir rannsóknir á sviði
efnafræði en Thatcher nam þau
fræði á sínum tíma.
Metverð fyrir
bókarhandrit
UNIVERSAL Pictures kvik-
myndafyrirtækið hefur keypt
útgáfurétt að næstu bók met-
söluhöfundarins Johns Gris-
hams fyrir 3,75 milljónir dollara
(260 milljónir króna). Bókin,
sem Grisham er ekki byijaður
að skrifa, verður glæpasaga þar
sem lögfræðingar koma við
sögu. Hæsta handritsverð til
þessa var 3,5 milljónir dollara
sem Wamer Brothers-fyrirtæk-
ið borgaði Michael Chricton,
höfundi „Jurassic Park“, fyrir
mánuði.
Clinton hrífst
af Eastwood
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hrósaði í gær nýjustu kvikmynd
Clints Eastwoods. Hún fjallar
um leyniþjónustumann sem elt-
ist við mann er áformar að ráða
forseta af dögum og fer Eastwo-
od með hlutverk þess fyrr:
nefnda.
550 manns
deyja í flóðum
GÍFURLEG flóð i norðaustur-
héruðum Indlands höfðu kostað
a.m.k. 550 manns lífið í gær og
valdið miklu tjóni. Urhellisrign-
ing hefur verið á þessum slóðum
í tvær vikur. Flóðasvæðin
stækka dag hvern.,
Mubarak
áfram forseti
EGYPSKA þingið tilnefndi í gær
Hosni Mubarak til þess að gegna
embætti forseta þriðja sex ára
kjörtímabilið í röð. Studdu 97%
þingmanna tilnefninguna og
þykir Mubarak öruggur með
sigur í forsetakjöri sem ráðgert
er í október.
Reuter
Glæpum fjölgar í Rússlandi
HERLÖGREGLUMENN í Moskvu kanna birgðir af
skotvopnum og hnífum sem gerð voru upptæk í her-
ferð gegn glæpum í neðanjarðarlestum borgarinnar í
gær. Að sögn rússneska innanríkisráðuneytisins hefur
tíðni morða hækkað um nær 50%, upp í 14.800, það
sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra.
Viktor Jerín innanríkisráðherra sagði á þriðjudag að
þrátt fyrir þetta væri liðsmönnum hans að takast að
knésetja skipulagða glæpaflokka sem vaðið hafa uppi
í landinu síðustu árin. Jerín hét því að efnt yrði til
rannsóknar vegna beiðni nokkurra bankastjóra um
lögregluvernd. Þeir segja að glæpasamtök beiti nú
morðum og gíslatökum til að reyna að þvinga bankana
til samstarfs um afbrot.
Umdeild Kyrrahafseyja
Rússar
fjarlægja
herþotur
Tókýó. Reuter.
RÚSSNESKA stjórnin hefur
drepð á brott 40 MiG 23-orrustu-
þotur sem höfðu bækistöðvar á
lítilli eyju, Etorofu, sem er ein
Suður-Kúríleyja norður af Japan.
Sovétherinn tók eyjaklasann í lok
síðari heimsstyrjaldar og krefjast
Japanir að fá aftur yfirráð þar.
Deilan um eyjamar hefur eitrað
samskipti Japana og Rússa um langa
hríð og komið í veg fyrir að ríkin
tvö undirrituðu friðarsamninga.
Einnig neita Japanar að veita Rúss-
um fjárhagsastoð fyrr en lausn verði
fundin á misklíðinni.
Suður-kóresk farþegaþota var
skotin niður á þessum slóðum yfir
sovésku landi árið 1983 og taldi
Sovétstjómin að þotan hefði verið
notuð til njósna. Ákváðu þeir að efla
varnirnar og sendu MiG-þoturnar til
Etorofu 1984. Bandaríkjamenn, sem
hafa herlið í Japan, treystu á móti
viðbúnað sinn á herflugvellinum í
Misawa.
Kiichi Miyasawa hyggst láta af forystu í stjórnarflokki Japans
Watanabe og Kaifu taldir
beijast um leiðtogasætið
Tókýó. Reuter, The New York Times. 0
FULLTRÚAR Fijálslynda lýðræðisflokksins, LDP, í Japan, skýrðu
frá því í gær að Kiichi Miyasawa forsætisráðherra myndi segja
af sér í dag, fimmtudag. Flokkurinn klofnaði fyrir skömmu og
missti meirihluta í neðri deild þingsins í kosningunum sl. sunnu-
dag en hafði verið einn um ríkisstjórnina undanfarin 38 ár.
Flókið ferli
Stjómarmyndun í Japan er nokk-
uð flókið ferli. Framkvæmdavaldið
er í höndum ríkisstjórnar er ber öll
ábyrgð gagnvart sameinuðu þingi.
Keisarinn hefur lítil raunveruleg
völd lengur en skipar þó formlega
forsætisráðherra og aðra ráðherra,
einnig hæstaréttardómara auk þess
sem hann undirritar lög og kallar
saman þing. Deildir þingsins, efri
og neðri, tilnefna mann til að gegna
embætti forsætisráðherra en séu
þær ósammála eða láti efri deildin
hjá líða að tilnefna mann í tíu daga
eftir að neðri deildin hefur tekið
ákvörðun gildir niðurstaða hinnar
síðarnefndu. Forsætisráðherra til-
nefnir menn í ráðherraembætti en
meirihluti þeirra verður að vera úr
röðum þingmanna.
Flokkamir hafa fjórar vikur til
að ræðast við eftir kosningamar
og verða á því tímabili að ákveða
Miyasawa hefur reynt að sitja
sem fastast og borið því við að ella
væri hætta á upplausn. Baktjaldam-
akk fer nú fram milli stjórnmála-
flokkanna og LDP leggur sig fram
um að vinna stuðning óháðra þing-
manna og annarra flokka til að
mynda samsteypustjórn. Samt hafa
orðið mikil umskipti eftir þessar
kosningar að því leyti að leiðtogar
flokkanna koma nú fram í sjón-
varpsþáttum þar sem þeir ræða að
því er virðist opinskátt um hina
ýmsu möguleika á stjórnarmyndun
og hveiju sé fómandi fyrir stjómar-
aðild. Þetta hefur ekki gerst áður
í sögu landsins.
Stjómmálaskýrendur töldu yfir-
leitt útilokað að Miyasawa tækist
að mynda samsteypustjórn, álit
hans hefði beðið of mikinn hnekki
vegna niðurlagsins og þar að auki
væri hann allt of flæktur í ýmis
spillingarmál sem hrjáð hafa LDP.
Reuter
Út í kuldann
KIICHI Miyasawa, starfandi for-
sætisráðherra Japans, tekur á
móti gestum í embættisbústað
sínum í gær.
hver skuli bjóða sig fram til emb-
ættis forsætisráðherra. Er talið að
LDP muni komast að niðurstöðu.
12. ágúst. Flokkurinn er í reynd
lausbeisluð fylking nokkurra minni
flokka, hópa og einstaklinga sem
mynda síðan bandalög þegar valda-
stöðum er deilt út.
Hóta nýjum klofningi
Michio Watanabe, fyrrverandi
utanríkisráðherra, skýrði frá því í
gær að hann yrði í framboði til
embættis forsætisráðherra. Talið
er að helsti keppinautur hans verði
Toshiki Kaifu, forsætisráðherra
1989-1991, ef hann býður sig þá
fram. Watanabe er í forystu fyrir
stærstu fylkingunni í LDP en hann
er 69 ára og heilsuveill, auk þess
er hann fulltrúi gömlu valdaklík-
unnar sem kjósendur refsuðu og
vilja að bæti ráð sitt.
Kaifu fer fyrir fámennum hóp í
flokknum en nýtur þess að hafa
ekki orðið uppvís að Qármálaspill-
ingu, gengur undir gælunafninu
„Hr Hreinn". Stuðningsmenn um-
bóta í flokknum segja að allt að
90 þingmenn muni yfirgefa LDP
fái Kaifu ekki að spreyta sig á ný.
Alvarlegt ástand á landamærum Tadzhíkístans og Afganistans
Innrás skæruliða sögð í aðsigi
Moskvu. Reuter.
HÓPUR múslimaskæruliða frá Tadzhíkístan
en með bækistöðvar í nágrannalandinu Afgan-
istan gerði í gær áhlaup á landamærastöðvar
sem mannaðar eru Rússum og særðust tveir
hermenn, að sögn yfirmanns stöðvarinnar.
Nýlega var sent nokkurt herlið frá bækistöð
rússneska hersins í höfuðborg Tadzhíkistans,
Dúsanbe, til styrktar landamæravörðunum en
þá höfðu uppreisnarmenn fellt 25 Rússa.
Rússneska fréttastofan Itar-TASS skýrði frá
átökum víða á landamærunum í.gær og sagði
ástandið „mjög alvarlegt". Vasílí Matjúk undirof-
ursti, yfirmaður landamæravarðanna í Moskovskí-
héraði, sunnarlega í Tadzhíkístan, sagði frétta-
stofunni að flestar stöðvarnar hefðu aðeins til
umráða tvo þriðju hluta þess mannafla sem þær
þyrftu. Matjúk sagði uppreisnarliðið ráða yfir
mörgum brynvörðum bílum og ýmsum nýtískuleg-
um vopnum, ekki væri hægt að útiloka að liðið
myndi gera umfangsmikla innrás á næstunni.
Kabúl-stjórnin býður viðræður
Ríkisstjórn Afgana í Kabúl hefur boðist til að
hefja viðræður um málið við stjórnvöld Tadzhíka
en segir jafnframt að landið verði varið ef þörf
krefji. Yfirmenn rússnesku heijanna sögðu í gær
að frá áramótum hefðu uppreisnarmenn gert um
100 áhlaup yfir landamærin. Landamæraverðirnir
hefðu fellt 400 manns sem reynt hefðu að læðast
inn í landið með ólöglegum hætti, 300 hefðu ver-
ið handteknir. Þeir sögðu að alls hefði 31 landa-
mæravörður týnt lífi í þessum skærum og tugir
særst.
Uppreisnarmennimir eru heittrúaðir múslimar
og biðu ósigur í hörðum átökum við stjómina í
Dúsanbe sl. vetur. Þeir flýðu þá yfir landamærin
til Afganistan þar sem nokkrir flokkar heittrúar-
múslima kljást nú um völdin eftir að veldi komm-
únista hrundi.
Háttsettur rússneskur embættismaður í varnar-
málaráðuneytinu sagði í fyrradag að leyfa ætti
rússnesku hermönnunum að gera áhlaup inn á
afganskt landsvæði til að hafa hendur í hári upp-
reisnarmanna. Stjórnvöld í Tadzhíkístan, þar sem
fyrrverandi kommúnistar hafa nú yfirhöndina,
báðu á sínum tima Rússa um aðstoð við landa-
mæragæsluna.