Morgunblaðið - 22.07.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
fclk f
fréttum
Arnold Schwarzenegger veifar hér til áhorfenda meðan hann er í
viðtali við Army Archerd.
Braggatjald,
2-3 manna
göngutjald
fa. 7.901,-
+ vindsæng
kr. 1.859,-
Ferðagasgrill
m/vindhlíf
og grillteini
kr. 5.900,-
Tjaldaleiga - tjaldasala -
tjaldaviðgerðir - ferðavörur
L E I G A NI
ÚTIVISTARBÚÐIN
v/Umferðarmiðstöðina,
símar 19800 og 13072.
Reuter
ANTÍK
Marilyn
fyrir
milljón
Skyldi þessi kona sem
arkar um götur Sid-
neyborgar í vetrarkuldum
Ástralíu vera að hugsa til
sumarsins eða gömlu góðu
daganna þegar Marilyn
Monroe var upp á sitt besta
og lék í myndinni „The
Seven Year Itch“? Stytt-
unni af Marilyn Monroe er
stillt út í glugga á antík-
verslun í Sidney og kostar
27.200 dollara (1,2 millj.
ísl. kr.).
Bylting í háreyðingu
Auðveld langtíma eyðing á
óæskilegum hárum með heitu vaxi.
Einfalt og hreinlegt í notkun.
Pakkningin inniheldur hitatæki,
tvær stærðir af vaxfyllingum
og vaxborða.
Útsölustaðir:
flestar snyrtivöruverslanir, apótek
Reuter
Bruce Willis skekur sig fyrir
framan áhorfendur við opnun
veitingastaðarins.
VEITINGAHUS
Enn opnar
^ríeykið
veitingastað
Sagt var frá því hér í blaðinu
nýlega að Schwarzenegger,
Stallone og Bruce Willis væru að
opna nýjan veitingastað í London
í veitingahúsakeðjunni Planet
Hollywood. Þeir létu ekki staðar
numið þar heldur opnuðu annað
veitingahús í Chicago 18. júlí. Nú
eru að minnsta kosti komnir fimm
slíkir staðir, í London, New York,
Los Angeles, Cancun og Chicago.
Til að vekja athygli á opnun-
inni tók Bruce Willis lagið.
SUMARTILBOÐ
4ra manna
fjölskyldutjald
m/fortjaldi
kr. 15.900,-«
+ borð/4 stólar
kr. 19.950,-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Frönsku framhaldsskólanemarnir ásamt fararstjórum við Leifsstöð áður en þau héldu heim á Ieið eftir
vel heppnaða og ævintýralega ferð til íslands.
SKÓLANEMAR
Unnu skemmtiferð til Islands
Hópur franskra unglinga á fram-
haldsskólastigi heimsótti ís-
land í síðustu viku á vegum ferða-
skrifstofunnar Samvinnuferða-
Landsýnar, en ferðina til íslands
höfðu frönsku unglingamir unnið í
ritgerðarsamkeppni þar sem fjailað
var ,um vistfræði. Að sögn Alain
Berestetsky forsvarsmanns hópsins
og starfsmanns Fondation 93 sem
stóð að ritgerðarsamkeppninni voru
um 5.000 nemendur í um 230
beklqadeildum sem tóku þátt í verk-
efninu. Verðlaunin hefðu verið ferð-
ir til fimm Evrópulanda, þar af ferð
til íslands.
Frönsku unglingamir dvöldu hér
í viku og ferðuðust þau aðallega um
suðurlandið. Þau sögðu að ferðin
hefði verið ákaflega skemmtileg í
alla staði. Veðráttan hefði komið
þeim á óvart því þeim hefði verið
sagt að hér væri nær stöðug rigning
en allir dagar heimsóknarinnar
hefðu verið sólardagar. Einnig hefðu
hinar björtu sumamætur verið þeim
framandi. Meðal staða sem frönsku
ungmennin heimsóttu vom Bláa lón-.
ið, Landmannalaugar, Þingvellir,
Gullfoss, Geysir, Skógar, Dyrhólaey
og Sólheimajökull — og að koma frá
stórborg eins og París hefðu þetta
verið mikil viðbrigði á landslagi.
Alain Berestetsky sagði að ætl-
unin væri að koma með annan hóp
í haust og hann vonaðist til að fram-
hald gæti orðið á þessum heimsókn-
um því bæði land og þjóð hefðu svo
sannarlega hitt í mark hjá krökkun-
um.