Morgunblaðið - 22.07.1993, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
38
„ þezsi LesiampL. hefar etícL sa,g t eitt
einaí-Lco oré sióan 'eg kcypti kánr\,!'
®ÍH Jp-------
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Bygging- viðhaldsstöðvar skilaði
350 millj. króna inn í atvinnulifíð
Frá Einari Sigurðssyni:
Vegna byggingar viðhaldsstöðvar
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli hefur
kanadíski verktakinn, sem hefið yfir-
umsjón með verkinu, greitt innlend-
um iðnaðarmönnum, verktökum og
byggingarvöruframleiðendum um
350 milljónir króna. Þá eru ótaldar
greiðslur vegna verkþátta sem Flug-
leiðr höfðu með höndum vegna fram-
kvæmdanna á flugvellinum. Bygg-
ing stöðvarinnar skilaði því inní at-
vinnulífið hér meira en þriðjungi
þeirrar upphæðar sem ríkisstjórnin
ætlar að ieggja til baráttu gegn at-
vinnuleysi í tengslum við heildarkja-
rasamningana í vor. Það er rétt að
þetta komi fram vegna greinar Sig-
urðar Grétars Guðmundssonar, pípu-
lagningameistara, í Morgunblaðinu
8. júlí.
I greininni gerir Sigurður athuga-
semdir við nokkra þætti byggingar
viðhaldsstöðvarinnar. Vegna mis-
skilnings sem þar kemur fram er
sjálfsagt að leiða í ljós hvernig stað-
ið var að málum af hálfu Flugleiða.
Að undangenginni forkönnun á
byggingarkostnaði sérhæfðra mann-
virkja á borð við flugskýli fengu
Flugleiðir tilboð frá kandíska verk-
takanum Mathews contracting um
byggingu viðhaldsstöðvarinnar. Hér
var um svokailað alverktökutilboð
að ræða. Kanadamennirnir tóku að
sér að stýra byggingu stöðvarinnar
og skila henni fullfrágenginni fyrir
fastákveðið verð. Verðið var mjög
hagstætt og því til viðbótar fylgdi
hagstætt lán frá kanadískum út-
flutningssjóði. Hér var því í raun
tilboð sem erfitt eða ómögulegt var
að hafna.
Alverktakan felur í sér að aðal-
verktakinn stýrir byggingunni og
kaupir það efni sem hann kýs innan
þess ramma sem staðlar samnings-
ins setja. Kaupandinn skiptir sér
ekki af einstökum þáttum verksins.
Hvorki efnis- né vinnukaupum. Hag-
stætt tilboð aðalverktakans byggist
á því að hann stýri innkaupum. Flug-
leiðir lögðu þó að kanadíska fyrir-
tækinu að beina viðskiptum sínum
sem mest til innlendra fyrirtækja.
Tölurnar sem nefndar voru hér að
framan tala sínu máli um það. Því
miður er framleiðsla á byggingarefni
hér heima lítii. Byggingin er stál-
grindahús eins og venja er með flug-
skýli. Því varð ekki hjá því komist
að flytja mestallt byggingarefni inn.
Meðal þess sem keypt var af íslensk-
um framleiðendum var steypa, stein-
ullareinangrun og Ioftræsikerfi. Hafi
verktakinn í einhveijum tilvikum
kosið erlenda vöru þegar íslensk var
á boðstólum má telja víst að hann
hafi talið sig komast að betri kjörum
eða erlenda varan hentað á einhvern
hátt betur.
Meira en 90% þeirra iðnaðar-
manna sem komu að byggingu skýl-
isins hér heima voru Islendingar.
Kandamenn sem hingað komu vegna
byggingarinnar, komu vegna sér-
stakra sérhæfðra verka og þeir voru
mjög lítið brot þeirra sem unnu við
bygginguna. Sigurður talar um að
hér hafi fjölmargir útlendignar verið
fluttir til starfa vegna byggingarinn-
ar. Það er rangt. Þeir voru flestir 7
talsins og voru hér ekki samfleytt
nema í nokkrar vikur í senn. Flug-
leiðir kusu að láta byggja viðhalds-
stöðina þegar illa áraði. hér heima.
Tölurnar tala sínu máli um hver
búbót hún var fyrir íslenska iðnaðar-
menn.
Tilgangur með byggingu við-
haldsstöðvarinnar var að efla tækni-
svið Flugleiða, sem veitir um 160
manns vinnu og veltir um 1,4 millj-
örðum króna á ári. Með byggingu
stöðvarinnar gefst færi á að efla
þessa starfsemi og skapa fleirum
Frá Unni Guðjónsdóttur:
INGÓLFUR Guðbrandsson hefur að
undanförnu auglýst ferð til Kína í
haust og farið þar með gróf ósann-
indi í þeim tilgangi að frægja þessa
ferð og rægja mína ferð, sem ég
ætla í 1. október.
Ingólfur fer með hóp til Kína í
september og slær því föstu að í
október sé ferðamannatímabilinu
lokið þar í landi. Samkvæmt Ingólfi
lýkur ferðamannatímabilinu hjá
margmennustu þjóð heimsins og
þriðja stærsta landi í heimi, að flat-
armáli, í sömu andrá og hann yfir-
gefur landið. Sannleikurinn er sá,
að október er vinsælasti ferðamán-
uðurinn.
í auglýsingu sinni lýsir Ingólfur
sjálfum sér í þriðju persónu og hæl-
ir sér á hvert reipi að vanda. Hann
lýsir meðal annars sinni traustu og
löngu reynslu. Þessi langa reynsla á
í það minnsta ekki við í sambandi
við Kínaferð hans, því þangað er
hann að fara í fyrsta sinn (og reynd-
ar í það síðasta líka, því í auglýsingu
vinnu með öflun erlendra viðahalds-
verkefna.
Markmið með byggingu stöðvar-
innar var fyrst og síðast efling ís-
lensks atvinnulífs. Það var því mik-
ilvægt að fá góða byggingu á hag-
stæðustu kjörum sem völ var á. Það
tókst. Flugleiðir eru mjög ánægðar
með bygginguna og skil kandíska
fyrirtækisins á verkinu. Hluti af
hagstæðu tilboði aðalverktakans var
10 ára ábyrgð. Þegar í ljós kom
galli í þakhönnun, sem skrifa mátti
á reikning þess undirverktaka sem
sá um hönnun og framleiðslu stál-
hluta skýlisins, tók Matthews þegar
í stað á sig alla ábyrgð gagnvart
Flugleiðum. Fyrirtækið lét endur-
hanna þakið og er nú að ljúka fram-
kvæmdum með þeim hætti að það
verður mun efnismeira og traustara
en um er getið í upphaflegum tilboð-
um. Sigurður Guðmundsson veit
væntanlega af reynslu inni í bygg-
ingarbransanum hve erfitt getur
verið að ákvarða hver ber ábyrgð
þegar eitthvað fer úrskeiðis. Hér var
engu slíku fyrir að fara. Aðdróttanir
hans um verklag aðalverktakans
eiga því ekki við nein rök að styðjást.
EINAR SIGURÐSSON,
upplýsingafulltrúi Flugleiða.
hans stendur: „Svona tækifæri kem-
ur aðeins einu sinni!“).
Ingólfur Guðbrandsson hræðist,
og það ekki að ástæðulausu, að fólk
muni frekar kjósa að fara með mér
til Kína en honum, því ég er reynd-
ur Kínafararstjóri. A tímabilinu maí
1992 til janúar 1993 fór ég þrisvar
til Kína með ferðalanga héðan frá
íslandi.
Ég þekki Kína af eigin reynslu,
það veit Ingólfur Guðbrandsson,
enda sat hann meðal annarra gesta
á Kína-ferðakynningu sem ég stóð
fyrir á Holiday Inn fyrir skömmu,
þar sem hann kynnti sér hvernig
ferð um Kína væri háttað. Gott hjá
honum. Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið, enda ekki nema rúmur mánuð-
ur þar til hann leggur af stað.
Hins vegar óttast ég að hugarfar
Ingólfs, eins og það er nú, muni
ekki gagnast farþegum hans í við-
skiptum hans við Kínveija.
UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Kínaklúbbbur Unnar,
Reykjahlíð 12, Reykjavík
Ekki er allt sem sýnist
Víkverji skrifar
Stór hluti þjóðarinnar er á faralds-
fæti þessa dagana. Þeir sem
eru að hlusta á útvarp og eru að
fara norður/vestur-leiðina missa út
margar útvarpsstöðvanna strax og
komið er upp úr Tíðaskarði. Vík-
veiji, sem er mikill tónlistarunnandi,
fór að skarka í bíltækinu sáróánægð-
ur og viti menn. Gamla Kanastöðin
kom inn með glimrandi tónlist eða
glamrandi eftir því hvernig á það er
litið.
XXX
Reykjanesbrautinni var lokað
nokkrar nætur í síðustu viku
vegna malbikunarframkvæmda.
Víkverji átti leið suður með sjó að
kveldi fimmtudags og lenti í slíkum
hremmingum að með ólíkindum var.
Vegurinn var lokaður og fara þurfti
Ströndina. Þetta sama kvöld var
leikur milli Keflvíkinga og Akurnes-
inga í fyrstu deildinni og miðað við
þann fjölda bíla sem Víkveiji mætti
á þröngum veginum mætti halda að
helmingur íbúa Akraness hefði verið
á knattspyrnuvellinum. Ætli það séu
sömu mennirnir sem ákveða þykkt
malbiksins og taka ákvörðun um
lokun vegarins?
xxx
Fyrst minst er á Reykjanesbraut-
ina er rétt að spyija um hvað
líði tvöföldun vegarins. Einu fréttirn-
ar sem heyrast um stórframkvæmd-
ir í vegamálum eru að bora í gegnum
fjöll á Vestur- og Austurlandi, undir-
göng undir Hvalfjörð og brú yfir
Gilsfjörð. Nefnd á Austurlandi skil-
aði nýlega af sér tillögum um að
bora út Austurland þannig að það
líti út á eftir eins og 45% mjólkurost-
ur frá MS. Víkveiji leggur til að
Reyknesingar setji nefnd á laggirnar
strax í dag og dagskipun hennar
verði útfærsla á jarðgöngum til
Keflavíkur. Þetta hlýtur að vera það
nýstárleg tillaga að þingmennirnir
falli fyrir henni.
X X X
Og úr því Víkverji er kominn í
þennan ham veltir hann því
fyrir sér fyrst útséð virðist um jarð-
göngin á Vestfjörðum vegna vatns-
elgs, hvort ekki megi nýta mannvirk-
in á annan hátt til að fjárfestingin
nýtist. Til að mynda til að draga
ferðamenn til Vestfjarða. Og hvað
segja menn þá um vatnsrennibraut!