Morgunblaðið - 22.07.1993, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JULI 1993
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Frosti
Stúlkurnar sem valdar voru í landslið og pressuliðið í 3. flokki. Landsliðið er í biáum búningum en pressuliðið í hvítum.
Aftari röð frá vinstri: Linda Mjöll Andrésdóttir (UBK), Helga Gunnlaugsdóttir (UBK), Margrét Jónsdóttir (Val), Ágústa
D. Sigmarsdóttir (Tý), Sigurbjörg Júlíusdóttir (UBK), Anna Brynja Baldursdóttir (Val), Rósa Sigbjörnsdóttir (KA), Hrefna
Jóhannesdóttir (KR), Rannveig Jóhannsdóttir (KA) og Gréta Snorradóttir (UBK). Fremri röð frá vinstri: Sandra Karlsdóttir
(UBK), María Benediktsdóttir (KA), Ragna Ragnarsdóttir (Tý), Guðrún L. Gísladóttir (ÍA), Sara Kristófersdóttir (ÍA), Lo-
vísa Hilmarsdóttir (UMFG), Bára Karlsdóttir (UMFG), Edda Garðarsdóttir (KR), íris Andrésd. (Val) og Eva Halldórsd. (Val).
ÚRSLIT
Morgunblaðið/Frosti
Sigurlið Gull & silfurmótsins voru úr Val, Breiðablik og Tý og hér eru liðin
við mótsslit.
Þrjú gull til Vals
og Breiðabliks
't- 2. FLOKKUR:
Leikið var í tveimur riðlum í öðrum flokki
og hjá þriðja flokki A-liða. Tvö efstu riðlin
í hvorum riðli léku um sæti 1. - 4. Tvö stig
eru veitt fyrir sigur.
RIÐILL 1: UBK 6 (15:2), UMFT 3 (4:6),
KR 2 (2:4), UMFG 1 (0:9).
RIÐILL2: Stjaman 4 (24:0), Ægir 2 (1:11),
Fylkir 0 (0:14).
Úrslit um sæti 1.-4.
1. UBK 6 (11:2), 2. Stjarnan 4 (17:1), 3.
UMFT 2 (4:11), 4. Ægir 0 (1:19).
Úrslit um sæti 5 -.7:
5. KR 3 (6:0), 6. UMFG 3 (2:1), 7. Fylkir
0 (1:8).
3. flokkur A-lið
RIÐILL 1: Valur 6 (9:3), UMFG 6 (8:2),
UBK 4 (11:5), ÍA 4 (5:3), Fylkir 0 (0:20).
RIÐILL 2: KA 8 (17:4), KR 6 (9:5), Týr 4
(8:8), Þór 1 (2:9), Stjarnan 1 (2:12).
Úrslit um 1. - 6. sæti
1. Valur 9 (7:2), 2. KA 7 (12:11), 3. UBK
6 (14:6), 4. KR 6 (7:8), 5. UMFG 3 (4:5),
6. Týr 3 (2:8).
Úrslit um 7. - 10. sæti
7. ÍA 5 (9:1), 8. Stjarnan 4 (3:1), 9. Þór 3
(2:5), Fylkir 0 (0:7).
3. FLOKKUR B-LIÐ:
Leikið var'í einum riðli þar sem allir léku
við alla. Lokastaða:
1. UBK-2 12 (19:5), 2. UBK-1 10 (20:4),
3. ÍA 7 (10:6), 4. KR 7 (7:6), 5. KA 4 (6:15),
6. Valur 1 (3:10), 7. UMFG 1 (1:18).
4. FLOKKUR A-LIÐ:
1. Valur 12 (31:4), 2. Stjaman 9 (17:8),
3. KR 6 (20:8), 4. Týr 6 (13:15), 5. UBK
5 (9:10), 6. UMFG 5 (6:13), 7. Þór 0 (1:39).
4. FLOKKUR B-LIÐ:
1. Valur 10 (22:3), 2. Stjaman-1 8 (19:1),
3. UBK-1 8 (19:1), 4. Stjaman-2 3 (4:8),
5. UBK-2 2 (6:16), 6. UMFG 2 (2:22).
5. FLOKKUR A-LIÐ:
1. Týr 10 (14:0), 2. Þór 7 (9:4), 3. UBK 7
(5:1), 4. Valur 3 (4:11), 5. Stjaman 1 (1:4),
6. KR 1 (1:14).
5. FLOKKUR B-LIÐ:
1. UBK-1 9 (12:1), 2. Týr 7 (9:2), 3. Þór-1
6 (13:3), 4. Stjarnan 6 (4:5), 5. UBK-2 2
(4:10), 6. Þór-2 0 (0:21).
UM 600 stúlkur voru á fleygiferð
um síðustu helgi þegar hið ár-
lega Gull & silfurmót var haldið
í Kópavogi fyrir 2. - 5. aldurs-
flokk kvenna í knattspyrnu.
Að þessu sinni voru það Valur
og gestgjafarnir Breiðablik
sem voru sigursælustu félög móts-
ins. Hvort þeirra átti þrjú lið sem
hrepptu gullverðlaun en Vestman-
neyjaliðið Týr sigraði í fimmta flokki
hjá A-liðunum.
Breiðablik sigraði í 2. fiokki
kvenna fjórða árið í röð, eða allt frá
því að fyrst var keppt í flokknum
1990. Þá varð Kópavogsfélagið sig-
urvegari í 3. flokki A-liða og í
fimmta flokki B-liða.
Valsstúlkur unnu tvöfalt í fjórða
flokki þar sem þær rauðklæddu sigr-
uðu í öllum leikjum sínum. Bikarinn
fyrir 3. flokk B-liða féll einnig í skaut
Vals.
Vestmanneyjafélögin Týr og Þór
voru hins vegar með bestu liðin í
fimmta flokki A. Týr sigraði en Þór
varð í öðru sæti.
Minni þátttaka
í fyrra þegar Blikar gengust fyrir
þessu móti mættu rúmlega 800
stúlkur til keppni og þátttakendum
hefur því fækkað um rúmlega tvö
hundruð á milli ára. Minni þátttaka
má að einhveiju leyti skýra með tíð-
um sumarleyfum en almennt aðhald
virðist þó vera stærsti þátturinn.
Aðeins er um mánuður síðan Pæju-
mótið var haldið í Eyjum og mörg
félög senda lið aðeins á annað mót-
ið. Ekki er ólíklegt að Blikar flýti
eða seinki mótinu á næsta ári.
Fækkunin gerði það hins vegar
að verkum að mótshaldarar höfðu
góð tök á fjöldanum og tímaáætlan-
ir stóðust mun betur. Þá lék veðrið
við keppendur alla helgina.
Barátta um boltann í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í fjórða flokki.
Margrét Bjarnadóttir og Kolbrun Ingólfsdóttir.
Ánægðar þrátt
fyrir slakt gengi
Það var skemmtilegt að spila á mótinu en okkur gekk þó ekki
nógu vel. Við töpuðum öllum leikjunum og þurfum greinilega
að æfa okkur betur,“ sögðu þær Margrét Bjamadóttir og Kol-
brún Ingólfsdóttir sem leika með 4. flokki Þórs frá Vestmanneyjum.
„Við töpuðum líka öllum leikjunum í Pæjumótinu fyrr í sumar en
ekki svona stórt eins og á þessu móti. Við erum þó heppnar að því
leyti að það er engin tapsár í liðinu,“ sögðu þær stöllur sem nýttu
ferðina vel og skoðuðu sig um í Fjölskyldugarðinum og fóru í Kringl-
una á meðan að dvöl þeirra stóð.
Vardi sautján skot
Vinkonurnar Heíða Rún Sveinsdóttir og Anna Þorsteinsdóttir sem
léku með Breiðablik í fimmta flokki A-liða voru ánægðar með
árangurinn og eigin frammistöðu á mótinu. „Það er alltaf gaman
að keppa og vera í góðum félagsskap.“ Heiða Rún var ánægð með
markið sem hún skoraði á mótinu og Anna himinlifandi yfir mar-
kvörslunni en hún varði sautján skot og fékk eitt mark á sig.
Kvennaknattspyma
á mikilli uppleið
Stjarnan er með gott lið, en
við vinnum þær samt allt-
af,“ sagði Sunna Guð-
mundsdóttir fyrirliði UBK í 2.
flokki sem varð Gull & silfur-
meistari eftir 1:0 sigur á helstu
keppinautunum, Stjörnunni.
„Kvennaknattspyrna er á mik-
illi uppleið og liðin mikið jafnari
núna en þegar ég lék á mínu
fyrsta móti fyrir nokkrum árum.
Það er þó langt í það að við séum
jafn góð og strákarnir, við höfum
verið að spila við þá á æfingum
og það hefur gengið illa. Að mínu
mati er ekki minni tækni í
kvennaknattspyrnunni heldur
eru strákarnir mun sneggri,“
sagði Sunna.
Sunna Guðmundsdóttir.