Morgunblaðið - 22.07.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
43
I
I
I
)
)
I
I
I
I
>
H
ÚRSLIT
Frjálsar
Stigamót haldið í Nice í Frakklandi í gær-
kvöldi:
400 metra grindahlaup kvenna: sek.
1. Sally Gunnell (Bretlandi)......54,29
2. Tonja Buford (Bandar.).........55,78
3. Rosey Edeh (Kanada)............56,01
4. Deon Emmings (Jamaíku).............56,26
5. Natalya Torshina (Kazakhstan)...56,31
6. Jacqui Parker (Bretlandi)..........57,54
100 metra hlaup kvenna:
1. Marie-Jose Perec (Frakklandi)...11,12
2. Juliet Cuthbert (Jamaiku).......11,32
3. Twilet Malcom (Jamaíku)............11,43
100 metra grindahlaup:
1. Marina Azyabila (Rússlandi)........12,78
2. Eva Sokolova (Rússlandi)........12,88
3. AliuskaLopez (Kúbu)................12,93
4. Julie Baumann (Sviss)..............13,12
5. Yulia Graundyn (Rússlandi)......13,41
6. Ime Akpan (Nígeríu).............13,49
800 metra hlaup kvenna: mín
1. Tina Paulino (Mósambik).......1.57,48
2. Svetlana Masterkova (Rússl.)..1.58,00
3. Lyubov Gurina (Rússlandi)........1.58,34
4. Meredith Rainey (Bandar.)........1.58,74
400 metra hlaup karla: sek.
1. Samson Kitur (Kenýu)...............44,98
2. Andre Valmon (Bandar.)..........45,43
3. Sunday Bada (Nígeríu)...........45,76
4. lan Morris (Trinidad)...........46,31
5. Mark Richardson (Bretlandi).....46,96
6. Tunde Omagbemi (Nígeríu)........47,43
3000 metra hlaup kvenna: mín.
1. Magareta Keszeg (Rúmeníu)........8.53,00
2. Elena Fidatov (Rúmeníu).......8.53,49
3. Gwen Griffiths (S-Afríka)........8.53,64
4. EstherKitlagat (Kenýu)........8.54,24
400 metra hlaup kvenna: sek.
1. Sandie Richards (Jamaíku).......51,40
2. Ximena Restrepo (Kólumbíu).........51,47
3. Caty Rattay Williams (Jamaíku) ....51,77
4. Tatyana Alekseyva (Rússlandi)...52,57
5. Rochelle Stevens (Bandar.).........62,84
6. Elsa Devassoigne (Frakklandi)......53,11
800 metra hlaup karla: mfn.
1. WilliamTanui (Kenýu).............1.46,12
2. Charles Nkazamyampi (Bur.)....1.46,68
3. Mahjoub Haida (Marokkó).......1.46,72
4. Paul Ruto (Kenýu).............1.46,90
5. Robert Kibet (Kenýu)..........1.47,14
6. Atle Douglas (Noregi).........1.47,18
7. Nixon Kiprotich (Kenýu).......1.47,20
8. Valery Starodutsev (Rússlandi) ..1.47,61
1500 metra hlaup karla:
1. Simon Doyle (Ástralíu)...........3.34,39
2. Marcus O’Sullivan (Irlandi)...3.35,13
3. Moses Kiptanui (Kenýu)........3.35,44
4. Robert Kibet (Kenýu)..........3.36,06
5. Pascal Thiebault (Frakklandi)....3.36,11
6. Venuste Nyongabo (Burundi)....3.36,30
7. Eric Dubus (Frakklandi)..........3.37,11
8. Said Aouita (Marokkó).........3.38,78
200 metra hlaup karla: sek.
1. Frankie Fredericks (Namibíu)....20,41
2. Dean Capobianco (Ástralíu)......20,47
3. Daniel Effiong (Nígeríu)........20,48
4. Chris Nelloms (Bandar.)............20,61
5. Damien March (Ástralíu).........20,83
6. Patrick Stevens (Belgium).......20,98
Stangarstökk karla: metrar
1. Sergei Bubka (Úkraínu)...........5,93
2. Igor Potatapovich (Kazakhstan)...5,80
3. Maksim Tarasov (Rússlandi)..........5,70
4. Grigoriy Yegarov (Kazakhstan)....5,60
5. Okkert Brits (S-Afríka)..........5,60
6. Greg Duplantis (Bandar.).........5,60
7. Kory Tarpenning (Bandar.)........5,50
7. Javier Garcia (Spáni)............5,50
I'rístiikk kvenna:
1. Inessa Kravets (Úkrafnu)...........14,70
2. InnaLasovskaya (Rússlandi)......14,44
3. Irina Mushailova (Rússlandi)....14,24
4. Yolanda Chen (Rússlandi)...........14,24
Hástökk kvenna:
1. Galina Astafei (Rúmeníu).........1,97
2. Stefka Kostadinova (Búlgaríu)....1,94
3. Ioamnet Quintero (Kúbu)..........1,94
4. Yelena Gribanova (Rússlandi).....1,94
5. Antonella Bevilacqua (ítallu).......1,91
6. Tanya Hugues (Bandar.)..............1,91
7. Maryse Maury (Frakklandi)........1,88
7. Silvia Costa (Kúbu)..............1,88
3000 metra hindrunarhlaup: mfn.
1. Joseph Keter (Kenýu)..........8.21,04
2. Tom Hanlon (Bretlandi)........8.21,58
3. Shaun Creighton (Ástralíu)....8.27,17
4. Larbi E1 Khattabi (Marokkó)...8.27,95
5. Antonio Peula (Spáni).........8.28,20
6. Ricardo Vera (Uruguay)........8.33,75
7. SpencerDuval (Bretlandi)......8.35,25
200 metra hlaup kvenna: sek.
1. Pauline Davis (Bahamas)..........23,04
2. Dahlia Duhaney (Jamafku)........23,12
3. Beverly McDonald (Jamafku)......23,28
Spjótkast: metrar
1. Jan Zelezny (Tékk.lýðv.)........90,68
2. Vladiir Sasimovich (H-Rússlandi) ..83,98
3. Juha Laukkanen (Finnlandi).....82,98
4. Kimmo Kinnunen (Finnlandi)......81,98
5. Raymond Hecht (Þýskalandi).....80,62
6. Alain Storaci (Frakklandi)......80,00
7. Peter Borglund (Svíþjóð)........77,72
8. Gavin Lovegrove (Nýja Sjálandi)....77,64
9. Einar Villy álmsson.............74,16
110 metra grindahlaup: sek.
1. Coiin Jackson (Bretlandi).......13,12
2. Mark McKoy (Kanada).............13,31
3. Tony Dees (Bandar.).............13,32
4. Emilio Valle (Kúbu).............13,53
5. Florian Schwarthoff (Þýskalandi) ..13,58
6. Arthur Blake (Bandar.)..........13,73
1. Vladinir Shiskin (Rússlandi)...13,96
8. Carlos Sala (Spáni).............13,98
3000 metra hlaup karla: mín.
1. Mohammed Issangar (Mar.)......7.41,06
2. Brahim Jabour (Marokkó).......7.41,41
3. Paul Bitok (Jenya)............7.41,95
4. Yobes Ondieki (Kenýu).........7.42,17
5. William Sigei (Kenýu).........7.42,46
6. Carlos Monteiro (Portúgal)....7.44,08
KORFUKNATTLEIKUR
Snillingurinn Michael Jordan tjáir sig um veðmálaskuldir sínar
Skuldaði félaga
sínum rúmlega
21 milljón kr.
Michael Jordan, besti körfu-
knattleiksmaður heims,
var mjög í sviðsljósinu sl. vetur
er hann stýrði Chicago Bulls til
NBÁ-meistaratitils; bæði fyrir
snilli sína innan vallar sem veð-
mál utan hans. í bók sem nýlega
er komin út heldur höfundurinn,
Richard Esquinas, fyrrum félagi
Jordans, því fram að Michael hafi
skuldað sér 1,2 miHjónir dollara,
sem er andvirði um 86 milljóna
króna, vegna veðmála þeirra er
þeir léku golf saman, og veðjuðu
um hvor hefði betur. Jordan, sem
ræddi ekki við fréttamenn í tals-
verðan tíma í vor vegna frétta af
þátttöku hans í fjárhættuspilum
og öðrum veðmálum, tjáði sig um
máiið í þætti á sjónvarsstöðinni
CBS í síðustu viku og sagði töluna
sem Esquinas nefndi ekki rétta,
en viðurkenndi hins vegar að hann
hefði skuldað þessum fyrrum fé-
laga sínum 300.000 dollara. Það
jafngildir um 21 og hálfri milljón
króna. Þess má geta að árstekjur
Jordans eru ríflega tveir milljarð-
ar króna.
Þátttaka Jordans í fjárhættu-
spilum var mikið í fréttum vestan-
hafs í vor og þá kom meðal ann-
ars fram að hann hefði verið í
spilavíti í Atlantic City nóttina
fyrir einn leikinn gegn New York
Knicks í úrslitakeppninni.
í áðurnefndri bók greinir Esqu-
inas frá samtali hans og Jordans
í fyrra, er körfuboltamaðurinn á
að hafa sagt frá fótboltamanni
sem skuldaði sér 150.000 dollara
vegna golfveðmála, en það eru
Michael Jordan
ríflega 10 milljónir króna. For-
ráðamenn NBA hófu rannsókn á
þátttöku Jordans í veðmálum og
íjárhættuspilum eftir útkomu
bókarinnar. Nú þykir sýnt að
umræddur fótboltamaður sé
Lawrence Taylor, leikmaður
Giants, en það hefur þó ekki feng-
ist staðfest. í reglum NFL, banda-
rísku fótboltadeildarinnar, er tek-
ið skýrt fram að leikmönnum sé
óheimilt að veðja eða eiga við-
skipti við þá sem stunda veðmál,
með þeim hætti að það geti skað-
að deildina eða komið óorði á við-
komandi leikmann.
GOLF / LANDSMOT
Keppendurfærri en búistvarvið í Leirunni
Get verið með sjáHur
- segir mótstjórinn Logi Þormóðssson. Þátttaka sumra klúbba mjög léleg
Morgunblaðið/Golli
Akureyrarmeistarinn, Sigurpáll Geir Sveinsson verður einn af tíu keppend-
um frá Golfklúbbi Akureyrar.
LANDSMÓTIÐ í golfi hefst í
Leirunni, golfvelli Golfklúbbs
Suðurnesja á sunnudaginn og
síðan verður leikið alveg fram á
föstudagskvöld. Þátttaka í mót-
inu er heldur minni en búist var
viö en mótið er nú með öðru
sniði en undanfarin ár og þvf
var búist við góðri þátttöku. í
gær voru 240 kylfingar skráðir
til að elta litla hvíta boltann á
Suðurnesjum þessa viku, en í
fyrra var 221 keppandi þannig
að heldur fleiri verða með í ár.
Keppendur í meistaraflokki karla
eru 33 skráðir, 70 í 1. flokki;
81 í 2. flokki og 32 í 3. flokki. I
meistaraflokki kvenna eru 7 skráðar
til leiks, 7 í 1. flokki og 10 í 2. flokki,
en vitað er um fleiri ókomnar skrán-
ingar í alla flokka og stendur skrán-
ing yfír eins lengi og mögulegt er.
„Eg átti satt best að segja von á
um 320 manns en þetta er allt í
lagi. Nú er það bara vinstri handar
að sjá um þetta mót þannig að ég
get verið með sjálfur,“ sagði Logi
Þormóðssson, mótsstjóri, við Morg-
unblaðið.
Logi sagðist telja að ástæðan fyr-
ir því að ekki væru fleiri keppendur
að of stutt væri á milli meistara-
móta klúbbanna, sem lauk um helg-
ina, og landsmóts en leikið er í fjóra
daga á báðum stöðum.
Það vekur óneitanlega athygli
hversu fáir keppendur koma frá
sumum klúbbum. Sem dæmi má
nefna að aðeins 10 kylfingar koma
frá GA á Akureyri, 3 frá Nesklúbbi
og 4 frá Kili í Mosfellsbæ, en það
er orðinn fjölmennur klúbbur. Ólafs-
víkingar fjölmenna hins vegar til
Keflavíkur en 8 keppendur koma frá
Golfklúbbnum Jökli þar í bæ.
Annað sem vekur athygli er
hversu fáar konur mæta til leiks,
en mikil óánægja hefur verið meðal
þeirra þegar keppendum hefur verið
fækkað eftir tvo daga. Nú er það
ekki gert þannig að ástæðan hlýtur
að vera einhver önnur.
Æfingatímar fyrir landsmótið
verða í Leirunni á föstudag og laug-
ardag auk þess sem meistaraflokk-
arnir geta æft sig á sunnudaginn.
Ftjáls tími er báða dagana milli
klukkan 10 og 12 en síðan er tíman-
um skipt niður á klúbba. GS á teig-
inn milli 12 og 13, GK milli 13 og
14.30, GR frá 14.30 til 16 og milli
16 og 17 þeir klúbbar sem senda tíu
keppendur eða færri. GK fær aftur
teiginn milli 17 og 17.30, GR frá
17.30 til 18, heimamenn síðan til
18.34 og fámennari klúbbar milli
18.30 og 19. Á laugardeginum snýst
æfingataflan við.
■ HIN írska Sonia O’Sullivan
virðist til alls líkleg í 1500 metra
hlaupinu á heimsmeistaramótinu í
næsta mánuði, en hún sigraði í grein-
inni á stigamóti í frjálsum í Nice í
Frakklandi í gærkvöldi, og náði jafn-
framt næst besta tíma ársins, 4 mín-
útum 04,36 sek. Lyubov Kremlyova
frá Rússlandi varð önnur á 4.04,88
mínútum.
■ FRANSKA gasellan Marie-Jose
Perec sigraði í 100 metra hlaupinu
í gærkvöldi á 11,12 sekúndum, en
hún á besta tíma ársins í 200 metra
hlaupi og er heims- og Ólympíumeist-
ari í 400 metra hlaupi. Peres kom
í mark rétt á undan Juliet Cuthbert
frá Jamaíku. >■
■ MARINA Azyabinn frá Rúss-
landi sigraði í 100 metra grinda-
hlaupinu, kom í mark sjónarmun á
undan löndu sinni Evu Sokolovu á
12,78 sekúndum. Azyabina á besta
tíma ársins í greininni, 12,47 sek.
■ COLIN Jackson frá Bretlandi
sigraði örugglega í 110 metra
grindahlaupinu, og Ólympíumeist-
arinn Mark McCoy frá Kanada varð
annar. Þetta var í annað sinn sem
þeir mættust á móti á árinu og jafn-
framt í annað sinn sem McKoy varð
að játa sig sigraðan.
■ JACKSON fékk tímann 13,12
sekúndur sem er þriðji besti tími
ársins. Alls óvíst er hvort Jackson
mæti McKoy á heimsmeistaramótinu
í næsta mánuði, því McKoy hefur
tilkynnt kanadíska fijálsíþróttasam-
bandinu að hann muni ekki mæta á
úrtökumót Kanadamanna fyrir mót-
ið, jafnvel þó svo að það kosti hann
sæti á HM.
■ „ÞAÐ er of langt að fara heim
á miðju keppnistímabili, tveimur vik-
um fyrir heimsmeistaramótið. Ég
myndi aldrei geta náð mér á þeim
tíma,“ sagði McKoy í gær.
■ ÁSTRALINN Símon Doyle
sigraði óvænt í 1500 metra hlaupinu
í Nice með góðum endaspretti og
náði þriðja besta tíma ársins, 3 mín-
útum 34,39 sekúndum. Hann sagðist
stefna á verðlaunapall á HM í
Stuttgart í ágúst.
I SERGEI Bubka reyndir þrisvar
við nýtt heimsmet 5 stangarstökki,
6,14 metra, en felldi í öll skiptin.
Hann sigraði engu að síður, fór 5,93
metra í fyrsta stökki.
■ JAN Zelezny sigraði í spjót-
kasti, kastaði 90,68 metra sem er
næst lengsta kast ársins.
FRJALSAR / STIGAMOT
Einar Vilhjálmsson níundi í Nice
Einar Viihjálmsson spjótkastari gærkvöldi, og varð f níunda sæti ar kastaði 74,16 metra. Morgun-
keppti á alþjóðlegu stiga- af tíu keppendum, samkvæmt blaðið reyndi að ná sambandi við
móti, Grand Prix, í frjálsum lokastöðu eins og hún birtist á Einar eftir mótið, en það tókst
íþróttum í Nice í Frakklandi í sjónvarpsstöðinni Eurosport. Ein- ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.