Morgunblaðið - 17.08.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993
3
Jarðvísindamenn telja enga ástæðu til að búast við Heklugosi á næstunni
Skýjabólstrar
eða smáspreng-
ing yfir Heklu
JARÐVÍSINDAMENN telja enga ástæðu til að búast
við Heklugosi. Guðmundur E. Sigvaldason, forstöðu-
maður Norrænu eldfjallastöðvarinnar, segir að svart-
ur reykur úr Heklu sem menn hafi talið sig sjá á
sunnudag gæti stafað af smásprengingu sem algengar
séu í eldfjöllum. Raunar hefur hann ákveðnar efa-
semdir um að reykurinn hafi verið úr Heklu, heldur
kunni hann að hafa verið skýjabólstrar.
í fyrradag taldi fólk sig sjá
dökkan reyk stlga upp úr Heklu.
Aðrir sögðu að snjór hefði bráðn-
að óvenju hratt í fjallinu að und-
anförnu. Sjónarvottur á leið í
Landmannalaugar hafði orðið
var við strók frá Heklu. Fólk á
Hvolsvelli hafði svipaða sögu að
segja. Menn sem voru á ferð á
hálendinu sögðust hafa séð
bólstra sem þeir töldu vera ský,
neðarlega í íj'ailinu. Blaðamenn
Morgunblaðsins sem flugu yfir
eldfjallið í fyrrakvöld sáu ekkert
sem þeir gátu tengt við spreng-
ingar eða nýlegt gos. Reykur
steig upp á mörgum stöðum á
fjallshryggnum og úr gíg í aust-
urhlíð fjallsins. Var það ljós gufa,
svipuð og hverareykur. Flug-
menn sögðu að oft sæist gufa í
gígnum á hábungunni en töldu
að hún sæist nú á fleiri stöðum
en venjulega. Hvergi sást ösku-
litaður snjór. Guðmundur E. Sig-
valdason sagði að allur fjalls-
hryggurinn væri heitur og það
færi síðan eftir veðri hvað mikið
sæist af henni. Gufan var áber-
andi í þeim veðurskilyrðum sem
ríkti á sunnudag og sagði Guð-
mundur það ákaflega eðlilegt.
Smásprengingar algengar
Guðmundur sagði að ef það
sem menn sáu á sunnudag hafi
verið svartur reykur úr Heklu
væri það sín tilgáta að hann staf-
aði af smásprengingu í fjallinu.
í Heklu er hálfbráðnuð kvika
nálægt yfirborði og þegar vatn
sígur niður á hana og sýður
myndast gufuþrýstingur sem
getur valdið smásprengingu.
Sagði Guðmundur að slíkar
sprengingar væru ekki óalgeng-
Morgunblaðið/RAX
Gufa úr Heklu
REYKUR steig upp úr öllum fjallshrygg Heklu þegar Morgunblaðsmenn flugu þar yfir á sunnudags-
kvöld. Jarðfræðingar segja að vegna hitans í eldfjallinu stígi alltaf upp gufa á þessum stöðum en
það fari eftir veðurskilyrðum hvað mikið af henni sést.
ar í eldfjöllum eftir eldgos og
þær væru ekki hættulegar nema
fólk væri nærri. Nefndi hann sem
dæmi að þannig sprenging í Etnu
á Sikiley hefði banað allmörgum
ferðamönnum fyrir nokkrúm
árum og jarðfræðingar hefðu
farist í tveimur sprengingum í
eldfjöllum í Suður-Ameríku á
undanförnum mánuðum.
Engar breytingar hafa sést á
jarðskjálftamælum eða öðrum
mælum í nágrenni Heklu. Guð-
mundur sagði að sú staðreynd
setti að sér efa um að nokkuð
hafi gerst og að svarti reykurinn
sem fólki fannst stíga úr Heklu
kunni að hafa verið skýjabólstr-
ar.
Með auga á fjallinu
í samtölum fréttaritara Morg-
unblaðsins við fólk sem býr í
nágrenni Heklu kom greinilega
fram að þar eru allar vísbending-
ar um gos teknar alvarlega enda
má segja að fólkið sé með annað
augað á fjallinu við öll störf sín
og varúðarráðstafanir á bak við
eyrað ef eitthvað gerðist. Mörg-
um, einkum börnum, varð rórra
við að- heyra að vísindamenn
hefðu ekki orðið varir við neinar
vísbendingar um gos á mæli-
tækjum sem vakta fjallið.
Ommu Lú skemmtun
föstudags og laugardagskvöld
Gestgiafi
EGIU OkAFSSON
Meðal gesta næstu helgar eru
ö'orréltir
Austurlensk rjómafiskisúpa með humri og höipuskel.
Marineraður heimareyktur lax með tómat og paprikusalati.
Guíúsoðnar úthafsrækjur með grænu salatí og jalapeno-sósu.
Grillaðar súlubringusneiðar með japanskri grillsósu og sesam íræjum.
Ufáaíréttir
Nautahryggsneið með kantarellusveppum og hvítkálsragú.
Grillaður gnsili'amhtyggur með tómatsalsa, soðsósu og maísköku.
Pönnusteiktar kalkúnabringur með hvídauks-kartöflumauki og
stikilsberja-portvínssósu.
Ristað lambalæri með rósmarin-döðlusósu og innbökuðum kartöflum í smjördeigi
Grillaður karfi með ristaðri paprikusósu, graslauk og óh'fiim.
Steikt heilagfiski með reyktri B.B.Q. sósu og steiktum grænmetísteningum.
Marquise súkkulaðiterrine með vanillusóssu.
Heit eplakaka með hnetukrókantís.
Súkkulaði marmara ostaterta með kaffikremi.
Kókoshnetuís með Irish mist rjómasósu og ferskum ávöxtum.
Vanillu og súkkulaðiís með sukkulaðibitum og kirsuberjum.
f K *addi
ÖrnÁrnason Bergþór Pálsson ElsaWaage
MalreiJjlunifLttarL,
Haukur Vufijjon
Kr. 2.950,
Matur, skemmtun qg dansleikur
Borðapantanir í síma 689-686