Morgunblaðið - 17.08.1993, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993
Stuðningsmenn
Jónasar gáfu ekki
kost á sér í sljórn
NÝ STJÓRN var kjörin á sambandsþinginu og áður en úrslit í for-
inannskjöri lágu fyrir voru yfir 40 einstaklingar í framboði til 25 stjórn-
arsæta. Eftir að Jónas Friðrik hafði beðið lægri hlut í formannskjörinu
drógu flestir stuðningsmenn hans sín framboð til baka. Yfirgnæfandi
hluti núverandi stjórnarmanna er
laugs.
Birgir Ármannsson, stuðningsmað-
ur Jónasar, var einn þeirra sem dró
framboð sitt til baka í Reykjavík.
Birgir var spurður að því hvort ekki
mætti túlka þetta sem áframhaldandi
deilur innan sambandsins og hann
sagði: „Það er full djúpt í árinni tek-
ið. Auðvitað eru menn missáttir við
úrslitin en hins vegar una menn þeim.
Það sem ég held að hafí búið að baki
hjá flestum þeim sem drógu framboð
sitt til baka er að þetta fólk gaf kost
á sér í stjóm til að vinna að ákveðn-
um breytingum á grundvelli hug-
mynda sem Jónas Friðrik hafði lagt
fram. Þar sem hann beið lægri hlut
í formannskjörinu töldu menn að for-
sendumar fyrir framboði þeirra hefðu
breyst.“
Dreifimiðar
Birgir sagði að jafnframt hefði
staðan verið metin þannig að þar sem
úrslitin væm það skýr í formannskjör-
inu yrði niðurstaðan í stjómarkjörinu
á sama veg, því tæki því ekki að fara
í framboð. „Við mátum þetta ekki
síst í ljósi þess að stuðningsmenn
Guðlaugs höfðu dreift miðum með
nöfnum þeirra manna sem þeir lögðu
áherslu á að kosnir yrðu. Þar vom
afskaplega fá nöfn stuðningsmanna
Jónasar."
- Hefði ekki verið eðlilegra að báð-
ar fylkingar gengju til samninga um
stjóm SUS eftir að niðurstaða form-
annskjörs lá fyrir og þannig væm
auknar líkur á að sættir næðust með-
al ungra sjálfstæðismanna?
„Ég veit ekki hvort það hefði verið
gmndvöllur til slíkra samninga. Af
hálfu Guðlaugs eða hans stuðnings-
manna var ekki boðið upp á slíkt
samkomulag. Einu skilaboðin sem
menn fengu var minnislistinn frá
stuðningsmönnum Guðlaugs og það
var ekki hægt að líta á hann sem
neitt sérstakt sáttaboð." Hann tók
þó fram að nokkrir stjómarmanna
utan Reykjavíkur væm stuðnings-
menn Jónasar og sagðist gera ráð
fyrir að þeir hefðu samstarf við Guð-
laug og hans fólk.
Birgir sagði að á margan hátt
væri það kannski hentugt fyrir núver-
andi formann að hafa traustan meiri-
hluta með sér í stjóminni til að vinna
því úr röðum stuðningsmanna Guð-
að framgangi þeirra mála sem hann
vildi leggja áherslu á.
Hröð atburðarás
Þegar þetta var borið undir Guð-
laug Þór sagði hann slæmt að flestir
stuðningsmenn Jónasar hefðu dregið
framboð sitt til stjómar til baka. „Það
er nú sjaldnast að menn kjósi alveg
eftir svona listum þó þeim sé dreift.
Eðlilega vildu menn styðja sitt fólk
sem hafði staðið í þessari baráttu.
, Það er ákveðinn galli og mun gera
mönnum erfíðara fyrir að ekki skuli
vera fleiri stuðningsmenn Jónasar í
stjórninni. Þeir em þó sem betur fer
nokkrir." Guðlaugur var spurður að
því hvort ekki hefði verið eðlilegra
að reyna að ná sáttum um stjómar-
menn. Hann sagði að þegar svona
úrslit lægju fyrir gerðust hlutimir
mjög hratt. „Margir af þeim sem
vom búnir að draga sitt framboð til
baka vom búnir að yfírgefa svæðið
þegar ég áttaði mig á því að svona
væri komið. Ég náði reyndar tali af
einstaka mönnum en þeir höfðu ekki
áhuga. Samsetning á stjóminni segir
ekki allt. Hreyfíngin samanstendur
af miklu fleiri þáttum og það verða
. margar aðrar leiðir til að vinna saman
þó það sé í gegnum aðrar leiðir en
stjórn. Það er það sem verður stefnt
að.“
Ný stjórn
Þeir sem kjömir vom í stjórn SUS
eru eftirfarandi:
Reykjavík: Andrés Pétur Rúnars-
son, Ándri Teitsson, Ari Edwald, Ámi
Sigurðsson, Áshildur Bragadóttir,
Inga Dóra Sigfúsdóttir, Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir, Lárentsínus Kristjáns-
son og Torfí Da_n Sævarsson.
Reykjanes: Ásta Þórarinsdóttir,
Bjöm Jónsson, Börkur Gunnarsson,
Guðni Níels Aðalsteinsson, Guðrún
Björk Bjarnadóttir, Sveinn Ævarsson
og Valdimar Svavarsson.
Vesturland: Pétur Ottesen.
Vestfírðir: Steinþór Gunnarsson.
Norðurland vestra: Andri Kárason.
Norðurland eystra: Ármann Kr.
Olafsson og Jón Helgi Bjömsson.
Austurland: Viggó E. Hilmareson.
Suðurland: Hjalti Helgason, Óskar
V. Arason og Sveinn Ó. Sigurðsson.
Fjölmennasta þingið
32. ÞING Sambands ungra sjálfstæðismanna var hið fjölmennasta
frá upphafi en atkvæðarétt áttu 463 þingfulltrúar. Á myndinni sést
hluti þingfulltrúa sækja kjörbréf sín.
Yfirlýsing frá
Kennarasambandinu
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfírlýsing
frá Kennarasambandi íslands:
Vegna yfírlýsingar frá
menntamálaráðherra í Morgun-
blaðinu, laugardaginn 14. ágúst
sl. í framhaldi af umfjöllun Ríkis-
útvarpsins um atvinnumál kenn-
ara, er nauðsynlegt að taka fram
eftirfarandi:
í athugasemd ráðherra segir
að aðhaldsaðgerðir á síðasta ári
hafí leitt til fækkunar kennslu-
stunda en „þá bar. hins vegar
ekki á atvinnuleysi í kennara-
stétt, enda fölgaði grunnskóla-
kennurum í starfí um 114 og
stöðugildum um 102 milli áranna
91/92 og 92/93.“
Rétt er að taka fram að flestir
félagsmanna Kennarasambands-
ins sem eru á atvinnuleysisskrá
hafa verið það frá því á síðasta
skólaári. Ótaldir eru því þeir sem
hafa misst vinnuna eftir 1. ágúst
sl. Svo virðist sem ráðherra hafí
ekki kynnt sér þessa staðreynd.
Þó kennurum með réttindi hafí
fjölgað milli skólaáranna 91/92
og 92/93 um 102 stöðugildi
fækkaði leiðbeinendum á sama
tíma um á sama tíma um 154
skv. tölum úr menntamálaráðu-
neytinu. Þannig fækkaði kenna-
rastörfum um 52 milli ára. Ef
menntamálaráðherra hefði ekki
beitt sér fyrir því að grunnskóla-
lögin frá 1991 voru tekin úr sam-
bandi hefði störfum fjölgað um
tæplega 40 stöðugildi. Hlutfalls-
leg ijölgun réttindakennara staf-
ar því ekki síst af því að kennslu-
störfum hefur fækkað og
kennslumagn minnkað milli
skólaáranna 91/92 og 92/93.
í svari menntamálaráðherra
við fyrirspurn á Alþingi í fyrra-
vetur kom fram að niðurskurður-
inn á síðasta skólaári leiddi til
fækkunar kennslustunda um
tæplega 4.600 á viku en það jafn-
gildir tæplega 160 kennarastörf-
um. Samkvæmt upplýsingum úr
fjármálaráðuneyti dróst yfírvinna
kennara saman um rúm 10%
milli ofangreindra skólaára.
Þannig hefur kennslumagnið
minnkað, jafnvel þó fleiri kennar-
ar með réttindi hafi bæst í hóp-
inn. Þó Kennarasambandið telji
brýnt að fjölga réttindakennurum
þá hefur það aldrei verið mark-
mið sambandsins að skera niður
útgjöld til skólamála og fækka
störfum við kennslu. Pjölgun rétt-
indakennara sem aðeins fæst með
hundakúnstum á reikniborði ráð-
herra er lítils virði andspænis
þeim mikla niðurskurði sem ráð-
herrann hreykir sér af í málefnum
grunnskólans.
Ráðherra upplýsir í athuga-
semd sinni að „enginn sérstakur
nýr niðurskurður í grunnskólum
er fyrirhugaður af hálfu ráðu-
neytisins“. Þetta er út af fyrir
sig fagnaðarefni en þó er rétt að
minna á að þegar ráðherra kynnti
niðurskurðinn í fyrra tók hann
margítrekað fram að um tíma-
bundnar aðgerðir væri að ræða.
Nú kemur í ljós að það voru ekki
marktækar yfirlýsingar. Sé það
hins vegar rétt að ekki komi til
nýr niðurskurður í grunnskólum
næsta skólaár stendur eftir sem
áður sú staðreynd að um 40 fé-
Iagsmenn í Kennarasambandinu
eru á atvinnuleysisskrá og hafa
aldrei verið fleiri.
Doktorsvöm
í Kanada
RAGNEHIÐUR I. Hlynsdóttir
varði doktorsritgerð í klínískri
sálfræði við Queen’s University í
Kingston, Ontario í Kanada 18.
janúar sl. Ritgerðin nefnist „Pain
Coping Strategies Used by Chil-
dren Undergoing a Venipuncture
Procedure" og er könnun á að-
ferðum sem börn beita af sjálfs-
dáðum til að takast á við sársauka
af völdum læknisaðgerða.
Rannsókn þessi
byggir á úrtaki ís-
lenskra barna á
sjúkrahúsum og er
liður í að hanna lík-
an af átakaferli
(eoping process)
sem börn beita
gegn sársauka og Dr- Ragnheiður.
þróa hnitmiðaðar aðferðir sem koma
megi bömum að notum til að takast
á við læknisaðgerðir er hafa sárs-
auka í för með sér. í rannsókn þess-
ari er léitast við að greina þær að-
ferðir, sem börn beita þegar þau
verða fyrir sársauka af völdum lækn-
isaðgerða og hvemig þær em tengd-
ar vitrænum þroska og fyrri reynslu
barna.
Aðalleiðbeinandi Ragnheiðar í
þessari rannsókn var Dr. G.C. Fekk-
en, prófessor við sálfræðideild Que-
en’s University. Aðalandmælandi var
Dr. J.T. Goodman yfirmaður sál-
fræðideildar Children’s Hospital of
Eastem Ontario.
Ragnheiður Hlynsdóttir er fædd í
Reykjavík 1952. Hún lauk stúdents-
prófí frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1973, BA prófí í sálfræði
frá Háskóla íslands 1979 og MA
prófi frá Queen’s University 1985.
Ragnheiður er dóttir hjónanna Jak-
obínu G. Bjamadóttur (sem er látin)
og Hlyns Sigtryggssonar fyrrverandi
veðurstofustjóra. Eiginmaður Ragn-
heiðar er Georg A. Bjarnason, sér-
fræðingur í krabbameinslækningum,
og eiga þau tvö börn.
Jcíaust í golfþaradísinnl
Vilar Doi
í Portúgal
13.-24. október
undir leiðsögn
Peter Salmon.
Tíu daga golf
á einstökum kjörum:
7 hringir á Quinta Do Lago - fjórir
frábærir níu holu vellir.
2 hringir á Pinheiros Altos -
glæsilegir 18 holu vellir umvafðir
skógi og vötnum
1 hringur á Vila Sol - völlur sem
atvinnumenn keppa á í opna
portúgalska meistaramótinu
Úrval-Útsýn golfmót haldið í lok
ferðar - fyrsti vinningur er viku
ferð til Algarve með dvöl á Vilar
Do Golf.
Allt þetta á:
16.900 kr
m.v. gengi 16. 8.93.
Eða, 1690 kr. hringurinn á einu
virtasta golfsvæði Evrópu.
Vilar Do Golf er frábær gististaður
innan Quinta Do Lago svæðisins.
Verð m.v. tvo í húsi 63.925 kr.m.v. fjóra i húsi
54.615 kr. Allir skattar innifaldir i verði.
P.s. Náið ykkur í golfbækling Úvals Útsýnar á næsta sölustað
Vilar Do Golf er eitt glæsilegasta
golfsvæði í Evropu.
Aðeins 100 metrar frá gististað að
fyrsta teig.
4 4
mm
' / Mjódd: simi 699 300; rid Austurröll: simi 2 69 00
i Hafnarfiröi: stmi 65 23 66; við Ridbústorg á Akureyrl: siml 2 50 00
• og bjá umboðsmönnum um tand aiit