Morgunblaðið - 17.08.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 17.08.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993 29 SVR hf. Ekki veruleg skerð- ing lífeyrisréttinda SAMKVÆMT greinargerð frá VÍB um lífeyrisréttindi starfsmanna SVR vegna hugsanlegrar stofnunar hlutafélags um rekstur SVR verður ekki • veruleg skerðing á lifeyrisréttindum starfsmanna. Svanbjörn Thoroddsen forstöðumaður hjá VÍB sem vann að skýrslunni sagði í viðtali við Morgunblaðið að menn hefðu alltaf gert sér í hugarlund að réttindi í opinberum lífeyrissjóðum væru miklu betri en annarra sjóða og það væri veruleg skerðing á lífeyrisréttindum að hætta þar og fara í annan sjóð. „Þegar þetta er reiknað út er mismunurinn ekki svo ýkja mikill, en þá helst varðandi tryggingaþættina." um í almennum lífeyrissjóði árlega en 2% árlega hjá Reykjavíkurborg. Þegar á heildina er litið kemur þetta sam- bærilega út,“ sagði Svanbjöm. MARKAÐSMAL — Flugleiðir hf. hafa valið svæðið ís- land/Færeyjar/Grænland markaðs- og sölusvæði ársins hjá fyrirtækinu fyrir árið 1992. Markaðs- og sölusvæði ársins er valið þannig, að ákveð- in stig eru gefin fyrir mestu fjölgun farþega, mestu framlegð og flesta farþega miðað við hvern starfsmann. Á myndinni má sjá Sigurð Helga- son, forstjóra Flugleiða, afhenda Sigurði Skagfjörð Sigurðssyni, svæðis- stjóra á svæðinu Ísland/Færeyjar/ Grænland, viðurkenningu af þessu tilefni. Til vinstri stendur Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri markaðs- sviðs hjá félaginu. VlB gerði úttekina á lífeyrisréttind- um starfsmanna SVR að beiðni borgar- stjórans í Reykjavík, Markúsar Amar Antonssonar. í greinargerðinni er gert ráð fyrir að starfsmenn SVR hf. geiði þá lögbundin iðgjöld í almennan lífeyr- isqoð í stað þess að greiða iðgjöld í Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkur- borgar (LSR). „Samkvæmt okkar greiningu virðist almennt vera lítill munur á því að Verslun Stórkaupmenn ósáttir við skipulag grænmetissölu FÉLAG íslenskra stórkaupmanna hefur sent Sighvati Björgvinssyni viðskiptaráðherra bréf, þar sem bent er á nokkrar mögulegar leiðir til breytingar á fyrirkomulagi innflutnings- og dreifingar grænmetis hér á landi. Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri félagsins, segir að jafnvel þótt innlend framleiðsla á grænmeti njóti áfram einhverrar verndar, þá eigi markaðslögmálin að gilda um dreifingu þess. Jafn- framt þurfi að vera skýr og greinileg mörk milli verslunarþáttarins annars vegar og framleiðslunnar hins vegar. Hann segir að Félag ís- lenskra stórkaupmánna hafi sent athugasemdir við núverandi fyrir- komulag til Samkeppnisstofnunar og jafnframt kært einn aðila fyrir misnotkun á markaðsráðandi aðstöðu, en niðurstaða stofnunarinnar liggi ekki enn fyrir. Stefán S. Guðjónsson segir, að samkvæmt sínum upplýsingum starfi innflutningsnefnd garðagróðurs með þeim hætti í dag, að opna fyrir inn- flutninginn þegar birgðir séu á þrot- um hjá öllum framleiðendum í land- inu. Meðan einhver bóndi eigi enn birgðir sé innflutningurinn bannaður. Reynslan sé sú, að þegar framboð frá innlendum framleiðendum minnki, hneigist þeir sem enn eigi einhveijar birgðir til að nýta aðstöðu sína og hækka verðið, og jafnvel að setja á markað vörur, sem vart séu fólki bjóðandi. Markaðslögmálin gildi í grænmetisversluninni Hann segir að eðlilegt markaðs- jafnvægi, þar sem nægilegt framboð grænmetis á hagkvæmu verði sé tryggt, sé ekki fyrir hendi í þessum viðskiptum og núverandi fyrirkomu- lag tryggi ekki hagkvæmustu nýt- ingu framleiðsluþátta þjóðfélagsins. Því þurfi að breyta, og jafnvel þótt innlend framleiðsla fái áfram ein- hveija vernd, eigi markaðslögmálin að gilda í verslun með grænmeti. Það þurfi að vera skýr og greinileg mörk milli verslunarþáttarins annars vegar og framleiðslunnar hins vegar og full samkeppni eigi að ríkja milli þeirra fimm fyrirtækja, sem dreifí grænmeti í heildverslun. Nýjar leiðir Stefán segir að Félag íslenskra stórkaupmanna hafi um nokkurt skeið bent á ýmsar leiðir varðandi störf innflutningsnefndar garðagróð- urs. Markmiðið sé að þessar breyt- ingar tryggi fulla samkeppni í sölu og dreifingu, en eigi ekki að breyta neinu um hagsmuni bænda. Einn möguleikinn sé, að sett verði viðmið- unarverð á hveija grænmetisafurð og þegar verðið sé komið upp fyrir það þak sé innflutningur heimilaður. Ónnur hugsanleg aðferð sé sú, að taka afstöðu til innflutnings eftir að birgða- staðan hafí verið könnuð hjá dreifíng- arfyrirtækjunum fímm og innflutning- ur heimilaður ef varan er ekki til hjá að minnsta kosti þremur þeirra. Þriðja leiðin er sú, að sögn Stef- áns, að selja grænmeti á tölvuvædd- um tilboðsmarkaði. Hann segir að Félag íslenskra stórkaupmanna hafí í samvinnu við Kaupþing hannað kerfí, þar sem stuðst sé við opna til- boðsmarkaðinn, en það kerfi hafí reynst vel við uppbyggingu hluta- bréfamarkaðar hér á landi. Þá megi til viðbótar nefna fjórðu leiðina, sem komið hafi fram í viðtali í Morgun- blaðinu við Bernhard Jóhannesson garðyrkjubónda, en hún er sú að selja grænmeti í gegnum fiskmark- aði. Þessi hugmynd sé góðra gjalda verð. Aðalatriðið sé hins vegar það, að dreifingar- og sölukerfið verði óháð framleiðendunum. starfsmenn færist yfír í annan lífeyris- sjóð. Það sem helst kemur inn í mynd- ina er munur á makalífeyri en hvað varðar almenn lífeyrisréttindi virðist munurinn lítill, allavega hvað varðar þá sem hafa langan aðildartíma að sjóðnum. Breytingin kann hins vegar að leiða til eitthvað lægri eftirlauna hjá ungum mönnum með skamman aðildartíma. Tvær forsendur vega þyngst í niðurstöðum okkar. í fyrsta lagi gera útreikningar okkar ráð fyrir óbreyttum kaupmætti. í öðru lagi að starfsmenn sem hætta í LSR og géta byijað að taka út lífeyrinn sem þeir hafa áunnið sér í LSR við 65 ára ald- ur þó þeir séu áfram í starfi annars staðar, en við gefum okkur að menn starfi almennt til sjötugs. Þau 5 ár sem starfsmenn fá greiddan lífeyri þótt þeir séu að starfa annars staðar vega upp á móti þeim mun að al- mennt ávinna menn sér 1,8% af laun- ÆfrzSk <o. Starfsmannamál 3 O % Bætt aðstaða starfs- fólks skilar sér til fyrirtækisins - segir Ágúst Einarsson hjá Lýsi hf. LÝSIHF. hefur undanfarin ár boðið starfsinönnum sínum upp á leikfim- isaðstöðu á vinnustaðnum og niðurgreitt nudd fyrir þá. Ágúst Einars- son forstjóri fyrirtækisins segir að sjá megi töluverðan árangur af þessu, starfsfólk sé ánægðara, dregið hafi úr veikindaforföllum og það fé, sem í þetta sé lagt, skili sér þannig til baka. £ 2 £ Heitír pottar úr akrýli ! Níðsterkir, auðveldir að þrífa. Fást með ioki eða öryggishlíf. Nuddkerfi fáanlegt. Margir litir, 5 stærðir, rúma 4 - 72 manns. Verð frá aðeins kr. 69.875 Komið og skoðið pottana uppsetta í sýningarsal okkar, hringið eða skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista. Trefjar hf. Stapahrauni 7, Hafnarfirði, sími 5 10 27. 40 AR A ÍSLANDI RAF- 0G LOGSUÐUVÍR MEÐ ÍSLENSKUM LEIÐBEININGUM, LOGSUÐUTÆKI, GASMÆLAR OG FL. GUÐNl JÓNSSON & CO. Skeifunni 5 • S: 91-32670 TTTTTTI I I I I I I I IT BÆJARHRAUNI 8. HAFNARFIRÐI, SlMI 651499 STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI GÓÐ GREIÐSI.UKJÖR VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS Ágúst Einarsson segir að í fyrir- tækinu séu bæði gufubað og lítill íþróttasalur, þar sem starfsfólk geti stundað leikfímisæfíngar sínar, til dæmis í hádeginu. Töluverður hópur nýti sér þessa aðstöðu reglulega, þótt ekki sé þarna boðið upp á leið- sögn eða kennslu. Hann segir að fyrir þremur til ijór- um árum síðan hafí einnig verið hrundið í framkvæmd hugmynd um að bjóða starfsfólki upp á nudd. Mörg störf í fyrirtækinu séu þannig að fólk reyni töluvert á bakið, til dæmis færibandavinna og raunar einnig skrifstofustörf, og því sé áhersla lögð á bak- og axlanudd. Þessa þjónustu greiði fyrirtækið til hálfs á móti starfsmönnunum. Ágúst segist halda, að veikindafor- föll séu óvíða eins sjaldgæf hjá fyrir- tækinu. Forföll heyri til undantekn- inga, og megi vafalaust þakka það að hluta þessari viðleitni fyrirtækis- ins. Því sé svo við að bæta, að Lýsi hf. sé tiltölulega lítill vinnustaður og þar hafí náðst góður starfsandi, sem á efa hafí sín áhrif í þessum efnum. SACHS SACHS KUPLINGAR I ' FARARBRODDI ‘ '-JÖRUTÍU ÁR! MAN - BENZ - VOLVO - SCANIA Framleiðendur vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota SACHS kúplingar og höggdeyfa sem upprunalega hluta í bifreiðar sínar . Það borgar sig að nota það besta! Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8*108 REYKJAVÍK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 VELADEILD FALKANS » VELADEILD FALKANS • VELADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.