Morgunblaðið - 17.08.1993, Side 34

Morgunblaðið - 17.08.1993, Side 34
u Minning Jóhanna Sæberg Fædd 8. september 1896 Dáin 8. ágúst 1993 Móðir mín Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfí ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glðggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsöp lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað alit er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. — Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflt við ráðin þin. Þó skal ekki vfla og vola, veröld þótt oss bijóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. - Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr ijarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. - Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Ámi Helgason) Kveðja frá dóttur. Það er mér kært að fá að minnast ömmu minnar, Jóhönnu Sæberg, með nokkrum orðum. Hún kvaddi þennan heim 8. ágúst síðastliðinn, nær 97 ára að aldri, eftir fallegt og gott ævistarf. Minningin um hana er hlý og góð. Hún var ein af þessum þrosk- uðu sálum sem hver maður hefur gott af að fá að kynnast. Það var alltaf gott að heimsækja ömmu, góða skapið, hlýjan og nægjusemin voru alltaf til staðar hjá henni. Ég held að þetta hafi verið meðfæddur hæfi- leiki, hún vildi engum manni illt gera. Hún var óspör á að leiða mér fyrir sjónir það góða í lífínu og varast það slæma. Ófáar voru stundirnar þegar Mídrykkjur Glæsileg kalfi- hlaðlíorð tallegir salir og mjÖg goð þjonusta. llpplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR eim lmtlíijíi amma var að segja mér sögur frá því þegar hún var ung að aldri, fyrst í Breiðafírði en síðar ung kaupakona í Reykjavík. Er það mér sérstaklega minnisstætt er amma var að segja mér frá því er hún var um 1918 kaupakona hjá fjölskyldu við Vestur- götuna og þurfti að fara með þvott á handvagni í þvottalaugamar í Laugardalnum. Var farið að morgni og verið að þvo í höndunum allan daginn og minntist hún þess hversu erfítt það gat verið að koma vagnin- um með blautan þvottinn upp aust- urbrekkuna á Vesturgötunni og heim. „En maður kvartaði aldrei," sagði hún, „þetta varð maður að gera.“ Frásagnir hennar voru þann- ig, að ég gat lifað mig inn í tíðarand- ann. Það var mikill fróðleikur, sem hún sagði mér frá lífí og starfí sinnar kynslóðar. Ég vil þakka þér fyrir fylgdina í þessu lífí, vonandi hitt- umst við aftur síðar. Góður guð geymi þig, amma mín. Árni Sæberg. Hún amma Jóhanna eða amma litla, eins og við systkinin kölluðum hana ávallt, hefur lokið jarðvist sinni sem var orðin æði löng, tæplega 97 ár. Amma var fædd í Geitareyjum á Breiðafírði. Ung að árum flutti hún með fjölskyldu sinni að Dröngum á Skógarströnd. Þar lést móðir hennar frá fjórum ungum dætrum en amma var næst elst þeirra aðeins 5 ára gömul. Móðurmissirinn markaði djúpt sár sem varð til þess að eftir að hún fluttist frá Dröngum fékkst hún aldrei til að fara þangað heim þó að leið hennar lægi um Skógar- ströndina. Elsta systirin Sigríður er nú ein eftirlifandi þeirra systra. Eyj- ólfur faðir hennar giftist aftur. Fimm böm hans af seinna hjónabandi kom- ust til fullorðinsára og eru tvö þeirra á lífí, Sigurborg og Magnús. Eyjólfur lést í Hafnarfirði 1959 á nítugasta og öðru aldursári. Amma Jóhanna giftist árið 1920 Sæberg afa okkar, bifreiðastjóra í Hafnarfirði. Eina dóttur eignuðust þau, Stellu ömmu okkar. Einnig ólst upp hjá þeim Jóhanna móðir okkar, dóttir Stellu. Amma missti mann sinn 1961, eftir það flutti hún til Reykja- víkur og bjó nokkur ár í Álfheimum 31. Eftir að hún varð ein bjó hún á Dalbraut 1. Amma var mikil hann- yrðakona og munum við hana við krosssaum eða með heklunál í hendi. Ekki má gleyma öllum sokkunum og vettlingunum sem hún sá um að við ættum alltaf nóg af. Lengst af var hún heilsugóð, en síðustu þijú ár var hún að mestu bundin hjólastól en andlegu heilbrigði hélt hún til hinstu stundar og hafði hún sérstaka ánægju af að rifja upp liðna tíð og var henni þá tíðrætt um hinar miklu þjóðfélagsbreytingar sem hún upp- lifði. Amma var jákvæð manneskja og hjartahlý, sem stráði um sig birtu og yl og hvert sem hún fór hafði hún svo mikið að gefa. Seinustu æviárin naut hún frábærrar umönnunar á Sólvangi í Hafnarfirði. Það var mildur síðsumarmorgunn þegar lífsljósið hennar Ömmu litlu slokknaði, sátt við Guð og menn. Við samgleðjumst henni hvað henni HELLUHRAUNI 14 • 220 HAFNARFIRÐI • SlMI 652707 þœgilegu umhverfi með góðri þjónuslu. Glóésilegt kaffihlaðborð á hóflegu verði. tt'OTEL UfW Rauöarárstíg 18 •S 62 33 50 --------------------------------- tókst farsællega að nýta sinn starfs- dag og þökkum henni samfylgdina en hún amma mun ávallt lifa í hjört- um okkar. Hennar kveðjuorð voru alltaf „guð geymi þig, elskan mín“. Við kveðjum hana hinstu kveðju með sömu orðum. „Elsku Amma, guð geymi þig“. Hilmar Sæberg, Svava og Guðmundur Ingi. Jóhanna Sæberg kvaddi á sunnu- degi - sólríkum sunnudegi. Það var henni Iíkt að kveðja þennan heim umvafin geislum sólarinnar. Okkur langar til að minnast hennar á þess- um tímamótum. Jóhanna María eins og hún hét fullu nafni fæddist í Geitareyjum 8. september 1896. Þar hófu foreldrar hennar búskap sinn rétt fyrir alda- mótin, þau Eyjólfur Stefánsson og Sigríður Friðriksdóttir. Eyjólfur var fæddur á Frakkanesi á Skarðsströnd en var síðar kenndur við Dranga á Skógarströnd þar sem hann bjó um nokkurra ára skeið. Jóhanna María var skírð í höfuðið á föðurömmu sinni sem ættuð var frá Krossi á Skarðsströnd og voru þær alnöfnur. Foreldrar Jóhönnu bjuggu í sjö ár í Geitareyjum og eignuðust þar sex börn. Fyrsta bamið fæddist andvana árið 1894, en annað bamið, Sigríður Guðrún, fæddist 1895. Hún er nú ein eftirlifandi alsystranna og býr á Hrafnistu í Reykjavík. Náin tengsl vom milli Sigríðar og Jóhönnu, enda elstar bamanna og mikið sem mæddi á þeim í harðri lífsbaráttu. Fjórða bamið hét Bogi, en hann lést á fyrsta ári. Fimmta bamið, Friðbjörg, fædd- ist 1898. Sjötta bamið, Salbjörg, fæddist 1900. Um fardaga 1901 flutti íjölskyldan að Dröngum á Skógarströnd, en þar fæddist sjö- unda barnið, Hafliði, sem lést á fyrsta ári. Æskuheimili Jóhönnu í Geitareyj- um var stórt og mjög gestkvæmt. Reynt var að taka vel á móti gestum og var þá tjaldað öllu sem til var. Geitareyjar lágu í þjóðbraut í þá daga þó okkur finnist það nær óhugsandi í dag. En þjóðbrautir breytast eins og annað í þessum heimi. Þegar Jóhanna var aðeins fimm ára gömul, árið 1902, lést móðir hennar úr taugaveiki, en þá var fjöl- skyldan nýflutt að Dröngum. Móður- missirinn var henni mjög sár. Faðir- inn stóð einn uppi við erfíðar aðstæð- ur með fjórar litlar dætur. Það kom oft fram hjá Jóhönnu hversu sárt hún saknaði móður sinnar en hún var mikil myndarkona í hvívetna. Faðir Jóhönnu kvæntist aftur og eignaðist sex börn með seinni konu sinni. Af þeim eru tvö á lífi í dag, Sigurborg, f. 1906, og Magnús Jón fyrrverandi símtöðvarstjóri í Hafn- arfirði, f. 1915. Sigurborg og Jó- hanna hafa alla tíð verið mjög sam- rýndar. Hin hálfsystkini Jóhönnu voru: Stefán, f. 1904, Ragnheiður, f. 1907, dó sex mánaða gömul, Bogi Ragnar, f. 1909, og Ingimundur, f. 1910. Þó aldurinn væri ekki hár, beið mikil vinna Jóhönnu eins og annarra heimamanna á Dröngum. Snemma fór hún að létta undir við ýmis verk, ekki einvörðungu á heimilinu heldur líka við róðra og eggjatöku. í skóla lífsins og undir handleiðslu föður síns lærði Jóhanna mikið um fisk- veiðar á litlum, opnum bátum og allt um það hvernig fuglinn hagaði sér í eyjunum á Breiðafírði. Það gerðist oftar en ekki í róðri að gufu- rok brast á og þá var eini kosturinn að hleypa með rokinu, eða taka land í einhverri eynni og bíða þar til veðr- inu slotaði. Skólaganga Jóhönnu varð eins og gerðist á þessum tínia til sveita. Eftir að börnin fóru að stálpast var farkennari tekinn á heimilið til þess að kenna þeim og sóttist Jóhönnu námið vel. Árið 1913 ákvað Jóhanna að flytja frá Dröngum, þá aðeins 17 ára göm- ul. Hún fluttist til Reykjavíkur og réð sig í vist. Oft var vistin erfíð og vinnuharka mikil. Sem dæmi um það má nefna að eitt sinn var hún send ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- -J. I . P E R L A N simi 620200 um tíma austur á Seyðisfjörð í físk- vinnu. Einnig þurfti hún að fara með þvott á handbörum úr Vestur- bænum og alla leið inn í gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum. Þegar Jóhanna var 19 ára var hún einn vetur í Húsmæðraskólanum á Blönduósi. Eftir þá skólavist var hún í kaupavinnu í þijú sumur á Kagað- arhóli rétt utan við Blönduós, en á veturna í vist í Reykjavík. Eiginmaður Jóhönnu var Berthold Benjamín Magnússon. Hann tók sér nafnið Sæberg og fékk til þess sér- stakt leyfi sem staðfest var með konungsbréfí árið 1917. B.M. Sæ- berg var fæddur 28. september 1893 í Hjörskoti á Hvaleyri við Hafnar- fjörð, sonur Magnúsar Benjamíns- sonar og Guðbjargar Þorkelsdóttur. Þau Jóhanna kynntust 1918 en giftu sig tveimur árum síðar, annan dag jóla 1920. Þau héldu brúðkaup- sveislu á Hótel Hafnarfirði um kvöld- ið. Á þessum árum var allt rafmagn tekið af bænum klukkan tíu á kvöld- in, hvort heldur voru jól eða virkir dagar. Vegna veislunnar þetta kvöld, þurftu þau að kaupa rafmagn á all- an bæinn og nutu því allir bæjarbú- ar góðs af. Jóhanna og Sæberg leigðu fyrst um sinn á Strandgötunni í Hafnar- firði. Síðar keyptu þau hús á Kirkju- vegi 20 þar í bæ. Það hús hefur nú verið rifíð og gatan liggur þar sem húsið stóð áður. Þau Jóhanna stund- uðu hestamennsku á þessum árum í Hafnarfírði og voru með hesthús á Kirkjuveginum en einn gaflinn á því var klettaveggur sem stendur enn. Sæberg og Jóhanna ráku Bif- reiðastöð Hafnarfjarðar allt til þess tíma að Sæberg lést 1961. Um tíma ráku þau einnig Bifreiðastöð Sæ- bergs við Lækjartorg í Reykjavík. í tengslum við bifreiðastöðvamar rak Sæberg bifreiðaverkstæði í Hafnar- fírði. Sumir bílstjóranna og starfs- menn verkstæðisins bjuggu á heim- ili Jóhönnu og Sæbergs á þessum árum og getur maður ímyndað sér að þar hafí oft verið margt um manninn og í mörgu að snúast fyrir húsmóðurina á því heimili. Jóhanna og Sæberg eignuðust eina dóttur, Jónu Guðbjörgu, f. 1927, en hún hefur ætíð verið kölluð Stella. Maður hennar er Þórður G. Halldórsson, f. 1921. Hann er fædd- ur í Hnífsdal en flutti ungur til Hafnarfjarðar. Stella á fjögur böm. Elst er Jóhanna Sæberg Guðbjörns- dóttir, f. 1946, en hún ólst upp hjá ömmu sinni og afa í Hafnarfirði, hún er gift Skúla Guðmundssyni; næstur er Kristján Kristjánsson, f. 1951, þá Árni Sæberg Kristjánsson, f. 1956, og loks Margrét Þórðardóttir, f. 1969. Barnabamabörnin eru orðin fimm. Jóhanna hafði alla tíð mikið yndi af hvers konar handavinnu. Hún saumaði jafnt kjóla sem útsaums- myndir og heklaði mikið. Handa- vinna eftir Jóhönnu prýðir heimilin í fjölskyldunni. Hún var alla tíð mjög heilsuhraust og þakkaði það matar- æðinu í Breiðafjarðareyjum, en sem barn og unglingur kvaðst hún alltaf hafa borðað mikið af eggjum og fugli. Jóhanna var trúuð kona. Hún var mjög heilbrigð í sinni trú og bar hana ekki á torg. Þegar hún kvaddi mann, fylgdi gjarnan kveðjan..og guð geymi ykkur, elskurnar mínar“. Hún var mjög hófsöm í hvívetna, þakklát fyrir allt, krafðist einskis af öðrum sér til handa. Hún var sérstaklega skapgóð, alltaf ljúf í við- móti og það var sérstaklega gott að hlæja með henni. „Láttu það svo vera“ var orðatiltæki sem henni var eðlilegt að nota þegar fólk vildi fá hana til þess að samþykkja sjónar- mið þess í umræðum, en með þessu vildi hún undirstrika þá skoðun sína að fólk ætti ekki að deila og vera ósátt út af smámunum sem engu máli skipta. Jóhanna kveið ekki kveðjustundinni. Hún hafði alla tíð reynt að lifa lífinu þannig að það væri engu að kvíða. Við þökkum Jóhönnu fyrir sam- fylgdina og allar yndislegu minning- araar sem við eigum um samveru okkar. „Guð geymi þig!“ Kristján Kristjánsson, Valgerður Snæland Jónsdóttir. Hún amma mín er dáin, 96 ára að aldri. Jóhanna Sæberg giftist Berthold Sæberg, hann rak Bifreiðastöðina í Hafnarfírði. Afí og amma bjuggu í Hafnarfirði þar til afi dó árið 1961 en þá flutti amma til Reykjavíkur, lengst af bjó hún á Dalbraut 1 sem er skammt frá æskuheimili mínu. Þau hjónin eignuðust eina dóttur, Stellu Sæberg. Ung að árum eign- aðist Stella dóttur sem var skírð í höfuðið á ömmu, en amma og afí ólu hana upp. Síðar eignaðist Stella tvo syni, þá Kristján og Áma og loks mig, Margréti. Afa kynntist ég ekki, því hann var látinn áður en ég fæddist. En ég var lánsöm að fá að kynnast henni ömmu og vera með henni svo að segja á hveijum degi, því varla leið sá dagur að hún kom ekki í heimsókn. Það var alltaf mjög gaman því að margt var skrafað og skeggrætt. Amma heklaði dúka sem voru mjög fallegir og svo tók hún til hendinni við heimil- isstörfín ef með þurfti. Pönnukökurn- ar hennar ömmu voru þær bestu sem ég hef smakkað. Við bamabörnin og bamabama- börnin munum öll eftir því þegar við komum í heimsókn inn á Dalbraut til ömmu, þá bauð hún okkur alltaf röndóttan bijóstsykur og konfekt, sem við þáðum alltaf. Foreldrar mínir og ég fluttum til Stöðvarfjarðar eitt ár, amma kom og var hjá okkur nær allan tímann, hún passaði mig á meðan mamma og pabbi vom að vinna. Við amma skemmtum okkur konunglega þenn- an tíma. Rétt áður en hún dó rifjuð- um við upp skemmtilegt atvik sem átti sér þá stað, ég hafði gleymt að loka stútnum á tíu lítra mjólkurgeymi og eldhúsgólfið flóði í mjólk, við hlóg- um alltaf jafn dátt að þessu atviki. Nokkrum árum seinna fórum við til Hríseyjar í nokkra mánuði og að sjálfsögðu var amma með okkur. Hún amma var ungleg miðað við aldur, hún var með slétta og fallega húð. Þegar ég var lítil var amma með eina langa fléttu sem hún vafði í hnút upp yfír höfðinu, hún fylgdi breyttum tíðaranda, lét klippa sig og setja í sig permanent. Þegar ég heimsótti ömmu á Sól- vang, en þar dvaldi hún síðustu tvö árin sem hún lifði, hafði ég alltaf með mér krullujámið svo að ég gæti - lagað á henni hárið, jafnvel lakkaði á henni neglurnar og ekki mátti gleyma varalitnum, því að hún vildi alltaf vera vel til fara og fín. Amma flutti heim til foreldra minna, Stellu og Þórðar G. Halldórs- sonar, árið 1989, en bjó þar í skam- man tíma því að hún var lögð inn á Landspítalann 1990, en það var í fyrsta skipti sem amma fór á spít- ala. Ég eignaðist son í september það sama ár og fórum við strax með Þórð Axel til þess að sýna henni langömmubarnið sitt, það er skemmtileg minning. Mig og fjölskyldu mína langar sérstaklega að þakka starfsfólki á Sólvangi og St. Jósefsspítala fyrir alla þá alúð og umhyggju sem það sýndi henni ömmu í veikindum henn- ar. Að síðustu vil ég þakka henni ömmu minni fyrir allar ánægjustund- irnar sem við áttum saman. Gengin er góð kona, móðir, amma og lang- amma. Far vel heim, heim I drottins dýrðargeim! Náð og miskunn muntu finna, meðal dýpstu vina þinna: Friðarkveðju færðu þeim. Far vel heim. (Matthías Joehumsson) Margrét Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.