Morgunblaðið - 17.08.1993, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 17.08.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLiAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1,7, ÁGÚST 1993 39 KYNNI Byijaðá móðgunum við Brenda skildum var ég búinn að snúa óafvitandi við henni baki. Meira að segja þegar ég var heima, yrti ég varla á hana. Fann mér alltaf eitthvað að gera og var rosa- lega upptekinn. Fann síðan alltaf átyllu tii áð gera alla hluti einn þannig að hún blandaðist ekki í starf mitt. Þó var hún mikilvægur hluti þess, allt frá byrjun stjórnaði hún fjármálunum, minjagripasöl- unni, aðdáendaklúbbunum. Ég hefði í rauninni ekki getað án henn- ar verið. Kannski skipti einhverju máli, að við gátum ekki átt saman barn og þótt við ættleiddum Nicole arið 1988 breytti það þessu ekki. Á ferðalögum mínum voru svo alls konar freistingar, fallegar konur á hverju strái sem voru lausar og lið- ugar og til í tuskið. Ég þurfti ekki að hafa fyrir neinu og þó ég hafí lfallað það á sínum tíma að vera mannlegur og að lifa lífínu, að láta freistast, þá veit ég nú, að Brenda vissi þetta auðvitað og þessi fífla- læti juku verulega álagið á hjóna- bandið. Eitthvað hlaut að bresta,“ segir Richie. Og hann heldur áfram og ræðir um föður sinn: „Hann var orðinn 75 ára og það sem dró hann til dauða voru óhollar venjur. hann reykti og drakk of mikið, át sykur og salt í óhófí. En hann var feiki- lega sterkur persónuleiki sem ég hélt mér dauðahaldi í alla tíð. Er ég sat hjá honum á dauðastundinni brosti hann til mín og sagði, -jæja, hvernig finnst þér að vera við stjórnvölinn?" Ég gat varla mælt, en stundi svo upp úr mér að ég kærði mig ekkert um stjórnvölinn. Svo dó hann og skömmu síðar var einnig komið að leiðarenda í hjóna- bandi mínu. En nú hef ég snúið taflinu við, erfiðleikarnir hafa hert mig og þroskað mig. Nú“sný ég aftur sterkari og betri. Áður var ég ævinlega að leika hetjuna fyrir aðra og það var vandasamt og erf- itt. Einnig blekkjandi. Nú er ég ekki að leika hetju fyrir aðra en sjálfan mig. Þannig á það að vera,“ , segir Lion- el Richie. Fyrirsætan ástralska Rachel Hunter, öðru nafni frú Rod Stewart er nú farin að vinna fyrir sér á ný eftir barnsburðarleyfí. Fyrir skömmu rifjaði hún upp í. viðtali hvemig fyrstu kynni þeirra Rods báru að. „Ég sá hann í næturklúbbi í Los Angeles og var kynnt fyrir honum. Ég þekkti hann ekkert áður, en vissi auðvitað allt um kvennastand hans og að við liggi að hann hafí verið frumkvöðull þeirrar tísku að fyrir- sætur og rokkstjömur taki saman. Mér leist ekkert illa á hann, en varð hvumsa er hann fór að apa eftir hreyfingunum í líkamsræktarmynd- bandi, „Body Sculpting" sem ég hafði gefið út nokkru áður. Ég hreytti út úr mér, hættu þessu, þú gerir lítið úr mér. Hann hætti strax og við tók- um tal saman. Okkur kom strax mjög vel saman og það framhald varð á sem allir vita, við erum gift og eigum saman barn,“ segir Rachel Hunter. Rachel Hunter. Námskeið í heilunaraðferðum indíána Norður-Ameriku helgina 21. og 22. ágúst kl. 10 -17.30 báða daga. Fjallað verður um heilunaraðferðir indíána Norður-Ameríku og fólki kennt að tengjast heilunarkrafti náttúrunnar. Gerður verður samanburður á aðferðum indíána og öðrum seiðheilunaraðferðum og unnið með áhrif trommuslátts og helgisiða á ástand líkamans. Kenndar verða leiðir til að koma á jafnvægi milli andlega og efnislega sviðsins. Auk þess verður hefðbundin „ceremony" helgiathöfn indíána. Qigong: Kínversk heilunaraðferð Fyrirlestur og grunnnámskeið fimmtudaginn 26. ágúst kl. 20—23. Qigong er forn kínversk tækni til heilunar með öndun, líkamsstellingu, hreyfingu og hugleiðslu. Fjallað verður um aðferðina og kenndar grunnaðferðir til sjálfsheilunar. Leiðbeinandi á báðum námskeiðunum er Bandaríkjamaðurinn Ken 'Bear Hawk' Cohen. Hann hefur undanfarin 20 ár verið í læri hjá ýmsum leiðandi heilurum indíána s.s. Rolling Thunder, „ömmu" Twylah Nitsch o.fl. Einnig hefur hann lagt stund á kínverskar heilunaraðferðir og talar kínversku. Hann er einn af „14 undraverðum heilurum" sem Menninger Foundation í Bandaríkjunum rannsakaði vegna yfirnátttúrulegra heilunarhæfileika. Námskeiðin eru haldin í sal Nýaldarsamtakanna, 3. hæð, Laugavegi 66. Skráning og nánari upplýsingar hjá Nýaldarsamtökunum í síma 627712 eða í versluninni Betra Líf í síma 811380. Metsölubladá hverjum degi! Nú er 65 milljóna ára bið á enda. Vinsælasta mynd allra tíma. STEVEN SPIELBERG ™ HASKÓlÁBÍÖ Sýnd kl.5-7-9-11.30. SAMmÍ B í Ó B 0 R G I N Sýndkl.4- 6.30- 9-11.30. SAMmí B í Ó H Ö L L I N Sýnd kl.5-7-9-11.30. Bönnuð börnum innan 10 ára en getur valdið ótta hjá börnum upp að 12 ára aldri. Hausttilboð til Benidorm frá aðeins kr. 36.900 fyrir manninn Tryggðu þér síðustu sætin í sólina í sumar Glæsilegar nýjar íbúðir, Tropicmar, rétt við ströndina á Benidorm. Njóttu lífsins í yndislegu veðri á einum vinsælasta áfangastað Spánar á hreint ótrúlega hagstæðu verði. 25. ágúst 9 sæti 1* sept. 19 sæti 8. sept. 23 sæti Kr. 36.900 k,39.900 Verð m.v. 4 í íbúð, 1 Verð m.v. hjón með 2 börn, vika, 1. sept., Tropicmar. 2—11 ára, 2 vikur, 8. sept., Flugvallarskattur: kr. 3.570,-Fyrir fullorðna, kr. 2.315 fyrir börn. Tropicmar. HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 V7SA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.