Morgunblaðið - 17.08.1993, Page 46

Morgunblaðið - 17.08.1993, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993 Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Fetað í forn fótspor GONGUFÓLK fetar í fótspor Katrínar ríku, sem bjó á Stórólfshvoli, en enn má sjá för í klettunum þar fyrir ofan sem sagt er að séu eftir hana. Haldið upp á 60 ára afmæli Hvolsvallar Heiðursgestur BJÖRN Fr. Björnsson fyrrverandi sýslumaður og alþingismaður var heiðursgestur á afmælishátiðinni á Hvolsvelli. Með honum á mynd- inni er Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður en hún er fædd og uppalin á Hvolsvelli. Hlaupið í skarðið UPPI á Hvolsfjalli var hlaupið í skarðið. Á myndinni má sjá Friðjón Guðröðarson sýslumann á fullri ferð en fremstur á myndinni er Ísólf- ur Gylfi Pálmason sveitarstjóri. Afmælistertan góða AFMÆLISTERTAN var girnileg eins og sést greinilega á svip drengj- anna. Hvolsvelli. ÞAÐ ríkti sannkölluð hátíðar- stemmning á Hvolsvelli um helgina þegar haldið var upp á 60 ára afmæli byggðarlagsins í fallegu og björtu veðri. Margir brottfluttir Hvolhreppingar komu til að gleðjast með heima- mönnum. Dagskráin hófst á föstudags- kvöldi með unglingadansleik, þar sem hljómsveitin Jet Black Joe lék fyrir dansi. Að morgni laugardags- ins var farið í gönguferð á Hvols- fjall en leiðsögumaður var Kristín Guðmundsdóttir frá Stórólfshvoli. Um miðjan dag var haldin mikil afmælisdagskrá í félagsheimilinu Hvolnum. Þar fluttu fjórir Hvols- vellingar, þau Margrét ísleifsdótt- ir, Pálmi Eyjólfsson, Kristín Jó- hannsdóttir og Aðalbjörn Kjart- ansson, brot úr sögu byggðarlags- ins. Karlakór Rangæinga söng undir stjórn Gunnars Marmund- sonar, fjórir ungir piltar sungu rakarasöngva og Agnes Löve lék á píanó fyrir afmælisgesti. SOOkílóaterta Friðjón Guðröðarson sýslumaður og kona hans Ingunn Jensdóttur gáfu Hvolsvelli malverk af Stórólfs- hvoli eftir Ólaf Túbals, sem sýnir staðinn áður en þorpið reis á vellin- um. Þá var boðið uppá mikla af- mælistertu með kaffínu, sem var skreytt merki hreppsins og mynd- um af gömlu kaupfélagsbúðinni og Hvolunum. Tertan vóg hátt á þriðjahundrað kíló og var um 3 fermetrar að stærð. Heiðursgestur á hátíðinni var Bjöm Fr. Bjömsson fyrrverandi sýslumaður og alþing- ismaður Rangæinga. Um kvöldið var öllum boðið á afmælisdansleik Islandsmótið í torfæruakstri Skipstjórinn vann sína fyrstu torfæru Akstursíþróttir Gunnlaugur Rögnvaldsson TORFÆRUKAPPINN Gunnar Eg- ilsson frá Selfossi vann sína fyrstu torfærukeppni á laugardaginn. Hann náði flestum stigum í keppni Akstursíþróttaklúbbs Vesturlands og Akraborgar á Akranesi, en keppnin er hluti af keppninni um íslandsmeistaratitilinn. Með því að ná öðru sæti í flokki sérútbúinna jeppa náði Gísli G. Jónsson frá Þor- lákshöfn góðu forskoti í íslandsmót- inu, en Egilsstaðabúinn Sigþór A. Halldórsson varð þriðji. Keflvíking- urinn Ragnar Skúlason vann í flokki götujeppa og náði með því forystu til íslandsmeistara, Guðmundur Sig- valdason varð í öðru sæti og Þor- steinn Einarsson í því þriðja. Verð harðari í komandi mótum Sigurvegarinn í sérútbúna flokkn- um, Gunnar Egilsson, er útgerðar- maður og skipstjóri, stýrir 230 tonna fiskibát. Hann keppti í fyrra í flokki götujeppa, en ákvað að prófa sérút- búna flokkinn í ár og keyptí Heima- sætuna, en hún var keppnisbíll Árna Kópssonar, sem varð margfaldur íslandsmeistari. „Það var dálítil pressa að byrja að keppa á jeppanum, en ég ákvað strax að taka því rólega í fyrstu tveimur mótunum og ná tökunum á honum. Mér finnst ég þekkja Ljónið vel, eins og ég kalla jeppann núna, og verð örugglega harðari í komandi mótum. Sigurinn núna hjálpar til,“ sagði Magnús í samtali við Morgun- blaðið. „Vegna vinnu minnar á sjón- um er óljóst hvort ég kemst í næstu mót, en ég fer í síðustu keppni árs- ins. Mér gekk ágætlega í þessari keppni, en affelgaði þó í fyrstu þraut og tapaði stigum. Síðan braut ég framöxla í þriðju þraut. Viðgerðar- mennirnir voru eldsnöggir að lag- færa, en það þurfti að rífa drifið úr. Ég náði síðan fullri stigagjöf í síð- ustu þremur þrautunum sem skóp sigurinn.“ Of mikið offors Á meðan mistókst Þóri Schiöth frá Egilsstöðum, sem var í forystu, í fimmtu þraut. Hann kom ekki jepp- anum í gír í upphafi þrautar fyrr en eftir nokkrar tilraunir, sem settu hann úr jafnvægi. Hann óð upp þrautina, en af of miklu offorsi og valt þegar hann var kominn upp hana. Týndist öxull úr stýrisbúnaðin- um og tók talsverðan tíma að lag- færa jeppann, þannig að Þórir tap- aði af fullri stigagjöf í næstu þraut á eftir. Auk þess fékk hann 150 stiga refsingu fyrir að bakka óvart, þegar hann var að fást við gírskipt- in í fimmtu þraut. Féll hann því á endanum í fjórða sætið. í þriðja sæti varð Sigþór Halldórsson á Hlé- barðanum, 100 stigum á eftir Gísla G. Jónssyni, sem ók mjög skemmti- lega í keppninni og hefur náð nán- ast fullkomnu valdi á jeppanum. Hann tapaði hinsvegar 75 stigum strax í annarri þraut, sem gerði gæfumuninn, og varð Gísli 35 stig- um á eftir Gunnari í fyrsta sætinu. Hann hefur þó gott forskot til ís- landsmeistara. Einar Gunnlaugsson féll úr keppni eftir að jeppi hans bilaði, en honum hafði gengið illa í fyrstu þrautunum miðað við fyrstu menn. Gísli og Ragnar efstir Staðan til íslandsmeistara í sér- útbúna flokknum er sú að Gísli hef- ur 67 stig, Einar 46, Reynir Sigurðs: son 36, Þórir 34 og Gunnar 32. í flokki götujeppa er mjótt á munun- um milli Ragnar Skúlasonar með 70 stig og Þorsteins Einarssonar með 68 stig eftir keppni helgarinnar. í báðum flokkum gilda fjögur mót af sex til lokastiga, þannig að slakasti árangur í tveimur mótum telst ekki með. Næsta keppni verður í byijun september í Grindavík og síðan er lokamótið í Jósepsdal um miðjan mánuðinn. Lokastaða efstu manna á Akra- nesi var þessi: Sérútbúnir Stig 1. Gunnar Egilsson 2000 2. Gísli G. Jónsson 1965 3. Sigþór Halldórsson 1865 4. Þórir Schiött 1785 5. Reynir Sigurðsson 1785 Götujeppar Stig 1. Ragnar Skúlason 2025 2. Guðmundur Sigvaldason 1975 3. Þorsteinn Einarsson 1920 4. Sigurður Þ. Jónsson 1520 5. Jón Guðmundsson 1305 Keflvíkingurinn Ragnar Skúlason vann í flokki götujeppa og hefur náð forystu til íslandsmeistara í sínum flokki, en hann er núverandi meistari. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Sigurvegari í flokki sérútbúinna jeppa varð Gunnar Egilsson frá Sel- fossi, sem er skipstjóri og útgerðarmaður á Suðurlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.