Morgunblaðið - 17.08.1993, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.08.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993 47 þar sem Hálft í hvoru lék fyrir fullu húsi glaðra afmælisgesta. Að sögn Helgu Þorsteinsdóttur oddvita ríkti mikil ánægja með hátíðarhöldin. „Þetta tókst mjög vel í alla staði og var gleðilegt að sjá hversu margir mættu, bæði brottfluttir, heimamenn og fleiri sem heiðruðu okkur með nærveru sinni þennan dag..Það setti einnig sinn svip á hátíðina hversu margir lögðu hönd á plóginn við undirbún- inginn og hið jákvæða hugarfar sem ríkti gleymist ekki og væri vel þess virði að gera þetta ein- hvem tíma aftur,“ sagði Helga. Upphafið rakið til kaupfélagsins Upphafið að myndun þéttbýlis á Hvolsvelli má rekja til þess að fyrir ríflega 60 árum flutti Kaup- félag Hallgeirseyjar verslun sína á Hvolhrepp en þá var farið að flytja vörur með bílum og því þótti hentugra að hafa verslunina þar sem hún var meira miðsvæðis og var henni því valinn staður við þjóðveginn og fjölfarin vegamót til Fljótshlíðar. Þetta var í landi hinnar sögufrægu landnámsjarð- ar, Stórólfshvols, og þar átti síðan eftir að rísa byggð sem nú telur tæplega sjö hundruð manns en í Hvolhreppi öllum búa nú tæplega átta hundrað manns. Mest fjölgaði á Hvolsvelli uppúr 1970 en þá fluttu margir í þorpið vegna virkj- unarframkvæmdanna á Suður- landi. Þá hefur fjölgunin aftur tek- ið kipp við flutning Sláturfélagsins og hefur verið um 5% síðastliðin tvö ár. Sláturfélagið hefur nú tek- ið við því hlutverki að vera stærsti atvinnurekandinn á staðnum af Kaupfélagi Rangæinga sem allt fram til 1991 var bæði stærsti og fyrsti atvinnurekandinn á Hvols- velli. Það má því taka undir orð heiðursgestsins Bjöms Fr. Bjöms- sonar, fyrrverandi sýslumanns og alþingismanns Rangæinga, sem sagði í ræðu sinni að Hvolsvöllur væri samvinnubær, því þessi fyrir- tæki eru bæði samvinnufyrirtæki og íbúamir hafa í gegnum tíðina verið samhentir um að skapa fal- legt og gott byggðarlag. - S.O.K. Bíða á með að taka í notkun hjúkrunarrými fyrir aldraða Á annað hundrað manns talið í brýnni þörf fyrir vistun VEGNA sparnaðar í ríkis- rekstri hefur verið óskað eftir því við stjóm Hjúkrunarheimil- isins Eir að frestað verði að taka í notkun 25 ný rúm þann 1. október næstkomandi. Krist- jana Sigmundsdóttir forstöðu- maður vistunar hjá félagsmála- stofnun Reylgavíkurborgar, segir að á annað hundrað manns séu í brýnni þörf fyrir vistun og efast hún um að sparnaður náist fram með þess- um hætti. í stað hjúkrunar- heimila sé fólk vistað á sjúkra- húsum sem er mun dýrari lausn eða það nýtur kostnaðarsamr- ar heimahj úkrunar. „Hátt á annað hundrað manns eru á biðlista og í brýnni þörf fyrir vistun á hjúkrunarheimili," sagði Kristjana. Gert var ráð fyr- ir að 25 ný rúm yrðu tekin í notk- un 1. október næstkomandi sam- kvæmt samkomulagi milli heil- brigðisráðuneytisins og stjórnar Eir og að önnur 25 rúm yrðu tek- in í notkun í janúar 1994 en ósk- að hefur verið eftir frestun og að samningurinn verði endurskoðað- ur. Óvíst um sparnað Kristjana benti á að ekki væri víst að sparnaður næðist með þessu móti, þar sem tryggingar til vistmanna á hjúkrunarheimil- um féllu niður og tekið er af líf- eyrissjóðsgreiðslum upp í kostnað við vistun. „Flestir eru meira og minna inn á sjúkrahúsum í miklu dýrari plássum eða með heima- hjúkrun og heimahjálp allan sólarhringinn og það er dýr þjón- usta. Þannig að í raun er enginn sparnaður þegar upp er staðið," sagði hún. „Þörfin er mjög brýn núna. Þessi 50 pláss éru dropi í hafið og mjög erfitt að velja hver á að fá inni. Ég veit ekki hvað gerist ef þau koma ekki til. Það veitti ekki af 100 plássum ef við ættum að anna eftirspurn.“ Biðstaða Sigurður H. Guðmundsson for- maður bygginganefndar, segir að málið sé í biðstöðu og að endanleg ákvörðun hafi ekki verið tekin en óskað hafi verið eftir fundi með ráðherrum. Á síðasta ári fengust 73 milljónir til heimilisins en það tók til starfa 1. mars síðastliðinn. Reiknað er með að rekstur 50 rúma kosti um 150 milljónir á ári. Sjúkraliðanemar í tveimur fjölbrautaskólum Námssamningur Borgar- spítala náði til 20 nema Tekist hefur að fá pláss fyrir fimm nema annars staðar Námssamningur Borgarspítala við sjúkraliðanema í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og við Ármúla, sem spítalinn sagði ný- lega upp, tók til um 20 framhaldsskólanema. Átta eru úr Fjöl- brautaskólanum við Ármúla og hefur tekist að fá pláss fyrir 5 þeirra annars staðar, að sögn Hafsteins Stefánssonar skóla- meistara. Þórdís Ólafsdóttir, áfangastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sagðist ekki vita til þess að tekist hafi að fá pláss fyrir sjúkraliðanemana þaðan annars staðar. Á þessari stundu virðist því útlit fyrir að rúmlega helmingur hópsins geti ekki haldið áfram námi sínu á haustönn. Hafsteinn sagði að skipulag námsins væri með þeim hætti að fyrstu tvö árin væru bókleg en á þriðja og síðasta ári væru nemend- ur við störf á sjúkrastofnunum 4 daga í viku en í skólanum einn dag. Hann sagði að 8 þriðja árs nemar hefðu verið skráðir í starfs- nám á Borgarspítalanum að þessu sinni en þegar námssamningi hefði skyndilega verið rift hefði verið gengið í að reyna að útvega ne- munum pláss annars staðar. Þann- ig hefði með mikilli fyrirhöfn tek- ist að útvega þeim 5 sem átt hefðu eftir starfsnám á deildum sem reknar væra annars staðar en á Borgarspítalanum önnur pláss en hinir 3 stæðu eftir. Ekki væri á þessari stundu útlit fyrir að þeir gætu haldið áfram námi á þessu ári. Súrt í brotið Lét Hafsteinn þess getið að mönnum þætti auðvitað súrt í brot- ið þegar samnirigi væri rift einhliða og fyrirvaralaust á versta tíma eins og gert hefði verið. „Við teljum að þama sé skólakerfið auðvitað Fjölmenni á opnum degi á Hvanneyri Flestir dvöldu lengst viö markaðs- tjöldin heima á hlaði gamla skólans Hvannatúni í Andakíl. UM 2.300 manns komu á Opinn dag, kynningu á starfsemi Bænda- skólans, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Hagþjónustu land- búnaðarins á Hvanneyri sí. sunnudag. Mjög gott veður var og gest- ir gáfu sér góðan tíma til að skoða mjög fjölbreytileg kynningaratr- iði þessara stofnana og fjölda annarra, sem komu að þessum degi. Þó að fólk væri dreift um allan Hvanneyrarstað munu flestir hafa dvalist lengst við markaðstjöld heima á hlaði gamla skólans. í öðru tjaldinu höfðu konur Ullarselsins aðstöðu og unnu m.a. peysu úr ull sem Guðmundur Hallgrímsson ráðs- maður hafði rúið fyrir utan tjaldið. Peysan var spunnin og pijónuð jafn- óðum og bandið var tilbúið og pijón- uðu tvær konur hana í einu á tvo hringpijóna. Peysa á tæpum 6 tímum Getraun var í gangi um það hve langan tíma það tæki, frá því að kindin var tekin þar til búið væri að sauma ermarnar á og reyndist sá tími vera 5 klst., 50 mínútur og 44 sek. Kristín Ósk Halldórsdóttir, Esjuvöllum 11, Akranesi, komst næst endanlegum tíma og hlýtur peysuna að verðlaunum. Hún á eftir að þvo peysuna, hún var pijónuð úr hreinni ullinni, eins og hún kom af skepnunni. Fimm konur unnu að peysunni í einu allan tímann. Ekki er vitað að slík keppni hafi áður farið fram hér á landi. í hinu tjaldinu kynntu Kaupfélag Borgfirðinga þurrkryddað grillkjöt, Mjólkursamlagið í Borgarnesi ýmsar tegundir bíómjólkur og Osta- og smjörsalan nýja osta. Kynningin var svo víðtæk að eigi verður um allt getið. Búfé var á túni, aðilar Félags íslenskra búvéla- innflytjenda sýndu það nýjasta í mögulegum vélbúnaði bænda, línak- ur og spuni úr líni í skjólbeltinu vakti athygli, leirmunasýning, gaml- ar gangfærar dráttarvélar óku um staðinn, Bútæknideild Rala, búvéla- safn, bókasafn skólans, kynning Bænda-, Búvísinda- og Endur- menntunardeildar, Hagþjónusta landbúnaðarins, reiðsýning, Naut- stöð Búnaðarfélags Islands, jarð- vegstilraunir og ræktun mat- og fóðuijurta og margt fleira. Bændaskólinn og Kvenfélagið 19. júní sáu um veittingarnar, þar sem verði var mjög í hóf stillt. Gestir er fréttaritari hafði tal af voru sam- mála um að á Hvanneyri væri meira en Bændaskóli, eins og nafnið gæti gefið til kynna. Kynningaraðilar eru þakklátir fyrir hvað margir sáu sér fært um að koma, sumir um langan veg. að þjálfa og mennta upp starfsfólk beinlínis fyrir spítalana þannig að okkur þykir hálf bagalegt að spítal- arnir taki ekki þátt í því. Annað sem ég vildi leggja áherslu á er að það er alltaf verið að tala um að fjölbrautaskólar eigi að leggja áherslu á frekar styttri verklagar námsbrautir, sem skila fólki frá sér með verkmenntun og kunnáttu, og á það eram við að leggja mikla áherslu. En þá er höggvið svona á þetta af hálfu ríkisvaldsins," sagði Hafsteinn og gat þess að ekki gæti heldur verið um háa fjárupp- hæð að ræða. Erfitt um vik Menntun sjúkraliða hefur farið nokkuð lengur fram í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti en í Ár- múlarium og sagði Þórdís Ólafs- dóttir áfangastjóri, að upphaflega hefði verið gert ráð fyrir að nem- endur væra í starfsnámi á sjúkra- stofnunum yfír sumarmánuðina. Smám saman hefði svo orðið erfið- ara að fá pláss og því hefði verið ákveðið að færa verklega námið yfír á vetrartímann, líkt og gert væri í Ármúla. Ekki hefði þó geng- ið áfallalaust að útvega öllum pláss og lagði Þórdís áherslu á að ekki yrði hlaupið að því að útvega þeim u.þ.b. 10 nemendum, sem vera áttu á Borgarspítala, pláss annars staðar. Þannig virtist útlit fyrir að nemendumir gætu ekki haldið áfram námi á næstu önn. Gömlu traktoramir FARMALL A er í fararbroddi í skrúðakstri gamalla dráttarvéla sem sýndar voru á Hvanneyri á sunnudag. ' ef þú spilar til að vinna! 1 32. lelkvtka, 14. -15. ágúst 1993 Nr. Leikur: RMin: 1. Brage - NorrkSping - - 2 2. Trelleborg-Halmstad 1 - - 3. örgryte - V-Fr5iunda - X - 4. Öster - Malmo - X - S Assyrtska - IFK Sundsv. 1 - - 6. OPE - Sirius 1. - , 7. GIF Sundsv. - UMEÁ - - 2 8. Vasalund - SpirvBgen - - 2 9. CAIS - Jonsered 1 - - 10. Gunnilse - MjBUby 1 - - 11. HBssIeholm - Landskrona - X - 12. Lund - Myresjö 1 - - 13. Uddevalla - Forward 1 - - Heildarvinningsupphseöln: 80 milljón krónur 13 réttir: f 12 réttir: f 11 réttir: ' 10 réttir 1329.630 J kr. 30.650 2.690 720 Morgunblaðið/DJ Spunnið úr ull KONUR unnu peysu úr ull sem var rúin á staðnum, spunnin og pijónuð jafnóðum og bandið var tilbúið. Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.