Morgunblaðið - 23.10.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
Skurðstofur stækkaðar á Landspítala
Kostnaður við fram-
kvæmdir og tækjakaup
80 milljónir króna
FYRSTI áfangi stækkunar á skurðstofum og gjörgæsludeild Land-
spítala er nú langt kominn, en heildarkostnaður við framkvæmdir
og tækjakaup er áætlaður um 80 milljónir kr. Legudeild 12-A
hefur verið lögð niður vegna framkvæmdanna og verður húsnæði
hennar bætt við skurð- og gjörgæsludeildir. Alls nemur viðbótin
470 fermetrum og er um að ræða 40% stækkun þessara deilda.
Skurðstofur á skurðdeild eru nú 6 en verða 8 að loknum breytingum.
Einnig verður útbúin sérstök
móttaka þar sem sjúklingar eru
færðir yfir á skurðborð og undir-
búnir fyrir aðgerð, sem á að auka
afköst á skurðstofunum. Einnig
verður gæsluskáli, þar sem sjúk-
lingar vakna eftir aðgerð, stækk-
aður og verðúr fyrir 11 sjúklinga
en núverandi uppvöknun er fyrir
5 sjúklinga.
Breyttar aðgerðir kalla á
aukningu rýmis og tækja
Jónas Magnússon, yfírlæknir á
handlækningadeild Landspítalans,
segir ástæðu framkvæmdanna þá
að aðgerðir hafi breyst mikið á
undanfömum ámm. Breytingarn-
ar kalli nú á mikla aukningu tækja
inn á skurðstofur, og með nýjum
aðferðum sé hægt að stytta legu-
tíma sjúklinga, sem auki þörf á
stækkun og fjölgun skurðstofa til
að hægt sé að gera fleiri aðgerðir.
Áætlað er að öllum áföngum
verksins ljúki á árinu 1995.
Skurðstofur stækkaðar
FYRSTI áfangi við stækkun á skurðstofum Landspítala er vel á veg
kominn, en ásamt tækjakaupum er áætlaður kostnaður um 80 milljón-
ir króna.
Tyrkneska dóms-
málaráðuneytið
Getur ekkert
aðhafst í for-
ræðismálinu
„AF ÞVÍ að málið er í höndum
réttarins og hann er sjálfstæður
getum við ekkert gert,“ segir
Yildirim Turkmen, skrifstofu-
stjóri í tyrkneska dómsmálaráðu-
neytinu, þegar spurst er fyrir
um aðgerðir af hálfu tyrkneskra
stjórnvalda í forræðismáli Soph-
iu Hansen í Tyrklandi. Hann seg-
ist ekki efast um að mál Sophiu
fái sanngjarna málsmeðferð í
Tyrklandi.
Þegar rætt var við Yildirim sagð-
ist hann því miður ekki hafa upplýs-
inga um einstaka þætti málsins af
þeirri einföldu ástæðu að það væri
nú í höndum dómstóla. Állar að-
gerðir byggðust á niðurstöðu þeirra.
„En ég held að dómstólar geri allt
sem í þeirra valdi stendur til að
leysa málið. Eins og stendur getum
við því miður ekkert gert,“ sagði
Yildirim.
VEÐUR
IDAG kl. 12.00
Heímik): Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 9 skýjað Reykjavik 3 skúrir
Bergen 6 skýjað
Helainki 0 léttskýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Narssarssuaq +3 rigning
Nuuk snjóél
Ósló 3 léttskýjað
Stokkhólmur 4 léttskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 9 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 8 alskýjað
Chicago 1 heiðskfrt
Feneyjar 13 skýjað
Frankfurt 8 aiskýjað
Glasgow 5 mistur
Hamborg 8 skýjað
London 11 skýjað
LosAngeles 18 alskýjað
Luxemborg 6 skýjað
Madríd 12 heiðakirt
Malaga 22 hálfskýjað
Mallorca 12 skýjað
Montreal 7 skýjað
New York 11 skýjað
Orlando 22 þoka
París 8 skýjað
Madeira 21 léttskýjað
Róm vantar
Vín 8 þokumóða
Washington 10 skýjað
Winnipeg +2 heiðsklrt
Hæstiréttur um sölu á jörð við Haffjarðará
Kaupsamningiu’ ógilt-
ur og forkaupsréttur
leyfður á matsvirði
HÆSTIRÉTTUR hefur hnekkt dómi héraðsdóms og tekið til greina
kröfu ábúanda jarðarinnar að Kolviðarnesi við Haffjarðará i Hnappa-
dalssýslu um að hann fái að kaupa jörðina fyrir 2,2 milljóna króna
matsverð. Jörðina höfðu Páll G. Jónsson og Ottar Yngvason keypt
12. nóvember 1987 af fyrri eiganda, Þórði Thors, ásamt 9 öðrum
jörðum við ána, ánni sjálfri og veiðihúsum fyrir samtals um það bil
111 milljónir króna. Aðaláhugaefni kaupendanna var veiðirétturinn
í Haffjarðará.
í samningi aðilanna kom fram
að jörðin Kolviðarnes væri í samn-
ingnum metin á 6 milljónir króna
og á því verði var ábúandanum
boðið að neyta forkaupsréttar síns.
Hann ákvað áð neyta forkaupsrétt-
ar og krefjast mats á verðmæti jarð-
arinnar þar sem hann teldi kaup-
verð eigna óeðlilega hátt og skil-
mála ósanngjarna miðað við við-
skiptavenjur og ætla mætti að það
væri gert í því skyni að halda for-
kaupsréttarhöfum frá því að neyta
réttar síns.
Niðurstaða matsmannanna var á
þá leið að.söluverð eignanna í heild
væri ekki óeðlilegt og skilmálar
ekki ósanngjarnir en leigusamning-
ur um 10 ára veiði í Haffjarðará
og Oddastaðavatni sem væri van-
metinn. Matsmenn kváðust ekki
einungis hafa metið jörðina sem
landbúnaðaijörð heldur tekið tillit
til réttar til að innleysa veiðirétt.
Eðlilegt verð fyrir jörðina væri 2,2
milljónir. Þá íjárhæð „deponeraði"
ábúandinn þegar seljandi neitaði
að taka við greiðslu.
Greitt fyrir en ekki átt
veiðirétt
í dómi Hæstaréttar segir að hefði
ábúandinn tekið forkaupsréttarboð-
inu hefði hann verið að greiða fyrir
veiðiréttindi fyrir landi jarðarinnar
án þess að eiga þau en fram hafði
komið hjá kaupendum að hagsmun-
ir þeirra af kaupum á jörðinni hafi
verið þeir að þurfa ekki að eiga á
hættu að eigandi hennar reyndi að
leysa þau réttindi til sín. „Mati f...]
hefur ekki verið hnekkt og hafa
stefndu ekki sýnt fram á að hægt
hefði verið að fá hærra verð en
matsverðið fyrir jörðina ef hún hefði
verið seld ein sér án húsakosts og
ræktunar í eigu áfrýjanda. Er því
fram komið að verð það sem jörðin
var boðin [ábúandanum] á var óeðli-
lega hátt og mátti það vera [selj-
anda og kaupendum] ljóst er for-
kaupsréttur var boðinn á hinu til-
greinda verði,“ segir í dómi meiri-
hluta Hæstaréttar. Hann dæmir að
ábúandinn hafi samkvæmt jarða-
lögum og án þess að gengið væri
á stjórnarskrárvarinn eignarrétt
seljandans, átt rétt á að neyta for-
kaupsréttar samkvæmt 2,2 milljóna
króna matsvirði. Hæstiréttur ógilti
samkvæmt því kaupsamning fyrri
eiganda og kaupendanna tveggja.
Sératkvæði
Meirihluta Hæstaréttar skipuðu
Hrafn Bragason, Haraldur Henr-
ysson og Guðmundur Jónsson fyrr-
um hæstaréttardómari.
Guðrún Erlendsdóttir og Garðar
Gíslason skiluðu sératkvæði og
vildu staðfesta dóm héraðsdóm sem
hafði synjað ábúanda um að neyta
forkaupsréttar fyrir annað verð en
samningsverð. Minnihluti taldi það
ákvæði jarðalaga sem meirihluti
byggði á einungis ætlað til að koma
í veg fyrir málamyndagerninga sem
gerðir væru til að koma í veg fyrir
að aðili fengi neytt forkaupsréttar.
----------♦—»■■■■♦-
Laxaseið-
um slátrað
Landbúnaðarráðuneytið hefur
falið dýralækni fisksjúkdóma að
slátra 10-15 þúsund sýktum laxa-
seiðum í keri hjá fiskeldisstöð-
inni Strönd hf. á Hvalfjarðar-
strönd, en stöðin varð gjaldþrota
fyrir skemmstu.
Fiskurinn sem um ræðir hefur
ekki verið fóðraður í nokkrar vikur,
en að sögn Ingimars Jóhannssonar,
fiskifræðings hjá landbúnaðarráðu-
neytinu, átti bústjóri þrotabúsins
að sjá um að það yrði gert. Land-
búnaðarráðuneytið er helsti kröfu-
hafinn í þrotabúið og sagði Ingimar
að það hefði þurft að grípa inn í
málið þar sem bústjórinn hefði ekki
gert viðeigandi ráðstafanir.
)
\
\
\