Morgunblaðið - 12.11.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993
43
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Lílil fyrirstada
„Ég hafði það á tilfinningunni að við gætum gert enn betur,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari, eftir 15 marka sigur íslands á Búlgörum í Laugardalshöll
KNATTSPYRNA
„ÉG er ekki ánægður með leik-
inn hjá okkur, en aftur á móti
ánægður við fimmtán marka
sigur. Ég hafði það á tilfinning-
unni að við gætum gert enn
betur. Við vorum full bráðir á
stundum í sókninni. En ég
held að spennan sé runnin af
leikmönnum fyrir síðari leikinn
og ég sætti mig ekki við minna
en fimmtán marka sigur í hon-
um,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsiiðsþjálfari,
eftir að íslenska landsliðið
hafði unnið stórsigur á slöku
liði Búlgara, 30:15, í4. riðli
Evrópukeppninnar í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi.
Leikurinn var ekki mjög spenn-
andi enda kannski ekki við
því að búast miðað við gengi búlg-
arska liðsins í keppninni til þessa.
■■■■■ Liðið er afar slakt
VaiurB. og eitt lélegasta
Jónatansson landslið sem komið
hefur í heimsókn
hingað til lands lengi. Búlgarar
töpuðu með samtals 38 marka
mun fyrir Hvít-Rússum í tveimur
leikjum og 19 marka mun fyrir
Króötum. íslenska liðið þarf því
helst að vinna með 23 marka mun
í kvöld til að jafna Hvít-Rússana
og það ætti að takast með góðurn
stuðningi áhorfenda.
Það er óþarfi að fara mörgum
orðum um leikinn því yfírburðir
íslenska liðsins voru miklir á öllum
sviðum handknattleiksins. Það
getur verið erfítt að halda einbeit-
ingu út heilan leik gegn svo slöku
liðið og það komu kaflar sem ís-
lensku strákarnir voru kærulausir
og það má ekki því hvert mark
getur skipt miklu máli er upp er
staðið í vor.
Gústaf bestur
Gústaf Bjarnason var besti leik-
maður íslenska liðsins, skoraði 7
mörk úr 8 tilraunum. Valdimar
Grímsson og Gunnar Beinteinsson
voru einnig góðir. Dagur og Kon-
ráð fundu sig ekki alveg í sókn-
inni en stóðu sig vel í vörn. Patrek-
ur var of kærulaus, gerði 3 mörk
úr 6 skotum. Guðjón Ámason
stjómaði leiknum í stað Dags í
síðari hálfleik og óx með hverri
mínútu. Einár Gunnar spilaði aðal-
Iega í vörn og skilaði sínu og Ólaf-
ur Stefánsson datt út úr leiknum
í síðari hálfleik eftir ágætan fyrri
hálfleik. Guðmundur hefur oft
varið betur í markinu en getur þó
verið sáttur við sitt.
Þorbergur var ekki ánægður
með stuðning áhorfenda í Höllinni
í gærkvöldi. „Ég er viss um að
það hafði veruleg áhrif á strákana
hve fáir voru í húsinu. Þetta er
mjög miður og lélegur stuðningur
við baráttu okkar í keppninni.
Fólkið setur þær kröfur á okkur
að við stöndum okkur og vinnum
stórt og það á þá líka að láta sjá
Ross þjálfar Keflvíkinga
Ian Ross hefur gefið Keflvíkingum
ákveðið svar um að hann þjálfi
1. deildarlið þeirra næsta keppnis-
tímabil. Ross kemur til landsins
eftir aðra helgi og gengur þá frá
samningum við ÍBK.
Keflvíkingar hafa fengið góðan
liðsstyrk frá sl. keppnistímabili, en
þeir hafa endurheimt Ólaf Gott-
skálksson og Ragnar Margeirsson
og þá er Ámi Vilhjálmsson kominn
á ný í herbúðir þeirra, eftir árs dvö
í Danmörku. Leikmenn Keflavíkur-
liðsins æfa nú á fullum krafti.
Morgunblaðið/Bjami Eirtksson
Gústaf Bjarnason var besti leikmaður íslenska liðsins gegn Búlgörum í gærkvöldi. Hann skoraði sjö mörk úr átta
tilraunum, þar af eitt með skoti afturfyrir sig af línunni.
sig svo við fínnum fyrir stuðningi
þess,“ sagði Þorbergur. Það em
orð að sönnu því aðeins rúmlega
300 manns lögðu leið sína í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi.
Hefði viljað sjá fleiri
„Þetta var kannski létt en við
megum ekki gleyma því að hvert
mark er mikilvægt fyrir okkur og
getur skipt sköpum," sagði Valdi-
mar Grímsson, fyrirliði. „Þetta lið
er það lélegasta í riðlinum og við
vitum það, en við verðum líka að
sýna þann styrk að geta unnið það
með sem mestum mun. Við sýnd-
um ákveðinn styrk að vinna fyrri
hálfleikinn með átta mörkum og
þann síðari með sjö. Ég hefði þó
persónulega vilja sjá þau aðeins
fleiri. Við þurfum fleiri mörk og
ég held að þau komi í síðari leikn-
um ef við fáum góðan stuðning
áhorfenda.
4. RIÐILL
FINNLAND- KROATIA ...........26:31
KROATIA- BULGARIA............28:19
BULGARIA - KROATIA...........17:27
FINNLAND- ISLAND.............23:23
H-RUSSLAND- KROATIA..........23:23
H-RUSSLAND- BULGARIA .......43:14
BULGARIA- H-RUSSLAND ........22:31
H-RUSSLAND - FINNLAND........37:25
ISLAND- KROATIA..............24:22
ISLAND- BULGARIA.............30: 15
Fj. leikja U J T Mörk Stig
H-RUSSLAND 4 3 1 0 134: 84 7
KROATIA 5 3 1 1 131: 109 7
ISLAND 3 2 1 0 77: 60 5
FINNLAND 3 0 1 2 74: 91 1
BLJLGARIA 5 0 0 5 87: 159 0
FOLK
■ FRITT verður fyrir 16 ára og
yngri á landsleikinn gegn Búlgör-
um í Laugardalshöll í kvöld. HSÍ
ákvað þetta eftir leikinn í gær-
kvöldi þar sem aðeins rúmlega 300
áhorfendur komu á fyrri leikinn í
Særkvöldi. Leikurin hefst kl. 20.40.
I ELLERT B. Schram, forseti
ÍSÍ, var heiðursgestur á leiknum
Segn Búlgaríu í gærkvöldi.
I EVGENI Alexandrov, sem
leikur með Þór frá Akureyri í 1.
deildinni, spilaði með búlgarska
landsliðinu í gær og var einn besti
leikmaður liðsins, gerði þrjú mörk.
■ ÍSLENSKA liðið var með 55%
sóknarnýtingu í fyrri hálfleik og
50% í þeim síðari. Liðið gerði 13
mörk eftir hraðaupphlaup, 3 af línu,
3 úr horni, 4 úr langskotum, 3 eft-
ir gegnumbrot og 4 úr vítum.
■ GUNNAR Beinteinsson var
með 100% skotnýtingu í leiknum,
gerði fjögur mörk úr jafnmörgum
tilraunum — 3 eftir hraðaupphlaup
og 1 úr vinstra horninu.
I VALDIMAR Grímsson, fyrir
liði íslands, lét Branimir Borisov
í marki Búlgara veija frá sér víti,
en annars var hann með góða nýt-
ingu; 8 mörk úr 10 skotum.
Valsmenn seldu heima-
leikinn á 700 þús. krónur
Valsmenn seldu heimaleik sinn gegn Sandeijord í Evrópukeppni
meistaraliða í handknattleik fyrir 70 þúsund norskar krónur eða
tæplega 700 þúsund íslenskar krónur. Þetta er haft eftir formanni
Sandefjord í norska dagblaðinu Aftenposten sl. mánudag.
„Það er ekki hægt að segja að við hefðum keypt okkur sæti í úr-
slitakeppninni með því að greiða þessa peninga. Þetta er sama upphæð
og við hefðum þurft að leggja út ef við hefðum spilað á íslandi. Þetta
var þó sterkur leikur I\já okkur að kaupa leikinn því í 8-liða úrslita-
keppninni fáum við tækifæri til að þéna meiri peninga," sagði Thor
Klaveness, formaður Sandefjord, í samtali við Aftenposten.
ísland - Búlgaría 30:15
Laugardalshöll, Evrópukeppni landsliða karla, fimmtudaginn 11. nóvember 1993.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 8:2, 10:3, 12:4, 13:5, 14:6, 16:8, 20:8, 21:10, 22:11, 24:11,
26:14, 30:14, 30:15.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 8/4, Gústaf Bjamason 7, Gunnar Beinteinsson 4,
Patrekur Jóhannesson 3, Guðjón Ámason 3, Ólafur Stefánsson 2, Dagur Sigurðsson 1,
Konráð Oiavson 1, Einar Gunnar Sigurðsson 1. Aðrir leikmenn: Magnús Sigurðsson og
Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður, sem var sá eini sem ekki kom inná í leiknum.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10/1 (þar af 1 til mótheija).
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Búlgaríu: Kostadin Semerdjiv 3, Evgeni Aiexandrov 3/2, Georgi Christov 2,
Nasko Apostolov 2, Javor Batschva 2, Georgi Petkov 1, Vladimir Astikov 1, Borislav
Maschev 1.
Varin skot: Branimir Borisov 6/1. Toni Aleksandrov 3.
Utan vallar: 12 mínútur. Branimir Maschev fékk rauða spjaldið fyrir að nota .júgóslavn-
eska“ bragðið á Valdimar Grímsson þegar 10 mín. vom liðnar af síðari hálfleik.
Dómarar: Peter P.J. Brassen og Anton Van Dongen frá Hollandi.
Áhorfendur: 334 greiddu aðgangseyri.
■ ÞORVALDUR Örlygsson átti
mjög góðan leik með Stoke, þegar
félagið gerði jafntefli, 0:0, við Fior-
entina í ensk-ítölsku keppninni á
miðvikudagskvöldið.
■ ROMARIO skoraði tvö mörk
og Hristo Stoichov eitt, þegar
Barcelona vann Tenerife, 3:2, á
útivelli. Seville, sem hefur ekki
orðið meistari á Spáni í 47 ár, er
á toppnum með betri markatölu e»—
Barcelona.
■ ROMARIO er markahæstur á
Spáni með 12 mörk. Hann fór í
augnaaðgerð í gær og verður frá
æfmgum í sjö daga, en mun leika
næsta leik Barcelona — 21.
nóvember.
■ GIANLUIGI Lentini, ítalski
landsliðsmaðurinn hjá AC Milan,
sem meiddist alvarlega í umferðar-
slysi sl. sumar, lék sinn fyrsta leik
gegn Piacenza, 1:1, í bikarkeppn-
inni á miðvikudaginn — kom inná
sem varamaður. Hann sagðist von-
ast til að leika í byrjunarliðinu gegn
Napolí eftir tíu daga.
■ LANDSLIÐ Búlgaríu, sem
þarf sigur gegn Frakklandi í Par-
ís á miðvikudaginn — til að kom-
ast á HM í Bandaríkjunum, kem-
ur saman í Þýskalandi í dag, þar
sem það verður í æfingabúðum
fram á mánudag. Dimitar Penev,
þjálfari liðsins, hefur kallað átta
leikmenn, sem leika með liðum víðs
vegar um Evrópu, til liðs við sig.
■ TONY Adams, fyrirliði Arse-
nal, lék ekki með liðinu gegn
Norwich í vikunni — vegna
meiðsla. Óvíst er hvort að hann
geti leikið með landsliði Englandif
gegn San Marínó á miðvikudag-
inn.
I IAN Wright lék sinn 100. leik
fyrir Arsenal gegn Norwich og
skoraði tvö mörk. Hann hefur skor-
að 72 mörk í leikjunum 100.
■ GLENN Hoddle segir að hann
verði áfram framkvæmdastjóri
Chelsea þrátt fyrir sögusagnir um
að hann sé á förum frá félaginu.
Liðið hefur tapað fimm síðustu
deildarleikjum sínum undir stjórn
Hoddles, sem gerði samning við
félagið fram í júní 1996. „Gengi
liðsins hefur ekki verið gott að
undanfömu, en öll félög þurfa
ganga í gegnum slæma kafla. Það
er undir mér komið að snúa þessu
við og það ætla ég mér að gera,“
sagði Hoddle.
■ UNGVERSKI landsliðsmaður-
inn Lajos Detari hefur gengið til
liðs við Genúa, en hann var leik-
maður með öðru ítölsku félagi,
Ancona. Undanfarna mánuði hefur
hann leikið sem lánsmaður með
ungverska liðinu Ferencvaros.
■ DUNDEE seldi pólska lands-
liðsmanninn Daraios Adamczuk
til Udinese í ftalíu í gær á 800
þús. pund, en félagið keypti hann
frá Frankfurt í ágúst á 500 þús.
pund.
ÚRSLIT
Spánn
Celta - Sporting Gijon............0:2
Logrones - Sevilla................1:1
Rayo Vallecano - Real Sociedad....4:1
Lerida - Albacete............... 0:1
Racing Santander - Real Zaragoza.....2:0
Atletico Madrid - Osasuna............3:0
Real Oviedo - Real Valladolid..........1:0
Athletic Bilbao - Deportivo Coruna...3:1
Tenerife - Barcelona.................2:3
Valencia - Real Madrid...............0:3
Staða efstu liða: <
Sevilla.............11 6 4 1 20: 8 16
Barcelona...........11 7 2 2 22:11 16
D.Coruna............11 5 4 2 12: 5 14
Reai Madrid.........11 6 2 3 19:11 14
Athletic Bilbao.....11 6 2 3 20:13 14
Valencia............11 6 2 3 17:13 14
Sporting Gijon......11 6 2 3 13: 9 14
Atletico Madrid.....11 4 4 3 19:16 12
Skotfimi
Carl J. Eiríksson sigraði f móti í skotfím^—
sl. mánudag. Carl fékk 587 stig en Auðum^^*
Snorrason hlaut 579 stig í annað sætið og
Gylfi Ægisson 567 stig f það þriðja.