Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993
Hættir um áramót
GÍSLI J. Ástþórsson, blaðamað-
ur, lætur af störfum við Morg-
unblaðið um þessi áramót, en
hann varð sjötugur 5. apríl sl.
Gísli hóf störf á ritstjóminni í
ársbyijun 1946, skömmu eftir að
hann kom heim frá námi í blaða-
mennsku við University of North
Carolina í Bandaríkjunum. Gísli
vann sem fréttamaður, en skrifaði
jafnframt vikulegan pistil, „I frá-
sögur færandi". Hann starfaði við
blaðið um fímm ára skeið.
í ársbyijun 1953 réðst Gísli til
Vikunnar sem ritstjóri, en árið
1958 varð hann ritstjóri Alþýðu-
blaðsins. Á þeim árum birtust
fyrstu „fréttateikningar" hans,
ádeilur á Breta vegna þorska-
stríðsins. Þetta var undanfari
Siggu Viggu, teiknimyndaseríu,
sem síðar birtist í Morgunblaðinu.
Þegar Gísli hætti sem ritstjóri
Alþýðublaðsins starfaði hann um
tveggja ára skeið við Ríkisútvarp-
ið, en sneri sér síðan að kennslu.
Gísli hóf aftur störf á Morgun-
blaðinu 1. janúar 1973, m.a. til
að taka þátt í að undirbúa breyt-
ingar á blaðinu vegna offsett-
prentunar þess. Teikningar hafa
verið stór þáttur í starfí hans á
blaðinu síðustu árin, ekki sízt
„Þankastrik" og teikningar með
greinum. Teikningar Gísla, sem
upphaflega voru aukagrein í
blaðamennsku hans, urðu undir
lokin aðalviðfangsefnið.
Samhliða blaðamennsku hefur
Gísli skrifað sjö bækur, skáldsög-
ur, smásögur og þætti, auk þess
sem fímm kiljur með myndasög-
unum um Siggu Viggu og félaga
hafa verið gefnar út. Loks hefur
Gísli skrifað þijú sjónvarpsleikrit,
það síðasta „Öskubuska og mað-
urinn, sem átti engar buxur“.
Þegar Gísli lætur nú af störfum
við Morgunblaðið spannar blaða-
Gisli J. Ástþórsson
mennskuferill hans nær hálfa öld.
Hann segir, að þegar hann hóf
störf á ritstjóminni í ísafoldarhús-
inu við Austurstræti hefðu alls
unnið þar sjö manns og húsa-
kynni ritstjómar hefðu auðveld-
lega rúmast í anddyri nýja Morg-
unblaðshússins í Kringlunni 1.
Jón H. Karlsson
skipaður formað-
ur Ríkisspítalanna
Myndi ekki stangast á við stjómsýslulög-
in að mati lögfræðings segir ráðherra
GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Jón
H. Karlsson, aðstoðarmann sinn og mág, formann stjórnarnefndar
Ríkispítalanna í stað Guðmundar Karls Jónssonar, lögfræðings og for-
stjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Heilbrigðisráðherra segir
að lögfræðingur ráðuneytisins hafi talið að skipunin myndi ekki stang-
ast á við nýju stjórnsýslulögin sem taka gildi um áramótin en á það
muni ekki reyna.
Guðmundur Karl sagði að hann
hefði verið skipaður í stöðuna á sín-
um tíma vegna persónulegra tengsla
sinna við Sighvat Björgvinsson, fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra, og þegar
hann hefði látið af störfum hefði
hann boðið nýjum ráðherra að víkja
fyrir öðrum honum tengdari. Ráð-
herra hefði stuttu fyrir jól óskað eft-
Eftirlitsstofnun EFTA kraf-
in álits á starfsháttum ÁTVR
VERSLUNARRÁÐ íslands hefur beint bréflegum tilmælum til Eftir-
litsstofnunar EFTA þess efnis að kannað verði hvort lagalegur grund-
völlur reksturs og viðskiptahátta ÁTVR samræmist samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs segir bréfið m.a. byggt á 16. grein samningsins þar
sem segir að breytingar skuli gerðar á einkasölufyrirtækjum þannig
að enginn greinarmunur sé gerður milli ríkisborgara aðildarríkja
EB og EFTA-ríkja hvað snertir skilyrði til aðdráttar og markaðssetn-
ingar vara.
Vilhjálmur segir einnig að Versl-
unarráð hafni þeim rökum íyfirlýs-
ingu ríkisstjórna Finnlands, Islands,
Noregs og Svíþjóðar í samningnum
að áfengiseinkasala sé mikilvægur
liður í stefnu þeirra í heilbrigðis-
og félagsmálum því hægt sé að
þjóna þeim markmiðum með verð-
lagningu áfengis. „Hin háa skatt-
lagning á áfengi sem hér tíðkast
getur hæglega talist framlag til
félagslegra og heilsufarslegra
markmiða. Þar að auki er alltaf
verið að opna fleiri og fleiri útsölu-
staði fyrir ÁTVR og markaðurinn
krefst sífellt aukinnar þjónustu
Ekki breytingar
á útlánsvöxtum
ÚTLÁNSVEXTIR banka og sparisjóða breytast ekki á vaxtabreyting-
ardegi 1. janúar. Hins vegar breytast innlánsvextir á verðtryggðum
reikningum í íslandsbanka og Búnaðarbanka og breytingar eru á
vöxtum gjaldeyrisreikninga.
Vextir á reikningum til tveggja
ára og lengri tíma lækka í íslands-
banka um 0,5 prósentustig en
hækka í Búnaðarbanka um 0,25
prósentustig. Þá hækka vextir á
húsnæðisspamaðarreikningum í ís-
landsbanka um 0,25 prósentustig.
Vextir á sérkjarareikningum lækka
þannig að óverðtryggð kjör í ís-
landsbanka lækka um 2 prósentu-
stig og um eitt prósentustig í Bún-
aðarbanka. Innlánsvextir sparisjóð-
anna og Landsbanka breytast ekki.
Munur á vöxtum óverðtryggðra
og verðtryggðra skuldabréfaiána er
3,50-4,25 prósentustig. Kjörvextir
verðtryggðra skuldabréfalána eru
5,25-5,50% og kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfalána em
9-9,5%. Lánskjaravísitala í janúar
er lægri en sú sem gilti í desember
og samkvæmt spá Seðlabanka ís-
lands hækkar vísitalan ekki fram á
vor.
þannig að þau rök að einkasalan
sem slík takmarki aðganginn að
áfengi eru fallin um sjálf sig,“ seg-
ir Vilhjálmur.
Hann segir að framleiðendur
áfengis og tóbaks á efnahagssvæð-
inu hafí ekki jafnan aðgang að ís-
lenska markaðinum því ÁTVR velji
tilteknar tegundir til innflutnings
og dreifíngar í verslunum sínum.
Einnig beiti innlendir framleiðendur
og umboðsaðilar erlendra framleið-
enda aðferðum á borð við beina
sölustarfsemi til veitingahúsa, vöm-
kynningar, umfjöllun í tímaritum
og blöðum auk aðgerða til þess að
skapa velvild hjá starfsfólki ÁTVR
til að kynna framleiðslu sína því
áfengisauglýsingar séu bannaðar
hérlendis. Framleiðendur áfengis á
efnahagssvæðinu sem vilji koma
vöm sinni á framfæri búi því ekki
við jafnræði í samanburði við þá
aðila sem fá vömr sínar seldar hjá
ÁTVR með reglulegum hætti í öll-
um smásöluverslunum. Einnig
dregur Vilhjálmur í efa að einkasal-
an samræmist 31. grein samnings-
ins þar sem Ijallað er um rétt manna
til þess að hefja og stunda sjálf-
stæða atvinnustarfsemi.
Vilhjálmur segist reikna með að
Eftirlitsstofnun taki máiið fyrir eft-
ir áramót og falist eftir skriflegri
greinargerð frá stjómvöldum hér.
„Við vonumst til að þeir kynni sér
þessa mismunun og hvort starfsemi
ÁTVR samræmist ákvæðum EES-
samningsins. Væntanlega fá þeir
einhvers konar syör frá stjórnvöld-
um, kynna sér lþgmæti áfengis-
verslunarinnar og taka svo ákvarð-
anir í framhaldi af því. Þeir geta
skilað því áliti að þetta stangist á
við samninginn og farið fram á að
starfseminni verði breytt,“ segir
Vilhjálmur Egilsson að lokum.
Islensk
dagskrá
textuð
SJÓNVARPIÐ mun brydda
upp á þeirri nýjung í þjónustu
sinni við heyrnarlausa og
heyrnarskerta að texta helstu
liði hátíðardagskrárinnar um
áramótin í Textavarpinu.
Texti þessi birtist eingöngu
sé hann kallaður fram í tækjum
sem búin eru textavarpsmóttak-
ara og er hann á síðu 888. Síðu
888 er aðeins unnt að kalla fram
þegar textað er. Síða 875 er
send út fyrir þá sem vilja sjá
hvemig textun í Textavarpinu
lítur út.
ir að hann léti af störfum og úr því
hefði orðið nú um áramót. Jón H.
Karlsson var skipaður forma,ður
stjómamefndar frá og með 31. des-
ember 1993.
Skipaður daginn áður en ný
lög taka gildi
Jón er mágur heilbrigðisráðherra
og er hann skipaður daginn áður
en ný stjórnsýslulög taka gildi. Þau
lög geyma strangar hæfísreglur,
sem hingað til hafa gilt að nokkru
leyti ólögfestar, og fela það í sér
t.d. að ráðherra má yfírleitt ekki
hafa afskipti af meðferð máls er
varðar nána venslamenn, þ. á m.
mága.
Morgunblaðið spurði Guðmund
Áma hvort hann teldi eðlilegt að
grípa til þessarar skipunar nú rétt
fyrir áramót í ljósi þess að svo virt-
ist sem hann hefði orðið vanhæfur
til meðferðar málsins eftir áramót.
„Ég lét nú lögfræðing ráðuneytisins
kanna það sérstaklega og það var
nú mat hans að svo væri ekki,“
sagði Guðmundur Ámi.
Þetta myndi sem sagt ekki
stangast á við nýju stjómsýslulögin?
„Nei, en eins og þú bendir rétti-
lega á þá reynir ekki á það. Varð-
andi þessi skipti þá eru þau í fram-
haldi af tali sem ég átti við Guð-
mund Karl. Hann bauð það á haust-
dögum, þar sem hann er skipaður
af forvera mínum, að víkja þar
sæti enda mikilvægt að heilbrigðis-
ráðheira hafí greiðan og góðan
aðgang að formanni stjórnar Rík-
isspítala sem velta á sjöunda millj-
arð króna. í því Ijósi taldi ég heppi-
legt að það væri aðstoðarmaður
ráðherra sem sinnti þessu starfí.
Það gefur mér óneitanlega nokkur
tök á að fylgjast mjög grannt með
gangi mála þar.“
— Þessi skipun hefði sem sagt
að þínu mati alveg eins getað farið
fram í næstu viku?
„Hefði og hefði, þessi maður er
skipaður frá 31. desember og um
það er ekkert meira að segja.“
í dag
Vakaóyfir barrti
Viðtal við foreldra stúlku sem haldin
er sjaldgæfum hormónasjúkdómi 12
Sjónarspil
Haraldur Haraldsson segir að
ákveðið hafí verið fyrirfram hver
átti að fá SR-mjöl 17
DAGLEGT
W-jObctfia rrykísjctfloaa
Viö áramóí
Áramótagrein Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra 24-25
Leiðari
1994 24
B-bloð
► Brennur - eftirminnilegast á
árinu - messur - stjömuspá -
bamagetraun - unglingagetraun
- fullorðisgetraun - fréttamyndir
- tíu bestu kvikmyndir ársins
Daglegt líf
► Á skemmtiferðarskipi í Karab-
íska hafí - heimur karla - í Víet-
nam - krem og baðvörur úr mysu
- moska Marokkókonungs - ár
íjölskyldunnar
MorgunblaÆið/Ingveldur Ámadóttír
Lokað í Vestursand
TVEIR bæir í Vestursandi í Kelduhverfi eru lokaðir vegna krapa-
vatns úr Jökulsá á FjöIIum.
Vegnrinn í Vestursand enn lokaður
Kraftur í rennslinu
MIKIÐ rennsli er í skarðinu í gegnum veginn í Vestursand í Keldu-
hverfi og treystir Vegagerðin sér ekki til að opna veginn fyrr en
flóðið minnkar. Grímur Grímsson hjá Vegagerðinni á Kópaskeri
segist ekki eiga von á því að hægt verði að fylla í skarðið á næstu
dögum.
Vegna krapastíflu í Jökulsá á I gær fóru vegagerðarmenn á
Fjöllum rennur áin í Skjálftavatn staðinn. Þeir ætluðu að byija á því
og þaðan í gamlan farveg Jökulsár að gera vamargarð við laxeldi sem
og yfír veginn í Vestursand. Tveir komið var í hættu vegna breytinga
bæir eru lokaðir af. á rennsli árinnar.