Morgunblaðið - 31.12.1993, Side 32

Morgunblaðið - 31.12.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 ATVINNUA UGL YSINGAR Danskennaranemi óskast strax. Upplýsingar á staðnum 3.-4. jan. kl. 14-17. Dagný Björk, danskennari, Smiðjuvegi 1, Kópavogi. Hárgreiðslusveinn einnig snyrtifræðingur óskast til að sjá um rekstur hárgreiðslu- og snyrtistofu í 1 ár (eða sanngjörn leiga). Lysthafendur sendi nafn og símanúmer til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Hár - 13064“. Barnagæsla Óskum eftir að ráða göða, reyklausa mann- eskju til að líta eftir litla drengnum okkar og sinna heimilisstörfum, frá kl. 8.30-16.30, mánudag til föstudags. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „Vesturbær - 13 mánaða.“ 28 ára vélavörður vanur og harðduglegur, óskar eftir plássi á komandi vetrarvertíð. Engu breytir hvar lands er. Upplýsingarísíma 91-622619, Gunnlaugur. Barnagæsla Barngóð manneskja óskast á heimili íTeiga- hverfi til að gæta bús og tveggja barna. Vinnutími frá kl. 12.00-16.30. Reyklaust heimili. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. janúar, merktar: „Börn - 1994“. Framleiðslustjóri Óskum eftir að ráða mann til vinnslustjórnun- ar á erlendum frystitogara. Góð menntun, enskukunnátta og starfsreynsla nauðsynleg. Þjálfun í meðferð og viðhaldi Baader-véla æskileg. Starf gæti hafist eftir 1 -2 mánuði. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga, vinsamlega sendið nöfn og símanúmer, ásamt helstu upplýsingum um menntun og fyrri störf, til auglýsingadeildar Mbl., fyrir 8. janúar, merkt: „Vinnsla - 10566. BORGABSPÍTALINN Deildarstjóri - ritari Bækningaforstjóra Laust er til umsóknar starf deildarstjóra, sem veita skal forstöðu skrifstofu lækningafor- stjóra Borgarspítalans. Um er að ræða nýtt starf og er ætlunin að viðkomandi starfi í þágu forstöðulækna allra fimm sviða spítal- ans eins og þau eru samkvæmt nýju stjórn- skipuriti. Auk almennra ritarastarfa felst starfið í skjalavörslu og ýmiskonar gagna- vinnslu. Hann verður tengiliður starfsmanna- halds gagnvart læknariturum og tengiliður spítalans gagnvart skólastofnunum fyrir verðandi læknaritara. Mjög góð íslensku- kunnátta er áskilin auk haldgóðrar kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli. Skipulags- hæfni og góðir samstarfseiginleikar eru mikil- vægir. Starfið er laust frá 1. febrúar 1994 og um- sóknarfrestur er til 21. janúar. Umsóknir sendist Jóhannesi M. Gunnars- syni, lækningaforstjóra Borgarspítalans. Vanur stýrimaður óskar eftir plássi til sjós eða vinnu í landi. Svör sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „S - 123“. 1. vélstjóri 1. vélstjóra vantar á Heimaey VE 1, sem stundar síldarveiðar í flottroll. Vélarstærð 995 Kw. Upplýsingar gefur Sigurður Georgsson, skipstjóri, sími 98-11859. ísfélag Vestmannaeyja. Samstarfsaðili í ferðaþjónustu Ungt fyrirtæki, sem sérhæfir sig í ferðaþjónustu fyrir fatlaða, leitar að sam- starfsaðila með þekkingu og reynslu af starf- semi ferðaskrifstofa. Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun og fyrri störf fyrir 12. janúar ’94 til Ferða- félaga hf., pósthólf 12001, 132 Reykjavík. Tölvunarfræðingur Stórt þjónustufyrirtæki í borginni, með IBM AS/400 og PC tölvunet, óskar að ráða dugmikinn tölvunarfræðing/kerfisfræðing til starfa sem fyrst. Leitað er að aðila til að annast daglegan rekstur tölvunets, C-forritun og taka þátt í öðrum verkefnum tölvudeildar. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 8. janúar nk. Gudnt TÓNSSON RAÐCJÓF & RÁÐNINCARÞJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 WÓÐLEIKHÚSIÐ Hárgreiðslumeistari Laust er til umsóknar starf hárgreiðslu- meistara við Þjóðleikhúsið. Um er að ræða 50% starf. Umsóknum, merktum: „Hárgreiðsla", skal skilað á skrifstofu Þjóðleikhússins, Lindargötu 7, fyrir 12. janúar. Skipstjóri á frystitogara Grandi hf. auglýsir eftir skipstjóra á frystitog- arann Snorra Sturluson, sem gerður verður út til veiða utan 200 sjómílna fiskveiðilög- sögu íslands. Umsóknir sendist til útgerðarstjóra Granda hf. fyrir 7. janúar nk. Netamaður Strengur hf. óskar að ráða tölvunarfræðing, kerfisfræðing eða aðila með sambærilega menntun. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfið felst í net- og módemtengingum, forritun o.fl. Þekking og reynsla á Lan Manager og/eða Novell er nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði í síma 679595. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs, merktar: „Netamaður", fyrir 8. janúar nk. RÁÐGARÐURhf. STfÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688 Handverk - reynsluverkefni Starfsmaður óskast í 60% hlutastarf í upp- hafi - seinna í 100% (fullt starf). Starfssvið: Almenn skrifstofustörf, tölvu- vinnsla, skráning gagnabanka, boðskipti, hugsanleg ferðalög. Starfsmaðurinn þarf að hafa áhuga á hand- verki og heimilisiðnaði, vera jákvæður í mann- legum samskiptum og geta unnið sjálfstætt. Skrifstofa Handverks verður við Laufásveg í Reykjavík og æskilegt er að starfsmaður hefji störf í febrúar. Umsóknir, er greina frá aldri, menntun og fyrri viðfangsefnum, sendist til auglýsinga- deildar Mbl., merktar: „Handverk - 3884“, fyrir 12. janúar. Mosfellsbær Leikskólinn Hlaðhamrar Á næstunni verður ráðið í eftirfarandi stöður: Deildarfóstra: 50% staða eftir hádegi frá 1. febrúar 1994. Fóstrur: 50% stöður eftir hádegi frá 1. mars 1994. Fólk með aðra uppeldismenntun eða góða starfsreynslu kemur líka til greina í stöður fóstra. Áhugasamir hafi vinsamlega samband við undirritaðan í síma 66 63 51. Leikskólastjóri. Lausar stöður Lausar eru til umsóknar stöður við skattfram- kvæmd. Um er að ræða stöður hjá embætti ríkisskattstjóra, skattstofu Reykjavíkur, skattstofu Vesturlands, skattstofu Vest- fjarða, skattstofu Norðurlands-vestra, skatt- stofu Norðurlands-eystra, skattstofu Austur- lands, skattstofu Suðurlands og skattstofu Reykjaness. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði, eða hafi afl- að sér menntunar eða sérþekkingar um skattalöggjöf og framkvæmd hennar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1994. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu- neytinu. Fjármálaráðuneytið, 28. desember 1993.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.