Morgunblaðið - 31.12.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 31.12.1993, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 Dróttskátasveitin Ævintýrið Stillir upp ártalinu austur í Vaðlaheiði ÞEIR sem hafa dvalið á Akureyri um áramótin undanfarin ár hafa að öllum líkindum tekið eftir ártalinu austur í Vaðlaheiði. Sennilega vita samt fæstir að það eru skátar, nánar tiltekið dróttskátasveitin Ævintýrið sem hefur veg og vanda af þessu. Morgunblaðið/Hólmfríður Grímseyingar gleðjast MESSA var í Grímsey á milli jóla og nýárs og glöddust Grímseyingar mjög yfír því að fá jólamessu. A undanfömum árum hefur veður oft hamlað því að sóknarprestarnir á Akureyri kæmust út í eyju til að messa um jólin. Að lokinni messu kom séra Þórhallur Höskuldsson við á árlegri jólatrésskemmtun sem Kvenfélagið Baugur stendur fyrir í félagsheimilinu. Þar talaði prestur- inn við börnin og sagði þeim sögur. Gengið var í kringum jólatréð og jólasveinar komu í heimsókn. Með þeim í för var skringilegur karl sem menn ekki könnuðust við í fyrstu, en fljótlega kom í ljós að þar var á ferðinni hreppstjóri Gímseyinga, Bjarni Magnússon, í dulbúningi. Húsnæði keypt undir heilsugæslustöð Fjórar hæðir í Amaro húsinu fyrir 82 millj. Stuttu fyrir jól er sveitinni smalað saman til dúllugerðar. Þær eru gerð- ar út tjöruhampi sem vafínn er upp og settur í bréfpoka. Gerðar eru á 2 áramóta- brennur TVÆR áramótabrennur verða á Akureyri í kvöld, gamlárskvöld, og verður kveikt í þeim báðum kl. 20. í nokkum tíma hafa krakkar í Holtahverfi verið að sanka að sér efni í brennu á Bárufellsklöppum, en þar hefur um langt árabil verið brenna á gamlárskvöld. Lengi leit út fyrir að brennan á Bárufellsklöppum yrði sú _ eina í bænum, en að sögn Ólafs Ásgeirs- sonar aðstoðaryfírlögregluþjóns á Akureyri var sótt um leyfi fyrir annarri brennu sunnan Réttar- hvamms skammt vestan við Glerá milli hátíða, en þar hefur einnig verið áramótabrenna nokkur síðustu ár. bilinu 300 til 400 dúllur eftir því hvað ár er og tekur dúllugerðin oft- ast 4-5 klukkustundir. ' Á gamlársdag fara svo dróttskát- ar snemma austur í Vaðlaheiði til að stilla upp dúllunum sem mynda ártalið. Stafirnir em 20 - 30 metrar á hæð. Þegar búið er að koma dúll- unum fyrir er steinolíu hellt í þær og steinn lagður ofan á til þess að þær fjúki ekki. Handagangur í öskjunni Um kvöldið koma menn aftur og allir koma sér fyrir á fyrirfram ákveðnum stað með kyndil og bens- ín í brúsa. Skátarnir vinna síðan tveir og tveir saman. Stuttu fyrir miðnætti er kveikt á kyndlinum og annar fer á undan, fjarlægir stein- inn, rífur pokann og hellir bensíni yfir. Hinn kemur á eftir og kveikir í. Þegar búið er að kveikja í öliu ártalinu hraða menn sér að aftasta tölustafnum. Á slaginu tólf er slökkt í gamla stafnúm og kveikt í þeim nýja. Þetta þarf að gerast með mikl- um hraða og er þá oft mikill handa- gangur í öskjunni. Þegar þessu er lokið fagna skátarnir vel unnu verk og nýju ári. RÍKISSJÓÐUR hefur keypt fjórar hæðir í Amarohúsinu í miðbæ Akureyrar fyrir 82 milljónir króna. Kaupsamningur var undirritaður á miðvikudag um kaup ríkissjóðs og annarra eignaraðila heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri, Akureyrarbæjar og nágrannasveitarfélaga, um kaup á hluta Amarohússins, Hafnarstræti 99. Um er að ræða fjórar efstu hæðir hússins þar sem Heilsugæslustöðin hefur verið til húsa undanfarin ár auk þess sem starfsemi hefur farið fram á tveimur öðrum stöðum í bæn- um. Húsnæðið er rúmlega 2.200 fer- metrar á stærð og nam kaupverðið 82 milljónum króna. Endurbætur Eftir áramót verður hafíst handa um nauðsynlegar endurbætur en til 1. áfanga þeirra eru veittar 17,4 milljónir króna í fjárlögum næsta árs. Guðmundur Sigvaldason, fram- kvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar- innar á Akureyri, sagði ánægjulegt að húsnæðismál stöðvarinnar væru nú komin á hreint, en umræður hefðu lengi verið í gangi þessa efnis. „Með kaupum á húsnæðinu hefur verið tekin endanleg ákvörðun um að heil- sugæslustöðin verði hér til frambúð- ar og í sjálfu sér er ánægjulegt að niðurstaða liggi fyrir í málinu," sagði Guðmundur. Messur ■ KAÞÓLSKA kirkjan, Eyr- arlandsvegi 26 á Akureyri; Messa á nýársdag, laugardaginn 1. janúar kl. 18 og á sunnudag, 2. janúar kl. 11. ■ TVÆR villur reyndust vera í messutilkynningu frá Akur- eyrarkirkju sem birtist í blað- inu í gær. Aftansöngur sem verður á Dvalarheimilinu Hlíð í dag, gamlársdag hefst kl. 16, en ekki 18 eins og sagt var og þá verður hátíðarguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 14 á ný- ársdag en ekki kl. 16. ■ JÓLABALL Skautafélags Ak- ureyrar verður haldið á skautasvell- inu sunnudaginn 2. janúar næstkom- andi. Jólaballið hefst að venju á ís- hokkíleik þar sem úrvalslið fjölmiðla- manna leikur við krakka úr yngsta flokki íshokkídeildarinnar og hefst leikurinn kl. 16.30. Klukkan 17 hefst jólaskemmtun, jólasveinar á skautum munu renna sér lipurlega um svellið og fara í leiki við börnin og þá verða spiluð jólalög. Um kvöldið verður svellið einnig opið og þá verða líka leikin jólalög. Skatthlutfall og skattafsláttur Skatthlutfall staðgreiðslu í janúar 1994 er 41,79% í janúar 1994 verður skatthlutfall staðgreiðslu 41,79%. Skatthlutfall staðgreiðslu fyrir febrúar - desember 1994 verður auglýst síðar. Skatthlutfall barna, þ.e. sem fædd eru 1979 eða síðar, verður 6% á árinu 1994. Persónuafsláttur á mánuði er 23.915 kr. Persónuafsláttur fyrstu sex mánuði ársins verður 23.915 kr. á mánuði. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI Sjómannaafsláttur á dag er 671 kr. Sjómannaafsláttur fyrstu sex mánuði ársins verður 671 kr. á dag. Frá og með 1. janúar 1994 eru fallin úr gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti og námsmannaskattkort útgefin á árunum 1988 - 1993.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.