Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 38
| -r 0 ' 38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 þjóðaviðskipta, breytt stjórnmála- viðhorf og ríkjaskipan hefur fætt af sér nýja keppinauta og nýjar samkeppnisforsendur. Þessar að- stæður gera enn ríkari kröfur til okkar um hagræðingu og tækni- þróun, því einungis með hærra tæknistigi, meiri framleiðni og gæðum eiga framleiðendur á Vest- urlöndum möguleika á að keppa við þessar nýju aðstæður. Hér megum við einskis láta ófreistað í að halda okkar hlut í breyttri heimsmynd. Við höfum löngum eytt meiri tíma í að skipta minnkandi hlut en skapa forsendur fyrir vöxt. Þetta hefur vonandi breyst, því samning- ar ASÍ og VSÍ miðuðu að því, að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu og sókn og tækifæri til að hrinda í framkvæmd a.m.k. hluta þeirra hugmynda sem að því stefna og fæðst hafa á undanförnum mánuð- um. Með lækkun vaxta og verðlags hefur tekist að búa í haginn fyrir þá uppbyggingu sem nauðsynleg er íslensku atvinnulífi, þar hafa allir lagst á eitt. Því er það einlæg von mín að þær deilur sem enn' eru óútkljáðar, verði ekki til þess að þessum árangri sé stefnt í voða. Verkefnin eru mörg og viðamik- il og því brýnt að við getum snúið okkur að því í sameiningu að hrinda þeim í framkvæmd. Við verðum m.a.: - að reyna að ljúka mótun sjávarút- vegsstefnu. Stöðugt óöryggi í rekstrarlegu umhverfi sjávarút- vegsfyrirtækja dregur úr hraða þeirra breytinga sem nauðsyn- legar eru í rekstri þeirra. - að móta nýja stefnu í íslenskum utanríkismálum og að aðlaga okkur nýju umhverfi í alþjóðleg- um viðskiptum. - að skapa hér umhverfi sem laðar að alþjóðlega fjárfesta og hefja skipulegt átak til þess að auka erlenda fjárfestingu í landinu. - að auka landkynningu og efla ferðamannastrauminn til íslands, einkum yfir þá mánuði þegar fjárfestingin í ferðamálum er ónýtt. - að hvetja íslensk fyrirtæki til nýrrar sóknar í útflutningsmál- um og efla rannsóknar- og þró- unarstarf innan þeirra. - að efla samstarf milli atvinnulífs og skóla. Við erum með tugþús- undir ungs fólks í framhaldsskól- um landsins sem við viljum að komi til virkrar þátttöku í at- vinnulífinu. - að hefja nýja leit eftir erlendum fyrirtækjum sem gætu nýtt þá orku sem við höfum fjárfest í. - að auka aðlögunarhæfni fyrir- tækja og þjóðfélagsins að þeim nýju skilyrðum sem breyttur heimur hefur í för með sér. Við verðum að skapa okkur framtíðarsýn sem hjálpar okkur til að átta okkur á því hvert við viljum stefna og hvað það er sem við þurf- um að leggja áherslu á. Þótt fleira sé ekki tínt til ber þessi upptalning þó með sér að viðfangsefnin eru mörg og viðamikil og ekki eftir neinu að bíða með að hrinda þeim í framkvæmd. Aðeins með jákvæð- um vinnubrögðum og sókn inn á ný svið tekst okkur að vinna bug á því atvinnuleysi sem nú hrjáir íslenskt atvinnulíf. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að í öllum þessum breytingum felst ákveðin ógnun, en um leið óendanlega mörg tækifæri. Við verðum að skilja að nú, meir en nokkru sinni fyrr, er heimurinn allur okkar markaður og framtíð þessa lands byggist fyrst og fremst á því hvernig við getum nýtt þessi tækifæri fyrir komandi kynslóðir. Ég vil nota I þessa tækifæri til að þakka aðilum innan VSÍ, ASÍ og stjómvöldum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og sérstaklega sendi ég salt- flskframleiðendum kærar kveðjur með þakklæti fyrir margra ára samstarf og óska landsmönnum öllum árs og friðar á nýju ári. Það er einlæg von mín að árið 1994 verði ár uppbyggingar og nýrrar sóknar. Amar Sigurmunds- son, formaður Sam- taka fiskvinnslu- stöðva EES-samn- ingurinn skapar nýja sóknar- möguleika Árið 1993 verður án efa talið með hinum erfíðari í afkomu ís- lensks sjávarútvegs undanfarinn áratug. Samdráttur í þorskveiðum sjötta árið í röð, ásamt lækkun á verði sjávarafurða í erlendri mynt annað árið í röð, gerðu erfiðan rekstur enn þyngri. Ýmislegt já- kvætt má einnig segja um árið 1993 og munar þar mest um mik- inn loðnuafla sem leiðir af sér að árið verður með næstmesta heildar- afla frá því veiðar hófust hér við land. Allt stefnir í að þorskafli hér við land verði á árinu tæplega 250 þúsund tonn á móti 390 þúsund tonnum árið 1987. Slíkt hrun í þorskveiðum og vinnslu á okkar mikilvægustu útflutningsafurð hef- ur leitt og mun leiða til fjölmargra gjaldþrota í sjávarútvegi með ófyr- irséðum afleiðingum fyrir mörg sjávarpláss, sem eiga allt sitt undir þorskinum. Afkoman í botnfisk- vinnslu hefur jafnan að mestu byggst á vinnslu þorsks og ýsu og hefur framlegðin í þessum tegund- um haldið uppi vinnslu á öðrum botnfísktegundum. Þetta er megin- atriði sem hafa ber að leiðarljósi þegar fjallað er um afkomu fisk- vinnslunnar hér á landi undanfarin ár. Margskonar aðgerðir fyrirtækj- anna til þess að hagræða og draga úr rekstrarkostnaði hafa borið tölu- verðan árangur sem hefur, því mið- ur, oftar en ekki orðið að engu vegna lækkandi afurðaverðs. Kjarasamningar og efnahagsaðgerðir Þegar gengið var til kjarasamn- inga á almennum vinnumarkaði fyrr á þessu ári voru skiptar skoðanir innan sjávarútvegsins á möguleikum hans á að taka þátt í samningsgerðinni vegna afurða- verðslækkana og fyrirsjáanlegs frekari samdráttar á í þorskveiðum. Þátttaka sjávarútvegsins í kjara- samningunum sem lokið var við í maí sl. var bundin því skilyrði að þeir innihéldu skýra fyrirvara um möguleika stjómvalda til efna- hagsaðgerða til þess að bregðast við vanda sjávarútvegsins. Þegar Hafrannsóknastofnun birti tillögur sínar um hámarksafla í lok maí sl. og fyrirsjáanlegt var að grípa þyrfti til enn frekari niðurskurðar á þorskveiðum, og þegar útreikning- ar Þjóðhagsstofnunar sýndu 8% halla í botnfiskveiðum og -vinnslu skömmu síðar, varð ekki komist hjá því að ríkisstjórnin gripi til efnahagsaðgerða. Samhliða ákvörðun um heildarafla á fiskveið- iárinu 1993-1994 ákvað ríkis- stjórnin í lok júní að lækka gengi krónunnar um 7,5% auk lengingar lána hjá opinberum lánasjóðum. Með því að draga ekki að ráðast í þessar óhjákvæmilegu efnahagsað- gerðir sýndi ríkisstjórnin töluverða röggsemi, því oft vill það brenna við að stjórnvöld fresti því sem óhjákvæmilegt er að gera þar til allt ér komið í erfiðan hnút. Þessar efnahagsaðgerðir rúmuðust vel innan þeirra marka sem forsendur kjarasamninganna frá því í maí sl. gerðu ráð fyrir. Samtök fískvinnslustöðva hafa, í þessari viku, tekið saman mat á afkomu botnfískvinnslu og -útgerð- ar miðað við skilyrði í lok desem- ber 1993 og áætlaðan botnfískafla á árinu 1994. Þessir nýju útreikn- ingar leiða í ljós að hallarekstur á veiðum og vinnslu verður, að óbreyttum forsendum, um 2,8 millj- arðar á árinu 1994. Afkoma á loðnu- og rækjuveiðum og -vinnslu er ekki inni í þessum útreikningum en reikna má með að heildarhalli i sjávarútvegi, að meðtöldum þess- um þáttum, geti numið 2,5-3,0 milljörðum króna á næsta ári. Þess- ir útreikningar sýna áætlaða með- alafkomu og að sjálfsögðu er af- koma einstakra greina sjávarút- vegs og fyrirtækja innan þeirra nokkuð misjöfn hverju sinni. Vaxtalækkun skilar árangri En baráttan við að halda fisk- vinnslufyrirtækjum í gangi og kom- ast í gegnum þá gríðarlegu erfið- leika sem niðurskurður í þorskveið- um og lækkað afurðaverð skapar snýst ekki eingöngu um að halda niðri hráefnis- og vinnulaunakostn- aði, þó svo að þessir liðir geti num- ið 70-80% af rekstrarkostnaði. Fjármagnskostnaður skiptir veru- legu máli í rekstri sjávarútvegsfyr- irtækja. Samtök fiskvinnslustöðva hafa um langan tíma gagnrýnt þá hávaxtastefnu sem ríkt hefur hér á landi. Við höfum einfaldlega talið að hár vaxtakostnaður hér á landi eigi sinn þátt í því að sliga fólk og fyrirtæki. Samkvæmt útreikn- ingum hagdeildar Seðlabanka ís- lands námu heildarskuldir sjávarút- vegsfyrirtækja 110 milljörðum í september sl. Reikna má með að heildarskuldir í sjávarútvegi nemi nú um áramótin 113-115 milljörð- um króna. Af þessum skuldum eru rúmlega 46 milljarðar í íslenskum krónum. Almenn vaxtalækkun hér innanlands skiptir því sjávarútveg- inn miklu máli, þó svo. að allar þessar innlendu skuldir séu ekki vaxtaberandi hverju sinni. Samtök fískvinnslustöðva hafa áætlað að ef almenn 3% vaxtalækkun á verð- tryggðum útlánum og að af vaxta- kjör á óverðtryggðum lánum verði færð til samræmis muni það leiða til útgjaldalækkunar á sjávarútvegi sem nemi 800-1.000 milljónum á heilu ári. Samræmdar vaxtaað- gerðir stjórnvalda sem gripið var til í lok október sl. hafa nú þegar skilað nokkrum árangri. En eftir stendur krafan um frekari lækkun á verðtryggðum kjörum auk þess sem óverðtryggðir vextir og dráttarvextir eru enn úr öllum tengslum við raunveruleikann, þeg- ar verðbólga hér á landi mælist um 1% á heilu ári. Lækkun þessara vaxta hefur dregist óþarflega lengi og hreint ótrúlegt að dráttarvextir, sem nú eru 1,5% á mánuði, skuli nema hærri prósentu en áætluð verðbólga á heilu ári. Þrátt fyrir að töluvert langt sé í land að vext- ir hjá atvinnufyrirtækjum hér á landi séu sambærilegir við það sem gerist hjá samkeppnisþjóðum er ástæða til þess að þakka stjórnvöld- um fyrir frumkvæðið í vaxtamálum og skora jafnframt á banka- stofnanir að fylgja eftir með frek- ari vaxtalækkunum. Niðurfelling aðstöðugjalda skiptir sjávarútveg- inn miklu máli en sveitarfélög verða að gæta þess mjög vel að nýta ekki til fullnustu þær hækkanir á fasteignagjöldum á atvinnuhús- næði sem ný tekjustofnalög gera mögulegar. Á þessu ári hafa sam- tök í sjávarútvegi gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá lækkun á vöru- og aflagjaldi á útgerð og vinnslu. Jafnframt var reynt að fá ríkið til þess að fella niður sérstakt 25% álag á vörugjald sem ríkið tók upp fyrir tveimur árum. Þessar til- raunir hafa ekki borðið tilætlaðan árangur enn sem komið er. Ein- staka hafnir hafa þó í ljósi nýrra laga komið nokkuð til móts við sjáv- arútveginn. Stjórnvöld, sem með lagasetningu um aukið frjálsræði í gjaldskrám sköpuðu möguleika á samkeppni á milli hafna, hafa enn ekki svarað óskum sjávarútvegsins um niðurfellingu á aukagjaldinu. Hefur viðkomandi ráðuneyti haft í hótunum við þær hafnir sem lækk- uðu gjaldskrár sínar og létu 25% álag til ríkisins verða áfram sem óbreytt hlutfall, en lækkaða krónu- tölu. Þessa dagana er verið að til- kynna 3% hækkun heildsölutaxta rafmagns hjá Landsvirkjun, en á miðju þessu ári, í kjölfar gengis- breytingarinnar, hækkaði fyrírtæk- ið gjaldskrá sína um 6%. Fisk- vinnslan hér á landi greiðir 6-700 milljónir á ári í raforkukostnað. Þessi síðasta hækkun sem á að koma til framkvæmda nú um ára- mótin mun óhjákvæmilega leiða til hækkunar orkutaxta dreifiveitna. Ástæða er til þess að mótmæla þessum hækkunum. Landsvirkjun þarf með sama hætti og önnur fyr- irtæki að draga úr kostnaði og það er útilokað að fallast á þau rök að fiskvinnslan, sem greiðir margfalt hærra verð fyrir raforku en önnur stóriðja hér á landi, skuli þurfa að greiða þessa hækkun með a.m.k. fímm sinnum fleiri aurum á hveija kílóvattstund en önnur stóriðja. Fyrirtæki í eigu ríkis- og sveitarfé- laga, sem fram undir þetta hafa lifað og dafnað í nokkuð vernduðu umhverfi, verða að taka þátt í hörð- um slag á sama hátt og önnur fyrir- tæki, til þess að halda velli. Sjávarútvegsþrennan fyrir Alþingi Sjávarútvegsráðherra hefur nú lagt fram á Alþingi þrjú frumvörp sem skipta rniklu máli fyrir íslensk- an sjávarútveg. Frumvarp um breytingar á stjórn fískveiða hefur nú loks séð dagsins ljós en áformað var að það kæmi fram í maí á þessu ári. Ljóst er að allur dráttur á af- greiðslu frumvarpsins gerir fram- gang þess erfiðari. Þá hafa einnig verið lögð fram frumvörp um Þró- unarsjóð sjávarútvegsins, sem kynnt var fyrir 13 mánuðum, og um afnám Verðjöfnunarsjóðs sjáv- arútvegsins og ráðstöfun eigna hans. Ljóst er að innan þings og utan er ekki samstaða um fram- gang þessara mála. Innan sjávarút- vegs eru einnig skiptar skoðanir um kvótakerfið og stofnun Þró- unarsjóðs. Engu að síður telur mik- ill meirihluti sjávarútvegsmanna að viðhalda eigi kvótakerfínu með nokkrum lagfæringum. Andstaða er mikil við ákveðna þætti í Þróun- arsjóðsmálinu, einkum hvað varðar yfírtöku á öllum skuldbindingum atvinnutryggingadeildar Byggða- stofnunar og Hlutafjársjóðs. Á sama tíma og samkomulag hefur tekist í ríkisstjórn um að sjávarút- vegurinn yfírtaki allt að 1.000 millj- ónir króna skuldar atvinnutrygg- ingadeildar umfram eignir, sem til koma vegna erfíðleika og gjald- þrota í sjávarútvegi, ætlar ríkið sjálft að yfirtaka og þjóðnýta allt að 200 milljóna króna inneignir gjaldþrota fyrirtækja í Verðjöfnun- arsjóði sjávarútvegsins. Það verður nauðsynlegt að láta öll þessi mál fylgjast að í gegnum þingið í vetur og leggja verður ríka áherslu á að taka upp viðræður milli stjórnvalda samtaka í sjávarútvegi vegna hug- mynda um þróunarsjóð sjávarút- vegsins og freista þess að ná ein- hverju samkomulagi um málið. Nú um áramótin tekur loks gildi samningurinn um EES. Með þess- um samningi skapast ný tækifæri [ sjávarútvegi okkar Islendinga. Ávinningur sjávarútvegsins í þessu máli er augljós og miðað við sam- setningu útflutnings okkar til EB- landa á þessu ári geta tollalækkan- ir numið allt að 1.300-1.400 millj- ónum króna á næsta ári. Á þessari stundu er ekki hægt að fullyrða hvað mikið af þessu muni skila sér hingað heim í formi hærra afurða- verðs, það ræðst að mestu af mark- aðsaðstæðum hveiju sinni. EES- samningurinn skapar íslenskri físk- vinnslu nýja sóknarmöguleika en kallar jafnframt á frekara rann- sóknarstarf og vöruþróun fyrir- tækjanna í samvinnu við sölusam- tök. Það er einnig heillavænlegt fyrir framtíðina að nú skuli loks hafa tekist samkomulag innan GATT um tolla og viðskipti sem mun verða til góðs fyrir sjávarút- veginn á næstu árum. Komi hins vegar boðað verkfall sjómanna til framkvæmda nú um áramótin mun það hafa gífurleg áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrir- tækja og alls þjóðarbúsins, og drag- ist það á langinn er við búið að fjölmörg þeirra komist ekki í gang á ný. Að endingu sendi ég öllum sem starfa við sjávmlarútveg og lands- mönnum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár. Haraldur Sumarliða- son forseti Lands- sambands iðnaðar- manna Sameimim kraftana Samdráttur í iðnaði Þeir erfíðleikar sem nú steðja að íslensku atvinnulífí eru ofarlega í huga mér um þessi áramót. At- vinnuleysi hefur farið vaxandi á síðustu misserum og er nú meira en verið hefur um áratugaskeið hér á landi. Afkoma fyrirtækja í flestum greinum er óviss og víða blasir við að draga verður enn saman starf- semi eða hætta með öllu. Gjaldþrot hafa verið tíð og fyrir liggur að hvert gjaldþrot leiði til þess að önnur fyrirtæki komast í þrot vegna viðskipta sem ekki ganga upp. Það myndast því oft víta- hringur sem erfitt virðist að kom- ast úr. Allt leiðir þetta síðan til vaxandi erfiðleika hjá fyrirtækjum, heimilum og einstaklingum. Iðnað- urinn hefur ekki farið varhluta af þessum erfíðleikum og róa nú mörg iðnfyrirtæki lífróður til að halda starfsemi gangandi, bæði vegna minnkandi veltu og ekki síð- ur vegna þess að stórar fjárhæðir hafa tapast í gjaldþrotum annarra fyrirtækja sem þau hafa haft við- skipti við. Samkvæmt þeim könnunum sem fyrir liggja hefur samdráttur í almennum iðnaði síðustu tvö árin verið hvorki meiri né minni en 7% í veltu og 5% í mannafla á ári sem þýðir að 1.500 manns hafa misst atvinnu sína í almennum iðnaði á undanförnun tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.