Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 48
MewUCd -setur brag á sérhvern dag! __________ ______________J REI_____ SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FOSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Bandarísk stjórnvöld breyta afstöðu sinni til varnarliðsins í Keflavík F-15 flugsveitín áfram á Keflavíkurflugvelli Illa gengur með Bergvíkina EKKERT gekk í tilraunum til að ná Bergvíkinni á flot í Vaðlavík í gær. Varðskip var byijað að toga í skipið en varðskipsmenn skáru á vírinn þegar þeir voru næstum því búnir að missa skipið upp í grjótgarð. Reynt verður að slæða upp vírendann í dag. HINGAÐ til lands er vgentanlegur William J. Perry, aðstoðar- varnamálaráðherra Bandaríkjanna, sem er starfandi varnamála- ráðherra, ásamt fulltrúum utanríkismálaráðuneytisins og varna- málaráðuneytisins, til þess að ljúka samningaviðræðum við ís- lensk stjórnvöld um fyrirkomulag varnarstöðvarinnar á Kefla- víkurflugvelli, eins og fram kemur í áramótagrein Davíðs Odds- sonar, forsætisráðherra, í Morgunblaðinu í dag. Áætlað er að samningafundurinn fari fram 4. janúar næstkomandi. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa bandarísk stjórnvöld nú fallið frá þeim staðfasta ásetningi sínum að kalla flugsveit sína, 12 F-15 vélar, heim til Bandaríkjanna, og verður flugsveit- in því áfram staðsett á Keflavíkurflugvelli. Þijár ástæður munu liggja að baki þessari bréyttu afstöðu banda- rískra stjómvalda samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins: Bandaríski flugherinn hefur ein- dregið viljað að flugsveitin yrði kölluð heim til Bandaríkjanna og að loftvörnum í íslenskri lofthelgi yrði sinnt frá Bandaríkjunum, með því að vera með hreyfanlega flug- sveit í viðbragðsstöðu í Bandaríkj- unum, sem send yrði á vettvang eftir þörfum. Bandaríski sjóherinn, sem rekur varnarstöðina á Kefla- víkurflugvelli, var andvígur þessari fyrirætlan, og taldi að ekki yrði um fullnægjandi eða trúverðugar loft- varnir að ræða í íslenskri lofthelgi, með þessum hætti. Nú munu sjón- armið bandaríska sjóhersins hafa orðið ofan á, innan bandaríska stjórnkerfísins, með stuðningi utan- ríkismálaráðuneytis Bandaríkj- anna. Auk þess hefur íslenska viðræðu- nefndin sótt það fast, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að samkvæmt vamarsamningnum frá 48 hafa farist í slys- um á árinu 54 fórust af slys- förum í fyrra SAMKVÆMT skráningu Slysavamafélags íslands hafa 48 manns, 41 karl og 7 kon- ur, farist í slysum á landi á ' árinu sem er að líða. Þar af eru þrír útlendingar sem fór- ust hér á landi og fimm ís- lendingar sem létust í bílslys- um erlendis. Á árinu 1992 lét- ust 54 af slysförum hér við land, þar af ljórir útlending- ar. Að meðtöldum þeim flmm íslendingum sem látist hafa í bílslysum erlendis í ár hafa 22 beðið bana í umferðinni. Árið 1992 beið 21 bana í umferðar- slysum. Alls hafa ellefu manns, allir íslenskir, farist á sjó eða drukknað í ár en árið 1992 voru þeir 22, þar af einn erlendur. Einn hefur farist í flugslysi í ár eins og í fyrra og bæði árin fórust tveir af völdum bruna, reyks eða eitrunar. Ymis annars konar slys, þ.á m. vinnuslys og ’ byltur, hafa orðið 12 manns að bana í ár en 8 í fyrra. 1951 yrðu hér trúverðugar lág- marksvarnir, í lofti sem á láði. Þá er talið að Bandaríkjamenn hafi breytt áherslum sínum að því er varðar varnir á Norður-Atlants- hafí vegna niðurstöðu þingkosning- anna í Rússlandi fyrr í mánuðinum, þar sem þjóðemissinninn Vladimir Zhírínovskíj taldist sigurvegari kosninganna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er það eindreginn ásetn- ingur beggja aðila að samningavið- ræðunum um Keflavíkurstöðina verði lokið á þessum fundi hér í Reykjavík í janúarbyijun. Morgunblaðið/Arngrímur Blöndahl Félagsdómur hafnar kröfum Vinnuveitendasambands íslands 7 Sjómannaverkfall skell- ur á að kvöldi nýársdags FÉLAGSDÓMUR kvað í gær upp úrskurð um að verkfalls- boðun sjómanna væri lögmæt á þeim forsendum að kröfur Sjómannasambandsins séu kjarakröfur sem heimilt sé að fylgja eftir með verkfalli, að því er segir í niðurstöðu dóms- ins. Verkfallsboðun sjómannafélaganna tekur gildi á mið- nætti 1. janúar 1994, nema á Vestfjörðum. Framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands Islands segist harma þá af- stöðu sjómannasamtakanna að neita viðræðum á meðan málið var fyrir félagsdómi. Hins vegar komi ekki til greina að láta hótanir sjómanna koma í veg fyrir að menn leiti réttar síns. Formaður Sjómannasambands íslands segist fagna niðurstöðunni fyrir hönd sjómanna en bendir á, að sjómenn hafi viljað fresta því að álits félagsdóms yrði leit- að þar til ljóst væri hvort samningar næðust. Heimild til verkfalls er fengin samkvæmt 14. grein laga um stétt- arfélög og vinnudeilur og segir í niðurstöðu félagsdóms að engu breyti þótt sjómenn og samtök þeirra hafí með fundarsamþykktum og yfirlýsingum í fjölmiðlum reynt að hafa áhrif á stjórnvöld og lög- gjafarvald að því er taki til laga um stjórn fískveiða, en löggjöf þessi varði meðal annars þýðingarmikla hagsmuni sjómannastéttarinnar. Verkfallsboðunin tekur gildi á mið- nætti 1. janúar 1994, nema á Vest- fjörðum, hjá flestum aðildarfélög- um Sjómannasambandsins að sjó- Nokkrir hluthafar í Mótvægi hf. íhuga málssokn Telja sig blekkta tíl hlutafjárkaupa NOKKRIR hluthafar í Mótvægi hf., útgáfufélagi Tímans sem úrskurðað var gjaldþrota í gær, íhuga að leita réttar síns vegna þess hlutafjár sem þeir tapa við gjaldþrotið. Einn hluthafinn sagði í gær að hluthafarnir hefðu verið blekktir til að leggja fé í fyrirtækið. áskrifendaskrá. Maður sem þekkir vel til í Mótvægi hf. segir að Mót- vægi hf. hafi keypt áskrifenda- skrána af Framsóknarflokknum og sé hún því eign þrotabúsins. Hluthafamir telja að eignir Tímans hf. hafi verið stórlega of- metnar í ársreikningum um síð- ustu áramót og forystumenn fé- lagsins dregið úr hömlu að koma réttum upplýsingum á framfæri við hluthafana, eða þar til eftir að þeir höfðu skrifað sig fyrir hlutafé. Eign þrotabúsins Framsóknarflokkurinn seldi Tímamótum hf., nýjasta útgáfufé- lagi blaðsins, nafn blaðsins og Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 4. janúar. mannafélögunum í Ólafsvík, á Hellissandi og í Stykkishólmi und- anskildum, þar sem verkfallið brestur á 3.-5. janúar 1994. Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að lítið sé um dómsorð að segja annað en það að dómurinn telji að engir meinbugir séu á kröfugerð eða boðun verk- falls. „Við því er ekkert að segja, við töldum ástæðu til að ætla að svo væri og töldum þess vegna rétt að bera þetta undir dóminn. Ég geri hins vegar ráð fyrir því að nú sé loku fyrir það skotið í eitt skipti fyrir öll, að við þurfum að ræða hugsanlegar breytingar á lögum í tengslum við kjaradyilu," sagði Þórarinn að lokum. Óskar Vigfússon formaður Sjómanna- sambands íslands sagðist vona að verkfallið yrði skammvinnt, en 10 dögum hefði verið kastað á glæ á meðan málið var fyrir félagsdómi. Sjómenn hafi óskað eftir því að álits félagsdóms yrði leitað síðar en fulltrúar VSÍ og LÍÚ hafi dauf- heyrst við því. „Ég vona að hægt verði að taka upp viðræður um raunhæfa niðurstöðu,“ sagði Ósk- ar. Dómsorð las Eggert Óskarsson og aðrir dómendur voru Erla Jóns- dóttir, Gylfi Knudsen, Gunnar Guð- mundsson og Jón Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.