Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 Bjarni Kr. Grímsson flskimálastjóri Annað besta aflaárið Nú í lok ársins 1993 þykir rétt að líta yfir árið og gera upp hversu gjöfult það hefur verið fyrir ís- lenskt þjóðarbú. Fiskifélag íslands sér um að taka saman tölur um afla okkar íslendinga og verðmæti hans, en þar sem ekki eru til end- anlegar tölur fyrir árið 1993, af þeim eðlilegu orsökum að árið er varla liðið, er notast við spá Fiski- félags íslands um árið 1993 en aðrar tölur eru endánlegar tölur viðkomandi ára. Hér í meðfylgj- andi töflu sem sýnir afla okkar íslendinga sl. níu ár, en byggir á bráðabirgðatölum og spá Fiskifé- lagsins fyrir árið 1993 sést að áætlaður heildarafli íslendinga verður árið 1993 um 1.684 þús. tonn og hefur aðeins einu sinni á þessum tíu árum orðið meiri sem var árið 1988, en þá varð mesta aflaár í sögu okkar Islendinga. Þannig verður þetta ár annað mesta aflaár í sögu þjóðarinnar. Aflinn er þó öðruvísi samansettur en áður og má þar benda á að botnfiskur er aðeins 564 þús. tonn á móti 698 þús. tonna árið 1988 og 585 þús. tonna í fyrra þ.e. árið 1992. Því hefur í þessum tegund- um orðið verulegur samdráttur og er mesti samdrátturinn í þorskin- um. Þetta er annað árið í röð sem þorskafli fer undir 300 þús. tonn og hefur slíkt ekki gerst síðan árin 1983 og 1984, en þá varð þorskaflinn 294 þús. tonn og 282 þús. tonn þessi tvö ár en síðan komu mun betri aflaár í þorski eftir það eins og sést í töflunni. Ef litið er á verðmæti aflans er áætlað að það verði um 47,6 milljarðar króna, .miðað við óslægðan fisk upp úr sjó. Á árinu 1992 varð heildaraflinn 1.569 þús. tonn og verðmæti hans um 48,3 milljarðar króna. þannig hefur aflamagnið aukist um 8%, en verð- mætið minnkað um 1,5% milli ára og endurspeglar þetta bæði sam- setningu aflans þ.e. stærri hluti aflans er verðminni fiskur eins og loðna svo og hitt að markaðsað- stæður hafa verið óhagsstæðar og fiskverð því hreinlega lækkað á sumum tegundum. Ef talið er í dollurum nemur verðmæti aflans 705 milljónum , en það nam 845 milljónum dollara árið 1992. Því er um að ræða 16,5% samdrátt á milli ára mælt í dollurum . Sé miðað við SDR var virði aflans 599 milljónir árið 1992, en 505 milljónir árið 1993 eða 15,7% minna heldur en í í fyrra. Við þennan samanburð er notast við meðalgengi jan./nóv. bæði árin. Fyrir utan þessar tölur eru veið- ar á alþjóðlegum hafsvæðum s.s. í Smugunni og á Flæmingjagrunni en á báðum þessum hafsvæðum hafa Islendingar verið við veiðar og má ætla að aflinn úr Smug- unni sé orðinn um 8 þús. tonn og verðmæti hans miðað við fisk upp úr sjó á meðalverði hér innanlands sé 500 til 600 milljónir kr. Tölur um rækjuna á Flæmingjagrunni eru því miður ekki tiltækar, en þar er um nokkur hundruð tonn að ræða og má ætla verðmæti þar í tugum milljóna miðað við hráefni upp úr sjó. Ef verðmæti þessi eru reiknuð með vinnsluvirði um borð þar sem flest þeirra skipa sem hafa stundað þessar veiðar eru vinnsluskip hleypur verðmætið á milljörðum og er það kærkomin búbót fyrir útgerðina og þjóðar- búið í heild. Andvirði útfluttra sjávarafurða áætlar Fiskifélagið að verði um 77 milljarðar króna á árinu. Árið 1992 nam verðmæti útfluttra sjáv- arafurða 71,3 milljörðum króna og hefur það því aukist um rúm- lega 8% milli ára og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Verð- mæti þessa útflutnings er áætlað að nemi um 1.140 milljónum doll- ara í ár en í fyrra varð verðmætið um 1.240 milljónir dollara. Þetta jafngildir um 8% samdrætti í verð- mætum milli ára og sama niður- staða fæst ef miðað er við SDR. Það að minni hlutfallslegur sam- dráttur verður í útflutningsverð- mætum miðað við þann samdrátt sem verður í verðmæti fiskaflans milli ára, skýrist að hluta með svokölluðum Rússafiski eða fiski sem keyptur er til landsins frá erlendum veiðiskipum, en það hef- ur verið ein leið vinnslunnar í landi til að mæta minna hráefnisfram- boði. Þegar litið er yfir árið í heild má segja að þetta ár hafi markað nokkur spor í sögu sjávarútvegs- ins, bæði í því tilliti að vinnslan hefur sótt í sig veðrið og tekið upp í verulegum mæli nýlegar aðferðir í fiskvinnslunni þ.e. að þíða upp hráefni og vinna. Einnig að út- gerðir hafa sótt á fjarlæg mið í ríkari mæli en áður og ljóst varð að 200 mílna fiskveiðilögsaga okk- ar íslendinga er ekki nægjanlegt svæði fyrir flota okkar. Þá hafa athafnamenn í sjávarútvegi haslað sér völl í samvinnu við erlenda aðila í sjávarútvegi um allan heim. Framundan er nýtt ár og ljóst er að árið verður erfitt fyrir sjávar- útveginn og þjóðarbúið í heild, þar sem fiskveiðikvótar hafa aldrei verið minni hér við ísland. Ekki er þó ástæða til að horfa svartsýnn til framtíðar, þar sem við eigum dugmikla sjómenn, verkafólk og athafnamenn sem munu í samein- ingu bregðast við og leysa þann vanda sem upp kemur. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og horfi bjartsýnn til framtíð- ar. son, formaður Stétt- arsambands bænda Islenskur landbúnaður á tíma- mótum íslenskur landbúnaður hefur á undanförnum árum lagað sig hratt að breyttum aðstæðum, nýjum kröfum og auknu sjálfstæði. Um þessi áramót má síðan með réttli segja að landbúnaðurinn standi á þröskuldi nýs tíma; tíma aukinnar samkeppni og aukins frelsis í við- skiptum með búvörur. Með þeirri breytingu sem gerð var á Búvöru- lögunum 20. desember sl. má segja að þessi tímamót hafi verið stað- fest, en þar er heimilað að flytja inn búvöru, enda þótt innlend fram- leiðsla geti annað eftirspurn eftir samskonar vöru. Gildistaka EES- samningsins er staðreynd og GATT-samningurinn er einnig orð- inn að veruleika. Þessi breytta staða krefst endurmats á ýmsu því sem hefur verið ráðandi í íslenskri land- búnaðarstefnu. Framtíð íslensks landbúnaðar, og um leið þjóðarbús- ins í heild, fer að miklu leyti eftir því hvernig landsfeðumir spila úr hinum breyttu aðstæðum. Það mun því skipta sköpum fyrir afkomu þjóðarinnar um langa framtíð hvort útfærsla hinna alþjóðlegu samninga tekur mið af langtímasjónarmiðum til eflingar íslenskri atvinnu eða hvort hún ræðst af skammsýnni hagsmunuro. Forskot í undirbúningi íslenskur landbúnaður hefur á ýmsan hátt búið sig undir gjör- breytt rekstrarumhverfi á síðustu árum. Enda þótt enn frekari upp- stokkun og endurskipulagning sé verkefni komandi ára mælir enginn því í mót að íslendingar hafa á margan hátt gengið lengra en t.d. þjóðirnar beggja vegna Atlants- hafsins í róttækum breytingum á aðbúnaði landbúnaðar. Það útflutn- ingsbótakerfi sem hér hefur verið við lýði frá 1959 var aflagt og þar með gengið lengra en flestar aðrar þjóðir hins vestræna heims hafa hingað til gert. Jafnvel þótt slíkt sé á sameiginlegri stefnuskrá aðild- arþjóða hinna nýgerðu alþjóðlegu samninga gerist það í áföngum. Á meðan er auðvitað miklu meira en eðlilegt að íslendingar verndi sinn landbúnað með tollum á innfluttar og stórlega niðurgreiddar búvörur. Engum dettur í hug að landbúnað- urinn geti óstuddur keppt í verði við milljarða niðurgreiðslur stór- þjóðanna og öllum ætti að vera ljóst að óheftur innflutningur yrði bana- biti íslensks landbúnaðar á ör- skömmum tíma. Það er hins vegar sameiginlegt afrek íslenskra bænda og fag- mennsku í úrvinnsluiðnaðinum, að þrátt fyrir smæð markaðarins og erfið ytri skilyrði skuli úrval land- búnaðarvara á íslandi vera jafn fjöl- breytt og gott og raun ber vitni. Með hreinleika íslenskrar náttúru og um leið gæði og heilnæmi afurð- annna að leiðaijósi á íslenskur land- búnaður og íslensk þjóð fjölmarga möguleika á öflugri verðmætasköp- un. í fyrsta lagi að leitast við að fullnægja sem best innlendri mark- aðsþörf og í öðru lagi að nýta þá möguleika sem kunna að opnast fyrir hágæðavöru á erlendum mörk- uðum. Slík markaðsfærsla gæti orð- ið auðveldari en áður í kjölfar ný- gerðra alþjóðasamninga. Skammsýn umræða Verði umræðan á pólitískum vettvangi og innlegg fræðimanna í þeim efnum hins vegar með sama hætti og verið hefur er því miður ekki von á góðu. Ekki skiptir minna máli hvernig fjölmiðlar meðhöndla málefni landbúnaðarins. Það er grátlegt að líta til baka yfír árið sem er að líða og fara yfir þá efnis- þætti sem einkennt hafa umræðuna um landbúnaðarmál. Á sama tíma og þessi mikilvæga undirstöðuat- vinnugrein þjóðarinnar stendur frammi fyrir róttækari breytingum en nokkru sinni fyrr er einkenni nær allrar umfjöllunar um málið ábyrgðarlítill hanaslagur og hálf- gerður bófahasar. Látum vera þótt einstakir kaup- menn tryggi sér pláss í fréttum með því að flytja inn nokkrar ferða- töskur af svínaskinku í dag, kalk- únalöppum á morgun og grænmeti hinn daginn. Slíkt er auglýsinga- og sölumennska og úr því að fjöl- miðlar hlaupa í hvert sinn sem kall- að er af slíkum tilefnum er eðlilegt að menn spili á það kerfi. Hitt er alvarlegra þegar leikurinn fer fram í sölum Alþingis eða Háskóla ís- lands. Með öllu er óþolandi þegar menn sem þjóðin hefur treyst til forystu og uppeldis handleika eitt af fjöreggjum þjóðarinnar af jafn mikilli vanþekkingu og gáleysi og raun ber vitni. Ekki er unnt að frýja þessum mönnum vits en ef leikurinn er gerður fyrir meintan pólitískan uppslátt einstaklinga eða einstakra stjómmálaflokka er um stórkostlegt ábyrgðarleysi að ræða. Gripið til vopna íslenskum bændum þótti meira en nóg komið á miðju sumri og gripu til stílvopnsins. Með greina- skrifum, upplýsingaríkum auglýs- ingum, útgáfu bæklings og smærri fundahöldum var þess freistað að hrekja alls kyns villandi upphrópan- ir, rangfærslur og blekkingar. At- hygli vekur að frá þeim sem hæst höfðu um þessi mál hafa nær engin viðbrögð komið. í því kynningarefni sem bændur hafa sent frá sér m.a. sýnt fram á að stuðningur ríkisins við landbún- að hefur lækkað um hvorki meira né minna en þriðjung á þremur árum og hvernig hann mun halda áfram að stórlækka á næstu misser- um. Engu að síður, og á það var rækilega bent í kynningarstarfi árs- ins, hefur verið á búvörum stór- lækkað á sama tíma. Bent var á að þáttur íslenskra matvæla í út- gjöldum hvers heimilis er að meðal- tali aðeins 7-8% enda þótt gagn- rýnendur landbúnaðarins hafi á ár- inu talað eins og ekkert annað væri að setja heimili landsins á hausinn en svimandi hátt verð á landbúnaðarvörum. Hagræðing og lækkun álagningar Með þessi átök að baki, og von- andi með auknum skilningi á meðal landsmanna allra á mikilvægi og möguleikum landbúnaðarins, er síð- an hægt að snúa sér að verkefnum morgundagsins. í þeim efnum ber auðvitað hæst að annars vegar er nýlokið fyrsta heila árinu sem bændur bera fulla ábyrgð á fram- leiðslu sinni með beinni tengingu við eftirspurn markaðarins og hins vegar taka gildi um þessi áramót alþjóðasamningar sem óhjákvæmi- lega munu hafa mikil áhrif. Krafa markaðarins um enn frekari verð- lækkun á íslenskum landbúnaðar- vörum er staðreynd og til þess að unnt sé að mæta henni er ljóst að áfram þarf að leita nýrra leiða til lækkunar kostnaðar. Nú þegar hafa bændur gengið afar langt í þeim efnum og röðin því óhjákvæmilega kominn að úr- vinnsluiðnaðinum og versluninni. Áhyggjur af vaxandi fákeppni í SJAVARAFLINN1993 Endanlegar tölur um magn og verðmæti sjávaraflans árið 1993 liggja ekki fyrir, en miðað við bráðabirgðatölur og spá Fiskifélagsins verður heildaraflinn um 1.690 þúsund tonn og verðmæti hans 47,6 milljarðar króna, miðað við óslægðan fisk uppúr sjó. Árið 1992 var heildaraflinn 1.569 þúsund tonn og verðmætið 48,3 milljarðar króna. Þannig hefur afla- magnið aukist um 8% en verðmætið minnkað um 1,5% milli ára. Talið í dollurum nemur verðmæti aflans 705 milljónum en það nam 845 milljónum árið 1992. Því er um 16,5% samdrátt að ræða milli ára. Sé miðað við SDR var virði aflans 599 milljónir árið 1992, en 1993 verður það 505 milljónir eða 15,7% minna en í fyrra. Tekið skal fram að miðað er við meðalgengi jan./nóv. bæði árin. Endanlegar tölur 1984-1992 og áætlun 1993. Allar tölur eru í þúsund- um tonna, m.v. óslægðan fisk. Auk þessa afla hafa íslynsk skip veitt tæp 8 þúsund tonn af fiski í svokallaðri Smugu, þar af er um 98% þorskur. Verðmæti Smuguaflans er áætlað 490 milljónir. Breytingar aflamagns milli ára verða samkvæmt spánni eftirfarandi: Botnfiskaflinn er lakari en hann hefur verið á öllu tímabilinu, en er svipað- ur og hann var árið 1984. Undantekningar frá þessu sjást þó í spánni um veiðar karfa og skarkola. Þorskaflinn dregst saman um 19 þúsund tonn, sem samsvarar um 7% samdrætti milli ára. Ýsuaflinn verður 46 þúsund tonn eða sá sami og í fyrra en hann hefur aðeins einu sinni orðið minni á síðustu tíu árum. Ufsaaflinn verður lakari en í fyrra sem nemur 8 þúsund tonnum eða rúmlega 10% samdrætti aflans. Af karfa mun veiðast um 5 þúsund tonnum meira í ár en í fyrra, en það er tæplega 5% aukning milli ára. Skelfiskaflinn er að jafnaði betri á árinu en í fyrra. Gert er ráð fyrir um 9% aukningu í humarafla milli ára en um 11% meira mun veiðast af rækju en árið áður og er það besta aflaár rækju til þessa. Síldaraflinn verður heldur lakari en í fyrra. Hann dregst saman um 9 þúsund tonn eða um rúmlega 7%. Hins vegar verður loðnuafli mun betri en í fyrra, eykst úr 796 þúsund tonnum í 940 þúsund tonn. Aukningin nemur rúmum 18%. Heiti f.teg 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993* Þorskur 282 323 366 390 376 354 334 307 267 248 Ýsa 47 50 47 40 53 62 66 54 46 46 Ufsi 60 55 64 78 74 80 95 99 78 70 Karfi** 108 91 86 88 94 93 95 104 108 113 Steinbítur 10 10 12 13 15 14 14 18 16 14 Grálúða 30 29 31 45 49 58 37 35 32 32 Skarkoli 11 15 13 11 14 11 11 11 10 12 Annar botnf. 15 13 13 20 23 20 22 27 28 30 Botnf. alls 564 585 632 684 698 693 674 654 585 564 Humar 2.46 2.39 2.56 2.71 2.24 1.87 1.69 2.16 2.23 2.40 Rækja 24.42 24.91 36.21 38.64 29.74 26.78 29.83 38.04 46.91 52.00 Hörpudiskur 15.58 17.07 16.43 13.27 10.06 10.77 12.38 10.30 12.43 12.00 Síld 50 49 66 75 93 97 90 79 123 114 Loðna 865 993 895 803 909 650 692 256 797 938 Annað 4.41 0.44 3.41 7.66 10.36 9.93 2.51 4.60 2.27 2.00 Heildarafli 1525 1672 1651 1625 1752 1489 1502 1044 1569 1684 **þ.a.úthafsk 1 4 8 14 20 .♦áætlun Fiskifélagið áætlar að andvirði útflutnings sjávarafurða verði um 77 milljarðar króna á árinu. Árið 1992 nam verðmæti útflutnings sjávaraf- urða 71,3 milljörðum króna. Það hefur því aukist um rúmlega 8% milli ára og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Verðmæti þessa útflutnings er áætlað nema um 1.140 milljónum dollara en það jafngildir nærfellt 8% samdrætti frá því I fyrra. Þá var verðmætið um 1.240 dollarar. Sé miðað við SDR hefur útflutningsverðmætið einnig dregist saman um tæp 8%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.