Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 15 Ársæll Sveinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. hæf og góð húsmóðir og stjórnaði fjölmennu heimili af miklum myndarbrag svo orð fór af. Eftir 22 ár á sjónum, árið 1934, hætti Ársæll formennsku og hóf störf í landi við rekstur, sem nú hafði þegar byijað að þenjast út og átti eftir að aukast stórum er fram liðu stundir. Hann gerðist nú umsvifamikill útgerðarmaður og fiskverkandi og auk þess rak hann timburverslun og dráttarbraut. Hann sýndi einnig á þeim vett- vangi að hann kunni vel til verka. Nú komu einnig til liðs við hann börn hans, en níu af börnum, sem þeim Laufeyju varð auðið komust sjö upp og unnu öll með einhveijum hætti að rekstrinum með foreldrum sínum. En starfssviðið varð nú ekki aðeins hans eiginn rekstur heldur Fyrstu áramótatónleikar Listasafns íslands Ymir leikur klassíska tónlist FYRSTU áramótatónleikar Listasafns íslands verða haldnir þar að kvöldi þriðjudagsins 4. janúar. Kammerhópurinn Ýmir leikur verk eft- ir fimm tónskáld; Hándel, Milhaud, Árban, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Johann Strauss. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Listasafnið og Ymir standa saman að tónleikunum og í tilkynningu frá safninu segir að ef vel takist til gætu áramótatónleikar orðið árlegur viðburður. Ými skipa að þessu sinni Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Einar Jó- hannesson, klariett, Einar St. Jóns- son, trompet, Steef van Oosterhout, slagverk, og Örn Magnússon, píanó. Þau leika Duo fyrir fiðlu og selló eftir Hándel, Svítu fyrir fiðlu, klari- nett og píanó eftir Milhaud, Karnival í Feneyjum eftir Arban, Vikivaka og idyll fyrir píanó eftir Sveinbjörn og Keisaravalsinn og fleira eftir Strauss. Kammerhópurinn Ýmir kom fyrst fram á haustdögum 1992 til að leika 6 tónverk til orðin að frumkvæði japansks áhugamanns um íslenska samtímatónlist, Michio Nakajima. Fyrstu tónleikar hópsins voru haldn- ir í febrúar 1993 og nú í desember gaf Islensk hljómverkamiðstöð út geisladisk með leik Ýmis. Hópurinn verður í mars og apríl á tónleikaför í Japan, Hollandi og Belgíu. Ýmir er nafn jötuns sem varð til þegar ískaldur niflheimur og brenn- andi Múspell sameinuðust. Hann er tvíkynja tákn sköpunarverks Óðins og bræðra hans; alheimstilverunnar þar sem allt er að finna. Hafið varð til úr blóði hans og himinn úr höfð- inu. Gömul alþýðuskýring tengir orð- ið við sögnina að ymja, að hljóma eða niða. Kammerhópurinn Ýmir. tók hann sífellt meiri þátt í félags- málum og beindi þá kröftum sínum einkum að máiefnum sjávarútvegs- ins og bæjarfélagsins. Starfsemi Björgunarfélags Vestmannaeyja var eitt af hans hjartans málum. Sjálfur hafði hann sem sjómaður séð nauðsyn þess að hafa vel skipu- lagða björgunarstarfsemi, sem gæti jafnan verið tiltæk til að vera bátaflotanum til aðstoðar við þær erfíðu aðstæður, sem oft eru á fiskimiðunum umhverfis Vest- mannaeyjar. Seinasta áratuginn, sem hann stundaði sjóinn hafði verið unnið að því að stofna Björg- unarfélag Vestmannaeyja og danskt eftirlits- og rannsóknarskip „Thor“ keypt til eftirlits og björg- unarstarfa. Var það skip einnig notað til landhelgisgæslu. Eftir að Ársæll kom í land var hann um langt skeið framkvæmdastjóri Björgunarfélagsins og mátti vel heyra á honum að hann taldi það með merkustu þáttum í lífsstarfi sínu. í félagsmálum sjávarútvegs- ins var hann kvaddur til forystu og var um ára bil formaður í stjórn Bátaábyrgðarfélags Vestmanna- eyja og sömuleiðis Útvegsbænda- félagsins. Hann var auk þess í stjórn Lifrarsamlags Vestmanna- eyja og Isfélags Vestmannaeyja, sem hvorutveggja voru þýðingar- mikil fyrirtæki útgerðarinnar í Eyjunum. Ég kynntist Ársæli fyrst vel þegar hann sat á Fiskiþingi, á ár- unum 1962-1968, en þar var hann verðugur fulltrúi Vestmannaeyja. Var oft gaman að heyra hann flytja inál sitt af tilfinningakrafti og voru það þá einmitt mál, sem vörðuðu sjómenn og öryggið á sjónum, en þar talaði hann af eigin reynslu. Hann var einnig tilllögugóður um málefni sjávarútvegsins enda flutti hann mál sitt þannig að maður vissi að þar talaði maður, sem þekkti betur en flestir aðrir mál- efnin sem rædd voru. Ekkert mun þó hafa staðið nær hjarta hans af þeim málefnum, sem hann fékkst við um ævina, en þau sem tengdust bæjarfélaginu og velferð þess. Þar voru það hafnar- málin, sem bar hæst. Hafnarað- staða hafði löngum verið mikið vandamál Eyjamanna og einkum þó eftir því sem útgerðinni óx fisk- ur um hrygg og bátarnir stækkuðu en það krafðist sífellt tryggari hafnaraðstöðu. Ársæll var um ára- bil formaður hafnarnefndar og þá í forystu fyrir uppbyggingu og endurbótum á höfninni. Eitt þýðingarmesta átakið í þeim málum var þegar Ársæll stóð fyrir framkvæmdum við upphaf byggingar uppfyllingar fyrir botni hafnarinnar og bryggja þar fram- anaf, en sá hluti hafnarinnar fékk nafnið „Friðarhöfn". Segir nafnið vel hversu þýð- ingarmikið menn töldu þessar framkvæmdir. Enda gerbreyttust allar aðstæður í Vestmannaeyja- höfn. En Ársæll lét sér einnig annt um ýmis önnur málefni bæjarins þó þess sé ekki sérstaklega getið hér. Við hann gætu áttu orð, sem hann viðhafði í minningargrein um vin sinn Þorstein í Laufási í tímarit- inu Ægi. „Hann mat ávallt Eyja- hag framar eiginn hag.“ Það leynir sér ekki þegar litið er yfir þann æviferil, sem hér hef- ur verið stuttlega rakinn að hér fór óvenjulegur maður, sem naut trausts samstarfsmanna sinna í atvinnurekstrinum og samborgara sinna almennt. Davíð Ólafsson. I NÁMSKEID LÍFEFLI - GESTALT úrvinnsla sál-líkamlegra einkenna. GESTALT-MEÐFERÐ, meðáherslu á „HÉR OG NÚ“ upplifun og tjáningu. Ánámskeiðinuverður farið í LÍFEFLISÆFING- AR „BIOENERGETICS" Alexander Lowen's. \ ) > Markmið:Aukinsjálfs- v þekking og ábyrgð á !! j . | r eiginlíðan. *— Leiðb.: Gunnar Gunnarsson sálfræðingur. Uppl. og skráning í síma 641803 SÁLFRHIIÞJÓNUSTA GUNNARS GUNNARSSONAR Laugavegi43, Reykjavík. Símí641803 ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR Til móts við framtíðina Opinn frœöslufundur um möguleika íslenskra matvœla á vistvœnum og lífrœnum mörkuöum Laugardaginn 8. janúar nk. gengst sérstakur starfshópur Bændasamtakanna, sem kannar markaðsmögu- leika íslenskra matvæla á forsendum hollusm, hreinleika og gæða, fyrir opnum fræðslufundi á Hótel Sögu. Gestur fundarins verður Carl Haest, sérfræðingur í markaðssetningu lífrænna og vistvænna afurða í Evrópu, Ameríku og Asíu. Á fúndinum mun Carl Haest flytja fjögur stutt erindi og svara fyrirspumum á milli erinda. Dagskrá 08.45 Innritun. 09-15 Setning: Jón Helgason, formaður Búnaðarfélags íslands. Ávarp: Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra. 09 30 Vistvænn landbúnaður, krafa heilbrigðrar skynsemi - lífrænn landbúnaður frá félagslegu, menningarlegu, vistfræðilegu og efnahagslegu sjónarhomi. 10.30 Kaffihlé. 10.45 Þróun vistvæna og lífræna markaðarins úr sérhæfðum í almennan markað - hvað er rétt og rangt um þennan hraðvaxandi markað. 12.15 Hádegisverður. 1315 Skipulagning eftirlits og vottunar - uppbygging eftirlitskerfa, lagaleg atriði. 14.30 Kaffihlé. 15.00 Einstæðir möguleikar íslands - að skipuleggja vistvænan markað heima og heiman. 16.15 Lokaorð: Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda. Fundarstjórar: Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra og Þorsteinn Tómasson, forstjóri RALA. Carl Haest flytur erindin á ensku og verða þau þýdd jafnóðum fyrir þá sem vilja. Þátttökugjald er kr. 1.900, innifalið kaffi og hádegisverður. Skráning þátttöku er í síma 630300 til 7. janúar nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.