Morgunblaðið - 18.01.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994
17
Stefna umhverfis- o g heilsuverndar
eftír Ólaf F.
Magnússon
A næstunni fer fram prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
vegna skipunar á lista flokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar í
vor. Á sama tíma virðist sem
vinstri mönnum hafi tekist að ná
samkomulagi um sameiginlegan
lista gegn sjálfstæðismönnum. Því
er mikilvægt að Sjálfstæðisflokk-
urinn nái að bjóða fram sterkan
lista sem nær til hins breiða fjölda
með málflutningi sínum.
Breytt forgangsröðun
Á þessu kjörtímabili hef ég sem
varaborgarfulltrúi einkum beitt
mér í heilbrigðis- og umhverfis-
málum, en aukið umferðaröryggi
og bættar gönguleiðir um borgina
eru einnig sérstök áhugamál mín.
Þar sem borgarstjórnarkosning-
arnar í vor munu að verulegu leyti
snúast um fjármál borgarinnar og
atvinnuleysisvandann vil ég leggja
áherslu á sparnað og ráðdeild með
almannafé og markvissa uppbygg-
ingu í atvinnumálum. Á undan-
förnum árum hef ég lýst þeirri
skoðun minni að aukið tillit beri
að taka til barnafjölskyldna, bæði
í skattamálum og varðandi nioður-
greiðslur á heilbrigðisþjónustu og
annarri opinberri þjónustu. Þessar
niðurgreiðslur ættu að vera þær
sömu hjá börnum að 16 ára aldri
og hjá lífeyrisþegum. Ég vil einnig
beita mér fyrir breyttri forgangs-
röðun á nýtingu almannafjár á
næsta kjörtímabili og í því skyni
fresta stórframkvæmdum á Korp-
úlfsstöðum og við bílastæðahús í
miðbænum.
Helstu stefnumál
í tengslum við framboð mitt í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík hef ég set fram stefnu
mína og áhersluatriði í 12 liðum
og eru þau eftirfarandi:
1. Réttlátari fjölskyldustefna.
2. Ráðdeildarsemi með almanna-
fé.
3. Markviss atvinnuuppbygging.
4. Verndun og varðveisla útivist-
arsvæða.
5. Bættar göngu- og hjólreiða-
leiðir.
í Kaupmannahöf n
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
. Peningamálin
einum
1 Félagasjóði
Hallbera Stella Leifsdóttir, Badmintonfélag Akraness.
Okkur finnst best að fá
yfirlit reglulega og hafa allt
skipulag á einum stað.
Yfirlitin eru einföld og
auðskiljanleg fyrir venjulegt
fólk.
Innheimta félagsgjalda
Greiðsluþjónusta
Yfirlit ytir félagsgjöldin
fíekstrarreikningur árlega
Bókhaldsmappa í kaupbæti
L
Landsbanki
íslands
Bankl alira landsmanna
6. Pjölgun undirganga við um-
ferðaræðar.
7. Öflugar mengunarvarnir.
8. Aukið umferðaröryggi.
9. Frestun stórframkvæmda við
Korpúlfsstaði og bílastæða-
hús.
10. Hagkvæmni og fjölbreytni í
öldrunarþjónustu.
11. Valfrelsi í heilbrigðisþjónustu.
12. Heilsuverndarstöðin áfram í
þjónustu Reykvíkinga.
Heilsugæslan aftur til
sveitarfélaga
Sterkar líkur eru á því að rekst-
ur heilsugæslu færist aftur til
sveitarfélaga frá ríkisvaldinu á
næsta kjörtímabili. Innan borgar-
„Á þessu kjörtímabili
hef ég sem varaborgar-
fulltrúi einkum beitt
mér í heilbrigðis- og
umhverfismálum, en
aukið umferðaröryggi
og bættar gönguleiðir
um borgina eru einnig
sérstök áhugamál mín.“
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins hef ég ásamt þeim Katrínu
Fjeldsted og Ingólfi Sveinssyni
haft með höndum stefnumótun í
þessu málaflokki, en þau Katrin
og Ingólfur gefa ekki kost á sér
í komandi prófkjöri. Ég er reiðubú-
inn til að taka að mér forystu i
þessum málaflokki, fái ég til þess
ótvírætt umboð í prófkjörinu, með
kosningu í sæti aðalborgarfull-
trúa. Auk þess hef ég sem starf-
andi heimilislæknir mikinn áhuga
á þeim málum sem lúta að vernd-
un umhverfis og vörnum gegn
slysum og sjúkdómum, eins og
helstu stefnumál mín bera glöggt
vitni.
Höfundur er læknir og
varaborgarfulltrúi í Kcykjavík og
einn frambjóðenda í prófkjöri
sjálfstæðismanna íReykjavík.
Ólafur F. Magnússon
J