Morgunblaðið - 12.02.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
7
Þingsályktunartillaga á Alþingi
Notkun steypu á
vegum verði aukin
ÞINGMENN úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsálytunartillögu
á Alþingi þar sem skorað er á samgönguráðherra að beita sér
fyrir aukinni notkun steinsteypu til slitlagsgerðar á vegum þar
sem umferð er 5-8 þúsund bílar á sólarhring eða meira.
Gísli S. Einarsson þingmaður og minna vatns í hjólförum, minni
Alþýðuflokks er fyrsti flutnings- efnismengun vegna slitryks,
maður tillögunnar. í greinacgerð grynnri hjólför að jafnaði og því
með frumvarpinu er bent á, að minni slysahætta og loks minni
rannsóknir sýni að mun hagkvæm- kostnaður við lýsingu þar sem
ara sé að nota steypu en malbik steypa er Ijós en malbik dökkt.
eða önnur olíuefni þar sem umferð
og álag af völdum veðurfars og
þungaflutninga er mjög mikið.
Minna viðhald
Talin eru upp nokkur atriði sem
mæli sérstaklega með steinsteypu
til gatna- og vegagerðar. Þau eru
meiri ending og minna viðhald
vega, minni erlendur kostnaður
og fleiri störf hérlendis við steypu-
stöðvar, efnisvinnslu og sements-
verksmiðju, minni eldsteytisnotk-
un vegna harðara yfirborðs vega
Stálskip
kaupir Otto
Wathne NS
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ
Stálskip í Hafnarfirði hefur
keypt frystitogarann Otto Wat-
hne NS 90 frá Seyðisfirði. Að
sögn Guðrúnar Lárusdóttur,
annars eiganda Stálskips,
hyggst fyrirtækið færa kvóta
frá öðrum skipum útgerðarinn-
ar yfir á Otto Wathne. Kaup-
verð togarans fékkst ekki upp-
gefið en Trausti Magnússon út-
gerðarmaður skipsins segir að
það hafi verið viðunandi. Tutt-
ugu manns eru í áhöfn skipsins
og hefur þeim verið sagt upp
störfum.
Guðrún segir að Otto Wathne
fái kvóta frá öðrum skipum fyrir-
tækisins sem verða seld. Nú gerir
Stálskip út þijú skip, frystitogar-
ann Ými og ísfisktogarana Rán
og Þór. Búið er að selja Rán til
útlanda en ekki hefur verið ákveð-
ið hvað verður gert við Þór.
Guðrún segir að ástæða kaup-
anna sé að fyrirtækið ætli að
hætta alveg ísfiskvinnslu og fara
yfir í sjófrystingu. „Við teljum það
vera betri kost,“ segir hún. „Þetta
er hagræðing fyrir okkur.“ Stál-
skip er ekki með frystihús í landi
og hefur hingað til selt aflann á
mörkuðum. Guðrún segir það ekki
ljóst hvernig dæmið komi út pen-
ingalega, Otto Wathne sé stærra
og nýrra skip en Rán og þurfi
væntanlega minna viðhald.
Skipið vérður afhent 30. mars
og verður þá farið í að breyta
því. Guðrún segir að það þurfi að
vinna alveg nýtt millidekk í skipið,
nú sé það útbúið til þess að heil-
frysta fisk, en verður breytt þann-
ig að hægt verði að fullvinna afl-
ann um borð.
Tuttugu missa vinnuna
Tuttugu manna áhöfn er um
borð í Otto Wathne sem nú er að
veiðum á Flæmska hattinum.
Trausti segir að áhöfninni hafi
verið sagt upp störfum á síðasta
ári og verið lausráðin síðan. Guð-
rún sagði að þeir sjómenn sem nú
vinna á Rán og Ými fái pláss á
Otto Wathne.
Ottó Wathne er 598 rúmlestir
og var byggður á Spáni árið 1990
og kom hingað til lands haustið
1992. Hann hefur ekki fengið afla-
heimildir í íslenskri lögsögu og því
engöngu stundað veiðar utan fisk-
veiðilögsögunnar m.a. í Smugunni.
Svartur Rúbín
Eðalkaffi úr völdum
gæðabaunum með
einstakri bragðfyllingu
og.ljúfum eftirkeimi
Rauður Rúbín
L j ú fteng gæða b I a nda
með t’ersku, hressandi
og t’ylltu bragði
KAITIBEi W'Sl A AKURHVRAE III