Morgunblaðið - 12.02.1994, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1994
FASTGGNASAIA
VITASTÍG 13
Kleifarsel
2ja herb. rúmg. íb. á 1. hæð, 76 fm. Sérgarður. Parket
á gólfum. Góðar innréttingar. Góð lán áhv. Verð 6,2 millj.
FÉLAG
I FASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGN A
SVERRIR KRISrjAHSSOH LOGGILWR FASIílGRIASALI
SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJA VÍK, FAX 687072
MIÐLUN
SiMI 68 77 68
Mánagata - einbýli
Til sölu 172 fm einbýli, kjallari og tvær hæðir. Bílskúr.
Möguleiki á séríbúð í kjallara. Hornlóð. Ræktaður garð-
ur. Húsið er laust. Lyklar á skrifstofunni.
Laufásvegur - sérhæð
Efri sérhæð og ris í góðu steinhúsi. Stórar og fallegar
stofur. Útsýni. Laust fljótt.
Hverafold - einbýli
Fallegt ca 202 fm einbýli á einni hæð. Innb. bílskúr.
Stórar stofur, 5 svefnherb. o.fl. Fallegur garður. Skipti
á minni eign koma til greina.
Vantar - vantar - vantar
stórt einbýlis ca 300 fm eða stærra vestan Rauðarár-
stígs, norðan Hringbrautar, fyrir opinberan starfsmann.
Raðhús eða einbýli í Vogum eða Sundum.
Verð allt að 16 millj.
Sýningarsalur opinn f dag frá kl. 11.00-16.00
FASTGIGNASALA
VITASTlG I3
Grettisgata
3ja herb. falleg íbúð á 1. hæð í þríbýlishúsi, 67 fm.
Húsið hefur allt verið endurn. Nýtt gler og gluggar.
Góð lán áhv. Verð 5,7 millj.
Gunnar Gunnarsson,
FASTEIGNASALA lögg. fasteignasall, hs. 77410.
Q11 Cn LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I I0U"LIu/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna:
Vesturbærinn - Skerjafj. - nágrenni
Góð 3ja herb. íb. óskast f. traustan kaupanda. Skipti mögul. á góðu
einbhúsi á kyrrlátum stað í Skerjaf. á góðu verði.
Glæsilegt einbhús - mikið útsýni
Nýtt timburhús v. Fannafold m. 6 herb. rúmg. íb. á tveimur hæðum.
Rúmg. bílsk. (verkstæði) um 40 fm. Gott lán. Hagkvæm skipti.
Sérþvhús - góður bílskúr - gott verð
Glæsileg 4ra-5 herb. ib. 118,7 fm nettó í suðurenda v. Breiðvang,
Hafn. Ágæt sameign. Fráb. útsýni. Nýl. eldhús, nýl. parket. Stór og
góð 4ra herb. íb. v. Hraunbæ. Gott herb. fylgir í kj. m. snyrtingu. Verð
aðeins kr. 7,3 millj.
Stór og góð við Álfheima
3ja herb. íb. á 1. hæð tæpir 90 fm. Þvegiö á rúmg. baði. Sólsvalir.
Húsið er sprunguþétt og málað. Geymsla í kj. Verð aðeins 6,3 millj.
Vinsæll staður.
Vinsæll staður - gott verð
Sólrík 3ja herb. íb. á Teigunum lítið niðurgr. í kj. Sérhiti. Reisul. þríb-
hús. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Tilboð óskast.
Hlíðar - nágrenni - hagkvæm skipti
Á söluskrá óskast 2ja herb. góð íb. á 1. eða 2. hæð. Skipti mögul. á
4ra herb. góðri hæð m. miklu rými í risi.
Af sérstökum ástæðum
er til sölu 6 herb. sér efri hæð í þríbhúsi á vinsælum stað í Austurborg-
inni. Góður bílsk. Hagst. greiðslukjör. Nánari uppl. á skrifst.______________
• • •
Opiðídag kl. 11-14.
Teikningar á skrifstofunni.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGHASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
___________________________liOgirfMinál
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 731. þáttur
Fyrst er hér að birta og þakka
bréf frá nemanda mínum Oddi
Sigurðssyni í Reykjavík:
„Kæri Gísli!
Framtíðin er mönnum kær-
komið umhugsunarefni á ára-
mótum. En hún er nefnd á nafn
í ræðu og riti meira en mér þyk-
ir hóflegt. Læt ég því verða af
því að senda þér nokkrar vanga-
veltur um hana.
íslenskan er því eðli búin, að
vísun til framtíðar liggur í orð-
unum án þess að sagnorði sé
búin sérstök framtíðarmynd.
Oftast komumst við ágætlega
af með einungis tvær tíðarmynd-
ir sagnorða, nútíð og þátíð.
Þessu hafa margir unað illa og
vilja búa til framtíð með því að
setja saman tvö eða fleiri sagn-
orð e.t.v. til að skrýða stíl sinn
eða líkja eftir erlendum málum.
Aðrir bæta við forsetningarliðn-
um í framtíðinni í tíma og ótíma.
Oftast er þessara orða engin
þörf. Dæmi: „... með fram-
kvæmdum sem ekki munu kalla
á útgjöld / framtíðinni heldur
leiða til sparnaðar.“ (Davíð
Oddsson, Morgunblaðinu 31.
desember ’93.) Einnig eru þess
mörg dæmi að önnur orð eigi
betur við svo sem síðar, þótt
síðar verði, seinna meir, fram-
vegis, héðan í frá, áður en yfir
lýkur o.s.frv. Dæmi: „... að
NATO veiti Austur-Evrópuþjóð-
um aðild í framtíðinni." (Rás 1,
fréttaútdráttur 11. janúar ’94.)
„Eigi ijárveitingar til Sólheima
í framtíðinni að grundvallast á
þeim.“ (Morgunblaðinu 8. janúar
’94.) „Því mun íþróttafólk setja
æ fleiri met / framtíðinni. . .“
(Skímu, Rás 1, 4. janúar ’94.)
I morgunútvarpi Rásar 2 á
dögunum heyrði ég útvarps-
mann spyrja röskan athafna-
mann sem bauð merka nýjung
fala: „Er þetta framtíðin, Ein-
ar?“ Og sá röski svaraði að
bragði: „Þetta er orðin framtíð-
in!“ Trúi ég að enn sé vonlaust
að finna þessa merkingu fram-
tíðar í íslenskum orðabókum.
Úr því ég er farinn að skrifa
um tímasetningu í orðum er
ekki úr vegi að nefna það skáld-
lega orðalag „í dag“ um það sem
gerist um þessar mundir eða
nútímann í stórum dráttum. Vill
mönnum þá yfirsjást að þessi
orð eiga ekki alltaf við og raun-
ar afar sjaldan.. Koma þá upp
'tilvik sem verða til skemmtunar
eitt og eitt en hvimleið þegar
þeim fjölgar til muna. Til dæmis
kann ég að nefna setningu úr
Morgunblaðsgrein um merkan
hugsuð: „Stephen Hawking hef-
ur lengi verið einn alfremsti eðl-
isfræðingur Breta í dag.“ I Lauf-
skálaspjalli við virðulegan
sveitaprest fyrir austan á Rás 1
heyrði ég þetta: „Ferð þú oft til
Reykjavíkur / dagl“ Þá þurfa
Austfirðingar ekki að kvarta
yfir tregum samgöngum.
Með virktarkveðju."
★
Áslákur austan sendir:
Milljónir manna í Kína
á Maós flgúru blína
og biðja þann gamla
þeirri breyting að hamla,
að bæti þær áfkomu sína.
★
Árið 1930 kom út bókin Matar-
æði og þjóðþrif eftir Björgu C.
Þorláksson. Æði í þessu sambandi
merkir hátterni, venja, sbr. lát-
æði, en ekki vitfirring eða æði-
bunugangur. Þó ætla sumir lærð-
ir menn að hvort tveggja „æðið“
sé af sömu málrót runnið. Eg má
víst ekki nota hér orðið tungu-
rót. (En ég má skjóta hér inn
hringhendri ferskeytlu eftir Svein
frá Elivogum:
Hatðu ungur hóf við Svein,
hreyfðu ei þungum nótum;
eiturþrunginn á ég flein
undir tungurótum.)
Æði merkir stundum eðli, og
svo vita menn náttúrlega að það,
sem er æðislega gott, getur verið
„algert æði“.
En um æði í hinni fyrrgreindu
merkingu tek ég hér upp úr Heil-
agra manna sögum: „Hverr er
þessi Jesus er með æði sínu ok
guðligum bænum kallar dauða
rnenn til lífs?“
Þá er aftur komið að matar-
æði. Það er sem sagt hvorki *að
vera óður í mat, né *æði matar-
ins, heldur venja manna og hátt-
semi í fæðuvali og rieyslu, ef það
er þeim sjálfrátt. Undarlega
hljómaði því þessi setning manns
nokkurs sem átti erindi við Rás
2: „Maður ræður sér ekki hóf í
mataræði.“
Þarna hefur ýmsu slegið sam-
an. Óhófleg matgræðgi (lat.
voracitas) var ein af sjö dauða-
syndum eftir mati spakra manna
snemma í kristnum dómi, og í
Hávamálum er þessi speki:
Gráðugur halur,
nema geðs viti,
etur sér aldurtrega.
Oft fær hlægis,
er með horskum kemur,
manni heimskum magi.
Þetta merkir líklega: Gráðugur.
maður étur sig í hel, ef hann hef-
ur ekki stjórn á löngun sinni.
Heimskur maður verður oft að
athlægi vegna maga síns (græðg-
innar) í hópi viturra.
Er hér ráð fyrir því gert, að
ofát sé til marks um heimsku.
★
Hlymrekur handan kvað:
Borið er bam á Skeiði;
birtist nú hvað var á seyði,
þegar Leifl á Löndum
af lífsháska vöndum
læknaði Aðalheiði.
Og enn kvað hann:
Hýmar um heimsins bólin,
er himnakroppurinn sólin
hefst upp úr mökkva
helvítis rökkva
og fer uppávið eftir jólin.
★
„Magnþrungnar uppsprettur
andans verður að nota í sama
hófi og sjálfa náttúruna, og lúti
menn of djúpt í bikar minning-
anna, drekka þeir sér óminni líð-
andi stundar.“
(Grímur Thomsen.
Sjá Andvara 1993.)
P.s. Umsjónarmaður tölusetti
síðasta þátt skakkt, átti að vera
730.
Yngri flokkar knattspyrnudeildar Vals
Inneignarmiðar fyrir greidd gjöld
YNGRI flokkar knattspyrnudeildar Vals fá inneignarmiða á Umbro-
og Diadora-vörum í versluninni Ástund að upphæð 1.200 krónur
þegar æfingagjöld til félagsins hafa verið greidd. Þar að auki fá
viðkomandi æfingakort sem veitir 10% staðgreiðsluafslátt af íþrótta-
vörum og 20% staðgreiðsluafslátt af íþróttaskóm í sömu verslun.
Æfingagjöldin fyrir tímabilið 1. janúar til loka apríl eru 4.000 krónur.
Helgi Kristjánsson, fram- við félagið með þessum hætti. Helgi
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar segir félagið greiða ákveðna pró-
yals, segir Val auglýsa mikið fyrir sentu af inneignarmiðunum til
Ástund og verslunin komi til móts verslunarinnar en að öðru leyti sé
Kaffi í Herkastalanum. Lagt
af stað frá Neskirkju kl. 15.
Þátttaka tilk. kirkjuverði í
'dag kl. 11-12 í s. 16783. Á
morgun flutt fræðsluerindi í
safnaðarheimilinu kl. 15.15.
Kristján Valur Ingólfsson
fjallar um kristið helgihald.
Kaffi, umræður.
KIRKJUSTARF
HALLGRÍMSKIRKJA:
Samvera fermingarbarna kl.
10.
HÁTEIGSKIRKJA: Kirkju-
starf barnanna í dag kl. 13.
LAUGARNESKIRKJA:
Guðsþjónusta í dag kl. 11 í
Hátúni lOb. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson.
DAGBÓK
EA-sjálfshjálparhópar fyrir
fólk með tilfinningaleg
yandamál eru með fundi á
Öldugötu 15 á mánudögum
kl. 19.30 fyrir aðstandendur,
en þriðjudaga og miðviku-
daga kl. 20 er öllum opið.
féLagið Heyrnarhjálp er
me^ þjónustuskrifstofu á
Klaþparstíg 28, Reykjavík.
SILFURLÍNAN - sími
616262. Síma- og viðvika-
þjónusta fyrir eldri borgara
alla ýirka daga milli kl. 16
og 18.
NESSÓKN. Félagsstarf.
Farið í Ráðhúsið og skoðuð
ljósmyndasýning í tilefni 90
ára afmælis heimastjórnar.
samningurinn milli þeirra trúnaðar-
mál. Öll æfingagjöld renni til ungl-
ingastarfsins sem séu með sjálf-
stæðan fjárhag og hafi það mark-
mið eitt að vera réttu megin við
núllið.
Ásókn stúlkna í fótboltann
„Við notum æfingagjöldin til að
greiða fyrir búninga, til að koma
keppendum á keppnisstaði, til að
borga leiðbeinendum og ýmsan
annan kostnað. Við leggjum metnað
okkar í að hafa hæfa leiðbeinendur
og ala upp góða knattspyrnumenn.
Þessi samningur um inneignarmið-
ana er aðferð til að fá félagsmenn
til liðs við okkur,“ sagði Helgi.
Hann sagði að fyrirkomulagið hefði
ekki verið auglýst, það auglýsti sig
sjálft.
Helgi sagði að í unglingadeild
væru unglingar og börn, 16 ára og
yngri, í tjórum stúlknaflokkum og
5 piltaflokkum. Hann sagði að
ásókn stúlkna í félagið hefði aukist
mikið, í fyrra hefði verið stofnaður
nýr flokkur, 5. flokkur stúlkna, og
í honum hefðu um 5 stelpur byrjað
að æfa í haust en nú væru þær
orðnar 20. Annars eru um 40 börn
og unglingar í hverjum flokki.
Stelpurnar í 5. flokki eru fæddar
’85 og ’86 og eru því 8 og 9 ára
gamlar en í yngsta strákaflokkinn
eru strákar teknir inn þegar þeir
eiga eftir 3 mánuði í að verða 6 ára.