Morgunblaðið - 12.02.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
11
Að „klæmast“ á liugtökum
eftir Viðar
Víkingsson
Um sömu mundir og forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
og Thor Vilhjálmsson rithöfundur
sitja í dómnefnd um heimildar-
myndir og fréttaskýringarþætti á
alþjóðlegri sjónvarpshátíð í Monte
Carlo, hefur fjöldi manna á íslandi
sest í dómarasæti og viðrað skoðan-
ir sínar á því hvað sé heimildar-
mynd og hvað ekki. Hæst hefur þó
látið í þeim pennavinum Hauki
Halldórssyni, formanni Stéttarsam-
bands bænda, og Arthúri Björgvin
Bollasyni, fyrrverandi ráðgjafa út-
varpsstjóra. Það hafa þeir gert af
slíku yfirlæti að ætla má að þeir
telji sig sjálfkjörna í dómnefndir um
þau mál.
Hvað er heimildarmynd?
Hið rómaða gegnsæi íslenskrar
tungu hefur löngum villt um fyrir
mönnum. „„Heimildarmynd" hlýtur
að vera heimild um eitthvað", hugsa
menn og telja málið afgreitt. Á
sama hátt hefur orðskrípið „kvik-
myndaleikstjóri", sem á sér enga
hliðstæðu í erlendum tungumálum,
talið fólki trú um að starf kvik-
myndahöfunda sé eingöngu í því
fólgið að segja til leikurum, en
formsköpun myndarinnar sé í ann-
arra höndum.
En höldum okkur við heimildar-
myndina. í umræðuþætti í Bænda-
höllinni fordæmdi Haukur Halldórs-
son af ábúðarmiklum þunga nær-
myndanotkun og tónlistarval þátt-
arins „Bóndi er bústólpi" þegar
hann vísaði því á bug að þátturinn
væri heimildarmynd. í hans huga
virtist heimildarmynd um stjórn-
kerfi landbúnaðarins eiga að Vera
nokkurs konar ársskýrsla bænda-
samtakanna; talnaruna krydduð
glaðlegri tónlist sem þulin er upp
undir myndskeiðum með gleiðu
sjónarhorni.
„Tumi fer á fætur“
Þegar menningarbyltingin í Kína
stóð sem hæst hófu Rauðu varðlið-
arnir orrahríð gegn vissri tegund
vestrænnar tónlistar. Beethoven og
Schubert voru forkastanlegir smá-
borgarar með sjúklegt hugarfar af
því að þeir sömdu mikið af dapur-
Viðar Víkingsson
„Að segja að þetta beri
vitni þeirri ótrúlegu
mannvonsku sem fram
kemur í myndinni „Der
ewige Jude“, nasista-
myndinni þar sem gyðing-
um er líkt við rottur og
sem Arthúr virðist hafa í
huga, það er í orðsins
fyllstu merkingu að
„klæmast" með óhugnan-
legustu atburðina í
manna minnum.“
legum og drungalegum verkum í
moll. Mozart var hins vegar skárri
því eftir hann liggur margt íjörlegt
í dúr, „Tumi fer á fætur“ o.þ.h.
Ég held því ekki fram að orð
Hauks séu hliðstæð málflutningi
Rauðu varðliðanna og að á sama
hátt og þeir sendu menntamenn í
endurhæfingu í afskekkt sveitahér-
uð vilji hann dæma molltónlistar-
unnandann Þorvald Gylfason í
hegningarvinnu á Hornströndum.
Slíkur samanburður væri mjög
ósmekklegur þegar höfð eru í huga
örlög þeirra tugmilljóna sem urðu
fórnarlömb menningarbyltingarinn-
ar.
Að „klæmast“
En það er einmitt' hálfu ósmekk-
legri samanburður sem pennavinur
Hauks, Arthúr Björgvin, gerir sig
sekan um í bréfínu fræga þegar
hann leggur að jöfnu vinnubrögð í
áróðursmyndum nasista og mynd-
málið í „Bóndi er bústólpi“ og þátt-
um Baldurs Hermannssonar, „Þjóð
í hlekkjum hugarfarsins". Og Art-
húr sem að eigin sögn er „höfundur
heimildarmynda um ýmis efni“ og
sérfræðingur í málefnum Þriðja rík-
isins ætti að vita um hvað hann er
að tala. Það er ekki hætta á að slík-
ur maður „klæmist" um svo alvar-
leg efni eins og hann segir þá gera
sem kalla fyrrnefnda þætti heimild-
armyndir. Eða hvað?
Arthúr segist eingöngu vera að
tala um framsetningarmátann. Ég
læt því hjá líða að spyija hann
hvaða nasistamyndir hann hafi séð
sem stjórnast af jafn mikilli réttlæt-
istilfinningu og samúð með málstað
lítilmagnans og „Þjóð í hlekkjum
hugarfarsins" eða hvar nasistar
taka upp hanskann fyrir fátæka
gyðinga eins og „Bóndi er bústólpi"
gerir hvað varðar smábændur. En
lítum á röksemdir hans um vinnu-
brögðin.
Að segja „hvað sem er“
í Dagsljóssþætti í Sjónvarpinu
hinn 3. þ.m. útskýrir hann saman-
burð sinn á þennan hátt: „Áróður
er alltaf sjálfum sér líkur og þar
er um að ræða að nasistar lögðust
á gj'ðinga með því að beita alls
kyns bellibrögðum sem kvikmynda-
listin hefur yfir að ráða, t.d. drama-
tískri tónlist, t.d. tómum göngum
og skotum sem eru út í hött og
tengjast ekki efninu, þeir að vísu
skutu ýmist á gyðinga eða þá rott-
ur eða eitthvað því um líkt og ef
þú skoðar þessar myndir sem þarna
var um að ræða þá muntu sjá viss
líkindi því að áróðursmyndir — ég
hefði getað sagt hvað sem var —
þær eru alltaf sjálfum sér líkar —
þær byggja á ákveðnum grundvall-
arreglum."
„Ég hefði getað sagt hvað sem
var“ sagði Arthúr og það gerði
hann. Með sömu röksemdafærslu
væri hægt að líkja Litrófsþáttum
Arthúrs sjálfs við áróðursmyndir
nasista. Ég hef ekki skoðað þá með
þetta í huga, en mig grunar að í
þeim sé að finna dramatíska tón-
list, og skot um tóma ganga og
myndlistarsali landsins. Makalaus-
ust er þó setningin um „skot sem
eru út í hött og tengjast ekki efn-
inu ...“. Ég veit ekki hversu mikinn
þátt Arthúr átti í myndgerð þátta
sinna, (sem er auðvitað forsenda
þess að hann geti kallast höfundur
þeirra), en hann hlýtur að kannast
við það að kvikmyndagerðarmenn
reyna einatt að skapa nýja merk-
ingu og hugrenningatengsl með því
að tengja saman að því er virðist
ólík myndskeið. Annaðhvort tekst
þetta eða þá að þetta er út í hött
og einungis til marks um að kvik-
myndagerðarmaðurinn kann ekki
til verka. Að segja að þetta beri
vitni þeirri ótrúlegu mannvonsku
sem fram kemur í myndinni „Der
ewige Jude“, nasistamyndinni þar
sem gyðingum er líkt við rottur og
sem Arthúr virðist hafa í huga, það
er í orðsins fyllstu merkingu að
„klæmast" með óhugnanlegustu
atburðina í manna minnum.
Höfundur er kvikmynda■
gerðarmaður.
Kópavogsbúar
Bæjarfulltrúinn Gunnar Birgisson, formaður
bæjarráðs, og varabæjarfulltrúinn Kristín
Líndal, formaður lista- og menningarráðs,
verða til viðtals í dag, laugardaginn 12. febr-
úar í Hamraborg 1,3. hæð, kl. 10.00-12.00.
Sjálfstæðisfélög Kópavogs.
Til sölu litib notub
skrúfuloftþjappa
INGERSOLL-RAND
HACSTÆTT VERÐ
Gerð SSR-MH-110.10 bar 123,5 kw 16,0 m3 267 L/S.
Upplýsingar í síma 691103
ptorgpmlMiib
MUSTAIMI! ISIÆXSKItAU MYMItlSTAIi.
3.4oÍTkr. NÚ 995 kr.
VAK4-HEÍGAFH1
Siftumúla 6, siml 688 300
Bókamarkaður Vöku-Helgafells
IITRIMIÍ VGRDLÆKKH!
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á bókamarkaði
Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að Síðumúla 6 í Reykjavík!
Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum
verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum
tegundum við allra hæfi.
Opið alla virka daga frá kl. 9 til 18,
laugardaga frá kl. 10 fil 16
og sunnudaga frá kl. 12 til 16.
ISLANDSELDAR.
Glæsileg litprentuð
bók um eldvirkni
eldstöðva á íslandi
undanfarin 10.000 ár.
Um 200 Ijósmyndir,
sérunnin kort og
skýringarmyndir.
Nú er tækifærið að eignast eftirprentanir
af verkum nokkurra virtustu myndlistar-
manna þjóðarinnar, m. a. eftir...
ÁSGRÍM JÓNSSON,
JÓHANNES S. KJARVAL,
ÞORVALD SKÚLASON,
GUNNLAUG SCHEVING,
NÍNU TRYGGVADÓTTUR.
y