Morgunblaðið - 12.02.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
51""
URSLIT
*
I
i
-+
Körfuknattleikur
ÍS - Tindastóll................62:52
1. deild kvenna í körfuknattleik:
Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 20, Ásta Ósk-
arsdóttir 13, Helga Guðlaugsdóttir 13, Sól-
veig Pálsdóttir 7, Unnur Hallgrimsdóttir
5, Kristín Sigurðardóttir 2, Elínborg Guðna-
dóttir 2.
Stig Tindastóls: Kristín Magnúsdóttir 14,
Bima Valgarðsdóttir 12, Inga Dóra Magn-
úsdóttir 10, Petrena Buntic 9, Sigrún Skarp-
héðinsdóttir 5, Selma Bárðardóttir 2.
BTindastóll kom miklu ákveðnari til leiks
og náði 15 stiga forskoti en um miðjan
fyrri hálfleik tóku ÍS-stúlkur við sér og
náðu að minnka muninn í sjö stig fyrir hlé.
Staðan var 25:32 í hálfleik. ÍS átti síðan
allan seinni hálfleikinn og náði að komast
yfir þegar fimm mín. vom eftir. Eftirleikur-
inn einkenndist af mikilli baráttu. Best í
liði Tindastóls var Kristín Magnúsdóttir en
lið ÍS var jafnt; þetta var sigur liðsheildar-
innar.
KR-UMFG........................64:45
Hagaskóli:
Gangur leiksins: 2:4, 6:6, 18:11, 25:16,
34:20, 43:22, 53:35, 58:39, 62:41, 64:45.
Stig KR: Kristin Jónsdóttir 15, Helga Þor-
valdsdóttir 11, María Guðmundsdóttir 9,
Guðbjörg Norðfjörð 8, Eva Havlikova 7,
Anna Gunnarsdóttir 4, Sara Smart 4, Sól-
veig Ragnarsdóttir 3, Hrund Lárusdóttir
2, Hildur Þorsteinsdóttir 1.
Stig UMFG: Stefanía JónSdóttir 15, Anna
Dís Sveinbjömsdóttir 11, Svanhildur Kára-
dóttir 5, Hafdís Sveinbjömsdóttir 5, Hafdís
Hafberg 4, María Jóhannsdóttir 2, Anita
Sveinsdóttir 2, Sandra Guðlaugsdóttir 1.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Karl
Friðriksson.
Áhorfendur: 80.
■KR-stúlkur komu ákveðnar til leiks og
ætluðu sér að hefna ófaranna síðan f úndan-
úrslitum bikarkeppninnar. Grindavík komst
í 4:2, en síðan tóku KR-stúlkur leikinn í
sínar hendur. Kristín Jónsdóttir átti stórleik
fyrir KR í fyrri hálfleik ásamt Maríu Guð-
mundsdóttur, sem setti tvær þriggja stiga
körfur niður í lokin. Anna Dís Sveinbjöms-
dóttir og Stefanía Jónsdóttir vora bestar f
liði Grindavfkur.
1. deild karla
ÍR-Leiknir.....................70:63
NBA-deildin
Atlanta - Miami................114:98
BDominique Wilkins komst f 10. sæti yfir
stigahæstu leikmenn NBA frá því deildin
var stofnuð, en kappinn gerði 33 stig gegn
Miami. Kevin Willis gerði 24 stig og tók
22 fráköst og Stacey Augmon gerði 20 stig
og tók 10 fráköst.
Detroit - Houston..............81:104
■Olajuwon skoraði 28 stig fyrir Houston
og tók auk þess 20 fráköst. Scott Brooks
gerði 15 stig en nýliðinn Allan Houston var
stigahæstur hjá Detroit með 19 stig og Is-
iah Thomas gerði 18.
New York - Golden State........105:113
■Latrell Sprewell gerði 41 stig fyrir Gold-
en State og er það met hjá honum í ár.
Chris Mullin gerði 21 stig og Chris Webber
13. Patrick Ewing var stigahæstur heima-
manna með 24 stig og John Starks gerði 22.
Milwaukee - Chicago............80:97
■Scottie Pippen er í miklu formi þessa
dagana og gerði 23 stig gegn Milwaukee
og Steve Kerr gerði 15. Varamenn Chicago
gerðu 41 stig f leiknum en varamenn heima-
manna aðeins 9. Todd Day gerði 26 stig
fyrir Bucks og Frank Brickowski T7.
Dallas - Washington.............87:77
■ Dallas vann annan leikinn f röð og það
þykir frétt til næsta bæjar. Jamal Mashbur
gerði 16 stig fyrir Mavs og Doug Smith 14.
San Antonio - Denver............94:87
■David Robinson gerði 29 stig fyrir Spurs
og Vinny Del Negro 16. Þetta var níundi
sigur liðsins f röð og sfðan 26. desember
hefur liðið unnið 20 leiki en tapað þremur.
Þetta var 15 sigurinn í röð á heimavelli
gegn Denver.
LA Lakers - Sacramento.........84:103
■Lionel Simmons gerði 33 stig er Kings
lögðu Lakers f þrijja sinn í vetur. Nick Van
Exel gerði 17 fyrir LAkers og Elden Camp-
bell 15.
FELAGSMAL
Æfingaaðstaða hjá GK
Golfklúbburinn Kjölur opnar innahúss æf-
ingaaðstöðu að Flugumýri 24 í Mosfelisbæ
á laugardaginn kl. 14.00.
Arshátíð GK
Árshátíð golfklúbbsins Kjalar verður haldin
í Hlégarði, laugardaginn 25. febrúar. Miðar
verða seldir í golfskálanum, laugardaginn
12. og 19. febrúar.
3 á 3 hjá Leikni
Körfuknattleiksdeild Leiknis gengst fyrir
firmakeppni í körfuknattleik miðvikudaginn
23. febrúar í [jiróttahúsinu við Austurberg
og hefst mótið kl. 20.30. Þátttökugjald er
6.000 krónur á lið og nánari upplýsingar
er hægt að faí síma 78050 og þar fer skrán
ing einnig fram eða í myndsendi 78025.
Námskeið hjá ISÍ
Frasðslunefnd ÍSl mun gangast fyrir tveim
ur leiðbeinendanámskeiðum í febrúar og
verða þau haldin í íþróttamiðstöðinni
Laugardal. Skráning á skrifstofu ÍSÍ.
1. Grannstig ÍSt verður helgina 18. - 20
febrúar.
2. A-stig ÍSÍ verður helgina 25. - 27. febr-
úar.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Selfyssing-
ar kaffærðu
lið ÍR-inga
Sigurður
Jónsson
skrífar
frá Selfossi
„ÉG hætti að finna til í seinni
hálfleik og þá fór þetta að
verða gaman,“ sagði Einar
Gunnar Sigurðsson fyrirliði
Selfossliðsins sem fór á kost-
um íleiknum gegn ÍRá Sel-
fossi í gærkvöldi. Leikurinn var
jafn framanaf en fljótlega í síð-
ari hálfleik náðu Selfyssingar
góðri sóknarkeyrslu, vörn og
markvörslu og stungu ÍR-inga
af og lokatölurnar urðu 28:20.
Við ákváðum að koma tvíefldir
í síðari hálfleikinn, það hefur
háð okkur undanfarið að við höfum
verið að tapa síðari
hálfleikjunum. Ætli
við séum ekki komn-
ir úr hlutlausum
núna og við það að
komast í góðan keyrslugír," sagði
Einar Gunnar Sigurðsson.
„Selfyssingar náðu að hleypa
leiknum upp í sitt tempó með mörg-
um mörkum. Þeir fengu að ráða
ferðinni í lokin og höfðu þar með
sigur á því. Leikurinn leystist upp
Selfoss - IR 28:23
íþróttahúsið á Selfossi, íslandsmótið [ hand-
knattleik karla 11. febrúar 1994.
Gangur leiksins: 1:1, 2:3, 5:5, 9:8, 10:10,
11:11 12:12 12:13, 15:14, 17:15, 19:17,
21:18, 22:20, 25:20, 27:22, 28:23.
Mörk Selfoss: Einar Gunnar Sigurðsson
8, Gústaf Bjamason 7, Sigurjón Bjamason
6, Sigurður Sveinsson 5/2, Jón Þ. Jónsson 2.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 13, Ás-
mundur Jónsson varði eitt víti.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk ÍR: Róbert Þór Rafnsson 8, Branislav
Dimitriwits 7/2, Hjálmar Vilhjálmsson 4,
Jóhann Ásgrímsson 2, Björgvin Þorgríms-
son 1, Njörður Ámason 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 4, Se-
bastían Alexandersson 11.
Utan vallar: 6 mtnútur
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson dæmdu vel.
Áhorfendur: um 350.
2. deild karla
tBK - Ármann....................25:29
Knattspyrna
Þýskaland
W attenscheid - Dynamo Dresden....1:1
Gladbach - Karlsrahe..............1:2
Holland
Vitesse Amhem - Willem 11 Tilburg.0:1
Belgía
Mechelen» Anderlecht..............1:0
Íshokkí
NHL-deildin
Boston - Buffalo................ 3:3
Philadelphia - Florida.......... 4:3
■Framlengja þurfti þessa tvo leiki.
New Jersey - Vancouver............7:3
Ottawa - Tampa Bay................2:6
Pittsburgh - NY Islanders.........3:5
St. Louis - Washington............3:4
KNATTSPYRNA
í þeirra hraða og við gerðum of
mörg mistök og nýttum ekki færin.
Svo brast hjá okkur vömin og mark-
varslan," sagði Brynjar Kvaran
þjálfari ÍR-inga.
Það var nánast jafnt á öllum
tölum í leiknum og greinilegt að
ÍR-ingar ætluðu sér ekki að missa
takið á Selfyssingum en rétt fyrir
miðjan síðari hálfleikinn hófst yfir-
keyrsla Selfyssinga og þeir stungu
andstæðingana af. Einar Gunnar
gerði 6 mörk i síðari hálfleiknum
og stórleikur hans hleypti krafti í
félaga hans og tók andstæðingana
um leið greinilega á taugum því
mistök þeirra voru ótrúleg á köflum.
Einar Gunnar Sigurðsson, fyrirliði Selfossliðsins, fór á kostum í leiknum
gegn ÍR í gærkvöldi og gerði alls átta mörk.
Úrslitaleikir bikarkeppninnar:
Mótanefnd tekur af skarið
MÓTANEFND HSÍ ákveöur í dag hvenær úrslitaleikirnir í bikar-
keppni karla og kvenna verða. Leikirnir eiga að fara fram 20.
febrúar samkvæmt mótaskrá, en HSÍ hefur lagttil að báðir
verði í Laugardalshöll, kvennaleikurinn 19. febrúar og karla-
leikurinn 5. mars til að tryggt sé að þeir verði sýndir í beinni
útsendingu Sjónvarpsins.
Forsvarsmenn kvennaliða ÍBV
og Víkings setja leikdag ekki
fyrir sig, en deilt hefur verið um
leikstað og dagsetningu karlaleiks
FH og KA. Formenn handknatt-
leiksdeilda félaganna komust að
samkomulagi um að leika í Kapla-
krika 19. febrúar, en síðar kom í
ljós að húsið var upptekið þennan
dag. Þá var athugað með 26. febr-
úar á sama stað, en að sögn Sig-
urðar Sigurðssonar, formanns
handknattleiksdeildar KA, tók
HSÍ ekki í mál að fresta deildar-
leikjum félaganna daginn eftir.
Þar með var ljóst að félögin gætu
ekkert gert í málinu, þrátt fyrir
góðan vilja, að sögn formann-
anna, og var boltinn því aftur hjá
HSÍ, sem tekur af skarið í dag.
Ljóst er að FH vill ekki Ieika á
Akureyri, en þar stendur til boða
að leika í íþróttahöllinni án endur-
gjalds hvenær sem er. Kaplakriki
er upptekinn 5. mars vegna fijáls-
íþróttamóts og félögin vilja ekki
ieika 12. mars vegna þess að þau
mætast í deildinn 9. mars. Því
bendir allt til þess að leikurinn
verði f Lauganialshöll, en það
skýrist í dag.
KORFUKNATTLEIKUR
Stjörnuleikur KKÍ og SÍ
Barátta bestu leik-
manna deildarinnar
BESTU körfuknattieiksmenn úrvalsdeildar að mati lesenda Morg-
unblaðsins og DV og áhorfenda á leikjum tveggja umferöa, sem
völdu liðin, mætast í árlegum stjörnuleik KKÍ og SÍ í íþróttahús-
inu við Austurberg kl. 16.45 ídag. Kl. 16 hefst troðslukeppni
og þriggja stiga skotkeppni, en húsið opnar klukkutíma áður.
Undirbúningur liðanna, sem
kynnt voru í blaðinu í gær,
hefst með töflufundi fyrir hádegi
og stjórnar Jón Kr. Gíslason liði
A-riðils en Valur Ingimundarson
liði B-riðils. Leiknar verða 4 x 12
mínútur og valinn verður leikmaður
leiksins, en í því sambandi verður
tekið tillit til allra þátta s.s. frák-
asta, stoðsendinga og stigaskorun-
ar.
Pepsi er styrktaraðili leiksins og
leggur m.a. til einstaklingsverðlaun
og búninga, sem verða eign leik-
manna. Gert er ráð fyrir fullu húsi,
en öllum iðkendum yngri flokka er
boðið á leikinn.
Sigurður leggur
skóna á hilluna
Sigurður Grétarsson, fyrrver-
andi fyrirliði íslenska lands-
liðsins, keppir ekki framar í knatt-
spyrnu. Hnéð á hon-
um leyfir það ekki.
Hann þjálfar nú 14
til 16 ára unglinga
hjá Grasshoppers og
vonast til að geta þjálfað áfram í
Sviss, annars snýr hann aftur heim
til íslands ásamt konu sinni og syni.
Sigurður var skorinn upp á hné
fyrir tæpu ári. Hann hefur ekki
getað spilað síðan-.en hefur verið á
tryggingalaunum hjá Grasshop-
Anna
Bjamadóttir
skrífar
fráSviss
pers. Nú liggur fyrir að knatt-
spyrnuferlinum er lokið. Trygging-
amar munu greiða honum ákveðna
upphæð sem örorkubætur. Þær
verða væntanlega á við ein árslaun
hjá Grasshoppers.
Sigurður hefur tekið þijú þjálf-
aranámskeið af fimm hjá sviss-
neska knattspymusambandinu og
vill snúa sér alfarið að þjálfun. Liði
hans hjá Grasshoppers gengur vel,
það er tveimur stigum á eftir liðinu
í efsta sæti og er í þriðja sæti í
sínum riðli.
Sigurður Grétarsson
íttiÓOtR
FOLK
■ ÚLFAR Jónsson kylfingur ur
Keili tók þátt í móti í Emerald-
mótaröðinni í vikunni. Ulfar lék á
70-70-76 eða alls á 216 höggum
og dugði það í 4. sætið. Úlfar sagð-
ist hafa slegið vel en púttað mjög
illa í rokinu síðasta daginn.
■ GARY Mabbutt, fyrirliði Tott-
enham, lék með varaliðinu í fyrra-
dag og var með sérstaka andlits-
hlíf, en hann meiddist alvarlega
fyrir þremur mánuðum. Hann von-
ast til að leika með aðalliði Spurs
á ný í lok mánaðarins.
■ JIM Magilton, hetja Oxford
gegn Leeds í bikarnum í vikunni,
var í gær seldur til Southampton
fyrir 600.000 pund. T-~>-
I ANDY Cole, sem hefur gert
30 mörk fyrir Newcastle í vetur,
meiddist á öxl í bikarleiknum gegn
Luton og verður frá í a.m.k. þijár
vikur.
■ BODO Illgner, landsliðsmark-
vörður Þýskalands, er ekki búinn
að gera það upp við sig hvort hann
verði áfram hjá Köln, eða gerist
leikmaður með Karlsruhe næsta
keppnistímabil.
■ JIMMY Nicholl, fyrrum lands-
liðsmaður N-írlands, sem hefur
verið aðstoðarmaður Billy Binfj^.
hams, landsliðsþjálfara, mun ao
öllum líkindum taka við starfi Bing-
hams.
■ ANTONIA Ordina keppir fyrir
Svía á Ólympíuleikunum í Lille-
haramer. Fyrir tæpum mánuði var
hin 32 ára skíðagöngukona Rússi
en gerðist sænskur ríkisborgari fyr-
ir skömmu og mun keppa í göngu
fyrir Svía. Hún sigraði í göngu á
HM árið 1987.